Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Síða 28
LAUGARDAGUR 24. JUNI 1995
LAUGARDAGUR 24. JUNI 1995
37
Margverðlaunaður íþróttamaður sem missti starfið:
Hef náð góðum árangri í þjálfun
- segir Ingi Björn Albertsson sem var sagt upp sem þjálfara ÍBK í knattspyrnu
m
„Staðan í málefnum mínum við
stjórn knattspyrnudeildar ÍBK er
þannig að við höfum náð samn-
ingum um starfslok og í þeirri yf-
irlýsingu kemur meðal annars
fram að menn harma þau stóru
ummæli sem hvor aðili um sig
viðhafði gagnvart hinum og
biðja hvor annan afsökunar.
Við skiljum eins sáttir og
hægt er að skilja í svona
máli. Það kom fram greinar-
gerð frá mér um málefni mín
við ÍBK og stjórn félagsins
hefur svarað fyrir sig. Það er
ýmislegt í því sem ég er ekki
sammála og ég tek ekki und-
ir,“ sagði Ingi Björn Alberts-
son sem nýlega fékk reisupass-
ann frá knattspyrnudeild ÍBK
eftir að aðeins fjórum umferðum
var lokið á íslandsmótinu.
Uppsögn Inga Björns sem þjálf-
ara hjá ÍBK hefur vakið mikla at-
hygli, sérstaklega í ljósi stóryrtra
ummæla deiluaðila hvors í ann-
ars garð. Einnig þegar tekið er
tillit til þess að lið Keflavíkur var
í þriðja sæti deildarinnar þegar
honum var sagt upp.
Framhaldið
forvitnilegt
„Þeir hjá iBK tala um það að
fyrra ár mitt sem þjálfari hafi átt
að vera uppbyggingartímabil. Ég
verð sennilega að biðjast afsök-
unar á því að ég kann ekki að
fara út í leik með öðru hugarfari
en að sigra. Það verður fróðlegt
að sjá breytingarnar sem verða
með nýjum þjálfara með fyrri yf-
irlýsingar í huga. Einnig að sjá
hverjir af reyndari leikmönnum
félagsins fara út. Það verður
einnig spennandi að sjá hvort
nýir þjálfarar fá fleiri en fjóra
leiki og hvort þeir þurfa ekki að
hala inn meira en 7 stig í þeim
leikjum til þess að þeir verði ekki
í hættu með að verða reknir.
Ég lít á Keflavíkurliðið í dag sem
rós sem á eftir að springa út. Það
er búið að fara í gegnum erfið-
asta tímann, sem er auðvitað
undirbúningstimabilið. Það hef-
ur staðið sig ágætlega í deildinni
og er á þessum stað þrátt fyrir að
tveir lykilmenn í liðinu, Ragnar
Margeirsson og Kjartan Einars-'
son, séu ekki enn komnir í sitt
besta form. Það orsakast af því að
þeir fóru í aðgerð rétt fyrir mót.
Ég hafði sagt stjórnármönnum
mörgum sinnum að það yrði að
gefa mönnum leiki til þess að
þeir kæmust í spilaform.
Við vissum að þetta
myndi bitna á sóknar-
leik liðsins og það
Hvernig það verður gert skal ég
ekkert segja um en það er alveg
ljóst að knattsþyrnusambandið
og Þjálfarafélag íslands verða að
koma inn i þá samninga og verða
þá einhvers konar verndarar
þjálfara. Ég hef að vísu ákveðnar
hugmyndir í því efni en ég skal
ekki segja hvort þær eru þær
einu réttu. Ég vil koma á fram-
færi þakklæti til Þjálfarasam-
bandsins fyrir skjót viðbrögð í
þessu máli.
Það er ekki nóg að segja, eins og
fram hefur komið í þessari um-
ræðu, að með háum launum „þá
eigi þau að vega á móti starfsör-
yggi“. Það er aldrei hægt að
leggja neitt krónulegt mat á
starfsöryggi."
- Finnst þér samt ekki eðlilegt að
þjálfarar búi við eitthvert starfsó-
öryggi vegna þess aö þeir eru
misjafnlega hæfir til að sinna
starfi sínu og hljóta að verða sí-
fellt fyrir gagnrýni?
„Nei, það er aldrei eðlilegt að
samningar standi ekki. Ef menn
gera samninga þá er auðvitað
gert ráð fyrir því að þeir standi.
Ef annar hvor aðilanna er ósátt-
ur við framlag hins þá setjast
menn niður og ræða það hvort
hægt sé að lagfæra þá hluti sem
menn eru óánægðir með.
Ef menn telja að það náist ekki
þá ræða menn á næsta stigi um
það hvort hægt sé að leysa við-
komandi undan þeim samningi
sem gerður var. Það á ekki að
brjóta samninga, hvort sem það
er knattspyrnuþjálfun eða eitt-
hvað annað. Það hlýtur að grafa
undan gildi samninga ef það er
gert.“
Undirbúningur liðsins hefur
einnig verið gagnrýndur. En það
er sá undirbúningur sem ég við-
hafði sem skilaði Val bikarmeist-
aratitli árin 1990, 1991 og 1992.
Árið 1993 var svipaður undirbún-
ingur með Breiðabliki og þá vann
ég aðra deildina með þeim. Árið
1994, þrátt fyrir mikil áföll, náði
ég 6-7 sæti meö Breiðabliki. Árið
1995 er ÍBK í þriðja sæti með
sama undirbúningi. Þess vegna
get ég ekki tekið undir það að
undirbúningi sé ábótavant.“
Vantar
rökstuðning
- Hvað með orðróm um það að
þjálfunaraðferðir þínar hafi orðið
til þess að meiðsli á leikmönnum
voru tíð?
„Það er mjög auðvelt að setja
svona fram án þess að rökstyðja
það. Það hefur verið nefnt að þeg-
ar mest var hafi ellefu leikmenn
verið meiddir. í þeirri tölu voru
menn sem meiddust annars stað-
ar en hjá mér, væntanlega í öðr-
um flokki.
Vissulega voru töluverð meiðsli
hjá okkur, eins og hjá öðrum
reyndar, en ef við forum yfir
hvern og einn leikmann þá er
afar erfitt að benda á einhver
meiðsli sem hægt er að segja að
séu vegna þjálfunarinnar. Menn
fá spark í leik; einn fer í æða-
hnútaaðgerð, annar kemur
meiddur úr viðkomu í öðru liði,
vegis.
Það er afar erfitt að kenna þjálf-
un um það. Svona er hægt að
stilla málum upp en þegar menn
setja svona fram er æskilegra að
það sé rökstutt með einhverjum
að þjálfunaraðferðir þínar séu
„Mannslíkaminn hefur svo sem
minnstu hlaupin af öllum liðum í
deildinni. Hinu er ekki að leyna
að aðrar æfingar kalla eðlilega á
hlaup. Knattspyrna er slík íþrótt
að ætlast er til að menn séu á
hlaupum stóran hluta leiksins.“
- Varst þú á háum launum sem
þjálfari hjá ÍBK?
„Ég tel að eftir því sem ég heyri
frá öðrum þjálfurum hafi ég ver-
ið í lægri kantinum, ef ekki með
þeim lægstu í launum. Mínar
launakröfur hafa ekki 'verið háar
miðað við það sem gengur og ger-
ist í starfinu.“
„Eins og málin standa núna á ég
ekki von á því að ég þjálfi meira
á þessu ári. Ég sný mér þá að öðr-
um hugðarefnum, golfi og vinn-
unni sjálfri. Óneitanlega tekur
þjálfunin verulegan hluta tímans
frá manni úr hinni eigin-
legu vinnu manns,
mun meiri tími en
maður áttar
sig á.
Það fer
töluvert
eftir því
hver einasta knattspyrnudeild í
landinu er í verulegum fjárhags-
erfiðleikum. Menn mega ekki
horfa fram hjá þeim veruleika að
við búum í litlu þjóðfélagi þar
sem mæta svona á bilinu 400-1000
manns á völlinn.
Það liggur ljóst fyrir að tekju-
möguleikar félaganna eru mjög
litlir og nánast óhugsandi að hér
sé hægt að taka upp hálfatvinnu-
mennsku eins og dæmin hafa
sýnt undanfarin ár. Ef greiða á
fyrir gangi knattspyrnunnar
verður að tengja starfsemina
mun nánar afkomu félaganna á
einhvern hátt svo þau séu ekki að
steypa sér í skuldafen."
aö hafa metið þá menn sem voru
í forystu fyrir flokkana, að ég
treysti Halldóri Ásprímssyni best
af þeim mönnum. Eg hef reyndar
einnig sagt að ég mun aldrei get-
að kosið Sjálfstæðisflokkinn á
meðan Davíð Oddsson er þar við
völd. Ég er hins vegar í Sjálfstæð-
isflokknum og verð áfram í hon-
um.
Ég aðhyllist þá stefnu sem hinn
eiginlegi Sjálfstæðisflokkur á að
fylgja en gerir því miður allt of
lítið af. Ég er ekkert kominn í
neinn annan flokk. Ég vona það
samt, eins og margir aðrir íslend-
ingar, að þetta gamla flokkakerfí
fari að deyja drottni sínum og hér
komi frjálslyndari öfl til sögunn-
ar. Ef eitthvað slíkt kemur, upp
með trúðverðugu og traustu fólki
er ekki ólíklegt að ég vilji styðja
við bakið á slíkri hreyfingu.
Siðferðið í pólitíkinni er þannig í
dag, eins og fólk skynjar, að heil-
indin eru af ákaflega skornum
skammti. Reynslan sýnir að
menn eru allt of mikið að
hugsa um eigin hag, hvernig
þeir koma sjálfum sér áfram
eða sínum umbjóðendum til
þess að það leiði svo aftur
til góðs fyrir þá síðar
meir. Þetta fannst mér
strax mjög sláandi og er
því miður staöreynd."
- Hvemig líður þér að
vera óvirkur áhorfandi
nú þegar gamalt baráttu-
mál þitt, þyrlukaupin, er
loks orðið að veruleika?
„Líðan mín einkennist
fyrst og framst af gleði og
stolti yfir þvi að hafa átt þátt
í því að þetta merka tæki
skuli vera að komast í eigu
þjóðarinnar. Það voru einmitt
þyrlumálin sem voru upphaf og
endalok á afar stuttu samstarfi
míns og Davíðs Oddssonar."
Hulduherinn
þá til
:ð umræður um hinn
Kjartan
gera ekkert
annað en að
bæta við sig héðan
í frá. Síðan eru aðrir
leikmenn að koma úr
meiðslum og framtíðin á því
að vera björt hjá liðinu. Auð-
vitað er mér hlýtt til leik-
manna Keflavíkurliðsins, ég
vil að þeim gangi vel og
óska þeim og þjálfaranum
góðs gengis á tímabilinu.
Ágætt að
fá umræðuna
Miklar umræöur hafa orð-
ið um uppsögn Inga Björns
og einnig Marteins Geirs-
sonar hjá Fram og rætt hef-
ur verið um hvort bæta
þurfi starfsumhverfi knatt-
spymuþjálfara hér á landi.
„Það er ágætt aö þetta máli
skuli hafa komið upp, þó
að ég fagni því ekkert
sérstaklega að hafa lent
í því sjálfur. Það fer af
stað umræða um
starfsöryggi þjálfara
yfirleitt ogég held að
þetta muni^iða til
þess að menn finni
leiðir til að tryggja
þjálfara betur í starfi en
nú er.
taka til deilumáls
Inga Björns og stjórnar félagsins.
„Síðasti leikurinn sem ég stjórn-
aði var gegn ÍBV og ég gat ekki
séð annað en að menn væru
sæmilega lukkulegir með sinn
hlut þá. Ég kannast ekki við það
að menn i liðinu hafi verið neitt
þrúgaðir af leiðindum.
Það hafa nokkrir leikmenn
hringt í mig og lýst furðu sinni á
atburðum. Hverjir hafa svo aftur
bakkað stjórn félagsins upp veit
ég ekki. Það er nú vafalaust
þannig, þegar svona mál koma
upp, að leikmenn foröast að gefa
upplýsingar. Þeir verða áfram í
félaginu og eru samningsbundnir
því og því skynsamlegt fyrir þá
að halda sig til hlés. Vafalaust
eru samt einhverjir sem bakka
stjórnina upp í ákvörðun hennar.
Einnig hefur því verið haldið
fram að það hafi vantað kraft í
liðið. Ég held einmitt að ÍBK hafi
verið þekkt fyrir það á þessu
timabili að kraftur hafi einkennt
spilamennskuna og þeir séu
einmitt í þriðja sæti nú, meðal
annars vegna þess.
u m
ö 1 d u m .
Auðvitað hef-
ur þekkingin
aukist verulega og
menn hafa tileinkað sér mis-
munandi aðferðir til að koma lið-
um í æfingu. Það er hægt að gera
með ýmsum hætti og ég geri það
með þeim hætti sem ég kann best
og tel að hafi skilað árangri í
gegnum tíðina.
Þannig er ég ekkert að segja að
aðrar aðferðir séu ekki góðar.
Um leið get ég alveg viðurkennt
það að mínar aðferðir eru ekki
nýjasta tækni og vísindi í þeim
efnum. En þær hafa skilað mér
árangri í þjálfun og á meðan það
gerist held ég þeim áfram.“
Hlupum
minnst allra
„Hvað varðar hlaupin þá er látið
í það skína að leigður hafi verið
völlur í Hafnarfirði og því haldið
fram aö hann hafi einungis verið
notaður í hlaupaæfingar. Stað-
reyndin er sú að við æfðum fjór
um sinnum í viku og hlupum
langhlaup tvisvar í viku. í bæði
skiptin var það í Keflavík.
Ég hygg að ef menn nenntu að
fara í samanburð við önnur lið þá
höfum við sennilega verið með
hvernig
gengur í
heildverslun-
inni hvernig fram-
haldið verður. Ef hún
gengur vel er ég ekkert viss
um að ég snúi mér að þjálfun aft-
ur. Mér hefur samt gengið afar
illa að slíta mig frá knattspyrn-
unni sem ég hef verið að dunda
mér við frá fimm ára aldri.“
- Hvernig finnst þér knattspyrnu-
málin standa í dag?
„Knattspyrnan hefur breyst mjög
mikið á siðustu árum. Ekki ein-
staklingarnir sem slíkir, við átt-
um góða menn þegar ég var að
byrja og sama gildir í dag. Leik-
skipulag allt hefur breyst mikið,
menn eru farnir að spila mikíð
agaðar og eru sér einnig meðvit-
aðri um varnarleikinn.
Út úr því kemur oft ekki eins
skemmtileg knattspyrna. Það er
nú á dögum mun minna pláss fyr-
ir þessa flinku boltamenn sem
blómstruðu hér áður. Þeir eru
bókstaflega teknir út úr leiknum
ef þeir eru til staðar.
Hins vegar má alveg minnast á
siðferðið í boltanum í dag. Það er
orðið allt annað, inn eru komnir
peningar sem voru ekki fyrir
hendi fyrir nokkrum árum. Flest-
um leikmönnum er ekkert orðið
heilagt lengur í hvaða liði þeir
spila og því er minna um það að
menn spili með félagshjartanu
eins og æskilegt þótti á árum
áður.
Þetta er slæm þróun og það sést
meðal annars á því að nánast
Áfram
sj álf stæðismaður
Ingi Björn Albertsson
sat 8 ár á þingi en bauð
sig ekki fram í síðustu
alþingiskosningum.
Vangaveltur hafa verið
um það hvort Ingi
Björn muni í framhald-
inu ganga til samstarfs
við annan flokk en
Sjálfstæðisflokkinn eða
jafnvel hætta alveg af-
skiptum af stjórnmál-
um.
„Það er skammur tími
frá því ég var á þingi,
ekki nema 3-4 mánuð-
ir, og ég er því ekkert
farinn að hugleiða það
hvað ég geri eftir tæp-
lega 4 ár þegar næst
verður kosið. Vonandi
verður það ekki fyrr.
Það er svipað og með
knattspyrnuna, fram-
haldið byggist að veru-
legu leyti á því hvernig
gengur í einkarekstrin-
um, hvort ég tími
hreinlega að fara aftur
út í pólitíkina.
Heildsölufyrirtækið
leið verulega fyrir það
að ég eyddi 8 árum í al-
þingisstörfin og ég er
ekki tilbúinn að leggja
þetta fyrirtæki aftur á
línuna. Ef staðan er
slík að það er óhætt að
gera það mun ég vafa-
laust hugsa það dæmi.
Ég gaf þá yfirlýsingu
fyrir kosningar, eftir
er ennt
- Hvað með
svokallaða „hulduher". Er hann
enn þá starfandi og samanstend-
ur hann ef til vill aðeins af einu
nafni, Helenu Albertsdóttur?
„Helena á mikinn heiður skilinn
fyrir hulduherinn, stofnun hans
og stjórnun á honum á meðan
hún var hérlendis, enda kann
hún það manna best.
Þó að Helena sé erlendis er
hulduherinn samt sem áður enn
þá til. Að vísu hefur eitthvað
kvarnast úr honum, bæði með
stofnun Borgaraflokksins og
dauða hans. Glöggir menn hafa
eflaust orðið varir við það í síð-
ustu kosningum að hulduherinn
er enn þá til.“
- Nú eruð þið mörg í heimili, þið
hjónin og sex börn. Er þetta ekki
erfitt heimilishald?
„Ég legg skammarlega lítið til
vinnu á heimilinu. Það skýrist
kannski að einhverju leyti af því
að ég hef verið önnum kafinn, í
heildsölunni, þinginu og við þjálf-
un og svo rekum við hjónin versl-
un.
Heimilishaldið er auðvitað mjög
þungt og erfitt og marga munna
að fæða og klæða. Þetta hefst
samt einhvern veginn og við höf-
um aldrei séð ástæðu til þess að
fá hjálp á heimilið."
Börnin
flest í íþróttum
Ingi Björn er af þekktri íþrótta-
fjölskyldu, faðir hans gat sér gott
orð sem atvinnumaður í knatt-
spyrnu, Ingi Björn var sjálfur
einn skæðasti sóknarmaður í ís-
lensku knattspyrnunni um árabil
og börn Inga Björns og Magda-
lenu Kristinsdóttur virðast ætla
að feta í fótsporin.,,Elsta stelpan
mín er í 21 árs landsliðinu og í
meistaraflokki Vals. Elsti strák-
urinn minn er að byrja aftur í
knattspyrnu. Barn númer fjögur
er mikill körfuboltamaður og
yngsti strákurinn er afar efnileg-
ur knattspyrnumaður í Fylki.
Svo er yngsta barnið mitt stelpa
og ekki komið í ljós enn hvort
hún fetar íþróttabrautina.
Næstelsti sonur minn og nafni er
hins vegar sá eini sem er ekki í
íþróttum, sextán ára gamall og
spilar í hljómsveit. Ég hef reynt
að hafa áhrif á börnin mín og
reynt að beina áhuga þeirra að
íþróttum eða því sem
hugur þeirra stendur
til. Ég viðurkenni að
hafa sett pressu á elsta
son minn því hann er
mikið efni í góðan
knattspyrnumann. Á
tímabili virtist hann
missa áhugann en
hann er byrjaður aftur
og ég hef trú á því að
hann láti að sér kveða
á næstu árum.“
Hætti ekki í
neftóbakinu
- Mönnum hefur orðið
tíðrætt um neftóbaks-
notkun þína. Er það
ekki stórhættuleg
iðja?
„Það er svo margt
hættulegt - sykur er
hættulegur ef maður
misnotar hann. Auð-
vitað er neftóbak ekki
af hinu góða en innan
skynsamlegra marka
held ég að það sé ekki
bráðdrepandi. Neftó-
baksnotkun er auðvit-
að ekki til eftirbreytni
og ég hvet engan til
þess að gera þetta. Ég
er samt ekkert á því
að hætta'.'
IS
„Ég hef reyndar einnig sngt cið ég muni aidreigeta kosið Sjdlf-
stæðisflokkinn d nteðan Davíð Oddsson er þar við völd
segir lngi Björn Albertssön í viðtalinu. DV-myndir GVA