Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Síða 34
42
LAUGARDAGUR 24. JUNI 1995
Fréttaljósmyndasýningin World Press Photo '94 hefst í Kringlunni 16. september:
Hutu-maður
sem misþyrmt var
af félögum sínum
- stríðið og flóttamannabúðimar í Rúanda verkefni ljósmyndarans James Nachtweys
World Press Photo hefur verið við
lýöi frá því á árinu 1955. Bakhjarlinn
er styrktarsjóður sem hefur það að
markmiði að verðlauna bestu frétta-
myndir hvers árs. Höfuðstöðvarnar
eru í Hollandi, þar sem hið endanlega
val fer fram, en verðlaunaféð kemur
frá styrktaraðilum víða um lönd.
Skemmtilegustu
sumarmyndirnar
Á sama tíma og bestu fréttaljós-
myndir heims hanga í Kringlunni
verða einnig til sýnis verðlauna-
myndimar í sumarmyndasam-
keppni DV og Kodak umboðsins. Sjö
verðlaunamyndir úr þeirri sam-
keppni verða stækkaðar hjá Kodak
umboðinu af því tilefni og verða á
sýningunni í Kringlunni.
-ÍS
Togstreita milli þjóðarbrota Hutu-
og Tutsi-manna í Rúanda hefur verið
við lýði í áratugi. í apríl á síðasta ári
fórst forseti landsins, Habyarimana,
í flugslysi og sá atburöur var neistinn
sem tendraði bálið. Hutu-meirihlut-
inn í landinu gekk berserksgang
gegn Tutsi-þjóðflokknum sem var í
minnihluta og myrti hundruð þús-
unda.
Tutsi-þjóðflokkurinn flúði suöur á
bóginn úr landinu í flóttamannabúð-
ir við Saír og þar eru enn yfir ein
milljón manna. Fréttaljósmynd árs-
ins er af manni af Hutu-ættflokki.
Félagar hans misþyrmdu honum illi-
lega fyrir að neita að taka þátt í of-
beldisverkum gegn fólki af Tutsi-
þjóðflokknum.
Þessi mynd og aðrar verðlaunaöar
fréttaljósmyndir verða til sýnis á
sýningunni World Press Photo sem
hefst í Kringlunni laugardaginn 16.
september og stendur til 2. október.
Fleiri myndir
verðlaunaðar
Sýningunni World Press Photo er
skipt í flokka og veitt eru verðlaun
fyrir þrjár bestu myndirnar í hverj-
um flokki. Þessir flokkar eru: frétta-
myndir af atburðum, almennar
fréttamyndir, fólk í fréttum, íþróttir,
tækni og vísindi, listir, náttúra og
umhverfl og daglegt líf.
DV, Kringlan og Kodak umboðið
standa saman að sýningunni hér á
landi sem verður í Kringlunni, þriðja
árið í röð. Kringlan er sérlega góður
sýningarstaður sem tryggir það að
margir geta séð þessa sýningu.
Myndirnar sem valdar voru til
verðlauna voru yfir 30.000 talsins,
teknar af 2.997 ljósmyndurum frá 97
þjóðlöndum. Sérstök nefnd, skipuö 9
dómendum frá 9 þjóðlöndum, kom
saman í febrúar í byrjun þessa árs
til þessa erfiða verkefnis. Sýningin
WSi
Fréttaijósmynd ársins, Hutu-maöur frá Rúanda sem misþyrmt var af félögum sinum vegna þess að hann neitaði
að taka þátt í misþyrmingum á fólki af Tutsi-þjóöflokknum. Myndina tók einn þekktasti Ijósmyndari heims, James
Nachtwey sem starfar hjá Time Magazine í New York.
Þessi mynd fékk fyrstu verðlaun i flokki almennra fréttaljósmynda. Hún er
tekin af Carol Guzy hjá Washington Post af fórnarlambi ógnaraldarinnar á
Haítí þar sem mannvig voru daglegt brauð.
Bandaríski Ijósmyndarinn James Allan Nachtwey:
Getnrekki
hugsað sér
annað starf
„Ég hef veriö svo heppinn að
vinna hjá fyrirtæki sem hefur fuO-
an skilning á markmiðum mínum
og þeirri þörf sem knýr mig áfram
í starfi. Þeir hafa ekki einungis
leyft mér að birta allar þær sögur
sem ég vil segja með myndum min-
um, heldur hafa einnig hvatt mig
til verka,“ segir James Allan
Nachtwey, Ijósmyndari hjá Time i
New York.
. Nachtwey hlaut World Press
Photo verðlaunin fy rir bestu frétta-
mynd ársins, árið 1994. Hann er
fæddur í Syracuse í New York árið
1948 og stundaði nám í listum og
stjórnmálafræði áður en hann
ákvað að sjálimennta sig í ljós-
myndun. Nachtwey er sefmilega
frægasti ljósmyndari heims í dag.
Hann hefur fimm sinnum fengið
veðlaunin „Magazine Photograp-
her of the Year og þrisvar sinnum
„Capa Gold Medal“ en þau eru með
virtustu verðlaunum sem Ijós-
myndurum hlotnast. Nachtwey
hefur einu sinni áður fengið World
Press Photo verðlaunin fyrir bestu
fréttaljósmynd ársins.
Aðspurður að því hvað hann
gæti hugsað sér að starfa við eftir
20 ár sagði Nachtwey „Ég get ekki
hugsað mér sjálfan mig í öðru starfl
en við fréttaljósmyndun."
James Allan Nachtwey, Ijósmyndarl hjá Time í New York,