Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Page 35
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
43
Hún byrjaði ung að fá svæsin köst öðrum megin i höfðinu.
Kona með
migrenkast
Meðan N ökkvi læknir var og hét
og stundaði alvörulækningar fór
hann stundum í vitjun til sjúklinga
sinna. Einhveiju sinni hringdi
kona sem sagðist heita Jórunn K.
„Þú verður að koma til mín. Ég er
að drepast úr höfuðverk!" Nökkvi
reyndi að fá konuna til að koma til
sín á stpfu en hún var ófáanleg til
þess. „Ég get mig barasta ekki
hreyft!" Jórunn bjó í áður óþekktu
úthverfi bæjarins í einbýlishúsi
upp á 350 fermetra enda áttu þau
þjónin eitt barn svo að ekki veitti
af þessu húsrými. Á hlaðinu stóðu
svartur Wagoneer og rauður Golf
og horfðust ástfangnir í augu.
Nökkvi knúöi dyra. Eiginmaður
Jórunnar, riðvaxinn og hvapholda,
opnaði og bauð honum inn. „Hún
liggur inni í stofu,“ sagði hann af-
sakandi og klóraði sér á maganum.
Á veggjum héngu myndir af grát-
andi dreng og sígaunastúlku sem
vöktu yfirþyrmandi sektarkennd
hjá Nökkva. í anddyri var eftirlík-
ing af gömlu símatæki með gervi-
marmaraáferð og sprunginn speg-
ill.
GóTottenham
gó, gó!
Stofan var stór, björt og gardínu-
laus. Sjónvarpið var á fullu og
sýndi leik milli Tottenham og Liv-
erpúl. Jórunn lá alklædd uppi í
karrígulum sófa, litlum hluta af
mun stærra sófasetti, með plussá-
klæði, kögri og brúnni grind. Á
veggjum var dagatal frá-Eimskip,
einkennilegt málverk frá Vest-
mannaeyjum og stækkuð ljósmynd
afslefandibarni. „Góðan daginn,"
sagði Nökkvi. „Já, komdu sæll,“
sagði Jórunn og starðiinn í tækið.
„Svo að þú ert með höfuðverk,"
sagði Nökkvi. „Nei, hann er eigin-
lega búinn," sagði Jórunn, teygði
sig í poppskál með annarri hend-
inni, tók kók með hinni, drakk, át
og beindi síðan sjónum að leiknum
á nýjan leik. „Ég var að vona að
þú kæmir ekki fyrr en leikurinn
væri búinn,“ sagði hún afsakandi,
„þá heföi maður allavega verið í
rúminu." Nökkvi settist hjá henni
í sófann. „Hvað er að?“ Hún hélt
áfram að fylgjast með leiknum. „Ég
er með mígren," sagði hún. „Hef-
urðu haft migren lengi?" sagði
Nökkvi. “Já, það held ég,“ sagði
Jórunn og horfði sem fastast á sjón-
varpið enda var Tottenham búið
að fá víti. „Er migren í ættinni?"
sagði Nökkvi en fékk engin svör
enda æptu um 60000 áhorfendur í
einu út úr Bang og Olufsen hátölur-
unum. Jórunn og maður hennar
klöppuðu saman lófunum og sögöu,
„Djöfull var þetta flott, rnaður."
Nökkvi slökkti þá á tækinu snúð-
ugurásvip.
Dæmigert mígren
Jórunn lýsti dæmigerðu migreni.
Hún byrjaði ung að fá svæsin köst
öðrum megin í höfðinu. Þau voru
mjög erfið og fylgdu æðaslætti.
Á laáknavaktmni
Henni var flökurt, ældi og þoldi illa
sterkt ljós. Móðir hennar og eldri
systir voru líka með migren. Hún
hafði að mestu verið laus við mi-
gren þegar hún var á pillunni eða
var með barni. Hún fann fyrir fyr-
irboðaeinkennum, dofa í útlimum,
sleni og slappleika. Hættast var
henni við einkennum í mikilli
streitu. Ástandið í vitjuninni hafði
ekki verið dæmigert enda var hún
búin að taka eina Cafergot stikk-
pillu. „En afhverju voruð þið að
hringja í lækni?" sagði Nökkvi. En
það var ýmislegt annað sem þurfti
að gæta að. Drengurinn var með
útbrot, eiginmaöurinn með gylhn-
æð og báðir þurftu resept.
Lyfjameðferð
við migreni
Nökkvi setti sig í stellingar og
sagði Jórunni frá lyfjameðferð við
migreni. „Sjúkdómurinnstafaraf
samdrætti og útvíkkun í æðum
höfuðsins. Hann er algengur og
munu um 10-30% fólks fá kast ein-
hvern tíma. Það eru til ýmiss konar
lyf við þessu. Þegar sjúklingurinn
er kominn með verk verður oft að
gefa venjuleg verkjalyf (Codei-
magnyl, Parkodein, Panodil,
Naproxen.) Hin svokölluðu ergot-
amin-lyf (Anervan, Cafergot) eru
stundum gefin þegar verkur er að
byrja til að fyrirbyggja kast. Nýrra
lyf er Sumatriptan (Imigran) sem
er mjög dýrt (hver tafla kostar 1750
kr.) en géfur góða raun þegar önn-
ur lyf duga ekki. Ef köstin koma
oft er stundum reynd fyrirbyggj-
andi meðferð (Inderal, Sandomigr-
il, Catapresan, Amilin o.fl.) „Þetta
verðum við allt að athuga eftir
helgina á stofunni minni og velja
réttasta lyfið," sagði Nökkvi föður-
lega.
Gyllinæð og útbrot
Hún brosti og sagði: „Ókei. Ég
kem. Ætlarðu svo að skrifa upp á
eitthvað við gyllinæð eða gyllnæði
og kíkja á útbrotin á stráknum?"
Hún leit á klukku og svartan sjón-
varpsskerminn; það vottaði fyrir
örvinglan í svipnum. Nökkvi and-
varpaði og skrifaði umbeðin res-
ept, Scheriproct við gylhnæðinni,
og Locoid-krem á útbrotin og hélt
til dyra. Þau kveiktu umsvifalaust
á sjónvarpinu og hann heyrði þul-
inn sagði að leiknum væri að ljúka,
„bara 5 mínútur eftir". „Sjitt,"
sagði Jórunn, „gat maðurinn ekki
komið á öðrum tíma. Hann er bú-
inn að eyðileggja fyrir okkur leik-
inn.“ Nökkvi stundi þungan, gekk
út á hlað og ók af stað. Bílar hjón-
anna horfðu fyrirlitningaraugum á
eftir Lancernum hans.
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp að Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, mánu-
daginn 3. júlí 1995 kl. 13.00.
HY-165 ET-844 EV-332 GI-895 GU-643 HD-397 HE-840 HÖ-670
II-769 IJ-654 IK-669 KD-621 NI-360
Einnig verða þá boðnar upp eftirtaldar dráttarvélar:
ZA-973 ZN-188
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
Sýslumaðurinn i Borgarnesi
23. júní 1995
Porsche 911 turbo
Porsche 911 turbo intercooler 3,3 1980, leöurinn-
rétting, sóllúga, rafmagn írúöum, liturfjólublár.
Bíll í sérflokki.
Uppl. á Litlu bílasölunni, sími 552-770 og
heimasíma 557-6061 eða 896-1663.
HafnarQörður
Setberg, miðhverfi
Breyting á deiliskipulagi
í samræmi við gr. 4.4 í skipulagsreglugerð nr. 318/1985 er
hér auglýst til kynningar breyting á deiliskipulagi og skipu-
lags- og byggingarskilmálum fyrir miðhverfi Setbergshverfis
í Hafnarfirði.
Breytingin var samþykkt af bæjarstjórn Hafnarfjarðar 13.
júní sl.
Breytt er staðsetningu og stærð verslunar- og þjónustubygg-
ingar og hún flutt sunnar og austar á svæðið, lóðarmörk
víkja fyrir stærra og endurhönnuðu götustæði Hlíðarbergs.
Enn fremur er gert ráð fyrir að á svæði frá lóð verslunar-
og þjónustubyggingar að læknum verði lagður gangstígur
næst Hlíðarbergi en skipulagi að öðru leyti frestað.
Tillagan ásamt skilmálum liggur frammi í afgreiðslu bæjar-
verkfræðings að Strandgötu 6, Hafnarfírði, frá 23. júní.til
21. júlí 1995.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til bæjar-
stjórans í Hafnarfirði fyrir 4. ágúst 1995. Þeir sem ekki gera
athugasemd við tillöguna teljast samþykkir henni.
Hafnarfirði 22. júní 1995.
Skipulagsstjóri Hafnarijarðar.
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifrelðir verða boðnar upp að Dalvegi 7 (áhaldahúsi Kópavogs-
kaupstaðar) laugardaginn 1. júlí 1995 kl. 13.30:
AD-693 BF-Wa BG-458 BY-726 DR-568 ER-744, EÖ-712
FE-386 FI-443 FY-041 FÖ-821 G-6501, GH-907 G1-081
GL-861 GL-953 GS-910 GZ-593, GÞ-182 GÞ-579 GÖ-928
HA-511 HD-389 HD-750, HD-928 HE-153 HF-977 HG-358
HH-130 HH-194, HJ-853 HJ-894 HK-075 HL-591 HM-279
HN-707 HO-478 HÖ-509 HO-957 HP-065 HP-299 HR-411
HS-202 HS-304 HT-161 HU-479 HV-256 HV-480, HY-289
HY-887 HZ-086 HÖ-799 IA-932 IB-121, IC-693 ID-584
ID-959 IH-126 IH-742 IK-009, IM-352 IO-657 IP-175
IP-825 IR-015 IR-738, IÖ-888 JA-714 JH-668 JJ-945
JK-076 JL-860 JM-430 JM-446 JM-943 JO-993 JP-771
JP-879 JR-740 JS-655 JT-217 JT-385 JV-108 JX-961
JÖ-633 KD-139 KD-517 KD-871 KE-621 KE-629, KF-175
KF-339 KK-116 KT-004 KV-016 LA-228, LE-346 LE-555
LF-956 U-373 LT-914 MA-883, , MB-282 MC-210 MR-327
MS-596 MU-891 , MY-471 NH-391 NT-597 OA-115 OP-888
PT-074, RH-142 RK-270 RP-321 RT-470 RX-858 RY-540
SB-059 SJ-818 SN-923 SV-742 TG-345 VR-307 XL-696
Y-26 YB-714 ZE-383 ZP-454
Jafnframt verða væntanlega seldir eftirgreindir lausafjármunir:
prentari, saumavélar, loftpressa, gufupressa, borð, peningakassi, Hyundai
netkerfi, skipið Freyr KÓ-1711, vinnuskúr, Hagglund, 1/2 snjóbill, Hamac
pökkunarvél, grillhellur, áleggshnífar, djúpsteikingarpottar, eldavél, kæliskáp-
ar, pitsaofnar, frystikista, frystiskápur, Fiat-Alis hjólaskófla, Pólaris beltabif-
hjól, skrifborð, Caterpillar veghefill, Xerox Ijósritunarvél, Linotype Mergent-
haler tölvusetningarvél, einlita prentvél, Yamaha DX-711 rafmagnspíanó,
Combi camp tjaldvagn, bensínrafstöð, innréttingar og sölufrystir.
Eftirtalið lausafé verður boðið upp að Auðbrekku 13, Kópavogi, laugardag-
inn 1. júlí 1995, kl. 15.00:
Söluskálinn Auðbrekku 13, ásamt öllum áhöldum, tækjum og innréttingum.
Greiðsla við hamarshögg. Ávísanir aðeins teknar gildar með samþykki gjald-
kera.
SÝSLUMAÐURINN I KÖPAV0GI