Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Síða 37
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
45
Sviðsljós
Priscilla Presley:
Slungin 1
viðskiptum
Priscilla Presley, sem verður flmm-
tug á þessu ári, var gift Elvis Pres-
ley. Hún er tengdamóðir Michaels
Jacksons og hún var náinn vinur 0.
J. Simpsons.
Hún var ekki nema fjórtán ára þeg-
ar hún fór á fund rokkkóngsins sál-
uga þegar hann var i herþjónustu í
Wiesbaden. Hann beið eftir henni í
níu ár. Brúðkaupið var haldið í Las
Vegas og níu mánuðum seinna fædd-
ist dóttirin, Lisa Marie.
Núna er PrisciUa slungin við-
skiptakona sem hefur gert hið gamla
heimili Elvis, Graceland, að millj-
arðafyrirtæki. Hún hefur einnig
framleitt eigin ilmvötn og eigin fata-
línu sem selja á í gegnum sjónvarp.
Priscilla lítur ekki á sig sem leik-
konu, þó svo að hún hafi stundum
fengist við leiklist. Hún birtist fyrst
sem ástkona Bobby Ewings í Dallas-
þáttunum. Svo komu hinar vinsælu
Naked Gun myndir og það var við
tökur á þeim sem hún kynntist O.
J. Simpson. Hann var mótleikari
hennar og þau umgengust talsvert.
Barnabörn Priscillu eru orðin tvö
og þau eru augasteinarnir hennar.
Sagt er að þeim þyki svo vænt um
ömmu sína að þau geti ekki hugsað
sér að flytja til búgarðs stjúpfoður
síns, Michaels Jacksons.
Priscilla var víst ekki yfir sig hrifrn
af makavali dóttur sinnar en segir
að aðalatriðið sé að Lisa Marie sé
hamingjusöm.
Sjálf hefur Priscilla kynnst mönn-
um sem höfðu meiri áhuga á nafni
hennar en henni sjálfri. Hún varð
ekki reglulega hamingjusöm fyrr en
hún hitti rithöfundinn og kvik-
myndaframleiðandann Marco Gari-
baldi sem er ellefu árum yngri en
hún. „Marco liflr sínu eigin lífi og
hefur engan áhuga á fortíð minni,“
segir Priscilla.
Þau eiga átta ára gamlan son og
að sögn Priscillu er það hann sem
heldur henni ungri.
Framkvæmdastjóri
óskast fyrir heilbrigðiseftirlit
Austurlandssvæðis
Starfið felur í sér, auk framkvæmdastjórnar fyrir Austur-
landskjördæmi, heilbrigðiseftirlit á starfssvæði heilbrigðis-
nefnda Neskaupstaðar, Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Fljóts-
dalshéraðs og Borgarfjarðar eystri.
Menntunarkröfur: Umsækjandi þarf að hafa réttindi til að
starfa sem heilbrigðisfulltrúi hér á landi.
Starfið er laust frá 1. sept. nk.
Gert er ráð fyrir aðstöðu og búsetu á Reyðarfirði.
Umsóknir berist til sveitarstjóra Reyðarfjarðar, Búðareyri
7, 730 Reyðarfjörður, I síðasta lagi 10. júlí 1995.
Upplýsingar veita: Isak J. Ólafsson, sveitarstjóri Reyðar-
fjarðar, í síma 474-1245, Helga Hreinsdóttir, settur frkvstj.,
í síma 414-1235 og Stefán Þórarinsson, héraðslæknir á
Egilsstöðum, s. 471-1400.
Fæstum dettur í hug að Priscilla Presley sé að verða fimmtug.
Subaru Inpreza
Sportbíll til sölu, einn sá kraftmesti á landinu.
Subaru Inpreza 4x4, sigurvegari í Monte Carlo, 211
hö., 4 cyl., álfelgur, sumar- og vetrardekk, intercool-
er, geislaspilari o.fl. o.fl.
BILA
HUSIÐ
______
í l_ A S ,
Sævarhöiaa 2 »28 8020 j húsi Ingvars Helgasonar
Eiginmaður Priscillu, Marco Gari-
baldi, er ellefu árum yngri en hún.
Priscilla var ekki ýkja hrifin þegar
dóttir hennar giftist Michael Jack-
son.
Fékk nýtt meyj arhaft
Fatima, sem er 24 ára og múslími,
hélt að hún myndi aldrei eignast
mann og börn vegna ástarævintýris
á æskuárunum. Nú hefur hún fengið
nýtt meyjarhaft hjá lækni í Kaup-
mannahöfn og getur því gifst mann-
inum sem foreldrar hennar hafa val-
ið handa henni. Hún er ástfangin af
þessum manni og er því alsæl. Hún
óttast ekki lengur brúðkaupsnóttina
og skömmina sem hefði fylgt í kjöl-
farið hefði ekki komið blóð í lakið.
í viðtali við Norsk Ukeblad greinir
Fatima frá því að sá siður tíökist enn
víða hjá múslímum aö morguninn
eftir brúðkaupsnóttina komi íjöl-
skylda brúðgumans í heimsókn til
að athuga hvort ekki sé blóð í lakinu.
Ef lakið er hvítt er hjónabandið leyst
upp og brúðurin send til síns heima.
Niðurlægingin er mikil og brúðurin
getur verið í lífshættu því hætta er á
að faðir hennar eða aörir íjölskyldu-
meðlimir ráði henni bana. Fatima
þóttist viss um að faðir hennar
myndi bana henni þar sem hann
hefði oft beitt hana ofbeldi.
Hún sá auglýsingu í blaði um að
hægt væri að fá nýtt meyjarhaft.
Aðgerðin er leyndarmál sem hún
mun aldrei segja fjölskyldu sinni eða
tilvonandi eiginmanni frá.
Norsk Ukeblad hefur það eftir
lækninum Jorn Ege að sú aðgerð sem
Fatima gekkst undir sé orðin allal-
geng á Vesturlöndum. Að sögn lækn-
isins koma stúlkurnar frá ýmsum
löndum þar sem trúarbrögðin og
hefðin krefjast þess að þær séu hrein-
ar meyjar þegar brúðkaupsnóttin
rennur upp. Nokkrar stúlknanna
hafa misst meyjarhaftið vegna
íþróttaiðkana en aðrar vegna sjúk-
dóms eða rannsókna hjá kvensjúk-
dómalækni. Trúarbrögðin og hefðin
viöurkenna ekki slíkar skýringar.
Áttu i basli með bt(inn)
hjá
AUSTURVEGI 69 SELFOSSI SIMI 482-2000
leusum ttii eandmn
0 Verslun ...alit i biíinn
Smurstöd
M Hjólbaröaverkstæöi
M Viðgerðarverkstæði
Fljót oq ömqq þjómtsta
AUSTURVEGI69 SELFOSSt SIMI 482-2000