Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Page 51
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
59
Afrnæli
£
Kristófer Magnússon
Kristófer Magnússon tæknifræö-
ingur, Breiövangi 69, Hafnarfirði,
ersextugurídag.
Starfsferill
Kristófer fæddist í Hafnarfirði og
ólst þar upp. Hann lauk prófi frá
VÍ1954, stundaði vélvirkjanám í
Vélsmiðju Hafnarfjarðar og útskrif-
aðist sem vélvirki 1958, lauk vél-
stjóraprófi frá Vélskóla íslands 1959
og útskrifaöist sem tæknifræðingur
frá Odense Teknikum 1963.
Kristófer starfaði hjá Caterpillar á
vegum Heklu hf. 1965-74, starfaði
sjálfstætt við húsasmíðar og stund-
aði kennslu 1974-82 en hófþá störf
í plastiðnaði. Hann hannaði þá m.a.
hin svokölluðu 6601 plastker sem
núeruframleiddhjáSæplastiog .
Borgarplasti og flutt út um allan
heim.
Kristófer varð fyrir slysi 1989 og
hefur verið öryrki síðan.
Kristdfer æfði handbolta með FH
og keppti með hðinu á árunum
1950-71 auk þess sem hann var
landsliðsmarkmaður, m.a. í heims-
meistarakeppninni 1958. Alls vann
hann með FH tuttugu íslandsmeist-
aratitla á ferli sínum með II. flokki,
I. flokki og meistaraflokki. Hann hóf
að spila bridge 1948 og hefur unnið
alla titla sem spilað er um hjá
Bridgefélagi Hafnarfjaröar. Hann
var formaður Bridgefélags Hafnar-
fjarðar og forseti Bridgesambands
íslands um tveggja ára skeið. Þá sat
hann í aðalstjóm FH um margra ára
skeið og er nú í fulltrúaráði félags-
ins.
Fjölskylda
Kristóferkvæntist 27.12.1958 Sól-
veigu Ágústsdóttur, f. 30.7.1938,
skólaritara í Flensborg. Hún er dótt-
ir Ágústs Jóhannessonar, verk-
smiðjustjóra í Frón, og Áslaugar
Sigurðardóttur húsmóður.
Börn Kristófers og Sólveigar eru
Magnús Jón Kristófersson, f. 23.7.
1962, brunaliðsmaður í Hafnarfirði,
en sambýliskona hans er Hrafnhild-
ur Jóna Þórisdóttir húsmóðir og er
dóttir þeirra Sólveig, f. 27.10.1993;
auk þess sem dóttir Hrafnhildar frá
því áður er Ólöf Þórisdóttir, f. 18.11.
1988; Laufey Ósk Kristófersdóttir, f.
16.5.1967, fóstra og forstöðumaður.
Hálfsystir Kristófers, sammæðra,
dóttir Laufeyjar og fyrri manns
hennar, Bjarna Eiríkssonar frá
SjónarhóU, sem fórst í Halaveðrinu
1925, er Guðrún Bjarnadóttir, f.
15.12.1923, húsmóðir í Hafnarfirði,
gift Jóhanni Sveinssyni skipstjóra.
Alsystur Kristófers eru Sjöfn
Magnúsdóttir, f. 16.10.1928, hús-
móðir, gift Ingimundi Jónssyni,
skipstjóra og útgerðarmanni; Guð-
rún Magnúsdóttir, f. 11.8.1938, hár-
greiðslumeistari, gift Einari Þóri
Kristófer Magnússon.
Jónssyni húsgagnasmið.
Foreldrar Kristófers voru Magnús
Jón Kristófersson, f. 14.7.1901, d.
29.5.1965, verkstjóri hjá Vélsmiðju
Hafnarfjarðar, og Laufey Guð-
mundsdóttir, f. 20.6.1902, d. 12.9.
1980, húsmóöir.
Hrefna Magnúsdóttir
Hrefna Magnúsdóttir, húsmóðir og
kaupmaður, Hraunási 1, HelUs-
sandi, er sextug í dag.
Starfsferill
Hrefna fæddist á Hellissandi og
ólst þar upp. Hún lauk grunnskóla-
prófl á Hellissandi og prófl frá Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur.
Hrefna kenndi í nokkur ár við
Grunnskólann á Hellissandi. Hún
stofnaði bókaverslunina Gimli á
Hellissandi 1970 og starfrækir hana
enn. Þá starfaði hún á skrifstofu
KRON í Reykjavík nokkra vetur og
síðan hjá fyrirtækinu Áklæði og
gluggatjöld á meðan maður hennar
satáAlþingi.
Hrefna hefur starfað í ýmsum fé-'
lögum á Hellissandi, s.s. kvenfélagi
og ungmennafélagi. Þá hefur hún
sungið í kirkjukór Ingjaldshóls-
kirkju í fjörutíu ár og með Snæfell-
ingakórnum í Reykjavík nokkra
vetur. Hún var fréttaritari DV á
Hellissandi um tíma.
Fjölskylda
Hrefna giftist 24.6.1955 Skúla
Alexanderssyni, f. 9.9.1926, fyrrv.
alþm. Hann er sonur Alexanders
Árnasonar, b. í Kjós í Árneshreppi,
og Sveinsínu Ágústsdóttur hús-
freyju sem bæði eru látin.
Börn Hrefnu og Skúla eru Ari, f.
8.1.1956, hagfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands ís-
lands, búsettur í Kópavogi, kvæntur
Jönu Pind og eiga þau þrjár dætur;
Hulda, f. 9.9.1958, sérkennari við
Grunnskóla Hellissands, gift Hall-
grími Guðmundssyni og eiga þau
þrjár dætur og eina dótturdóttur;
Drífa, f. 12.1.1962, rekur kjörbúðina
á Hellissandi, gift Viðari Gylfasyni
ogeigaþautvö börn.
Systkini Hrefnu, sammæðra:
Hlöðver Þórðarson, sem er látinn,
og Guðrún Þórðardóttir, húsmóðir
íReykjavík.
Alsystkini Hrefnu: Kristján, dó í
bernsku; Guðmundur, dó í bernsku;
Hrefna Magnúsdóttir.
Hallfríður, búsett í Reykjavík; Krist-
mundur, búsettur í Reykjavík; Ólaf-
ur, búsettur í Kópavogi; Gestur,
búsettur í Reykjavík; Ester, búsett
. í Kópavogi; Sýrus, búsettur í Kópa-
vogi.
Foreldrar Hrefnu: Magnús Ólafs-
son, f. 18.9.1890, sjómaður á Hellis-
sandi, og Ásta Sýrusdóttir, f. 16.4.
1890, húsmóðir. Þau eru bæði látin.
Til hamingju med afmælið 25. júní
90 ára
Sigríður Sigmarsdóttir,
Lækjargötu 22b, Akureyri.
Friðrikka óskarsdóttir,
Signý Stefánsdóttir,
Hamragerði 23, Akureyri.
Bjarkarbraut 6, Dalvík.
Aðalsteinn Thorarensen,
Miðbraut 10, Seltjarnarnesi.
85 ára
Þórunn Sveinsdóttir,
Garðvangi, Garði.
80ára
Friðrik Vigfús Sigurbjömsson,
Hamrahlíö 8, Vopnaflrði
Valgerður Ingimundardóttir,
Vesturgötu 35, Keflavík.
Símon Hannesson,
HátúnilO, Reykjavík.
Regína Sveinbjarnardóttir,
Skálabrekku.
Guðmundur Guðbrandsson,
Hóli.
75 ára
Ingólfur Jónsson,
Trönuhólum 16, Reykjavík.
60 ára
María Júlía Helgadóttir,
Þangbakka 10, Reykjavík.
Friða Gestrún Gústafsdóttir,
Ferjubakka 8, Reykjavík.
Ragnar Bergsson,
Háaleitisbraut 50, Reykjavík,
Geir Baldursson, Breiðholti.
50 ára
Magnús Waage,
Unufelli7, Reykjavík,
Davið W. Jack,
Blikanesi 2, Garðabæ.
Sigurlaug Haraldsdóttir,
Borgarhrauni20, Hveragerði.
Grimur Bj arndal Jónsson,
Neshömrum 8, Reykjavík.
40 ára
i
Sigurður Ólafsson
Sigurður Ólafsson rafvirki, Trölla-
gili 12, Akureyri, verður fertugur á
mánudaginn.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Sólvangi í
Hafnarflrði en ólst upp í Engihlíð í
Laxárdal í Dalasýslu. Hann flutti til
Akureyrar 1977 og hefur átt þar
heima síðan. Sigurður lærði raf-
virkjun hjá Raftækni sf. á Akureyri
oglauk sveinsprófi 1981.
Sigurður hefur stundað rafvirkj-
un frá því hann lauk námi, fyrst hjá
Raftækni, þá Rafi sf. en hefur starf-
að hjá Ljósgjafanum hf. frá 1988.
Sigurður hefur setið í stjóm Akur-
eyrardeildar Rauða kross íslands
frá 1982. Hann gekk í Junior Cham-
ber 1982 og hefur gegnt þar ýmsum
stjórnar- og nefndarstörfum, m.a.
verið forseti aðildarfélags. Hann er
nú formaður landsnefndar Junior
Chamber á Akureyri.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 17.6.1978 Guð-
laugu Kristinsdóttur, f. 4.3.1958,
fulltrúa hjá Pósti og síma. Hún er
dóttir Kristins Finnssonar, sjó-
manns á Akranesi, og Kristínar A.
Ámadóttur sem nú er búsett í Gavle
í Svíþjóð.
Dóttir Sigurðar og Guðlaugar er
Hrafnhildur Guðrún Sigurðardótt-
ir, f. 22.1.1978, nemi við Verk-
menntaskólann á Akureyri.
Systkini Sigurðar eru Pálmi Ólafs-
son, f. 24.10.1956, húsasmíöameist-
ari í Stykkishólmi; Steinunn Lilja
Ólafsdóttir, f. 31.12.1959, verkakona
á Þingeyri; Páll Reynir Ólafsson, f.
17.2.1964, verkamaður í Stykkis-
hólmi.
Hálfsystir Sigurðar, samfeðra, er
Kolbrún Þóra Olafsdóttir, f. 22.6.
1981, grunnskólanemi.
Foreldrar Sigurðar eru Ólafur
Ámi Pálmason, f. 7.5.1931, b. í Engi-
hlíð í Laxárdal í Dalasýslu, og
Sigurður Ólafsson.
Hrafnhildur Sigurðardóttir, f. 2.8.
1937, starfsstúlka á Dvalarheimili
aldraðra í Stykkishólmi.
Sigurður tekur á móti gestum í
félagsheimili Jimior Chamber á
Akureyri að Óseyri 6, Akureyri, í
dag, laugardaginn 24.6., kl. 20.00.
Kristín Helgadóttir
Kristín Helgadóttir, Þingási 7,
Reykjavík, verður fertug á mánu-
daginn.
Starfsferill
Kristín fæddist á Gröf í Mikla-
holtshreppi á Snæfellsnesi. Hún
stundaði nám við Melaskólann og
Hagaskólann.
Kristín starfaöi hjá Bifreiðaeftir-
hti ríkisins 1974-82, ók síðan leigu-
bifreið nokkur ár, auk þess að sinna
skrifstofustörfum hjá Sérleyfisbif-
reiðum Helga Péturssonar hf. en
það fyrirtæki á hún og rekur með
bræðum sínum.
Fjölskylda
Kristín giftist 14.12.1974 Marteini
S. Björnssyni, f. 4.1.1954, bifreiða-
stjóra. Hann er sonur Björns Stein-
dórssonar, bifreiðastjóra í Reykja-
vík sem er látinn, og k.h„ Kristínar
Alexandersdóttur húsmóður.
Börn Kristínar og Marteins eru
Unnur Helga, f. 15.5.1973, kjóla-
sveinn og bifreiðastjóri; Björn Krist-
inn, f. 20.4.1979, nemi; Sigurbjörg
Þórunn, f. 10.8.1982, nemi.
Kristín á fjóra bræður, Halldór,
Hauk, Hilmar og Ásgeir.
Foreldrar Kristínar vom Helgi
Pétursson, f. 16.9.1905, d. 22.5.1969,
Kristin Helgadóttir.
sérleyfishafi, og Unnur Halldórs-
dóttir, f. 13.8.1913, d. 22.10.1988,
húsmóðir.
Kristín tekur á móti gestum laug-
ardagskvöldið 24.6.
70 ára
Simon PauK Lilaa,
Austurbrún 6, Reykjavík.
Sjöfn Helgadóttir,
Sléttuvegi 7, Reykjavík.
Anna Jónsdótt ir,
Stóru-Ökmm 2, Varmahlíð.
Helgi Harrysson,
Garðavegi 15, Hafharfirði.
Sveinbjörg Egilsdóttir,
Neðstaleiti 2, Reykjavík.
Helgi Guðmundsson,
Hrosshagal.
UPPB0Ð
Uppboð mun byrja á skrifstofu
embættisins að Strandgötu 31,
Hafnarfirði, 3. h., sem hér segir,
á eftirfarandi eign:
Hrísmóar 13, 0202, Garðabæ, þingl.
eig. Gísli Bjömsson og Jóhanna Ósk
Halldórsdóttir, gerðarbeiðendur Hús-
næðisstofnun ríkisins, Lögmenn Aust-
urstræti sf. og sýslumaðurinn í Hafn-
arfirði, 27. júní 1995 kl. 14.00.
SÝSLUMAÐUKINN í HAFNARFIRÐI
UPPB0Ð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Breiðvangur 18, 0102, Haíharfirði,
þingl. eig. Ómar Einarsson og Guðríð-
ur S. Hauksdóttir, gerðarbeiðendur
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar, KrediÞ
kort hf. og Lsj. Dagsbr. og Frs., 27.
júní 1995 kl. 14.30.
Gerði, lóð úr landi Svalbarðs, Bessa-
staðahreppi, þingl. eig. Elfa Andrés-
dóttir, gerðarbeiðendur Bessastaða-
hreppiu- og Lífeyrissjóður verslunar-
manna, 27. júní 1995 kl. 14.00.
Háholt 14, 0302, Hafnarfirði, þingl.
eig. Húsnæðisnefiid Hafharfjarðar,
gerðarbeiðandi Húsnæðisstofnun rík-
isins, 27. júní 1995 kl. 15.30.
Öldugata 46, 0301, Hafharfirði, þingl.
eig. Sjöfn Jónsdóttir, gerðarbeiðandi
Húsnseðisstofhun ríkisins, 27. júní
1995 kl. 13.30._________________
Vesturhraun 5, Garðabæ, þingl. eig.
Klæðning hf„ gerðarbeiðendur
Byggðastofnun, Búnaðarbanki ís-
lands og Iðnlánasjóður, 27. júní 1995
kl. 16.00._______________________
SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
||U^EHOAfi