Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1995, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995
9
i>v Stuttarfréttir
Útlönd
Ennrættum bila
Pulltrúar Bandaríkjanna og
Japans ræddust við um bílaviö-
skipti landanna en án árangurs.
Velur friðsamlega ieid
Jeltsín Rúss-
landsforseti
ætlar að leita
friðsamlegrar
leiðar út úr
deilum þings
og ríkisstjóm-
ar áður en
sáttaviðræður
viö Tsjetsjena hefjast.
MannfallíPakistan
Tuttugu og tveir létust x átökum
í Karachi, hafnarborg Pakistan, i
átökum þjóöemisminnihluta.
Kosið í Suður-Kóreu
Góð þátttaka var i fyrstu sveit-
arstjórnarkosningunum í Suð-
ur-Kóreu í 35 ár.
Ekkiáuppboð
Súpermann-
búningurinn
sem leikarinn
Christopher
Reeve klæddist
í Súpermann-
myndunum fer
ekki á uppboð
i\já Christies í
London vegna sly ssins sem Reeve
lenti í á dögunum.
ÍHaldiíKína
Harry Wo, kínversk-bandarísk-
ur baráttumaður fyrir mannrétt-
indum, er í haldi í Kina. Hann
fullyrðir að Kínverjar flytji út og
selji líffæri úr líflátnum fóngum.
Rætt um olíuborpalla
Á fundi 14 landa um mengun
Norðursjávar og norðaustur-
hluta Atlantshafsins verður rætt
hvort sökkva eigi olíuborpöllum.
Lést í flugeldabáli
Þrettán ára ítalskur drengur
lést og flórir vinir hans slösuðust
illa þegar þeir kveiktu 1 flugeld-
um sem ekki höfðu sprungið á
flugeldasýningu.
Verkfræðíngum rænt
Byssumenn rændu þremur
þýskum verkfræðingum sem
starfa við byggingu orkuvers í
Pakistan.
Gyðingar nema land
Landnemar Gyðinga, sem eru
andsnúrúr aukinni sjálfstjórn
Palestínumanna á Vesturbakk-
anum, námu meira land.
Krónprinstekurvið
Seikh Hamad bin Khalifa al-
Thani, krónprins Qatar, hefur
tekið við völdum af fóður sínum.
Hitlary i dálkaskrif
Hillary Clin-
ton, forsetafrú
Bandarikj-
anna, hefur
lýst því yiir að
hún muni
verða vikuleg-
ur dálkahöf-
undur í blöðum
og tímaritum.
ThatcherstyðurDole
Margrét Thatcher, fyrrum for-
sætisráðherra Bretlands, segist
styðja Bob Dole sem forsetaefni
repúblikana.
I Lítil verðbólga
Verðbólgan í ríkjum ÉSB var
3,3 prósent í maí og hefur veriö
stöðug þijá mánuði í röð.
Reuter/Ritzau
Misheppnuð tilraim til að ráða Egyptalandsforseta af dögum:
CfintonBanda-
Fé sett til höf uðs
tilræðismönnum
Eþíópískar öryggissveitir leita nú
dyrum og dyngjum að tilræðismönn-
um sem komust undan eftir mis-
heppnaða tilraun til að ráða Hosni
Mubarak Egyptalandsforseta af dög-
um í Addis Ababa, höfuðborg Eþí-
ópíu, í gær þar sem hann ætlaði að
sitja leiðtogafund Einingarsamtaka
Afríkuríkja (OAU). Allar öryggisráð-
stafanir í borginni voru hertar til
muna.
Stjórnvöld buðu „umtalsvert" fé til
höfuðs nokkrum tilræðismönnum.
Eþíópíska sjónvarpið sýndi lík af
tveimur tilræðismönnum, sem féllu
í árásinni, þar sem þau lágu á hrað-
brautinni frá flugvellinum en þar var
fyrirsátin gerð. Mennimir vom ljósir
á hörund, klæddir í gallabuxur og
bláa jakka. Glöggt mátti sjá að menn-
imir höfðu fengið skot bæði í höfuð
og skrokk.
í tilkynningu sem eþíópísk stjóm-
völd sendu frá sér sagöi að tveir til-
ræðismenn af arabískum uppruna
og tveir eþíópískir öryggisverðir
hefðu fallið í skotbardaganum. Ekki
var skýrt frá því hversu margir til-
ræðismenn komust undan. Þá fékkst
ekki staðfesting á orðrómi þess efrús
að þriðji tilræðismaðurinn hefði
annaðhvort verið drepinn eða náðst
lifandi.
Mubarak flaug aftur heim til
Egyptalands eftir tilræðið.
Ibúar sögðu að árásarmennirnir
hefðu leigt hús nærri flugvallarveg-
inum nokkrum dögum fyrir leiðtoga-
fund OAU. Eþíópíska sjónvarpið
sagði að lögregla hefði fundið þrjá
yfirgefna bíla og ónotuð vopn, þar á
meðal tvær sprengjuvörpur og tvo
Kalasníkov árásarriffla.
Miklar vangaveltur voru um hverj-
ir tilræðismennirnir væru en grunur
leikur á að þeir séu íslamskir bók-
stafstrúarmenn. Stjórnvöld í Súdan
voru þó fljót að þvo hendur sínar af
verknaðinum en þau hafa verið sök-
uð um að kynda undir trúarofstæki
í Egyptalandi. Reuter
ríkjaf orseti iýsir
yfiriraustiáSÞ
Bandaríkjafor-
seti lýsti í gæi
yfír trausti sinu
á Sameinuðu
þjóðunum i
fimmtíu ára af-
mælisveislu
samtakanna
sem haldin var í San Francisco.
í ræöu sem hann hélt af því til-
efni veittist hann aö einangrun-
arsmnum heima fyrir og sagði
enga lausn felast í því að snúa
baki við SÞ. Slík afstaða kæmi
niöur á mönnum síðar.
Stuðningur Clintons viö SÞ er
kærkominn þar sem repúblikan-
ar, sem eru í meirihluta á Banda-
ríkjaþingi, hafa gagnrýnt sam-
tökin m.a. fyrir getuleysi í Bosníu
og óreiðu.
Veislan var haldin i óperuhús-
inu þar sem fulltrúar 50 þjóöa
þrefuðu um stofnskrá SÞ á niu
vikna ráðstefnu árið 1945.
Eþíópískir lögregluþjónar standa vörð um bifreið sem notuð var í tilræðinu við Mubarak Egyptalandsforseta í
Addis Ababa í gær. Slmamynd Reuter
Dauðurskradd-
ariísfrætóí
Buenos Aires
Strætisvagnastjóri nokkur í
Buenos Aires, höfuðborg Argent-
ínu, fór S tvígang um borgina
þvera og endilanga á mesta anna-
tíma meö dauðan mann aðeins
fjórum sætaröðum fyrir aftan sig.
Hinn látni var 72 ára gamall
skraddari, Santiago Rey að nafni.
Jalhvel farþegamir sem sátu við
hlið hans áttuðu sig ekki á hvem-
ig komið var fyrir sessunautnum.
Skraddarinn hafði verið á leið til
viðskiptavinar með nýsaumuö
fót. Látið uppgötvaðist næsta
morgun. Reuter
John Redwood segist ætla að sigra John Major í fyrstu lotu:
Gallharður Thatcheristi
John Redwood, ráðherra málefna
Wales, sagði af sér í gær og lýsti því
um leið yfir að hann mundi bjóða sig
fram gegn John Major í formanns-
kosningum íhaldsflokksins 4. júlí.
Hann segist ekki ætla að veita Major
neina skeinu heldur sigra hann strax
í fyrstu umferð kosninganna.
Redwood er lítt þekktur meðal
bresks almennings og hefur fengið
viðurnefnið The Vulcan, eftir hálf-
mennskri og kaldlyndri persónu úr
Star Trek geimsögukvikmyndunum.
Redwood er vel menntaður, fékk
fyrstu úrvalseinkunn í sögu frá Ox-
ford og hefur doktorspróf í heim-
speki. Fljótlega gekk hann í raðir
Thatcher þar sem hann lét að sér
kveða sem pólitískur ráðgjafi. Hann
varð þingmaður 1987, eftir að hafa
starfað sem bankaráðgjafi um skeið.
Hann var fljótur upp metorðastigann
og varð ráðherra 1993.
Fylgismenn Redwpods koma úr
röðum hægriarms íhaldsflokksins,
harðra fylgismanna stefnu Thatcher
og andstæðinga Evrópusambands-
ins. Vinir Redwoods segja að
menntahroki hans og rétttrúnaður
gagnvart gildum íhaldsstefnunnar
séu helstu vopn hans í baráttunni.
Andstæðingarnir segja að bakgrunn-
ur Redwoods geti orðið honum fjötur
um fót þar sem hann þykir vera held-
ur hrokkafullur gagnvart vandamál-
um hins venjulega Breta.
Redwood er einn þeirra ráðherra
sem Major er talinn hafa átt við þeg-
ar hann'talaði um skepnumar sem
væru andsnúnar nánari tengslum
John Redwood er harður andstæð-
ingur nánari tengsla við Evrópu-
sambandið.
við Evrópusambandið, en það mál-
efni hefur klofið íhaldsflokkinn.
Ákvörðun Redwoods um að bjóða sig
fram byggist einmitt á andúð á Evr-
ópustefnu Majors og þeirri staðreynd
að Major trúði honum ekki fyrir því
að hann mundi segja af sér. Red-
wood, sem oftsinnis hefur lýst yfir
stuðningi við forsætisráðherrann,
varð æfur yfir að heyra um afsögn
hans í gegnum annan ráðherra.
Hann var síðan eini ráðherrann sem
lét vera að lofa ákvörðun Majors.
Neitar að undirrita skjöl á
welsku
Þó Redwood þyki hafa sinnt skyld-
um sínum ágætlega sem ráðherra
Wales bera þarlendir honum mis-
jafnlega söguna. Þegar hann tók við
starfmu vakti hann strax óánægju
með því að lýsa því yfir að hann hefði
einungis heimsótt Wales í fríum með
fjölskyldunni. Þá neitar hann aö
undirrita skjöl á welsku þar sem
hann skilur ekki tungumálið.
Redwood er harður Thatcheristi,
ákafur talsmaður skattalækkana,
harður andstæðingur evrópsks
myntbandalags og vill herða til muna
baráttuna gegn glæpum. Þessi mál-
efni eru tahn höfða til hins dæmi-
gerða kjósanda íhaldsflokksins.
Redwood hefur oft vakið athygli fyrir
orð sín, ekki síst þegar hann fullyrti
að einstæðar mæður í vandræöum
skorti fyrirhyggjusemi.
Redwood er kvæntur, tveggja
barna faðir, hefur mikinn áhuga á
krikketi, hvers kyns vatnsíþróttum
og forðast dagblaðiö The Guardian
einsogheitaneldinn. Reuter
Nr. Lelkur:______________Röðln
1. Trelleborg - Degerfors -X -
2. Gefle - Assyriska 1 - -
3. Luleá-Brage__________- -2
4. GIF Sundsv - Lira 1 - -
5. Visby - Forward -X -
6. Vásterás - Umeá______- -2
7. Elfsborg - Falkenberg 1 - -
8. Hássleholm - Ljungskile -X -
9. Landskrona - Stenungsun-X -
10. Myresjö-GAIS -X -
11. Oddevold - Norrby 1 - -
12. Skövde - Hácken --2
13. Norrköping - HJK Helsin -X -
Heildarvinningsupphæð:
63 milljónir
13 réttir 390.450 | kr.
12 réttir 8.400 kr. kr.
11 réttir 840
10 réttirl 270 kr.
Parketveisla - frábært verð!
Takmarkað magn af lítið gölluðu
parketi á góðu verði: askur,
2 gerðir, beyki, eik, 5 gerðir.
Verð frá 600-2.200 fm.
ÓM búðin
Grensásvegi 14, s. 568 1190.