Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
Anne Grete og Per eru námsmenn frá Danmörku sem hafa dvalið í sumar
á Hofsósi. DV-mynd Þórhallur Ásmundsson.
Danir sem dvöldu um tíma á Hofsósi:
Heillud adf
landslaginu
og sigrumst á aukakílóum
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Á Hofsósi hefur dvalið í sumar
danskt par, þau Per Dumstrei og
Anne Grete Jessen. Þau eru náms-
fólk og hafa eytt su'marfríinu á Hofs-
ósi. Kunningsskapur við Pál Brynj-
ólfsson, bóksalason á Sauðárkróki
og knattspyrnuþjálfara Neista á
Hofsósi, er ástæða fyrir komu þeirra
til landsins. Dönunum, sem settu
talsverðan svip á bæjarlífið á Hofsósi
í sumar, líkaði dvölin þar svo vel að
það var með söknuði sem þau héldu
til síns heima í Árósum nú í byrjun
vikunnar.
Anne Grete var í sama háskóla og
Páll Brynjarsson í Árósum og leggur
þar stund á trúarbragðasögu ásamt
þýsku. Faðir hennar rekur bygginga-
markað í Árósum og til að standa
straum af dvölinni hér á landi og til
öflunar eyðsluíjár varð Anne Grete
sér m.a. úti um styrk frá dönskum
byggingavöruútflytjendum gegn því
að hún kannaði möguleika á auknum
útflutningi hingað til lands. Hún
heimsótti helstu byggingavörumark-
aöi landsins í sumar í þeim tilgangi,
svo sem kaupfélögin á Blönduósi og
Sauðárkróki og Hegra á Sauðár-
króki, auk Bykó, Husasmiðjunnar
og fleiri aðila.
Per var slátrari aö atvinnu en
hyggst nú snúa sér að námi í hjúkr-
unarfræði. Per er frábær kokkur og
um mitt sumar var efnt til mikillar
veislu á Hofsósi. Þar var átta rétta
jólamatur Dana á boðstólum, svo-
kallaður julefrokost, sem reyndar
var í þetta sinn kallaður Júlífro-
kosf‘. Rúmlega 50 manns sóttu þetta
matar- og skemmtikvöld og þótti það
heppnast með afbrigðum vel. Hefur
komið til tals að gera danskan júlí-
kvöldverð að árlegum viðburði héð-
an í frá á Hofsósi.
Danirnir ferðuðust nokkuð um
landið og hrifust mjög af landi og
þjóð. Fannst þeim mikið til hinnar
íslensku náttúru koma. Per, sem
æfði og lék knattspyrnu með Neista,
sást gjarnan í afslöppun að æfingum
loknum virða fyrir sér fjallahring
hérðaðsins með aðdáun, enda slíku
ekki fyrir aö fara í flatlendri Dan-
mörku. Þar mun aðeins vera hóll
sem hinir alþekktu dönsku húmor-
istar kalla „himnaklettinn".
Þau Per og Anne Grete bjuggu í
litlu húsi í Kvosinni. Það heitir Brú-
arlundur og stendur á árbakkanum.
Anne Grete spurði eitt sinn hvaðan
í ósköpunum allt þetta vatn kæmi
sem rynni í þessu beljandi fljóti.
Okkur finnst svona spurningar
skrítnai;. Það sem við höfum fyrir
augunum dagsdaglega er varla íhug-
unar- eða hrósvert. Það er í mesta
lagi á fallegum sumarkvöldum að við
sjáum ástæðu til að dást að kvöldsól-
inni.
Fitubrennslunámskeiðin
hefjast 4. september
8 vikur, lokaðir hópar og opnir.
Innritun hafin - takmarkað pláss
Hringið strax í síma 565 9030 og 895 0795
Fitubrennsla aðeins fyrir konur sem eru að slást við 10-20 kg eða meira.
•Siemens S3+-
Simens S4
er enn minni og handhægari en
þó verulega öflugur.
Hann er hlaðinn
innbyggðumstillanlegum
atriðum, s.s. símaskrá með
nöfnum, símtalsflutningi,
stillanlegri hringingu, 5 númera
endurvalsminni, 50 tíma rafhlöðu
(240 mín. í stöðugri notkun), sem
tekur 8 tíma að hlaða, öflugu loft-
neti sem draga má út til að ná
enn betra sambandi og fjölmörgu
fleiru en er rétt eins og S3+
súninn einstaklega auðveldur í
notkun. Svo vegur hann ekki
nema 250 g.
Kr. 69.900
Hradþjónusta i/ið
(Kostar innanbæjarsímtá
landsbyggðina: Grænt númer: 800 6886
iiarsímtal oa vörurnar eru sendar samdægurs).
er lítill og handhægur en þó
sérlega öflugur. Hann er
hlaðinn innbyggðum
stillanlegum atriðum, s.s.
símaskrá með nöfnum,
_ símtalsflutningi, stillanlegri
hringingu, 5 númera
endurvalsminni, 20 tíma
rafhlöðu (100 mín. í stöðugri
notkun), sem tekur aðeins
klukkustund að hlaða, föstu
loftneti sem ekki þarf að draga
út og fjölmörgu fleira; en
samt er hann einstaklega
auðveldur í notkun. Þyngdin er
aðeins 280 g.
Kr. 44.900
Grensásvegi 11
Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888
Staður aðeins fyrir konur