Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
Dagur í lífi Hafsteins Þ. Stefánssonar skólameistara:
Fundað með sællegum kennurum
kvæmdum aö mestu lokið og er þaö
býsna gott.
Sællegir kennarar
birtast
Nú fara kennaramir aö birtast,
brosleitir og sællegir eftir sumarið,
ég heilsa þeim og býð þá velkomna.
Slegið er í bjöllu og kennarafund-
urinn hefst. Ég flyt mína tölu og
fundarstörf eru unnin. Fundi er
slitið og sest aö kafíiboröi með tert-
um og snittum.
En störfin halda áfram, undirbúa
þarf vetrarstarfið og það er í mörg
horn að líta hjá öllum. Ég og að-
stoðarskólameistari, hann Sölvi,
höldum fund með nýjum kennur-
um. Þeir fá handbók þar sem skráð
er flest það sem nýir kennarar
þurfaaö vita, fyrirspurnum svarað
og málin rædd. Að þessu loknu eru
afgreidd hin margvíslegustu er-
indi, rætt-vjð forkólfa í félagslífi,
gamla nemendur og nýja, foreldra
og forráðamenn, kennara og sölu-
menn og reynt að leysa vanda allra
og þennan mánudag tókst það bara
nokkuð vel.
Undir lok dagsins gerði fjölritar-
inn okkur lífið leitt. Afangastjórinn
þurfti að fjölrita stundatöf-
luramma strax því töflur þurftu að
vera tilbúnar morguninn eftir.
Skrýtið hvað tæki bregðast oft á
ögurstundu. En eftir töluvert mas
og margar blekklessur fengum við
fjölritarann til að „makka“ rétt.
Málunum var bjargað. Já, það þarf
að sinna ýmsu.
Vinnudagurinn leið og ég hélt
heim á leiö ánægður. Það er svo
gott að vinna á góðum stað með
góðu fólki og á morgun verða KR-
ingar enn þá bikarmeistarar. Er
ekki lífið ljúft?
Ég vaknaði nokkuð snemma
þennan mánudagsmorgun eins og
flesta morgna. Þaö var rigning og
dumbungur úti en þó bjart yfir
vesturbænum. KR-ingar urðu bik-
armeistarar í gær. Hvað annað?
Hveijir eru bestir? En sú spuming!
Ég fór í sturtu, rakaði mig óvenju
vel, setti upp bindi og fór í jakka-
fót. í dag yrði ég að vera térlegur
til fara því skólastarfið var aö
byija, kennarar áttu að mæta til
leiks.
Ég og konan fengum okkur morg-
unverð, það small í bréfalúgunni
og DV datt inn á gólf. Konan fór í
vinnuna en ég tyllti mér niður og
gróflas Dagblaðið og hlustaði á
fréttirnar og hélt svo af staö í vinn-
una.
Ég ók Bræðraborgarstíginn,
Vesturgötuna, Hafnarstrætiö,
Hverfisgötuna og Laugaveginn og
eins og leið liggur upp í Armúla-
skóla. Þessa leið ek ég á hveijum
morgni í vinnuna og finnst hún
alltaf jafn merkileg, bara götunöfn-
in segja sögu, hvað þá húsin. Og
neðst á Vesturgötunni, þar sem
hún mætir Aðalstræti og Hafnar-
stræti, er miðpunktur Reykjavíkur
og kannski landsins. Ég kann varla
við að segja heimsins en því ekki?
Mér finnst eins og þama séu vatna-
skil eða 0-punktur því öll húsnúm-
er hækka í allar áttir frá þessum
staö.
Yfirfullur skóli
Þegar upp í skóla kemur sest ég
niður og fæ mér kafíisopa með
þeim sem mættir em og við spjöll-
um smástund. Síöan fór ég inn á
skrifstofu, svaraði nokkrum sím-
tölum og fór yfir punkta þá er varða
áttu tölu mína á fyrsta kennara-
Hafsteinn Þ. Stefánsson, skólameistarj í Fjölbrautaskólanum Ármúla, hefur i mörg horn að líta áður en vetr-
arstarfið hefst. DV-mynd GVA
fundi vetrarins. Ég fékk hjá áfanga-
sljóra síðustu tölur yfir nemenda-
fjölda og ýmiss konar skiptingu
hópsins, leit yfir framkvæmdir og
fleira er máli skiptir. Skólinn er
yfirfullur, aldrei veriö fleiri nem-
endur og erfitt að koma þeim öllum
fyrir en það verður leyst.
Miklar framkvæmdir hafa verið
í sumar, við fengum myndarlega
fjárveitingu til að breyta og bæta.
Komið hefur veriö upp glæsUegu
tölvuveri og ekki er hún síðri að-
staöan fyrir lyfjatæknibrautina,
apótek og tUheyrandi, en það nám
vorum við að flytja af Suðurlands-
brautinni inn í skólann. Margt
fleira hefur verið gert og fram-
Finnur þú finun breytingar? 325
Mér þykja prufuhjónabönd of bindandi. Hvað segirðu um prufu-
prufuhjónaband?
1 \, a imBr*
IjpPlt I
/;
570?
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruö tuttugustu og
þriðju getraun reyndust vera:
1. Fanndís F. Hávarðsdóttir 2. Svanhvít Sigurðard.
Hólagötu 30 Mávahrauni 16
900 Vestmannaeyjunj 220 Hafnarfirði
Myndiraar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur 1 ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriöi
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
TENSAI feröaútvarp með kassettu, að
verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmiðstöð-
inni, Síðumúla 2, Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verð-
laun heita Líkþrái maöurinn og Athvarf
öreigans, úr bókaflókknum Bróðir Cad-
fael, að verðmæti kr. 1.790. Bækurnar eru
gefnar út af Frjálsri fjölmiölun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið meö lausrúnni:
Finnur þú fimm breytingar? 325
c/oDV, pósthólf 5380
125 Reykjavík