Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Side 20
20
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
Ásdís María Franklín náði þriðja sæti í Elite fyrirsætukeppninni í S-Kóreu:
Með tveggja ára milljónasanming
- íslensku keppendumir vöktu mikla hrifningu
„Þriöja sætið í Elite-keppninni úti í
Suður-Kóreu tryggir mér fyrirsætu-
samning næstu tvö árin með að
minnsta kosti 5,4 milljónir króna í
tekjur. Ég mun starfa á vegum skrif-
stofunnar víöa um heim þar sem at-
vinnutækifæri bjóðast," sagði Ásdís
María Franklín sem náði þeim fræki-
lega árangri að verða í þriðja sæti í
þessari árlegu keppni. Ásdís og Guö-
rún Lovisa Ólafsdóttir voru valdar
fulltrúar íslands í keppninni sem
fram fór í S-Kóreu síðari hluta ágúst-
mánaðar.
„Það hefur aðeins einu sinni gerst
áður að íslensk stúlka haíi náð í úr-
slitahóp 15 bestu en það var þegar
Snæfríður Baldvinsdóttir keppti,“
sagöi Gullveig Sæmundsdóttir, rit-
stjóri tímaritsins Mannlífs, sem var
ein þeirra sem tók á móti stúlkunum
við komuna til landsins.
„Þetta er í tólfta sinn sem íslenskar
stúlkur taka þátt í Elite-keppninni
og í þriðja sinn sem sendir eru út
tveir fulltrúar. Fulltrúar Elite geta
stundum ekki gert upp á milli tveggja
stúlkna og þannig var það í ár, ekki
var hægt að gera upp á milli Ásdísar
Maríu og Guðrúnar Lovísu," sagði
Gullveig.
New York, Mílanó
og París
„Ég fæ nokkurra daga frí hér á ís-
landi en síöan liggur leið mín til New
York þann 10. september. Ég starfa
þar í fimm daga en síöan verð ég
önnum kafin við tískusýningamar í
Mílanó þar til í byrjun október og ég
á von á því að þaðan liggi leiðin með
sýningarhópum til Parísar."
Ásdís María var aðeins 14 ára göm-
allt af bókum, nú tekur skóli lífsins
viö. Ég reyni samt alltaf að komast
í reglulegar heimsóknir til íslands
og ég er svo heppin að eiga yndislega
vini og foreldra sem gleyma mér ekki
og styðja mig með ráðum og dáð.
í starfinu á ég eftir að kynnast
framandi menningu, nýjum siðum
og læra mörg tungumál. Ég tala
ensku og sænsku ágætlega (Ásdís bjó
í Svíþjóð fyrstu fjögur ár ævi sinnar)
og er farin að læra heilmikið í þýsku
og ítölsku."
- Er þetta ekki strangur skóh og
harður heimur sem fyrirsæturnar
þurfa að búa við?
„Það eru fullt af fyrirsætum sem
hafa byrjað með mér í þessu starfi
sem hafa helst úr lestinni. Til þess
að geta starfað sem fyrirsæta þarf
aö vera mjög duglegur og sífellt
áhugasamur um starfið. Maður má
aldrei vera kvartandi eða í fýlu, mað-
ur þarf að vera stundvís, ávallt
hreinn og snyrtilegur og alltaf í góðu
skapi. Nauðsynlegt er að skipuleggja
tíma sinn mjög vel og sem betur fer
er ég í Vogarmerkinu. Persónugerð
mín passar vel í þetta starf.
Umboðsskrifstofurnar setja okkur
aldrei kröfur um útlit. Ef þig langar
til að líta illa út, vera með cellulite á
lærunum, þá máttu borða þaö sem
þú vilt en þá færðu einfaldlega enga
vinnu. Því er það fyrst og fremst
undir þér sjálfum komið hvort þú
passar upp á útlitið. Betra útlit þýðir
einfaldlega fleiri atvinnutækifæri.
Ég er svo heppin að mér finnst allt
sælgæti vont en elska allan ferskan
mat, grænmeti, ávexti, ís og ég reyni
yfirleitt að velja fisk og fuglakjöt
fremur en annað kjöt.
Annars er holdafarið nokkuð af-
stætt hjá fyrirsætum. Þú getur verið
með tvær stúlkur sem eru nákvæm-
lega jafnháar en þær þurfa ekki að
vera jafnþungar. Önnur er með
kvenlegar línur, í ætt viö Pamelu
Anderson, og henni er því óhætt að
vera eitthvað þyngri. Hin er með út-
lit Kate Moss og verður þá að halda
útliti og grönnum líkama í samræmi
við það. Ég er þessi fríska týpa sem
má vera með hraustlegt útlit og þarf
ekki að vera mjög horuð. Mér finnst
samt fara mér best að vera nokkuð
skorin og vel á mig komin.“
Óvænt úrslit
- Hvað viltu segja um þær stúlkur
sem lentu fyrir ofan þig í keppninni?
„Ég tók aldrei neitt sérstaklega eft-
ir þeirri sem vann en stúlkan frá
Rússlandi, sem var í öðru sæti, var
mjög flott. Ég og margir aðrir voru
búnir að spá henni fyrsta sætinu í
keppninni. Hún er mjög góð vinkona
okkar Guðrúnar og er mjög sterkur
karakter og á allan hátt yndisleg
stelpa, með hárrétt og jákvæð við-
horf til fyrirsætustarfsins,“ sagði
Ásdís.
-ÍS
Þaö urðu fagnaöarfundir þegar Sigurlaug Vigfúsdóttir, móðir Ásdísar Mar-
íu, tók á móti henni við heimkomuna.
Guðrún Lovísa Ólafsdóttir og Ásdís María Franklín þóttu standa sig mjög vel í fyrirsætukeppninni í S-Kóreu og
eftir því var tekið hve fagmannlegar þær þóttu í allri framkomu. DV-mynd Brynjar Gauti
Rakst á auglýsingu
„Ég var að lesa DV heima hjá mér
og sá þar auglýst að hægt væri að
senda myndir af sér í fyrirsætu-
keppni. Ég átti góða mynd af mér,
sendi hana að gamni mínu og ein-
hvern veginn dugði sú byrjun til þess
að koma mér alla leið í Elite-keppn-
inni hérna heima,“ sagði Guðrún
Lovísa Ólafsdóttir. Hún var einnig
meðal keppenda í S-Kóreu og kom
þaöan heim með tvö fyrirsætutilboð
í farteskinu.
„Fyrir mér var þetta ótrúlegt ævin-
týri því ég hef aldrei áður farið til
útlanda. Eg er á leiðinni út næsta
sumar en ég hef fengið tvö fyrirsætu-
tiiboð á vegum Elite. Ég get valið um
það hvort ég fer til Brasilíu eða Barc-
elona.
Brasilía virkar meira spennandi,
það er lengra í burtu svo að ég býst
frekar við að fara þangað. Ég þarf
samt að kynnast þessu mikið betur
áður en ég tek ákvörðun. En ég er
alveg ákveðin í að klára Verslunar-
skólann áður en ég helh mér út í eitt-
hvað annað. Ég ætla frekar aö vinna
mig eitthvað upp í fyrirsætustörfum
hér á íslandi áður en ég fer út í eitt-
hvað sem ég ræð ekki við.
Þetta starf er mjög spennandi og
það kitlar mann nokkuð hvort mað-
ur getur þetta. Það er náttúrlega erf-
itt að rífa sig upp með rótum frá hefð-
bundnu umhverfi sínu og ég saknaði
mikið fólksins míns þegar ég var úti.
Þetta var samt auöveldara en ég
átti von á í minni fyrstu utanlands-
ferð. Það gekk aUt svo vel úti og ég
er rosalega ánægð með ferðina til
S-Kóreu. Ef maður kæmist á góðan
samning þá er ég alveg til í að starfa
við þetta. Þetta er ævintýri sem býðst
ekki mörgum sinnum á ævinni og
ekki heldur hægt að vera lengi í
þessu," sagöi Guðrún Lovísa.
Verður að fresta námi
Ásdís María er búin aö ljúka fyrsta
bekk í Menntaskólanum á Akureyri.
Hún veröur nú að gera hlé á náminu
en er ákveðin í að klára skólann
hvenær sem það verður.
„Mér hefur alltaf gengið vel í skóla
og ég hef helst hugsað mér að fara í
læknisfræði. En ég ætla nú að taka
mér frí frá skólanum og kynnast
heiminum af því að maður lærir ekki
ul þegar fyrirsætuævintýrið hófst
hjá henni. „Ævintýrið byrjaði jóUn
1992 en þá fór ég á framkomunám-
skeið hjá Kolbrúnu Aðalsteinsdóttur
og síðan í fyrirsætukeppni voriö þar
á eftir. Hún var bannieað þeim stelp-
um sem gekk vel var boðið út og
þeim gefið tækifæri á að sýna sig
fyrir fjöldanum öUum af umboðs-
skrifstofum. Ég var svo heppin að
komast út og sú skrifstofa, sem bauð
best í mig, starfar fyrir fyrirtækið
Names í Mílanó.
Ég var bara fjórtán ára gömul þeg-
ar þetta byrjaði og því var hjálp frá
umboösmanni og foreldrum vel þeg-
. in. Ég fór út til Mílanó sumarið 1994
og 1995 til fyrirsætustarfa. Kolbrún
Aðalsteinsdóttir, umboösmaður
minn, bjó með mér allt sumarið 1995
og var mér til halds og trausts. í sum-
ar vorum við alls 7 íslenskar stúlkur
saman úti. Að lokinni dvölinni þar
fórum við þijár saman, ég, Guðrún
Lovísa og Kolbrún í Elite Model Lo-
ok-keppnina í S-Kóreu.
Viö þijár áttum mjög gott samstarf
og hvöttum hver aðra. Það skipti
ekki litlu máli í keppninni þegar upp
var staðið. Það er mjög mikilvægt að
hafa leiðbeinanda með sem leggur
Unurnar, segir manni hvað betur
megi fara og sUpar af manni gallana
í framgöngu. Það var talað um það
lengi á eftir sýninguna í S-Kóreu
hvað við Guðrún vorum ofsalega
góðar á sviðinu. Við komum fram
fullar af sjálfstrausti og skælbros-
andi á meðan margar hinna voru
hugsandi: „Ætli þetta sé nægilega
gott hjá mér“.
Það var búið aö spá því að ég kæm-
ist í 15 manna úrsUt en alls ekki er
víst að við hefðum náö svona langt
ef svona vel hefði verið staðið að
málum.“
Söfnunarmiðstöðvar
I landssöfnuninni
konurog
börrineyð
3. september 1995
ReyKíavík
Hverfi 101
Hitt húsið, Aðalstræti 2
Hverfi 103 og 105
Tónabær v/Skaftahlíð
Seltjarnarnes
Seltjarnarneskirkja
Þróttheimar v/Holtaveg Hverfi 107 Félagsmiðst. v/Frostaskjól Kópavogur. Sunnuhlíð
Garðabær Flataskóli
Hverfi 108 Bústaðir v/Bústaðaveg Bessastaðahreppur
Hverfi 109 ZZZZZ Hólmasel, Hólmaseli 4-6 Hverfi 110 Hafnarfjörður Bæjarhraun 2
Hverfi 111
FellahelKr v/Norðurfell
Hverfi 112
Fjörgyn v/Logafold
Reykjalundur
Rauðakrossdeildir
um land allt