Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Side 24
24
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
j
Fréttir
Steingrímur J. Sigfússon um formannskjörið 1 Alþýðubandalaginu:
Alþýðublaðið beitir
sér fyrir Margréti
. - afkáralegtaðblaðiðblandiséríinnrimálefnifLokksins
Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður segir að ný forysta flokksins, sem kosin verður á landsfundi í haust,
verði að taka á fjármálum flokksins en segir alrangt að hann hafi boðað uppsagnir á flokksskrifstofunni.
DV-mynd GVA
- Sameining vinstri manna hefur
verið til umræðu eftir að Reykja-
víkurlistinn komst til valda i
Reykjavík. Munt þú beita þér fyrir
slíkri sameiningu innan Alþýðu-
bandalagsins?
„Ég vil halda öllum dyrum opn-
um. Ég held að lærdómurinn af
kosningunum síðasta vor sé sá að
menn nái ekki árangri með því aö
tvístra sér enn frekar. Fyrst þurfa
menn að ræða sig í gegnum málefn-
in og finna hina málefnalegu sam-
nefnara. Þá verður auðveldara við-
fangs að finna form sameiningar
eða samstarfs.“
- Ætlarðu að beita þér fyrir sam-
einingu vinstri aflanna?
„Þetta er á dagskrá og verður það
áfram. Ef það kemur til minna
kasta að leiða Alþýöubandalagið
næstu misserin mun ég að sjálf-
sögðu taka fullan þátt í því en menn
eiga að varast að reka þetta mál
með yfirlýsingum í íjölmiðlum. Við
sameinum ekki vinstri menn í
beinni útsendingu."
Flokksmálgögn
geta gert ógagn
- Myndir þú sætta þig við það að
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leiddi
sameiningu vinstri manna?
„Það er algjörlega ótímabært að
ræða persónur og væri bara að
byrja á öfugum enda. Persónur
skipta ekki sköpum og koma síðar.
Ég ætla ekki að útiloka neinn ein-
stakling."
- Útgáfa flokksblaða hefur gengið
brösuglega. Er grundvöllur fyrir
sameiginlegu vinstra blaði?
„Ekki flokksmálgagni. Ég hef
enga trú á að það yrði öflugur mið-
ill. Ég vil aö menn stuðli að öflug-
um fjölmiðli sem styður vinstri
gildi með sambærilegum hætti og
Morgunblaðið og styður hægri gildi
án þess að vera háð Sjálfstæðis-
flokknum. Menn gætu ýtt viðræð-
um um slíkt af stað og lagt niöur
núverandi útgáfu á vegum flokk-
anna. Slíkt væri jákvætt innlegg í
átt til aukinnar samstöðu til
vinstri.
Flokksmálgögn geta gert ógagn
og skrifað menn í sundur með dags
daglegri tilhneigingu til að skerpa
andstæðurnar og höggva í and-
stæðinginn. Ágætt dæmi um það
eru fáfengileg skrif Alþýðublaðsins
í allt sumar um formannsmál okk-
ar.“
- Hvað áttu við með því?
„Alþýðublaðið hefur með áber-
andi hætti reynt að gera úr for-
mannskjörinu hanaat og æsa það
upp en haft lítinn árangur. Þaö
hefur á köflum tekið afstöðu og það
finnst mér afkáralegt þegar um
málgagn annars flokks er að ræða.
Það eru ekki slæm meðrnæh aö
Alþýðublaðið sé á móti mér og það
vandaði mér ekki kveöjurnar í leið-
ara. Svo fara menn að velta vöng-
um yfir því hvers vegna þaö bland-
ar sér í innri málefni annars flokks
og í hvaða tilgangi. Á þessu hefur
líka örlað hjá öðrum fjölmiðlum,
Þjóðvakablaöinu og Morgunblað-
inu.“
Kosið um persónur
- Margrét leggur áherslu á öflug-
ara flokksstarf og meira lýðræði
innan flokksins. Er þetta ekki áfell-
isdómur yfir núverandi forystu?
„Nei. Það eru allir sammála um
þetta. Mér finnst Margrét vissulega
setja hlutina fram með þeim hætti
að ástæða væri til að Ólafur Ragnar
Grímsson væri til staðar til að
svara fyrir sig því að gagnrýni
hennar beinist fyrst og fremst að
honum. Formaður flokksins, fram-
kvæmdastjórn og framkvæmda-
stjóri bera ábyrgð á flokksstarfinu
og daglegum rekstri. Hlutverk
varaformanns er eingöngu að vera
formaður miðstjórnar og undirbúa
og stjórna fundum hennar. Það
þykist ég hafa gert bærilega.
Margrét hefur verið í fram-
kvæmdastjóm lengur en ég þannig
aö henni er máhð mjög skylt."
- Málefnaágreiningur er litill.
Hvers vegna skyldu flokksmenn
frekar styðja þig en hana?
„Það er sem betur fer ekki auð-
velt að setja fmgurna á neinn djúp-
stæöan málefnaágreining milli
okkar enda erum við pólitískir
samheijar. Kosningarnar snúast
um það hvoru okkar sem einstakl-
ingi flokksmenn treysta betur til
að leiða hreyfinguna."
- Ymsir þykjast sjá átökin milli
Ólafs Ragnars og flokkseigendafé-
lagsins endurspeglast i formanns-
kjörinu. Þú ert tengdur við gömlu
flokkseigendaklíkuna. Er verið að
taka afstöðu milli arma?
„Nei. Það er fjarri lagi. Nokkrir
tugir af dyggum stuðningsmönn-
um mínum studdu Ólaf Ragnar til
Yfirheyrsla
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
formennsku á sínum tíma og marg-
ir þeirra hafa verið nafngreindir
opinberlega. Landslagið er gjör-
breytt, sem betur fer, en auðvitað
er ekki hægt að útiloka að þetta
birtist að einhverju leyti gegnum
stuðningsmenn okkar. Ég held að
hér séu frekar á ferðinni tilburðir
andstæðinga okkar til að draga upp
mynd af innri málum Alþýðu-
bandalagsins sér hagstæða og
stuðningsmanna sem missa svolít-
ið stjórn á sér.“
Slepp ókalinn á hjarta
- Ætlarðu að una niðurstöðunni og
halda áfram sem varaformaður ef
Margrét nær kjöri?
„Ég mun sætta mig við niðurstöö-
una og sleppa ókalinn á hjarta frá
þessari kosningu á hvorn veginn
sem hún fer. Ég útiloka ekkert fyr-
irfram í sambandi við uppstillingu
í stjórn flokksins. Okkar bíður það
verkefni að sætta alla við niður-
stöðuna og tryggja að flokkurinn
standi sameinaöur á bak við nýja
forystu. Ég er búinn að sitja minn
reglubundna tíma sem varafor-
maður og á aðeins möguleika á að
sitja tvö ár í viöbót á grundvelli
undanþágureglu. Það kæmi ein-
faldlega til skoðunar."
- Hvaða nýliðun sérðu fyrir þér í
þingflokki Alþýðubandalagsins og
helstu áhrifastöðum ef þú nærð
kjöri?
„Við þurfum aö tefla fram yngra
fólki í stórum stíl til trúnaðar- og
forystustarfa á næstu árum. Það
verður eitt af mínum forgangs-
verkefnum að blása nýju lífx í og
stórauka starf ungs fólks í flokkn-
um.“
- Geturðu nefnt einhver nöfn?
„Nei. Það er fullt af efnilegu ungu
fólki sem á erindi inn í flokksstarf-
ið og forystusveit okkar.“
Styöjum ekki
hærra vöruverð
- Verða mannaskipti á flokksskrif-
stofunni, til dæmis í stöðu fram-
kvæmdastjóra?
„Það kemur í ljós. Framkvæmda-
stjórn ber ábyrgð á mannaráðning-
um. Formaðurinn ræður því ekki
einn. Ný framkvæmdastjórn verð-
ur kosin á landsfundinum og hún
ásamt formanninum fær það verk-
efni að endurskipuleggja rekstur
flokksins. Þar þarf að gera ýmsar
breytingar og borga niður allmikl-
ar skuldir en það er rangt að ég
hafi fyrirfram tilkynnt um upp-
sagnir."
- Ofurtollarnir vöktu gífurlega at-
hygli þegar verðhækkun á græn-
meti kom í ljós nýlega. Hvaða af-
stöðu hefur þú?
„Við í Alþýðubandalaginu tókum
það gilt síöasta vor, eins og aðrir,
að vara ætti ekki að hækka í veröi
með tilkomu GATT. Það sem aug-
ljóslega hefur farið úrskeiðis á að
leiðrétta. Innflutningur sem er við
lýði á að vera það áfram á ekki lak-
ari kjörum. Við styðjum ekki
hækkað vöruverð í skjóh GATT.
Menn reiknuðu frekar með breyt-
ingu í þá átt að lækka hér vöru-
verð. Á hinn bóginn teljum við að
íslenskur landbúnaður eigi að fá
eðlilega og sanngjarna aðlögun að
breyttum markaðsaðstæðum eins
og iðnaðurinn á sínum tíma.“
Útiloka ekki
einkavæðingu
- Eiga Islendingar samleið með
Evrópuríkjum eða geturðu útilok-
að ESB-aðild?
„Eins og aðstæður eru nú tel ég
aðild að ESB ekki koma til greina.
Við eigum að halda góðum sam-
skiptum í allar áttir, við Evrópu
og ameríska meginlandið og líka
við Asíu. Gegnum alþjóðastofnan-
ir, til dæmis Sameinuðu þjóðirnar
og Alþjóðaviðskiptastofnunina,
eigum við að byggja okkar alþjóð-
legu samskipti. Sem lítið land með
mikla sérstöðu og sérhagsmuni eig-
um við að forðast að lokast af í yfir-
þjóðlegu bandalagi."
- Sala ríkisbanka hefur verið til
umræðu innan Framsóknarflokks-
ins. Ertu fylgjandi sölu ríkisbanka?
„í einkavæðingarumræðu und-
anfarinna ára hef ég reynt að gera
skýran greinarmun á því hvers
eðlis starfsemin er. Ég sé ekkert
að því að einkavæða prentsmiðju
eða ferðaskrifstofu. Þegar kemur
að mikilvægum undirstöðustofn-
unum og einokunarstofnunum er
ég afar tortrygginn á einkavæð-
ingu, sérstaklega þegar það er bara
einkavæðingarinnar vegna og eng-
in haldbær rök. Ég held að einn
öflugur ríkisbanki geti verið trygg-
ing fyrir okkar efnahagslega sjálf-
stæði en útiloka ekki neinar breyt-
ingar fyrirfram."