Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Side 25
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
25
Fréttir
Margrét Frímannsdóttir, frambjóðandi til formanns í Alþýðubandalaginu:
Ég er ekki leppur
Ólafs Ragnars
- virði hann og hans störf afar mikils og engin skömm að vera spyrt við hann
Margrét Frímannsdóttir telur að endurskoða þurfi hlutverk rikisstofnana því að verkefni skarist, sameina
þurfi sumar stofnanir og selja aðrar á réttu verði. Hún vill að ágóðanum verði varið til nýsköpunar í atvinnulifi.
DV-mynd GVA
„Auðvitað er þetta áfellisdómur spyrt við hann. Ég hef fullan hug
yfir núverandi forystu. Innra starf á að breyta starfsemi Alþýðu-
flokksins hefur verið á verkefna- bandalagsins og hef trú á því að
skrá varaformanns Alþýðubanda- mér takist það í samvinnu flokksfé-
lagsinsenþingmennflokksinsbera laga um land allt. Ef flokksmenn
mikla ábyrgð. Við höfum dottið í væru virkir í starfi, ef flokkurinn
þá gryflu að móta stefnuna án sam- vaeri með lýðræðislega umfjöllun
ráðs við aðra. Okkur hefur hætt til
þess að koma með hana tilbúna og
ætlast til þess að flokksmenn sam-
þykktu hana.“
Ekki fulltrúi
annars armsins
Yfirheyrsla
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
- Er sameining vinstri aflanna bar-
áttumál númer eitt, tvö og þrjú í
dag?
„Þetta er ekki baráttumál númer
eitt, tvö og þrjú. Það eru kjara- og
réttlætismálin. Hins vegar er mik-
ilvægt að vinstrimenn nái saman.
Sundrungin sem hefur einkennt
okkur er óþolandi."
- Ætlarðu að beita þér fyrir sam-
einingu ef þú nærð kjöri?
„Auðvitaö mun ég beita mér fyrir
því aö hér myndist breiö og sterk
fylking vinstrimanna til að taka við
stjóm landsins. Hvort það gerist
með sameiningu, bandalagi eða á
annan hátt verður tíminn að leiða
í ljós.“
- Geta flokkarnir sameinast fyrir
næstu kosningar?
„Það vona ég, að minnsta kosti
um sameiginleg markmið."
- Muntu beygja þig undir forystu
Ingibjargar Sólrúnar ef það yrði til
sameiningar?
„Ég hef mikið álit á Ingibjörgu
Sólrúnu en við eigum ekki að gera
henni erfitt fyrir í þvi starfi sem
hún er í núna með því að draga
hana inn í umræðuna á þennan
hátt.“
Áfellisdómur
á forystuna
- Þú hefur lagt áherslu á öflugara
flokksstarf og aukið lýðræði. Að
öðru leyti er enginn málefnaágrein-
ingur. Er formannskjörið aðeins
kynjaspursmál?
„Nei. Alls ekki. Þetta er spurning
um breytingu á flokknum, bæði í
starfi og stefnumörkun, og kannski
fyrst og fremst spurning um að
flokksstarfið breytist. Það verður
að viðurkennast að flokkurinn hef-
ur ekki þær rætur sem hann hafði
í þjóðfélaginu. Það má að vissu leyti
rekja til þess að stofnanir flokksins
eru lítið virkar. Mikilvæg málefni
eru lítið rædd innan flokksins og
því hefur hinn almenni flokksfélagi
lítil áhrif á stefnumörkun. Kvóta-
kerfið felur til dæmis í sér að auður
þjóðarinnar safnist á fárra manna
hendur. Það getum við aldrei sam-
þykkt. Okkur hættir til að taka
svona erfið mál, setja þau ofan í
pott og vona að ekki sjóði upp úr.“
- Hvers vegna ættu flokksmenn
frekar að styðja þig en Steingrím
til formanns?
„Það verða þeir að gera upp við
sig sjálfir. Ég legg mikla áherslu á
innra flokksstarf og valddreifingu.
Ríkið er að færa aukin verkefni
yfir til sveitarfélaganna en stjórn-
málamennirnir taka ekki nógu
virkan þátt í stefnumótun flokksins
í þessum efnum, virða þá sem
stjórnmálamenn. Vægi þeirra og
nins almenna flokksfélaga í stefnu-
mótun er afar lítið.“
- Þú hefur gagnrýnt núverandi for-
ystu Alþýðubandalagsins fyrir lítið
innra starf. Ertu að fella áfellisdóm
yfir formanni og varaformanni
flokksins?
- Þú ert sjálf hluti af þessu. Skrif-
ast þetta ekki líka á þinn reikning?
„Jú, ég á vissulega hluta af þess-
ari ábyrgð sem þingmaður og skor-
ast ekki undan henni. Ég sé hins
vegar nauðsyn á að breyta þessu
og tala um það innan flokksins."
- í formannskjörinu má greina
ágreining milli flokksarma. Ert þú
í sveit með Ólafi Ragnari eða ertu
í flokkseigendafélaginu?
„Ég lít á þessar kosningar sem
kosningar milh arma. Ég er ekki
leppur Ólafs Ragnars Grímssonar
þó ég virði hann og hans störf afar
mikils og alls engin skömm að vera
um flest stefnumál, þá hefði þetta
armatal ekki orðið til. Þá yrðu
þingflokkurinn og forystumenn að
fara að vilja og stefnu flokks-
manna."
Varaformaðurinn
verði á launum
- Viltu hafa Steingrím áfram sem
varaformann ef þú nærð kjöri?
„Ég hef ekki velt því fyrir mér.
Samkvæmt endumýjunarreglunni
á hann að hætta. Það er nauðsyn-
legt að gera starf varaformannsins
veigameira. Ég sé fyrir mér að þetta
verði launað starf í framtíðinni við
að byggja upp innra starf flokks-
ins. Þar þurfa formaður og vara-
formaður að leggjast á eitt. Ég tel
ekki æskilegt að varaformaður sé
jafnframt þingmaður, hvað þá ráð-
herra."
- Finnst þér koma til greina að
kanna aðild að ESB í næstu fram-
tíð?
„Nei, ekki eins og er. Við erum
aðhar að mörgum alþjóðlegum
samningum og samþykktum. Okk-
ur ber að fara afar varlega varð-
andi Evrópusambandið til að glata
ekki fullveldinu. Framtíðin verður
að leiða í ljós hvað við gerum og
hver staða okkar verður. Við eigum
vissulega að efla viðskipti innan
Evrópu en ekki einskorða okkur
við það.“
Einn öflugur
ríkisbanki
- Hvernig hefur ríkisstjórninni
tekist að ná tökum á GATT?
„Illa. í ræðu sem formaður Sam-
bands kúabænda flutti nýlega benti
hann á að ofurtollamir muni ekki
gera það gagn sem þeim er ætlað.
Það er vissulega þörf á því að
vernda íslenska framleiðslu en við
ætluðum að búa til girðingar eftir
á, eins og alltaf. Við eigum aö efla
og undirbyggja atvinnuvegi þannig
að þeir séu tilbúnir til að takast á
við samkeppnina. Það höfum viö
ekki gert og allra síst í landbúnaði."
- Ertu fylgjandi sölu ríkisbanka?
„Ég tel nauðsynlegt að hafa einn
öflugan ríkisbanka. Það á þá að
vera ríkisbanki með stóru erri,
hann á að fylgja stefnu stjórnvalda
í peningamálum hverju sinni. Það
hefur allt of oft verið ósamræmi
þarna á milli og valdið erfiðleikum
í efnahagsstjórnun.
Hallanum á ríkisfjármálum verð-
ur ekki náð niður með þeim aðferð-
um sem nú er beitt. Ef á að hafa
þetta þannig að ekki er hægt að
færa milli ráðuneyta í rammafiár-
lögum og forgangsraða verkefnum,
skera niður verkefni sem verða að
bíða þá náum við aldrei árangri.
Það er fyrir löngu komin þörf á því
að endurskoða hlutverk ríkisstofn-
ana. Það er örugglega hægt að sam-
eina ríkisstofnanir, selja aðrar á
réttu verði og nota ágóðann til ný-
sköpunar í atvinnulífi."
Sameina Skógræktina
og Landgræðsluna
- Hvaða ríkisstofnanir viltu sam-
eina og hvaða stofnanir viltu selja?
„Ég er ekki tilbúin til að koma
með áþreifanleg dæmi en get nefnt
aö það þarf að fara ofan í kjölinn á
starfsemi allra rannsóknarstofn-
ana vegna þess að verkefni skarast
mihi stofnana, jafnvel ráðuneyta.
Hægt er að sameina Skógrækt rík-
isins og Landgræðslu ríkisins og
breyta eðli starfseminnar, færa
verkþætti til bænda en efla rann-
sóknar- og eftirlitsþáttinn og ráð-
gjafarhlutverk þessara stofnana.
Við eigum að taka fyrir ákveðin
ráðuneyti og ákveðna málaflokka á
hverju ári í nokkur ár.
Það er sorglegt að koma inn á
heilbrigðisstofnanir sem geta
hvorki hætt né haldið áfram starf-
semi vegna þess að fiárlögin eru
knöpp og alltaf skorið flatt. Skoða
þarf hverja einustu heilbrigðis-
stofnun og gera heilbrigðisáætlun
til sex eða átta ára. Við verðum að
marka þessum stofnunum hlut-
verk og fá þeim fiárlög í samræmi
við það.“
- Islenskar konur eru komnar á
ráðstefnu til Kína. Telurðu raun-
hæft að konur geti mótmælt stefnu
stjórnvalda?
„Því miður er það ekki raunhæft.
Konumar hljóta að hafa vegið og
metið fræðslugildi ráðstefnunnar
eða hvort þær ættu að sitja heima
og mótmæla. Ég býst við að
fræðslugildiö hafi orðiö ofan á. Mín
tilfinning var sú að við ættum ekki
undir neinum kringumstæðum aö
fara. Sterkustu mótmælin hefðu
auðvitað verið þau að forseti ís-
lands heföi ekki farið á ráðstefn-
una. Það hefði kannski verið það
sem skipt hefði máli.“
- Hefðir þú viljað að forseti íslands
færi ekki?
„Já. Það er mín skoðun."