Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Side 34
42
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
Trímin____________________________________________________________________dv
Reykjavíkurmaraþonið:
Einhverfur piltur
hljóp 10 kílómetra
-bætti tímann frá fyrra ári um 20 mínútur
Bragi Óskar Baldursson, einhverfur 23 ára Reykvíkingur, hljóp 10 kílómetra
í Reykjavíkurmaraþoni. DV-mynd GVA
Það er óhætt að fullyrða aö Bragi
Óskar Baldursson, 23 ára Reykvík-
ingur, haföi nokkra sérstöðu meðal
rúmlega 3.000 þátttakenda í Reykja-
víkurmaraþoni. Bragi var að taka
þátt í Reykjavíkurmaraþoni í annað
sinn og bætti tímann sinn frá fyrra
ári um tæplega 20 mínútur. Hann fór
10 kílómetra í ár á 1 klst. og 50 sek.
en 1 klst. og 20 mínútum í fyrra. Bragi
hefur undanfarin tvö ár þjálfað und-
ir handleiðslu Jakobs Braga Hannes-
sonar sem er þekktur skokkleiðbein-
andi og þjálfari. Og hvað er þá svona
merkilegt viö þetta? Jú, Bragi Óskar
er einhverfur og þurfti þess vegna
'i' aðstoðarmann með sér allt hlaupið.
„Ég er sannfærður um að Bragi
hefði getað farið á betri tíma en hann
gerði. Hann er betri hlaupari en ég
svo það var ég sem hélt aftur af okk-
ur. Við hlupumi samhliða allan tím-
ann en ég fann vel að hann þekkti
leiðina því hann hefur farið þetta
áður,“ sagði Sverrir Sverrisson í
samtali við Trimmsíðuna. Sverrir
hljóp 10 kílómetrana með Braga en
hann er nemi í Fósturskólanum og
vann í sumar á Sambýlinu á Sæbraut
. 2 þar sem Bragi býr og hefur gert
síðustu fimm ár.
„Við vorum auðvitað orðnir hund-
blautir og kaldir þegar við komum á
leiðarenda en Bragi lét engan bilbug
á sér flnna heldur hljóp af hörku alla
leiðina. Þegar markið var í augsýn
fannst honum það ekkert skemmti-
legt heldur vildi gjarnan halda áfram
og hlaupa upp Laugaveginn því hon-
um fannst auðsýnilega gaman,“
sagði Sverrir.
Einhverfir eiga jafnan erfitt með
mannleg samskipti og þar á meðal
getur mannijöldi virkað þrúgandi á
þá og þeim liðið illa innan um margt
fólk. Að sögn Sverris var Bragi nokk-
uð órór þegar þeir komu fyrst niður
í Lækjargötu áður en ræst var en
' hann smitaðist af jákvæðum spenn-
ingnum og eftirvæntingunni sem
ríkti við marklínuna og þeir félagar
þutu af stað í sönnum maraþonanda.
„Ég hafði lítið hlaupið áður en ég
fékk þetta verkefni en skokkaði
reglulega með Braga fimm vikur fyr-
ir maraþoniö og ég er stórhrifmn af
því og býst við að halda því áfram.“
Jakob Bragi Hannesson, sem hefur
starfað á sambýlinu á Sæbraut und-
anfarin tvö sumur, hefur farið reglu-
lega út að skokka með Braga og Páh
Arnarsyni sem einnig er heimilis-
maður á Sæbraut. Að sögn Jakobs
hefur þjálfunin gengið vel og haft góð
áhrif á þá félaga að hans mati en
þeir hafa jafnan farið um göngustíga
meðfram sjónum allt inn í Nauthóls-
vík.
„Bragi er mjög orkumikill og hefur
fengið mikla útrás fyrir orkuna í
hlaupunum með Jakobi og er fyrir
vikiö í betra jafnvægi og líður bet-
ur,“ sagði Ólafur Mogensen, for-
stöðumaður á Sæbraut, í samtali við
Trimmsíðuna. Hann sagði að líkams-
þjálfun gerði einhverfum ekkert síð-
ur gott en öðru fólki og þekkt væru
heimili erlendis þar sem þjálfun af
þessu tagi væri beitt í meðferð ein-
hverfra. Slíkt hefði ekki enn veriö
gert hérlendis en það starf sem Jakob
Bragi hefur unnið með tveimur
heimihsmönnum á Sæbraut væru
fyrstu dæmin um slíkt starf á ís-
landi.
Grafarvogs-
hlaup
næsta
laugardag
Laugardaginn 9. september, sem
töluglöggir lesendur vita að er
næsti laugardagur, verður sannar-
lega gaman í Grafarvogi. Þann dag
verður ákafiega líflegt í þessu
barnflesta hverfi Reykjavíkur og
jafnframt því nýjasta.
Grafarvogshlaup Fjölnis hefst
stundvíslega klukkan 14.00 að Stór-
höfða 17. Skráning verður á sama
stað frá kl. 12.00 til 13.00. Vega-
lengdin er 3,5 kílómetrar og hlaup-
ið sniöið að þörfum yngstu kyn-
slóðarinnar. Skipt verður í tvo
flokka, þ.e. 12 ára og yngri og 15
ára og eldri. Upplýsingar gefur Jó-
hann Jakobsson í síma 567-6153.
Að hlaupa
í berjamó?
Nú er rétti árstíminn til þess aö
hlaupa í beijamó og skófla í sig
safaríkum blá- og krækiberjum.
Hitt er svo annað mál að við mikið
berjaát getur sem hægast hlaupið
á berjaætuna og er þá verr farið
en heima setið.
Orðhagur skokkari lét Trimmsíð-
unni í té eftirfarandi orðskýringar:
Mógleði: Sú kæti sem grípur um
sig á berjamó.
Að vera berdreyminn: að dreyma
fyrir berjum.
Að vera berhentur: að vera berja-
blár á höndunum.
Móleiði: að vera leiður á beijamó.
Berangur: hugarangur og leiöi á
berjamó, berjahreinsun og berjaáti
yfirleitt.
Kópavogssundið aftur
- og allir með
^Sizijip
ÍSLANDSMÓTIÐ
1. DEILD KVENNA
MIZUNO-DEILDIN
Sunnudagur3. sept.
kl. 17.00.
Akureyrarvöllur
ÍBA-ÍA
Hlíðarendi
Valur-KR
Ásvellir, Hafnarf.
Haukar-ÍBV
Kópavogsvöllur
Breiðablik-Stjarnan
A morgun, sunnudaginn 3. sept-
ember, fer fram í Sundlaug Kópa-
vogs sundkeppni fyrir almenning
sem nefnd hefur verið Kópavogs-
sundið. Umrætt sund var haldið í
fyrsta sinn í fyrra og þá tóku nærri
500 manns þátt í því.
Fyrirkomulagið er með þeim
hætti að þátttakendur skrá sig og
fá í hendur talningarkort en talið
verður fyrir aha sem synda. Sund-
menn og konur ákveða sjálf hve
langt eða lengi þau synda og engin
tímamörk eru sett keppendum í því
efni önnur en tímamörk sjálfrar
keppninnar sem stendur frá kl. 7.00
til 22.00. Keppendur vinna sér inn
verðlaunapening samkvæmt vega-
lengd og er veitt brons fyrir 500
metra eða meira, silfur fyrir 1.000
metra eða meira og gull fá allir sem
synda 1.500 metra eða lengra. Enn-
fremur verða veitt afreksverðlaun
þeim sem synda lengstu vegalengd-
ina í hveijum aldursflokki en
flokkarnir eru alls átta.
Allir þátttakendur fá skjal til
staðfestingar um þátttöku, stutt-
ermabol með merki keppninnar og
Sparisjóðs Kópavogs, svaladrykk
frá Sól og Ultra Swim sjampó. Þátt-
tökugjald er 700 krónur fyrir full-
orðna, 500 fyrir ehilífeyrisþega og
300 krónur fyrir böm fædd 1980 og
síðar og er aðgangur að sundlaug-
inni innfahnn. Skráning er í af-
greiðslu Sundlaugar Kópavogs og í
síma 564-2560.
Guömundur Harðarson, for-
stöðumaður Sundlaugar Kópavogs,
sagði í samtali viö Trimmsíðuna
að búist væri við góðri þátttöku.
Ýmsir vankantar hefðu verið
sniönir af eftir reynslu fyrra árs
og vildi hann hvetja sem allra flesta
til þátttöku.
Markmiðið með þessari almenn-
ingskeppni, þar sem hver er í raun-
inni aö keppa við sjálfan sig, er að
gefa þeim sem stunda sund með
reglulegum hætti kost á almennri
keppni í líkingu við það almenn-
ingshlaup sem nýtur vinsælda.
Sund er tilvahn fjölskylduíþrótt og
rétt að minna á að á keppnisdag
verða seldar kökur í anddyri sund-
laugarinnar í Kópavogi á vegum
sunddeildar Breiðabliks.
í fyrra synti sá þátttakandi sem
lengst fór 21 kílómetra. Margir fóru
nokkra kílómetra og vitað er um
marga trimmara sem eru í góðri
þjálfun eftir hlaup sumarsins og
hugsa sér gott til glóðarinnar að
taka vel á því í Sundlaug Kópavogs
á morgun.