Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1995, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
55
Fréttir
Var að verja hlutaféð sem stjómin samþykkti, segir Benedikt Jónsson:
Breytir engu um
okkarafstöðu
- segir formaður stjómar Lífeyrissjóðs bænda
Benedikt Jónsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda,
segir í yfírlýsingu að meginástæða
þess að hann stóð að veitingu 90
milljóna króna láns til flugfélagsins
Emerald Air hafi verið sú að verja
það 11 milljóna króna hlutafé sem
stjórn sjóðsins hefði ákveðið að
leggja í félagið. Auk þess hefði til-
gangurinn verið aö ná ríflegri ávöxt-
un á fé sjóðsins á skömmum tíma.
Benedikt segir að haustið 1994 hafi
stjórn Lífeyrissjóðs bænda ákveðið
að kaupa hlutafé í Emerald Air fyrir
um 11 mUljónir.
Sérstakt minnisblað
til stjórnar
Síðan segir í yflrlýsingunni:
„Snemma í nóvember 1994 var
stofnað eignarhaldsfélagið Activa hf.
til að halda utan um hlut íslenskra
hluthafa í Emerald Air. Undirritaður
var kosinn stjórnarformaður á stofn-
fundi Activa og í stjórn Emerald Air
skömmu seinna. Stjórn sjóðsins var
strax greint frá þessu á sérstöku
minnisblaði. AUnokkrir stjómar-
fundir hafa verið haldnir síðan og
ekki liggja fyrir neinar bókaðar at-
hugasemdir af hálfu stjórnar Lífeyr-
issjóðs bænda um þessa stjórnarþátt-
töku.“
Benedikt segist hafa verið sann-
færður í upphafi um aö Emerald Air
tækist að komast af stað í fullan
rekstur og að öll lán yrðu endur-
greidd. Hann bendir á að á hið síöar-
nefnda hafi ekki reynt.
„í ágústmánuði sl. varð undirrituð-
um hins vegar ekki ljóst að rekstur
Emerald Air var ekki með þeim hætti
sem hann hafði tahð.“ Benedikt telur
að ekki sé um saknæmt athæfi að
Skákviðburður:
Gamlir snillingar
á afmælismóti
Stórmeistarinn Friðrik Ólafsson
varð sextugur á þessu ári og í tilefni
þess og honum til heiðurs efnir Skák-
samband íslands til skákmóts og
Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari
íslendinga.
hefst það í dag. Mótið fer fram í Þjóð-
arbókhlöðunni og í tengslum við það
verður í dag opnuð sýning á skák-
bókum og skákmunum.
Friðrik Ólafssonar var sem kunn-
ugt er fyrsti stórmeistari íslendinga.
Hann var í hópi allra sterkustu skák-
manna heims meðan hann einbeitti .
sér að skáklistinni. Á þetta afmælis-
mót koma nokkrir erlendir stór-
meistarar sem voru upp á sitt besta
á sama tíma og Friðrik og taka þeir
ásamt honum þátt í mótinu. Þar má
nefna Bent Larsen frá Danmörku,
Vasily Smyslov, fyrrum heimsmeist-
ara, og Svetoza Ghgoric frá Júgóslav-
íu en við hann tefldi Friðrik eitt sinn
skák og sigraði, en hún er talin með-
al frægustu skáka.
Aðrir þátttakendur eru Sofia Polg-
ar, Jóhann Hjartarson, Margeir Pét-
ursson, Helgi Áss Grétarsson, Þröst-
ur Þórhallsson, Hannes Hlífar Stef-
ánsson, Jón L. Árnason, Helgi Ólafs-
son. Keppni hefst í dag klukkan 14.00
en mótinu lýkur 16. september.
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda:
Drög að búvöru-
samningi samþykkt
Aðalfundur Landssamtaka sauð-
Qárbænda samþykkti í gær í megin-
atriðum framkomnar hugmyndir aö
gerð nýs búvörusamnings fyrir
sauðfjárbændur. Nokkrar áherslu-
breytingar voru samþykktar sem þó
eru ekki bindandi fyrir samninga-
nefnd bænda. Fylgjandi drögunum
voru 29, andvígir 6 en 2 sátu Lyá.
Heitar umræður urðu um samnings-
drögin á fundinum sem lauk í gær-
kvöldi
Breytingarnar sem samþykktar
voru kveða meðal annars á um aukn-
ar beingreiðslur, að uppsafnaðar
birgðir verði fluttar úr landi og að
bændur með bú á bihnu 180 til 450
ærgildi geti sótt um 10 prósenta
aukningu á greiðslumarki. Bændum
með minni bú er hins vegar gert að
sanna að þeir hafi lifibrauð sitt af
sauöfjárbúskap.
Á fundinum voru samþykktar
ýmsar tillögur um markaðs- og verð-
lagsmál, þar á meðal tillögur um að
verð á ærkjöti verði lækkað um 20
prósent í haust, að markaðssetning
á kindakjöti verði bætt, að kannaðir
verði möguleikar á að stofna sameig-
inlega kjötheildsölu bænda og unnið
verði að því að lækka slátur- og heild-
sölukostnað. Sauðfjárbændur telja
núverandi kjötmat óviðunandi með
öllu og mælast til að fjármagns verði
aflað til útflutnings á kjöti undir
kjörorðinu „hreint og ómengað".
-kaa
ræða af hans hálfu og þaö sé rangt
að hann hafi reynt að leyna umrædd-
um lánveitingum.
Máliðfer til
rannsóknarlögreglu
Guðríður Þorsteinsdóttir, formað-
ur stjórnar Lífeyrissjóðs bænda,
sagði við DV að yfirlýsing Benedikts
breytti engu um afstöðu stjórnarinn-
ar. Hans þætti í málinu yrði eftir sem
áður vísað til RLR.
Guðríður sagði það ekki koma fram
í yfirlýsingunni að Benedikt hefði
ekki tilkynnt stjórninni þátttöku
sína í stjórnum Activa og Emerald
Air fyrr en eftir á. Það sé þó rétt að
stjórnin hafi aldrei bókað athuga-
semdir við stjórnarsetuna.
„Ég var ekki í stjórninni á þessum
tíma en stjórnarsetan var látin kyrr
liggja. Ef stjórnin hefði látið aftur-
kalla þessa stjórnarsetu hefði það
verið harkalegt og komið út sem van-
traust á hans störf. Benedikt leyndi
þessum lánveitingum þangað til
hann skýrði frá þeim sjálfur 21. ág-
úst sl. en fram að þeim tíma komu
lánveitingarnar ekki fram í bókhald-
inu. Hann talar um starfsreglur og
venjur í yfirlýsingunni. Lánin eru
að sjálfsögðu í algjöru ósamræmi við
lög um lífeyrissjóðinn og í ósamræmi
við venjur að veita há lán án trygg-
inga og án þess að ræða viö stjórn-
ina,“ sagði Guðríður.
Hún sagði það furðulegt að Bene-
dikt héldi því fram að hann hefði
ekki fengið nægar upplýsingar um
rekstur Emerald Air, sérstaklega í
ljósi þess að hann heföi sjálfur setið
í stjórn flugfélagsins.
-bjb
Þarftu að gera
við leka?
Ertu þreyttur á að
endurtaka aðgerðina
annað hvert ár eða
svo, notaðu þá Roof
Kote og Tuff Kote,
amerísk efni sem
þróuð voru 1954 og
hafa staðist reynslu
tímans.
Heildsala:
G K Vilhjálmsson
Smyrlahraun 60
220 Hafnarfjörður
Sími 565 1297
Akureyri:
Lenti undir
vörulyftara
Vinnuslys varð hjá fyrirtækinu
Möl & sandi hf. á Akureyri um
miðjan dag í þegar þegar 18 ára
gamall piltur lenti með fótinn
undir vörulyftara. Pilturinn fót-
brotnaði en slapp að öðru leyti frá
slysinu.
Hann hafði verið uppi á lyftar-
anum þegar honum skrikaði fót-
ur og datt niður á jörðina og und-
irlyftarann. -bjb
Njarðvík:
Ekið á 3ja
ára stúlku
Þriggja ára stúlka slapp ótrú-
lega vel þegar fólksbíl var ekið á
hana þar sem hún var að leik á
Brekkustíg í Njarðvík í gærmorg-
un. Stúlkan fékk rispu og hlaut
kúlu á höfuðið en fékk að fara
heim af sjúkrahúsi eftjr aðhlynn-
ingu.
-bjb
BARMAHLIÐ S
Sækja - senda
Tll
iD
16" pizza + 3 álegg að eigin vali +21 kók
kr. 1.050
18" pizza + 3 álegg að eigin vali +21 kók
kr.1.250 Gildir aðeins efpizzan er sótt
pizza + 3 álegg að eigin vali +21 kók
i fcr 1
18" pizza + 3 álegg að eigin vali +21 kók t"
llö
Heimsending
Alltaf eitthvað nýtt
15 25