Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Síða 2
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995
/jéttir
Sunnlendingur dæmdur fyrir vopnaeign og áfengisframleiðslu:
Átti byssur, hnðfa, lás
boga og gaddakylf u
- var með langa sakaskrá og vopnin voru gerð upptæk
Héraösdómur Suöurlands dæmdi
nýlega 34 ára gamlan mann, búsettan
á Suöurlandi, í 110 þúsund króna
sekt fyrir brot á áfengis- og skot-
vopnalögum.
Það var í nóvembermánuði á síð-
asta ári sem flkniefnalögreglan geröi
húsleit heima hjá manninum á
sveitabæ í nágrenni Hvolsvallar meö
takmörkuöum heföbundnum bú-
skap. Við leit í hlöðu á bænum og
einnig í íbúðarhúsi fannst rifTill,
haglabyssa meö afsöguðu hlaupi, sjö
hnífar með blaði lengra en 12 sentí-
metrar, sjö fjaðurhnífar og tveir
kasthnífar, gaddakylfa, lásbogi og ör,
eftirlíking af skammbyssu og 63
haglaskot. í íbúðarhúsi fundust einn-
ig 90 lítrar af áfengi, eimingartæki,
fleiri tæki til áfengisgerðar og áhöld
til neyslu fíkniefna.
Dómurinn taldi eign mannsins á
eftirlíkingu af skammbyssu og sjö
hnífum með lengra blaði en 12 sentí-
Stuttar fréttir
Akvörðun frestaö
Rikisstjórnin ákvað í gær að
fresta ákvöröun mn móttöku er-
lendra flóttamanna þangað til
Davíð Oddsson forsastisráðherra
kemur til landsins í lok næstu
viku. RÚV greindi frá þessu.
Hannes Hlifar vann
Hannes Hlífar Stefánsson
tryggði sér í gær sigur á Friðriks-
mótinu í skák og hlaut alls 8 vinn-
inga í 11 skákum. í síöustu um-
ferð mótsins náði hann jafntefli
viö Smyslov eftir 10 leiki.
Alvariegtbrot
Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir að kaup er-
lends sjávarútvegsfyrirtælds á
fiskveiðikvóta sé alvarlegt brot.
Fyrir samningsbrotiö eigi menn
að sæta fyllstu ábyrgð..RUV hafði
þetta eftir honum.
Stðrt hlutabréf aútboð
Almennt hlutabréfaútboð hófst
í gær hjá Hlutabréfasjóðnum
Auðlind hf. Urasjón með útboð-
inu hefur Kaupþing og markaðs-
verð útboðsins er 276 milijónir.
Stúdentarharma
Hagsmunanefhd Stúdentaráðs
hefur sent frá sér ályktun þar
sem ákvörðun borgarsfjómar að
samþykkja fargjaidahækkun hjá
SVR er hörmuð. Nefndin bendir
á að stór hluti stúdenta þurfi að
treysta á þjónustu SVR. Þvi komi
hækkunin niöur á naumum fjár-
ráðum þeirra.
Verðhækkunáskinni
Verð á refaskinnum hækkaði
um 11% á skinnauppboði í Kaup-
mannahöfn frá síöasta uppboöi í
júlí. Skv. fréttum RÚV höföu
rússneskir kaupendur sig mjög í
frammi á uppboðinu.
Nýskoðunarstöð
Biffeiðaskoöun íslands opnaði
í gær nýja skoðunarstöð fyrir
fólksbiia við Garðatorg í
Garðabæ. Bifreiðaskoðun íslands
starfrækir nú 13 skoðunarstööv-
gr víðs vegar um landiö. -kaa
metrar ekki brjóta í bága viö lög.
Önnur vopnaeign hans var hins veg-
ar ekki í samræmi við lög.
í dómnum segir aö sakaferill
ákærða sé langur. „Flest brotin eru
hins vegar smávægileg ávana- og
fíkniefnabrot en þó hefur ákærði á
tímabilinu frá 19 ára aldri til dagsins
í dag mátt sæta samtals 25 mánaða
óskilorðsbundinni refsingu síðast
með þriggia mánaöa fangelsisdómi
vegna fikniefnabrots." í ljósi þessa
og hins að maðurinn hafði ekki áður
hlotið dóm fyrir brot á þeim lögum
sem hann var ákærður fyrir þótti
rétt að dæma hann til 110 þúsund
króna sektar og komi 25 daga varð-
hald í stað sektarinnar. Tækin til
áfengisgerðar, áfengið og þau vopn
sem manninum var óheimilt að eiga
voru gerð upptæk.
Jón Ragnar Þorsteinsson héraðs-
dómari dæmdi málið.
-PP
Kristján Ingi Kristjánsson, settur yfirmaður fíkniefnadeildar, við vopnahrúg-
una skömmu eftir að lögreglan lagði hald á þau við húsleit. DV-mynd pp
Barnið fæddist á meðan Ijós-
móðirin skrapp á salernið
- pabbinn stóö sig eins og hetja, segir móöirin, Anna Lísa Franksdóttir
„Eg var með hríðir þegar ljósmóð-
irin þurfti að skreppa á klósettið. Þá
bara kom bamið í heiminn. Pabbinn
varð að gjöra svo vel að taka á móti
því. Þetta gekk allt að óskum og við
eru mjög hamingjusöm," segir Anna
Lísa Franksdóttir, 21 árs nýbökuð
móðir í Neskaupstað.
Anna Lísa varð fyrir þeirri sér-
kennilegu reynslu að fæða stúlku-
bam á sjúkrahúsinu í Neskaupstað
með aðstöð bamsfoður síns, Ölvers
Árna Guðnasonar, rétt í þann mund
sem ljósmóðirin skrapp frá á salem-
ið. Einungis mínúta leið frá því að
ljósmóðirin yfirgaf Önnu Lísu þar til
dóttirin kom í heiminn klukkan rúm-
lega 3 í fyrrinótt. Fæðingin gekk að
óskum og þeim mæðgum heilsast
vel. Dóttirin hefur verið nefnd Alex-
andra Inga og reyndist 12 merkur og
51 sentímetri við fæðingu.
„Ljósmóðurinni dauðbrá þegar
hún kom inn í stofuna. Það eina sem
hún þurfti að gera var að klippa á
naflastrenginn. Pabbinn var mjög
stressaður meðan á þessu stóð en er
mjög stoltur núna. Hann hringsner-
ist og ætlaði að hlaupa og ná í hjálp
þegar ég kallaði á hann og sagði hon-
um að barnið væri að koma. Hann
stóð sig eins og hetja.“
Anna Lísa segir að hvorki hún né
Ölver hafi haft tíma til að hræðast
fæðinguna. Sjálf hafi hún reynt að
stoppa fæðinguna og bíða eftir ljós-
móðurinni en það hafi einfaldlega
ekki verið hægt.
„Mér gafst ekki einu sinni tími til
að komast í fæðingarrúmið. Ég var
að hvíla mig eftir að hafa gengið um
og þá gerðist þetta án þess að ég fengi
við nokkuð ráðið.“ '
-kaa
Eldur
lll
BeitiNK
„Viö erum merð sjálfvirkt
slökkvikerfi í vélarrúminu og þaö
bjargaði málunum,“ segir Finn-
bogi Jónsson, framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar í Neskaup-
stað, en eldur kom upp í einum
togara fyrirtækisins, Beiti NK, í
Smugunni í gær.
Glussarör sprakk í vélarúminu
og blossaði bálið upp. Varðskipið
Óðinn var kallað á vettvang og
fór reykkafari um borð. Skemmd-
ir urðu nokkrar en þó ekki svo
miklar að senda verði togarann
heim. Beitir NK er um 750 tonn
aö stærö. -GK
Pörupiltar
gripnir með
skammbyssu
Þrír pörupiltar voru síðustu
nótt handteknir í miöbæ Reykja-
vikur eftir að hafa hleypt af
nokkrum skotum úr skamm-
byssu sem leit mjög raunverulega
út en var úr plasti og aöeins púö-
ur í skotunum.
Setti ugg að nærstöddum enda
höfðu piltamir í frammi dólgs-
læti og miðuðu byssunni að veg-
farendum. Lögreglan tók „byssu-
mennina“ og vopnið í sína vörslu.
Verða drengirnir ákærðir fyrir
tiltækið. -GK
Drukknaði
við Namibíu
íslenskur sjómaður hvarf af
togara við Namibíu á miðviku-
daginn. Leit aö manninum á sjó
og úr lofti hefur engan árangur
borið og er hann talinn af.
Ekki mun ljóst hvemig slysið
varð en mannsins var saknað
þegar átti að ræsa hann til vinnu.
Formenn þingflokka og þingforseti:
Afla gagna og skoða málið betur
Atvlnnuleyslð f égúst 1994 og '95
Það varð niðurtstaðan af fundi for-
manna þingflokkanna og forseta Al-
þingis í gær, þar sem mótmælin við
ákvörðun þingmanna um að greiða
sér 40 þúsund króna skattfría kostn-
aðargreiðslu vom rædd, aö afla
greinargerðar um skattalega með-
ferð allra sérgreiðslna í launum, alls
staðar í þjóðfélaginu. Eins verður
aflað gagna um dóma kjaradóms og
úrskurði kjaranefndar á síðustu
missemm. Það var ekkert útilokað á
fundinum en ákveöið að fara í þessa
vinnu áður en nokkrar ákvarðanir
yrðu teknar.
Strax að loknum fundi forseta og
formanna þingflokkanna var hald-
inn fundur forsætisnefndar Alþingis
en það em forseti og varaforsetar
Alþingis. Þar var það sama ákveðið,
að afla gagna, og síðan ætlar forsæt-
isnefndin að koma aftur saman í
næstu viku.
- \
1,5 1,1
SflZJ
VESTFIRÐIR
3,0 3,3
H|' ' ’""
3,0 3>8
’ r~
1
NORÐURL. EYSTRA
NORDURL. VESTRA
VESTURLAND
HD
4,0
4,5
2,1 m
HOFUD-
BORGARSV.
3,5 4>4-
iPSS
AUSTURLAND
H 1994
□ 1995
SUÐURLAND
SUÐURNES
Atvinnuleysiö síðustu þrettán mánuöina á landinu öllu
- í prósentum -
7*1
2
o
Kjúklingarnir margumtöluöu, sem Bónus hefur ætlað að flytja inn, eru nú
loksins komnir í verslanir. Jóhannes Jónsson kaupmaður leysti þá úr tollin-
um í gær. Handtökin voru snör í frystigeymslunum þegar varan fékkst lolts-
ins afgreidd því að drífa átti vöruna á markað. DV-mynd ÞÖK
í siðastá mánuði voru að jafnaði 5.880 manns án atvinnu sem jafngildir
4,3 prósenta atvinnuleysi. Um 2,9 prósent karla á vinnumarkaði og 6,3 pró-
sent kvenna voru á atvinnuleysisskrá. Miðað við ágúst i fyrra hefur atvinnu-
lausum fjölgað um 1.038. Síðasta virkan dag ágústmánaðar voru 5.928
manns án atvinnu en þaö eru um 111 færri en i lok júlí. Vinnumálaskrif-
stofa félagsmálaráðuneytisins gerir ráð fyrir að atvinnuleysi minnki nokkuð
í þessum mánuði víðast hvar á landinu og geti orðiö 3,6 til 4 prósent í
mánuðinum. -kaa