Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Qupperneq 4
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995
★ *
*
ir
4 *
ééttir
Forseti Farmannasambandsms fiskiskipstjóri á hentifánaskipi:
Kjaftasögur að ég
sé meðal eigenda
- segir Guðjón A. Kristjánsson sem er á leið í Smuguna
„Viö forum vonandi sem fyrst á
sjóinn. Það þýöir ekkert að vera aö
hanga hér og því fylgja endalaus
vandamál," segir Guðjón A. Krist-
jánsson, forseti Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, sem tekiö
hefur aö sér að vera fiskiskipstjóri á
lettneska úthafsveiöitogaranum Od-
incova.
Eins og DV skýrði frá í gær er þaö
Fanney hf. á Brjánslæk sem gerir út
skipið ásamt fyrirtæki á Suðumesj-
um. Ekki er taliö trúlegt að skipið
leggi nokkum tíma í höfn á Bijáns-
læk en áformað er að það landi afla
sínum í Reykjavík. Skipið tekur um
300 tonn af hausuðum afla í lest.
Skipið er skráð í Lettlandi og skip-
stjórinn er þaðan ásamt stærstum
hluta áhafnarinnar. Skipiö hefur leg-
ið síðan í nóvember á síðasta ári en
þá hafði það verið gert út á Reykja-
neshrygginn til veiða á úthafskarfa.
Ekki fer neinum sögum af þeirri út-
gerð en þar átti útgerðin við olíu-
leysi og önnur vandræði að stríða.
„Það verða 24 menn í áhöfn. Þar
af verða fjórir íslendingar. Ég legg
áherslu á að það séu vanir menn,“
segir Guðjón.
Hann segir að farið verði í Smug-
una til að byrja með.
„Ég vona að við komumst af stað á
sunnudag og þá verður haldið beint
í Smuguna þar sem við verðum
næsta mánuðinn. Ef þær veiðar
ganga ekki upp munum við fara á
Flæmska hattinn til rækjuveiða,"
segir Guöjón.
„Það hafa gengið um það víðtækar
kjaftasögur aö ég sé eigandi að þessu
skipi en það er alrangt. Ég á ekkert
í þessu,“ segir Guðjón.
Sæmundur Árelíusson, útgerðar-
maður skipsins, vildi lítið tjá sig um
framtíðaráformin en sagðist tiltölu-
lega bjartsýnn á reksturinn. Hann
vildi ekki gefa upp kaupverð skipsins
en samkvæmt heimildum DV er það
um eða innan við 40 milljónir króna
og samningur að baki um eins konar
kaupleigu. -rt
World Press Photo í Kringluimi:
íslenskir Ijós-
myndarar taki þátt
- segir sýningarstjórinn, Michiel Munneke
„Þetta byijaði mjög smátt 1955 í
Amsterdam. Nokkrir ljósmyndarar
tóku sig saman og fóru að ræða hvort
ekki væri sniðugt að halda svona
keppni, keppni sem rnætti verða til
þess að auka veg ljósmyndunar í
fjölmiðlum. Ég held að fyrsta árið
hafi 40-45 ljósmyndarar teldð þátt en
nú eru þeir tæplega þrjú þúsund og
koma frá 97 löndum. Islendingar áttu
engan ljósmyndara í keppninni í
fyrra og ég vona að þessi sýning
megi verða til þess að kveikja áhuga
hjá íslenskum ljósmyndurum og að
þeir verði með næsta ár,“ sagði Mic-
hiel Munneke, hollenskur sýningar-
stjóri World Press Photo, þegar DV
hitti hann að máli í Kringlunni í gær.
Sýning World Press Photo hefst í
Kringlunni í dag og á sýningunni að
þessu sinni verða 230 ljósmyndir.
Sýningin er þekktasta samkeppni í
heiminum á sviði fréttaljósmyndun-
ar. Michiel Munneke sagði að mynd-
imar á sýningunni væra margar
hverjar mjög dramatískar og sorg-
legar, t.d. fréttamyndir frá Rúanda
og fleiri slíkum stöðum þar sem að-
stæður fólks hafa verið mjög slæm-
ar. Hann sagði að myndir úr öðrum
flokkum væru á mýkri línunni, nátt-
úra- og umhverfismyndir, myndir
úr hinu daglega lífi og íþróttamynd-
ir, svo eitthvaö sé nefnt.
„Þetta er í raun sorgleg sýning og
hún héfur áhrif á fólk á marga vegu.
Mér finnst ágætt að sýna í húsi eins
og hér í Kringlunni því hingað kemur
margt fólk og það er auðvitað það
sem við viljum. Að fólk komi og sjái
sýninguna. Alls munum við sýna í
47 löndum á þessu ári,“ sagöi Michiel
Munneke.
Fyllsta ástæða er til þess að mæla
með því við fólk að það staldri við
og skoði þessar frábæru myndir sem
á sýningunni eru. Kringlan og DV
standa að sýningunni hér á landi í
samstarfi við Listasafn ASÍ og Jóna
hf.,flutningaþjónustu. -sv
Michiel Munneke, sýningarstjóri World Press Photo, við myndir sem verið var að hengja upp í Kringlunni í gær.
DV-mynd BG
Guðjón A. Kristjánsson hefur ráðið sig sem fiskiskipstjóra á 2500 tonna
hentifánaskip og hyggst halda til veiða í Smugunni. DV-mynd ÞÖK
Haraldur Kristjánsson kemur meö Eyvind vopna í togi til Vopnafjarðar. Við
athugun kom i Ijós að ekkert alvarlegt var að vél skipsins.
DV-mynd Ari Hallgrimsson
Ekkert var að vélinni í Eyvindi vopna:
Svarf úr snúningshraða-
mæli eina vandamálið
- veiðitap og kostnaður nemur millj ónum
„Það er auðvitað auðvelt aö vera
vitur eftir á en við athugun á vélinni
hefur komið í ljós að þar er í raun
og veru ekkert annað að en að svarf
hefur komið úr snúningshraða-
mæli,“ segir Reynir Ámason, útgerð-
arstjóri hjá Tanga á Vopnafirði, út-
gerðarfélags togarans Eyvindar
vopna.
Togarinn var dreginn út Smugunni
í vikunni og var talið að vélin væri
úrbrædd. Svo reyndist ekki vera og
ekkert bendir til að „bilunin" hefði
átt að hindra för togarans.
Togarinn Haraldur Kristjánsson
HF kom með Eyvind vopna til heima-
hafnar í fyrradag. Reikna má með
að kostnaðurinn við dráttinn nemi 4
til 6 milljónum króna og að auki
bætist viö tjón vegna veiðitaps. Úti-
lokaö er að reikna það út en tjónið
gæti í heild verið milli 10 og 20 millj-
ónir.
Aðspurður um hvort ekki stæði tíl
að skamma vélstjóra togarans fyrir
rangt mat.á ástandi vélarinnar sagöi
Reynir að slíkt þekktist ekki í fyrir-
tækinu.
„Þetta gat verið alvarlegt og það
er mikil áhætta að halda áfram að
keyra vélina eftir að ljóst er að eitt-
hvaðerað,“sagðiReynir. -GK