Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Side 12
12 erlend bóksjá
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1994
Metsölukiljur
Bandarlkin
Skáldsögur:
1. Stephen King: Insomnla.
2. Patricia Cornwell: The Body
Farm.
3. Sidney Sheldon: Nothlng Lasts
Forever.
4. Celeb Carr: The Allenist.
5. Carol Shields: The Stone Di-
aries.
6. Tom Clancy: Debt of Honor.
7. Barbara Taylor Bradford: Ev-
erythfng to Gain.
8. Phllllp Margolln: The Last Inn-
ocent Man.
9. John Grisham: The Chamber.
10. John T. Lescroart: The 13th
Juror.
11. Jayne Ann Krentz: Trust me.
12. Elizabeth George: Playing for
the Ashes.
13. Sandra Brown: Prime Time.
14. K. E. Woodlwlss og
fleiri:Three Weddings and a Kiss.
15. Nora Roberts: Born In lce.
Rit almenns eölis:
1. Rlchard Preston: The Hot
Zone.
2. Tim Allen: Don't Stand To
Ciose To a Naked Man.
3. J. Lovell & J. Kluger:
Apollo 13.
4. Mary Pipher: Revlvlng Ophelia.
5. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Light.
6. Thomas Moore: Care of the
Soul.
7. Delany, Delany & Hearth Hav-
ing Our Say.
8. M. Scott Peck: The Road Less
Travelled.
9. Maya Angelou: I Know why
the Caged Blrd Sings.
10. Hope Edelman: Motherless
Daughters.
11. LouAnne Johnson: Dangerous
Mfnds.
12. Bailey Whlte Mama Makes
up Her Mind.
13. Thomas Moore: Soul Mates.
14. Karen Armstrong: A History
of God.
15. Nlcholas Dawfdoff: The
Catcher Was a Spy.
(Byggt á New York Tlmes Book Rovlew)
vísindi
Sykurvatn
við sársauka
Sykurvatn er mjög árang-
ursrikt þegar kemur að því að
lina sársauka ungbarna. Svo
segir í niðurstöðum rann-
sóknar sem gerð var við hér-
aðssjúkrahúsið í Örebro í Sví-
þjóð.
Yvonne Skogsdahl, hjúkr-
unarfræðingur við barna- og
unglingadeild sjúkrahússins,
stóö að rannsókninni.
Blóðsýni er tekið úr hæl
allra nýfæddra barna og er
það sársaukafullt. Yvonne
Skogsdahl segir að börn sem
þjáist af sjúkdómum í upphafi
lífs síns þurfi oft að þola slík-
ar blóðtökur. Þvi sé gott að
tekist hafi finna ódýra leið til
aö lina sársaukann. Rann-
sókn Svianna leiöir í Ijós að
só börnunuu gefinn einn
millilítri af 30 prósent sykur-
uppiausn í munninn áður en
blóð er tekiö, veini rúmlega
helmingur barnanna ekki.
Steingerð risaeðla
Fundist hafa steingerðar
leifar átta til tiu metra hárrar
risaeðlu sem lilði fyrir um 210
milljónum ára. Eöla þessi var
grasbítur og hafa vísinda-
menn gefið henni nafniö Eu-
skelosaurus. Hún var meö
langan hala, stóran skrokk en
lítiö höfuð.
Steingervingurinn fannst í
Kruger þjóðgárðinum í Suð-
ur-Afríku.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Salman Rushdie (t.h.) ásamt sjónvarpsmanninum Melvyn Bragg og rithöf-
undinum Fay Weldon á umræðufundi í London í síóustu viku.
Enski rithöfundurinn umdeildi
Salman Rushdie hefur sent frá sér
nýja skáldsögu og mætt á fjölmenn-
um samkomum í London og Edin-
borg til að kynna hana fyrir lesend-
um. Nýja sagan heitir The Moor’s
Last Sigh, sem útleggja mætti á ís-
lensku sem Síðasta andvarp Már-
ans, og hefur verið vel tekið af
breskum gagnrýnendum sem segja
hana skyldasta Midnight Children
af fyrri skáldsögum Rushdies - en
fyrir þá sögu fékk hann hin eftir-
sóttu Booker-verðlaun.
Þetta er fyrsta almenna skáldsag-
an sem Rushdie hefur samið í fel-
um, en hann var sem kunnugt er
dæmdur til dauða af Khomeini, trú-
arleiðtoga í íran, árið 1989. Síðan
hefur hann farið huldu höfði og not-
ið lögregluverndar sem mun hafa
kostað breska skattborgara um hálf-
an milljarð króna. Hann hefur að
vísu oft komið fram á samkomum á
þessum tíma, en ávallt í fylgd örygg-
isvarða.
Saga og samtími
Sögusvið nýju skáldsögunnar er
Indland, ekki síst stórborgin
Bombay þar sem Rushdie ólst upp.
Þótt nútíminn sé fyrirferðarmik-
ill í sögunni lýsir hún einnig við-
burðaríkri sögu lands og borgar allt
aftur til þess tíma þegar evrópskir
sæfarar sigldu fyrsta sinni að Ind-
landsströndum. Megináherslan er
þó lögð á síðustu þrjátíu árin eða
svo.
Gagnrýnendur segja skáldsöguna
gefa hrífandi mynd af margbreyti-
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
leika indversks samfélags og þess-
ara æskuheimkynna rithöfundarins
sem hann hefur ekki getað heimsótt
um árabil vegna dauðadómsins.
Frásögnin sé í senn raunsæ og æv-
intýraleg, tilfinningaþrungin og
heimspekileg, og lýsi hörðum átök-
um góðs og ills.
Sögumaðurinn, Márinn Zogoiby,
er sérkennilegur vanskapningur
sem eldist helmingi hraðar en
venjulegt fólk. Móðir hans, Aurora,
er mikil fegurðardís, kunnur list-
málari og eftirminnilegust fjöl-
margra persóna sögunnar. Fimmtán
ára að aldri varð hún ástfangin af
Abraham Zogoiby, skrifstofublók í
fjölskyldufyrirtækinu, og fékk hann
til lags við sig ofan á sekkjum af pip-
ar - en auðæfi íjölskyldunnar hafa
einmitt um aldir byggst á því svarta
gulli.
Hörð ádeila
Nafn sögunnar vísar einnig tO
annars Mára; Boabdils soldáns af
Granada. Sá varð aö láta af hendi
síðustu lönd Mára á Spáni árið 1492
og flýja til fjarlægra landa, en sögu-
maðurinn er einmitt afkomandi
hans.
The Moor’s Last Sigh hefur ver-
iö vel tekið á Indlandi nema hjá
stuðningsmönnum þess stjórnmála-
manns sem andstæðingarnir kalla
„Hitler hindúa” og er augsýnilega
ein af persónunum í sögunni.
Sá heitir Bal Thackeray og ræður
sem leiðtogi öfgasinnaðra hindúa
yfir Maharashtra-ríki og þar með
Bombay. Hann fær harða útreið í
sögunni, að vísu undir öðru nafni.
Svo á reyndar við um marga
nafntogaða Indverja eftirstríðsár-
anna, en Rushdie dregur fram ýmis
kunn spillingarmál sem upp hafa
komið á Indlandi síðustu áratugi og
nýtir þau í frásögn sinni.
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Tom ClancDebt of Honour.
2. Patrlcia D. Cornwell:
The Body Farm.
3. Barbara Taylor Bradford:
Everythlng to Galn.
4. Maeve Binchy: The Glass
Lake.
5. Danielle Steel:
Accident.
6. John Grisham: The Chamber.
7. John Irving:
A Son of the Circus.
9. Stephen King: Insomnia.
9. Jakcie Colllngs:
Hollywood Kids.
10. Lynda La Plante:
Cold Shoulder.
Rit almenns eölis:
1. Rlchard Preston:
The Hot Zone.
2. Blll Bryson:
Made in America.
3. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
4. Peter de la Billiére:
Looking for Trouble.
5. John Mortimer:
Murderers and Other Friends.
6. J. Lovell & J. Kluger:
Apollo 13.
7. Jung Chang: Wlld Swans.
8. Blll Bryson:
The Lost Continent.
9. Stephen Hawklng:
A Brief Hlstory of Tlme.
10. J. Redfield & C. Adrienne:
The Celestine Phrophecy Ex-
perientlal Guide.
(Byggt á The Sunday Tlmes)
Danmörk
1. Joanna Trollope:
Den spanske elsker.
2. Bao Ninh: Krigens sorg.
3. Jung Chang:
Vilde svaner.
4 Llse Nrgaard: Kun en plge.
5. Jostein Gaarder:
Sofies verden.
6. Lone K”hlmann: Lev selv.
7. Hanne-Vibeke Holst:
Tll sommer.
(Byggt á Politlken Sndag)
Vísindamenn velta fyrir sár hvort það sama gildi um mann og chinchillu:
Suð í eyrunum getur
valdið heyrnarskaða
Chinchillan getur fengið suð í eyrun eins og maðurinn, enda
heyrnarsvið dýrsins svipað og hjá manninum.
Eyrað á okkur ger-
ir meira en að nema
hljóð. Það getur
einnig framleitt eigin
ósjálfráð hljóð og
þannig er það í um
þrjátíu prósentum
mannfólksins. Sumir
heyra hljóðin í eigin
eyra, alla jafna lágt
suð, ef þeir eru inni í
þöglu herbergi. Aðrir
verða aftur á möti
ekkert varir við þau.
Þegar verst lætur
hefur fólk leitað til
læknis vegna suðsins
og það er ekki óþekkt
að læknar hafi sjálfir
getað heyrt óhljóðin
þegar þeir standa við
hlið sjúklinganna.
Hingað til hafa
hljóð þessi ekki ver-
ið talin annað en
bara hvimleið. Sál-
fræðingurinn Richard Salvi og
starfsbræður hans við ríkisháskóla
New York í Buffalo hafa komist að
því að þessi ósjálfráðu hljóð geta or-
sakað óvenjulegt heyrnartap sem
veldur ekki neinum áþreifanlegum
skaða á öðrum hlutum eyrans.
Vísindamennirnir uppgötvuðu
þetta þó ekki við rannsóknir sínar á
mannfólki heldur á suður-ameríska
nagdýrinu chinchilla sem dáð er
mjög fyrir silkimjúkan feld sinn.
Salvi, sem sérhæfir sig í skynjun,
og félagar hafa hins vegar áhuga á
dýrinu vegna þess að það hefur
svipað heyrnarsvið og maðurinn.
Þeir voru að. gera tilraunir með
chinchilladýr þegar þeir uppgötv-
uðu, með aðstoð lítils hljóðnema að
hljóð kom úr eyra dýrsins. Tíðni
þessa ósjálfráða hljóðs úr
eyranu var fiögur þúsund
rið.
Næsta skref var að kom-
ast að því hvaða áhrif
hljóð þetta hefði á heyrn
litla nagdýrsins. Vísinda-
mennirnir komu þvi fyrir
örsmáum elektróðum á
heyrnartaug dýrsins til
að kanna næmnina fyrir
ákveðnum tíðnisviðum.
Þeir komust að því að
chinchiUan var ekki næm
fyrir utanaðkomandi
hljóðum sem höfðu tíðni
um fiögur þúsund rið.
Svo virðist sem suðið í
eyranu hafi valdið því að
heili dýrsins hunsaði
þetta ákveðna tíðnisvið.
Talið er að hárfinar og
smásæjar hárfrumur í
ytra eyranu framleiði
þessi ósjálfráðu hljóð.
Það er hins vegar hulin
ráðgáta hvers vegna chinchiUur og
menn framleiða þau og hvers vegna
sumir menn heyra þau en aðrir
ekki.
Richard Salvi vonast til að næst
komist hann að því hvort mannfólk-
ið verði fyrir svipuðu heyrnartjóni
og litlu nagdýrin.
i Innkaupavagní
skjálftarannsóknum
Japanskir vísindamenn
hafa notað myndbandsupptök-
ur frá stórmarkaði af ósköp
venjulegum innkaupavagni til
að kortleggja áhrif jarðskjáift-
ans ógurlega sem varð i horg-
inni Kobe í janúar á þessu áii.
í bréfi til vísindaritsins Nat-
ure segir Masayuki Kikuchi
viö eðlisfræðideUd háskólans
í Jókóhama aö myndavélar I
stórmörkuðum hafi fangað
áhrif skjálftans eins og hann
birtist þar.
Samkvæmt tregðulögmál-
inu hreyfist innkaupavagninn
í öfuga við hreyfingu góffsins
í skjáffta eins og þeim sem
varð í Kobe og myndar þannig
eins konar jarðskjáfftamæli.
Myndbandsupptökurnar
gerðu vísindamönnum kleift
að áætla hreyfingu yfirborðs
jarðar og þar meö álykta um
- eðli misgengisins undir Kobe.
Stífur þvottur
AUir hafa tekið eftir því að
nýþveginn þvottur er oft stff-
ur. Orsakanna er að leita í
statísku rafmagni, það er að
segja neikvæðum jónum i
vatninu. Þvotturinn verður
svo aftur mjúkur þegar stat-
íska rafmagnið hverfur við
notkun á fótunum.
Skolefnin, sem margir sefia
í þvottavélarnar til að mýkja
þvottinn, eyða neikvæðri
hleðslu sem fótin fá i vatninu.
Skolefnin mynda eins konar
himnu sem gerir efnið auð-
veldara í meðförum, eins og
þegar þarf að strauja það.
Himnan leysist síðan upp
næst þegar fötin fara í þvott-
inn.