Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Page 18
18 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 UV Dagur í lífi Björgvins Halldórssonar, dagskrárstjóra Bylgjunnar: Ég vaknaði snemma, tíu mínút- ur yfir sjö, þennan mánudagsmorg- un. Eins og alla aðra morgna byrj- aði ég á því að fá mér te og horfa á Sky News, ég er nefnilega svolítið fréttasjúkur. Síðan voru börnin keyrð í skólann og konan líka því hún er einnig í skóla. Það eru allir í skóla nema ég. Ég fer hins vegar upp á Bylgju upp úr klukkan átta og þar hitti ég samstarfsfólkið’ Ég hef það fyrir vana að kíkja í útsendingu þegar ég kem á staðinn. Þar situr Þorgeir Ástvaldsson með Margréti Blöndal í morgunþættinum. Þau eru fyrst á fætur og þvi alltaf með það nýjasta sem gott er að heyra á morgnana. Síðán er sest niður með kaffi- bolla og pósturinn skoðaður og flokkaður. Sumu þarf að svara strax og sumt þurfa aðrar deildir að sjá um. Klukkan tíu var viku- legur sviðsstjórafundur með Jafet útvarpsstjóra þar sem sviðsstjór- arnir fara yfir stöðuna í sínum deildum. Þetta eru mjög gagnlegir fundir sem enginn missir af. Fund- urinn gekk mjög vel. Lagalistar skoðaðir Næst á dagskrá var tónlistar- ráðsfundur á Bylgjunni. Þar hittist valið fólk og við hlustum á það nýjasta, bæði erlent og innlent, við tökum lög út úr spilun og setjum önnur lög inn. Við skoðum einnig lagalista hinna ýmsu útvarps- stöðva um heim allan og sjáum hvar púlsinn slær í hinum ýmsu löndum á sambærilegum útvarps- stöðvum. Hádegisverður var snæddur á Lynghálsinum og bragðaðist bara ágætlega. Eftir hádegi settist ég niður og skrifaði nokkur bréf tO viðskiptavina í Evrópu og Amer- íku, það er aðila sem við kaupum efni af. Síðan tók ég mér smásíma- Björgvin Halldorsson, dagskrárstjóri og tónlistarmaður, í sýningu sinni, Þó líði ár og öld. tíma því það voru ýmsir sem reynt höfðu að ná í mig á meðan ég sat á fundum. Að símatíma loknum tóku við fleiri fúndir. Það voru stuttir fund- ir með dagskrárgerðarmönnum um hitt og þetta sem tengist dag- skránni og rekstrinum. Einnig var unnið að vetrardagskránni og því sem koma skal á Bylgjunni í fram- tíðinni. Gunnar Þórðarson hringdi vegna sýningar minnar, Þó líði ár og öld, sem er að hefja göngu sína á ný á Hótel íslandi núna um helg- ina. Við mæltum okkur mót um kvöldið. Það er margt sem þarf að athuga, eins og smábreytingar á sýningunni, nýja lýsingu og svo framvegis. Ég hélt heim um sexleytið og kom við í Stúdíó Sýrlandi í leið- inni og heilsaði upp á Bubba Morthens, Jon Kjell og Þóri Bald- ursson. Þeir eru að byrja á plötu til heiðurs Hauki Morthens. Gæluverkefnum sinnt Ég var kominn heim um sjöleyt- ið. Það var svo gott veður að ákveðið var að grilla, bæði lax og kjöt og ýmislegt sem til var í ís- skápnum. Kvöldverðurinn heppn- aðist ágætlega og ég var kominn á fund vegna sýningarinnar klukkan níu um kvöldið. Þetta var búið að vera góður og afkastamikill dagur. í þeim litla frítíma sem ég hef reyni ég að sinna ýmsum gæluverkefnum sem tengjast tónlistinni, lögum og hug- myndum, og það gerði ég þetta kvöld. Ég settist einnig fyrir fram- an tölvuna til að skoða ýmis forrit og Internetið. Það var farið snemma í háttinn til að takast á við nýjan dag. Finnur þú fimm breytingar? 327 •:-c) bílinn okkar heilmikið. Nafn:__________________ Heimili:--------------- Vinningshafar fyrir þrjú hundruð tuttugustu og fimmtu getraun reyndust vera: 1. Einar Öm Konráðsson 2. Anna Rut Ágústsdóttir Völusteinsstræti 15 Fannafold 24 415 Bolungarvík 112 Reykjavík Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betnr er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myn'dinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið- stöðinni, Síðumúla 2, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verðlaun heita Líkþrái maðurinn og Athvarf öreigans, úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790. Bækumar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú Fimm breytingar? 327 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.