Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1995, Qupperneq 25
30 "V" LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995
Hjörleifshöfði.
DV-mynd Páll
Máttúruperlur í Mýrdal:
Margir litir
Ótal möguleikar á uppstillingu
j--------— ------—-— ---------—— —-—------
| Einnig bjóðum við á frábæru verði:
I 'k Skrifborð Kommóður
j ★ Fataskápa * Bókahillur
Sjónvarpsskápa Hljómtækjaskápa
Lyngási 10 - Garðabæ
Páll Pétursson, DV, Vík:
Hjörleifshöfði ' er móbergsfell
sunnan við þjóðveginn yfir Mýr-
dalssand, um þrjá kílómetra frá sjó
þar sem Kötlugangi er, syðsti tángi
íslands. Nafn höfðans er dregið af
landnámsmanninum Hjörleifl Hróð-
marssyni, fóstbróður Ingólfs Arnar-
sonar. Fyrr á öldum var búið í Hjör-
leifshöfða en bærinn fór í eyði á
þessari öld.
Brimið svarrar
við ströndina
Hjörleifshöfði er stórfengleg nátt-
úrusmíð þar sem eru þverhníptir
hamrar í suður og austur með mjög
sérkennilegum klettamyndum.
Höfðinn býr yfir mörgum hellis-
skútum sem veita skjól. Mýrdalsjök-
ull, Mýrdalsfjöllin og Álftaversaf-
rétturinn blasa við í norðri og brim-
ið svarrar við ströndina og þeytir
hvítri froðu hátt í loft. Syðst á
Kötlutanga sést í vestri gatið á Dyr-
hólaey þar sem það ber sunnan við
Reynisfjall og Reynisdranga. Langt í
austri má sjá Öræfajökul í góðu
skyggni og nær Skaftártunguíjöllin.
Hjörleifshöfði stendur þögull uppi
á sandinúm og horfir til sjávar sem
fyrr á öldum var mun nær. Fært er
á jeppum að Hjörleifshöfða.
Ægilegur kraftur
Ef bergið í hömrum Hjörleifs
höfða kynni að segja frá kæmi ör
ugglega ýmislegt fróðlegt í ljós.
Þarna veltir maður því fyrir sér
hvernig ábúendum í Hjörleifshöfða
hafi liðið í Kötlugosum þegar ægileg
jökulflóð ruddust fram sandinn eins
og ísveggur og brotnuðu norðan og
vestan á höfðanum. Það er erfitt að
ímynda sér hvernig það hafi verið.
Þegar horft er yfir hina viðáttu-
miklu sanda sem eru upprunnir
undan Mýrdalsjökli er alveg ljóst að
þarna býr ægilegur kraftur undir.
Ekki er mikið dýralíf á sandinum
en einn og einn fýlsungi stritast við
að komast til sjávar. Sumir lenda í
klóm skúmsins sem ræður ríkjum á
ströndinni og eiga sér ekki aftur
kvæmt. Nokkrir sendlingar flögr;
undan brimskvettunum og reyna ac
ná sér í æti á útsoginu og einstak;
forvitinn selur stingur höfðinu upp
úr sjónum.
Á þessum stað er sjávarniðurinn
og hljóð náttúrunnar einu hljóðin
sem heyrast - kyrrðin er algjör.
Sími 565-4535.
Fíkus
60 cm. 290 kr.
140 -1.880 kr.
Burkni 199 kr.
Gúmmítré
60 cm. 290 kr.
Schefflera
50 cm. 1 99 kr.
HAUST-
LAUKARNIR
KOMNIR
Mikið útval-
GOTT VERÐ
Drekalilja, 40 cm. 290 kr ■ Drekatré 120 cm. 1480 kr.
Coleus 98 kr. - Jukka, 100 cm. frá 790 kr. ■ Kaktusar, 50% afsláttur
Nýtt kortatímabil
O 'v "
10-22
v/Jossvogskivkjugarð sími 55 40 500
25% afsláttur á japanska veitingastaðnum Samurai dagana 20. - 23. september.
Nú í september er komið ár síðan Samurai, fyrsti japanski veitingastaðurinn á íslandi, opnaði að Ingólfsstræti la
í Reykjavík. Móttökur hafa verið vonum framar góðar og virðast íslendingar vel kunna að meta japanska
matargerðarlist. Ljóst er að íslenskt hráefni hentar einkar vel til japanskrar matargerðar. í þakklætisskyni fyrir
góðar móttökur hefur verið ákveðið að bjóða öllum viðskiptavinum og velunnurum veitingastaðarins
25% afslátt af öllum mat og drykk dagana 20. - 23. sept.
Allir gestir fá að auki afsláttarmiða sem veitir þeim rétt á 25% afslætti aftur næst þégar þeir
SMMt Ingólfsstræti 1A - s. 5517776, opið mánud. - föstud. kl. 12:00-14:00 og öll kvöld frá kl. 18:00