Þjóðviljinn - 22.12.1972, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Jólablað 1972
NILFISK
SÖGUR
AF SKÁLKUM OG FLÓNUM
Pegar
um gæðtn er
að tefla....
SUÐURGÖTU 10, REYKJAVÍK, SÍMI 24420
Ovenjulegar
forsendur
Tvær vinkonur hittast.
— Ég hefi aldrei verið jafn
einmana og núna, segir önnur.
— Hvað er að heyra, þú sem
hefur bæði eiginmann og
elskhuga.
— Einmitt. Þeir treysta hver
öðrum.
Morðingi í
raunum
Einu sinni var fátækur Gyðing-
ur i Litháen. sem öll vandræði
eltu á röndum - fór svo að lokum
að hann átti ekki málungi matar.
Þá kom honum það til hugar, að
til va'ru i heiminum morðingjar
og ákvað að taka upp þá atvinnu-
grein. Lagði hann poka á bak sér,
stakk exi i belti sér, tók bænadúk
sinn og hélt út i skóg.
Þar beið hann lengi lengi en
enginn kom. Skyggja tók, og hann
kom sér lyrir undir tré einu til að
i)iðja kvöldbæn sina. En sem
hann biðst þar fyrir heyrir hann
eitthvað ganga um skóginn - er
þar kominn annar Gyðingur. Sá
fyrri bandar til hans með hend-
inni. þvi ekki má hann tala meðan
hann biðst fyrir. og hinn skilur, að
sá á við hann eitthverterindi og
hinkrar við. En þegar morðinginn
hefur lokið bæn sinni, gengur
hann til vegfarandans og segir:
- Komdu með peningana, ann-
ars drep ég þig.
- Drepa, segir hinn. Ertu eitt-
hvað skrýtinn?
- Vita skaltu, segir hinn, að ég
er morðingi. og nú skaltu lifið láta
eða peningana.
Eg er- veslings Gyðingur,
segir hinn, með fullt hús barna,
hvernig get ég látið þig hafa alla
mina peninga? Og hvernig ætlar
þú að drepa mig og sýna misk-
unnarleysi veslings konu minni
og börnum?
Morðinginn hugsar sig um og
segir: Eitthvað er til i þessu hjá
þér. Miskunnsemi segirðu. Gott,
láttu mig fá rúblu.
- Hvurnin get ég látið þig fá
rúblu? Er ég Rotschild, eða hefur
Brodski gefið mér sykurfabrikk-
urnar sinar?
- Jæja þá, þú lætur mig þá fá
liu kópeka.
Ertu gaga? Ég hefði gaman
af að sjá þann borgara sem létii
betlara fá tiu kópeka.
Vesin er þetta, sagði morð-
inginn. Gefðu mér þá að minnsta
kosti sigarettu.
Eg reyki ekki. sagði hinn,
hvað ætti ég að gera með
sigarettur út i skóg?
- Þú getur þó að minnsta kosti
gefið mér i nefið, sagði morðing-
inn mæddur.
- Vist get ég það, sagði fórnar-
lambið, og það gerði hann. Skildu
þeir siðan með virktum, morðing-
inn og fórnarlamb hans.
(Úr jiddisku)
Elska skaltu
náungaþinn
Berfætlingsmúnkur einn pré-
dikaði i kirkju Heilags Barto-
lomeousar i Feneyjum. Hann tal-
aði innfjálgum orðum um hina
sönnu ást til náungans. og
hvernig oss bæri aö elska einnig
óvini okkar og gera þeim gott sem
okkur hata.
En hver er sá meðal vor,
sagði hann að lokum, sem breytir
eftir þessu, og einnig fyrirgefur
óvinum sinum?
Þá stóð upp ung kona i' öflustu
röð og hrópaði:
Sjáið mig, æruverðugi faðir.
I-Jg fyrirgef morðingjum manns-
ins mina af öllu hjarta. Hér fyrir
framan altari guðs og trúaða
menn i okkar kirkju heilags
Bartolomeos megi þeim fyrirgef-
ið verða.
Guð mun launa þér, dóttir
min. sagði berfætlingur mjög
sæll. Af miskunn sinni mun hann
hpyra allar þinar bænir.
Þegar konan fagra kraup á ný
beygði grannkona hennar sig nið-
ur að henni og spurði: Eruð þér
ekki kona fisksalans úr Brúar-
götu?
- Jú, sagði fúin unga.
Guð i himnum, sagði grann-
konan, og hafa menn drepið mann
yðar elskulegan. Hvernig gat það
skeð?
l^að hefur enn ekki gerzt.
andvarpaði kona fisksalans. En
kannski herðir sig einhver upp til
þess.
(Úr Eutrapeliae)
Bankinn sem he£ur
launafiólk landsins að
baki
Alþýðubankinn er stofnaður af
aðildarsamtökum Alþýðusam-
bands íslands, í umboði 40
þúsund félagsmanna þess, í
þvi skyni að efla menningar- og
félagslega starfsemi verkalýðs-
hreyfingarinnar, og treysta at-
vinnuöryggi launafólks á íslandi.
Til þess að þessum tilgangi
verði náð, er ör vöxtur Alþýðu-
bankans nauðsynlegur.
Það er þegar sýnt að launafólk
er sér meðvitandi um þessa
nauðsyn, því á fyrsta starfsári
bankans tvöfölduðust heildar-
innistæður hans.
Launafólk í öllum greinum
atvinnulífsins.
Eflið Alþýðubankann,
bankann ykkar.
Iþýðubankinn