Þjóðviljinn - 22.12.1972, Qupperneq 12
i2i. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Jólablað 1972
STARFIÐ
— Information kom fyrst út
sem dagblaö 5. mai árið 1945.
Lagagreinin um markmið blaðs-
ins er óbreytt ennþá. Þar segir
m.a.: „Information á að vera
vettvangur hins frjálsa orðs.
Information á að gera glögga
grein fyrir andstæðum skoðunum
i þjóðlifinu og ber að berjast gegn
misræmi i orðum og gerðum.
Information ber, einmitt með þvi
að gefa upplýsingar um atburði i
þröngur stakkur, verður það
sjálfkrafa mjög ihaldssamt með
timanum. Ef við sem sitjum
hérna i dag, krefðumst þess, að
blaðamennirnir á Information á
niunda og tiunda áratugnum
væru nákvæmlega sama sinnis og
við, leggðum við grundvöllinn að
mjög afturhaldssömu blaði.
— Hefur Information kannski
alltaf höfðað til sömu lesenda-
hópa?
— Nei. Þvi verður að svara
þannig, að fyrst eftir striðið
stafaði nokkrum hrifningarljóma
af nafninu Information, og þá var
eintakafjöldinn mjög stöðugur i
mörg ár, eða rúmlega 20 þúsund
og varð vist mestur ein 27 þúsund.
Milli 1960 og ’70 tók hinum
upprunalegu lesendum verulega
að fækka, sumum fannst blaðið
leiðinlegt, enda var það i ákveðn-
um öldudal um tima, sumir voru
sérstakri andúð úr ákveðnum átt-
um, get ég nefnt, að á sinum tima
vorum við ásakaðir fyrir að vera
málgagn SF, siðar VS eða reiðra
stúdenta. Vafalaust munu þessar
ásakanir halda áfram, þvi að hin
blöðin sýna öllum nýjum hlutum
stirfni og fjandskap, vegna þess
að þau hafa mjög hefðbundinn og
staðnaðan hugsanagang. En við
teljum það skyldu okkar að segja
frá þessum hlutum. Það þýðir
við að beita okkur gegn slikum
hreyfingum.
— Eru margir af fyrrverandi
starfsmönnum blaðsins enn
virkir innan danskrar fjölmiðlun-
ar?
—- Jú, það má segja með sanni.
,t fyrsta lagi hefur fjöldinn allur af
iblaðamönnum hlotið menntun
:$ina hér á unga aldri og siðan
•flutzt til annarra blaða, — nokkrir
Bru á Politiken, að visu ekki
Þarna er hann sá höfuösnillingur Klaus Albrechtsen, en lesendur Þjóð-
viljans hafa á siðustu mánuðum kynnzt teikningum þessa mikia lista-
manns skopfærðrar stjórnmáiaádeilu.
Iflaðið Information er alit unnið i sama húsinu. Hér eru umbrotsmenn aðstörfum.
Danmörku og erlendis og um
baksvið þeirra og samhengi, að
starfa i þágu lýðræðis og frelsis
og fyrir skilningi og samkennd
meðal einstaklinga og þjóð-
félaga.”
Þvi ber okkur sifellt að vera
gagnrýnir á framkvæmd lýðræð-
isins, reyna að skilgreina hvað
gerist. Það dylst vist ekki fyrir
neinum, að gerðir svara ekki
alltaf til orða i þessum svokölluðu
lýöræðisrikjum. Að öðru leyti get
ég visað til einkunnarorða
blaðsins, sem enn standa i haus
þess: „Óháð flokkspólitiskum
hagsmunum — óháð efnahagsleg-
um hagsmunum”. Enda er lögð
áherzla á það i lögunum um
blaðið, að það megi aldrei
stjórnast af slikum þrýstingi til
þess að skrifa gegn eigin sann-
færingu eða þegja um mál, sem
að þess mati ber að greina frá
opinberlega. Við megum sem
sagt aldrei bindast ákveðnum
stjórnmálaflokki, — þetta þýðir
ekki að við megum ekki taka af-
stöðu til stjórnmála, þaö gerum
við daglega. Og i þessum
skilningi má segja, að rauður
þráður liggi gegnum alla sögu
blaðsins, við virðum þessar hug-
sjónir. En jafnframt ber að taka
fram, að blaöið hefur breytzt.
Nokkrir upprunalegu starfs-
mannanna eru hér enn, þótt lang-
flestir hafi bætzt við seinna. Hér
er margt ungt fólk núna. En þjóð-
félagsþróunin hefur gert að verk-
um, að það eru aðrir hlutir, sem
okkur kannski finnst mikilvægara
að skrifa um nú, heldur en þótti
þá. Information hefur vafalaust á
vissum skeiðum verið mjög
borgaralegt biað, en i dag er það
talsvert vinstrisinnað. En það
kemur ekki i veg fyrir, að við get-
um enn aðhyllzt sömu frelsis-
hugsjónir og sömu lýðræöis- og
stjórnmálahugsjónir, sem við
börðumstfyrir þá. En það er aug-
ljóst, að bæði skilur fólk þessar
hugsjónir á ýmsa vegu, og svo
hitt, að mismunandi vandamál
eru efst á baugi á hinum ýmsu
timum. Ef dagblaði ersniðinnof
gamlir orðnir og horfnir á vit
annarra áhugamála. Eld-
móðurinn frá striðsárunum var
horfinn. En á sama tima urðu
hálfgerð kynslóðaskipti á sjálfu
blaðinu, margt ungt fólk kom til
starfa, blaðið varð enn gagnrýnt
á þjóðfélagið, umræðan um þjóð-
félagsmál varð ákafari. Þetta
leiddi lika til þess, að margir
sögðu skilið við okkur og sögðu:
„Þetta er ekki sama blaðið
lengur,” og hættu sármóðgaðir að
kaupa blaðið, Og um nokkurra
ára skeið, eða þangað til fyrir 2
árum, heltust margir kaupendur
úr lestinni, en nýir bættust
stöðugt við. Blaðinu gekk illa að
halda i horfinu. Nú hefur þetta
breytzt. Föstum lesendum er hætt
að fækka og i fyrsta skipti i mörg
ár er um stöðuga söluaukningu að
ræða.
Sérstaðan borðar
ekki börnin sín.
— Hver hefur að þinu áliti verið
sérstaða blaðsins frá upphafi?
— Blaðið hefur alltaf talið það
skyldu sina að fylgjast náið með
þjóðfélagsumræðunni, — þar sem
umræða hefur átt sér stað höfum
við viljað eiga hlut að máli. Við
höfum verið ásakaðir fyrir að elt-
ast við dægurflugur, gleypa við
öllu nýju. Þetta finnst mér al-
rangt. Ég álit mikilvægt, að i sér-
hverju þjóðfélagi séu til dagblöð,
sem leyfi öllum nýjum hreyfing-
um og hugmyndum að njóta
sannmælis. Þess vegna gerðum
við góða grein fyrir stofnun
Socialistisk folkeparti á sinum
tima. Við fylgdumst náið með
stofnun Venstresocialisterne. Og
við skrifuðum einnig mikið um
stofnun Liberal centrum. Við
gáfum stúdentauppreisninni
mikið rúm i blaðinu. Upp á siö-
kastið höfum við birt mikið efni
um EBE, — sérstaklega sjónar-
mið andstæðinga danskrar
aðildar, þar sem þeir hafa
áberandi minni aðgang að öðrum
fjölmiðlum. Og af þvi að þið
spurðuð, hvort viö hefðum mætt
Poul Petersen framkvæmdastjóri kom að blaöinu sem réttur og sléttur
„bisnessmaöur” til þess að bjarga fjárhagsvanda þess.
samt ekki, að við sýnum öllum
nýjum hreyfingum sömu
hrifningu. T.d. höfum við beitt
okkur gegn hægrisinnuðum
hreyfingum, sem skotið hafa upp
kollinum, eins og Kristeligt folke-
parti. Við höfum samt sem áður
reynt að birta greinar, sem út-
skýra hvers konar fyrirbrigði þær
eru, og leiðtogar þeirra hafa
fengið að segja frá sinum stefnu-
miðum. En það leiðir af sjálfu
sér, að ef við eigum að breyta i
samræmi við þær stjórnmála-
skoðanir, sem rikja meðal starfs-
manna blaðsins og sem ég vona
að haldist óbreyttar, þá hljótum
piargir á Berlingske Tidende,
pokkrir á Jyllands-Posten, m.a.
einn aðalritstjóri þess blaðs. Þeir
fem hafa verið hér, starfa núna
viða annars staðar og áhrifa
þeirra hefur gætt á mörgum svið-
lum. Sjálfur er ég ósammála
rnörgum þessara manna i dag, —
ég vil ekki halda þvi fram, að
Information hafi gegnsýrt
danskan blaðaheim eða breytt
ihonum, en það er staðreynd, að
tnargir af okkar mönnum eru
viða i áhrifastöðum.
Knútur ryður upp úr sér nöfn-
ipm þjóðkunnra Dana, sem
^tarfað hafa á Information.