Þjóðviljinn - 22.12.1972, Page 21
Jólablað 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21
ÁSTARBOÐ
(Liebesbotschaft)
Lækur minn silfurtær, flýt þinni för,
finn þú nú Elskuna, glaður og ör,
ber henni kveðju úr fjarlægð mér frá,
fjölkvæða, trygglynda straumperlan blá.
Lífgandi flaumur þinn, lækurinn smár,
líði um rósanna purpurahár,
svali og umfljóti urtanna her
Elskunnar minnar sem les þær og ber.
Minningum töfruð i daganna draum,
drúpi hún höfði i þrá við þinn straum,
einlægur huggaðu Elskuna þá:
ástvin brátt heimkominn muni hún sjá.
SCHWANEN-
GESANG
Þýðing Daníels Á. Daníelssonar,
læknis á Dalvfk
á Ijóðum við nokkur síðustu lög
Schuberts
MYNDIN
(Ihr Bild)
Ég stóð i draumastriði
og starði mynd hennar á,
en um hið kæra andlit
óræðu lifsmarki brá.
Og brosið töfrabjarta
það bærðist vörum á,
þau glóðu grátblið tárin
og glituðu augun blá.
Þá hrundu tár min höfug
úr hvarma lind sem ei dvin —
hve þungt er þvi að trúa
að þú sért ei lengur min!
(Heinc)
Hneigi sig eygló við eldroðin ský,
Elskunni vaggaðu svefninn f,
niðaðu hreinan og hlýjan óð,
hvislaðu draumfögur ástarljóð.
HUGBOÐ HERMANNSINS
(Rellstab)
TVÍFARINN
(Der Doppelgánger)
Það ríkir nótt, i þögn hvila strætin,
i þessu husi bjó min æskudís,
og langt er siðan að hún fór burt héðan,
en húsið það stendur, kyrrt hér enn það ris.
Þar stendur og sveinn og horfir til hæða,
og höndum fórnar i nistandi kvöl. —
Mig hryllir, þvi andlit sjálfs min sé ég
er svip hans lýsir tunglskiman föl!
Þú lifs mins vofa, þú lagsmaður bleiki!
hvi leikur þú mitt ástarstrið
er þjáði mig á þessum slóðum
svo þrátt um nótt, á fyrri tið?
(Kriegers Ahnung)
í værðir kringum varðeld hneig
mín vopnabræðra sveit.
Ég finn i hjarta grun og geig,
finn grun og geig,
mig grípur þrá svo heit.
Hve oft mig hefir unað dreymt
við ungrar Sjafnar barm,
svo hlýleg skein min hjarðmannsglóð
á hennar bjarta arm!
Hér sé ég logans lága skin
sér leika vopnum á,
þar á mitt hjarta engan vin,
af angri tárast brá.
Sjöfn! Eitt fær hjartans huggun glætt,
og hermanns vakið þrótt.
Brátt hvilist ég, og sofna sætt,
ó, Sjöfn min, góða nótt!
(Heine)
(Rellstab)