Þjóðviljinn - 13.09.1980, Page 29
Helgin 13,—14. september 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 29
Clapperclaw
í Eff Ess
Breski leikhópurinn Clapper-
claw sýnir Ben Her i Félagsstofn-
un stúdenta (Eff ess) annað
kvöld, sunnudagskvöld. Húsiö er
opnað kl. 8. en sýningin hefst kl.
8.30 Að sýningunni lokinni leikur
splunkuný hljómsveit, Bláa
bandið, til kl. 1.
Miðasala hefst kl. 5 á morgun i
anddyri Félagsstofnunar, og er
vissara að tryggja sér miða i
tima, þvi húsfyllir hefur verið hjá
Clapperclaw til þessa. Miðarnir
kosta 5000 krónur. — ih
Akureyringur í
FÍM-salnum
örn Ingi opnar I dag sýningu I
FlM-salnum við Laugarnesveg,
og sýnir þar 51 verk. Eru það oliu-
myndir, vatnslitamyndir, pastel-
myndir, teikningar og skúlptúr.
örn Ingi er borinn og barnfæddur
Akureyringur og er þetta fyrsta
sýning hans i Reykjavík, en hann
hefur áður haldið fjórar einka-
sýningar fyrir noröan.
— Þema sýningarinnar er
landslag með eigin tjáningu, —
sagði listamaðurinn i samtali við
Þjóðviljann. — Þetta eru ekki átt-
hagamyndir heldur reyni ég aö
sýna eðli náttúrunnar og stækka
upp hið smágerða.
Orn Ingi sagði að nú væru lik-
lega 20 ár liðin siðan Akureyring-
ur hélt siöast einkasýningu á op-
inberum sýningarstað i Reykja-
vik. Hann sagði að það hefði bæöi
kosti og galla að starfa að mynd-
list á Akureyri. Þvi fylgdi viss
einangrun sem menn yröu að
gera sér grein fyrir og vera i
varnarstöðu gegn. Annars hefði
öll aðstaða á Akureyri gjörbreyst
til batnaöar með tilkomu Háhóls,
og væri nú hópur manna sem
praktiseraði að sýna og mála, og
sýningar komnar upp i tuttugu á
ári.
— Hið opinbera hefur þó ekkert
gert til aö styðja við bakið á
myndlistarmönnum — sagði örn
Ingi, — en nú er i uppsiglingu
möguleiki á sýningaraöstöðu i
nýja iþróttahúsinu sem yrði mjög
til bóta.
Sýning Arnar Inga i FlM-saln-
um veröur opin kl. 2—10 daglega
til 21. september, og verkin eru til
sölu. —ih
Karl Sighvatsson og þrir liðsmenn Mezzoforte á æfingu. Ljósm. -gel-
Allir í Höllina!
Eyfirðingar
drekka kaffi
Arlegur kaffidagur Eyfirðinga-
félagsins i Reykjavik veröur á
morgun, sunnudag, kl. 14.00 I
súlnasal Hótel Sögu. öllum Ey-
firðingum 67 ára og eldri er boöið
sem gestum félagsins.
Fleira verður á dagskrá en
kaffidrykkja, m.a. verður haldinn
basar og mun allur ágóði renna til
menningar- og góögerðamála I
Eyjafiröi. I fréttatilkynningu frá
félaginu segir að mikið fjölmenni
hafi jafnan verið á Hótel Sögu á
þessum kaffidögum og eru allir
norðanmenn velkomnir, hvort
sem þeir eru búsettir hér syðra
eða gestkomandi. — ih
Pólskur
píanóleikari
í heimsókn
Pólski pianóleikarinn Nelly
Ben-Or heldur tónleika á vegum
Tónlistarskólans I Reykjavik i
Austurbæjarbiói kl. 14.30 i dag,
laugardag. Á efnisskrá eru Són-
ata eftir Haydn, Kreisleriana
eftir Schumann, Mazúrkar eftir
Szymanowski og Chopin og að
lokum Þriðja Sónata Chopins i h -
moll.
Nelly Ben-Or fæddist i Varsjá
og hélt sina fyrstu opinberu tón-
leika þar þegar hún var 13 ára.
Sfðar lauk hún framhaldsnámi
með frábærum árangri i Tón-
listarakademiunni i Jerúsalem.
Hún er nú prófessor við Guildhall
School of Music i London.
Hún heldur tónleika og nám-
skeið viða um heim, og hér á landi
mun hún halda námskeið á veg-
um Félags tónlistarkennara. Fer
það fram i Tónlistarskólanum I
Reykjavik n.k. mánudag og
þriðjudag, og veröa einkatimar
fram eftir vikunni. Á námskeiö-
inu mun Nelly Ben-Or kynna svo-
kallaða Alexander-tækni, og er
það i fyrsta sinn sem sú tækni er
kynnt hér á landi, en Nelly Ben-
Or er þaulreyndur kennari á þvi
sviði og hefur kennt Alexander -
tækni við tónlistarstofnanir i Ev-
rópu, ísrael og Bandarikjunum i
mörg ár. Alexander-tækni er að-
ferö, sem beitt er til aö öðlast
meiri skilning á þvi hvernig
likaminn starfar i heild. —ih
KR-dagur
KR-ingar halda sinn árlega KR-
dag á félagssvæði sinu við
Frostaskjól á morgun, sunnudag.
Dagskráin hefst kl. 13 með kapp-
leikjum, innan húss og utan.
Þar munu KR-stúlkur leika
sinn fyrsta knattspyrnuleik, og aö
auki verða knattleikir i yngri og
eldri flokkumogOld Boys munu
sýna hæfni sina úti og inni. KR-
konur bjóða uppá kaffi og góðgæti
við vægu verði.
Myndlist á
Landspítalanum
Nú um helgina hefst á göngum
Landspitalans sýning á 14 grafik-
myndum og 10 oliumálverkum
eftir Jóhönnu Bogadóttur, og mun
sýningin standa f þrjár vikur.
Það færist óðum i vöxt að lista-
verk séu sýnd á stórum vinnu-
stööum og stofnunum. Land-
spitalinn var fyrsta sjúkrahúsið
til að taka upp þessa skemmti-
legu nýbreytni, en sýningar hafa
einnig veriö haldnar á Borgar-
spitalanum. Sagði Jóhanna að sér
fyndist þetta spor i rétta átt, þvi á
sjúkrahúsum væri jafnan mikill
straumur af fólki og þar af leiö-
andi margir sem sæu mynd-
irnar, auk þess sem þær lifguöu
upp á spitalagangana.
Myndir Jóhönnu eru allar til
sölu. Margar þeirra eru nýjar, en
sumar hafa verið sýndar áður.
— ih
Það ætti varla að hafa farið
framhjá neinum að herstööva-
andstæöingar ætla að rokka gegn
her i Laugardalshöllinni I kvöld,
laugardagskvöld.
Tónleikarnir hefjast kl. 21. Þar
koma fram hljómsveitirnar
Mezzoforte. Þursaflokkurinn og
Utangarðsmenn, og Rokkleikhús-
ið Táragas flytur dagskrá um
Sjöfn Haraldsdóttir opnar i dag
sýningu á veggmyndum úr leir I
Djúpinu við Hafnarstræti. Sýnir
hún þar 17 verk, sem öll eru til
sölu. Þetta er fysta einkasýning
hennar.
Sjöfn fæddist i' Stykkishólmi
1953. Hún lauk myndlistar-
kennaraprófi frá MHI 1973 og
stundaði framhaldsnám við sama
skóla i frjálsri myndlist veturinn
1973-74. 1977 hóf hún nám i vcgg-
Vilhjálmur Bergsson opnar I
dag sýningu á oliumálverkum og
teikningum að Kjarvalsstööum,
og nefnir sýninguna „Ljós og
viddir”.
Vilhjálmur hefur haldiö
margar einkasýningar, bæði i
Reykjavik og Kaupmannahöfn,
og tekið þátt i samsýningum viöa
„gasbardagann” á Austurvelli
1949. Auk þess fléttast óvænt
leikatriði inn i dagskrána.
Hljómsveitirnar þrjár verða
allarmeðnýttefni.ogm.a. munu
Utangarðsmenn og Mezzoforte
flytja efni af plötum sem koma út
á næstunni. Þursaflokkurinn
verður með splunkunýtt og
hressilegt rokkprógramm i anda
kvöldsins.
myndagerð hjá próf. Róbert
Jacobsen við Listaháskólann i
Kaupmannahöfn, og mun halda
þvi námi áfram. Hún hefur kennt
við Kvennaskólann, Myndlistar-
skólann i Reykjavik og Viðistaða-
skóla i Hafnarfiröi.
Sýningin er opin daglega kl. 10-
23. 30 og er aögangur ókeypis.
Sýningu Sjafnarlýkur24.septem-
ber.
um heim. Hann lagöi stund á list-
nám i Kaupmannahöfn og Paris á
árunum 1958-62, og er löngu kom-
inn i hóp þekktustu málara okkar.
A sýningu hans eru 63 oliumál-
verk og 10 teikningar. Flest verk-
anna eru til sölu. Sýningin verður
opin til 21. september, kl. 2-10
daglega. _ ih
Veggmyndir úr leir
—ih
Ljós og víddir