Þjóðviljinn - 31.01.1981, Qupperneq 5
Helgin 24. — 25. janúar 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Tryggvi Htlbner, Finnbogi Kjartansson, Rúnar Júliusson (munu leika á gitar og bassa ásamt Gunnari
Þórðarsyni) og Hrólfur Gunnarsson trymbill (Ásgeir Óskarsson og Engilbert Jensen verða einnig með
slagverk, Magnús Kjartansson leikur á hljómborð. Einnig munu koma fram Ari Jónsson, Egill Ólafs-
son, Björgvin Halldórsson og Pálmi Gunnarsson, Magnús og Jóhann og Jóhann G.)
Hljómleikar í minningu
LENNONS
Margur telur sig eiga honum skuld að gjalda
tnmngartoi]leikg
um JoliqfLenno
Tl) slyrktar GtsOvamtlartík^Ql Isktnds
I AuslurtMatafbkíi þrt^udatfmt S tebrúar'ö. *
Á þriðjudagsk völdið, 3.
febrúar, kl. 9.00 hefjast i
Austurbæjarbiói minningar-
hljómleikar um John Lennon.
Miðaverð er 50 kr. og ágóðinn
mun renna til Geðverndarfélags
islands. Óttar Felix Hauksson, sá
er fyrir þessum hljómleikum
stendur sagði, að sér hefði fundist
sú ráðstöfun liggja beinust við
vegna hins sjúklega morðs á John
Lennon. Allir sem hönd leggja á
plóg við hljómleikana gefa vinnu
sina og Leikfélag Reykjavíkur
lánar sviðsmynd, Ijósaútbúnað og
hljóðkerfi sem notað er við sýn-
ingar á Gretti.
Hljtímleikarnir hefjast á þvi að
Sigurður SkUlason leikari flytur
frumsamið ljóð um Lennon, og
siðan byrjar hljómsveitin á I
want to hold your hand og hvert
lagið mun reka annað. Þegar
kemur að Imagine mun Siguröur
Skúlason fyrst flytja það i
islenskri þýðingu sinni. Alls eru
hljóðf æraleikarar og söngvarar
15 og munu flytja u.þ.b. 25 lög.
Kynnir verður Þorgeir Astvalds-
son.
Mikil undirbúningsvinna liggur
að baki þessum hljómleikum i
sambandi við lagaval þvi að þau
eru orðin mörg lögin eftir John
Lennon allt frá upphafsárum
Bitlanna og fram á þann dag er
siðasta platan hans kom út. Leit-
aði Öttar i þessum efnum til
Rúnars JUliussonar, sém kvað
eiga plötusafn mikið og gott, og
Gunnars Þórðarsonar, og lágu
þeir gömlu Hljómafélagar ekki á
liði sinu. Siðan var farið i Hljóð-
rita og Urvalið tekiö upp á band,
þá i Alfa hf., nýju islensku hljóm-
plötupressuna, og þar voru
gerðar kassettur með lögunum og
þeim siðan útbýtt meðal
Myndin á auglýsingarplakatinu,
sem unnið var hjá Kassagerð
Reykjavikur, mun vera tekin af
Lennon árið 1968.
flytjenda. Þannig gat hver og
einn æft sitt hlutverk að mestu
leyti heima, en einnig hafa nokkr-
ar samæfingar verið.
Öttar Felix kvað ljóst af- þeim
góðu undirtektum sem hann hefði
fengið við undirbúning þessara
hljómleika, að þeir væru ófáir
hérlendis sem annars staðar, sem
teldu sig eiga John Lennon skuld
að gjalda. AJ
Bókasafnið í Skálholti
Liggur ekki undir
skemmdum
„Það er fjarri lagi að bókasafn-
ið i turni Skálholtskirkju liggi
undir skemmdum” sagði Heimir
Steinsson skólameistari lýð-
háskólans i Skálholti i samtali við
Þjóðviljann i gær.
Málefni bókasafnsins bar á
góma á Alþingi fyrir skömmu
þegar Guðrún Helgadóttir innti
kirkjumálaráðherra eftir ástandi
safnsins. Þjóðkirkjan festi kaup á
bókasafninu árið 1965 og kostaði
það þá 3,5 miljónir króna, enda
talið með merkustu einkasöfnum.
Þvi var komið fyrir i Skálholti þar
sem þvi var ætlaö að þjóna þeirri
menntastofnun sem þar var fyrir-
hugað að koma upp.
Heimir skólameistari sagöi að
verðmætari hluta safnsins hefði
verið komið fyrir i turninum, en
það sem nýta mætti viö kennslu
var staðsett i skólanum eftir aö
hann tók til starfa, en ætlunin var
og er að koma upp safni þegar
fjárveiting fæst til þess.
Að sögn Heimis er margt
merkra bóka i safninu. „Þar er
verulegur sjtíður islenskra fræða,
þar á meðal um kirkjusögu og
islenskar bókmenntir. Þar er
Guðbrandsbiblia og allar útgáfur
Passíusálmanna svo og velflestar
bibliuútgáfur fyrri alda,” sagði
Heimir.
Safnið er þannig útbúið i turnin-
um að bækurnar eru á málmhill-
um, þar eru tveir rafmagnsofnar
og sagði Heimir að hann sæti þar
oft við vinnu og væri þægilegur
• Blikkiðjan
Ásgaröi 1> Garöabæ
Onnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar biikksmíöi.
Gerum föst verötiiboö
SÍMI 53468
Heimir Steinsson.
stofuhiti i herberginu. Gluggar
hefðu verið endurnýjaðir og hann
gæti ekki séð að það hefði við rök
að styðjast að safnið lægi undir
skemmdum.
,,Ég hef sjálfur litið eftir bóka-
safninu undanfarin tvö ár og hef
komiö þangað reglulega siðan. Til
að komast inn i safnið þarf að
opna þrennar dyr, þar af er ein
eldvarnarhurð á mótum kirkju-
loftsins og turnsins. Þar er vel aö
staðið og allt gert til að tryggja
safnið. Auövitað er stefnt aö þvi
aö opna aögang að safninu þegar
bygging ris yfir þaö, en þangað til
það verður, verðum v að þreyja
þorrann og góuna. Ég gleðst hins
vegar yfirþvi að athygli er vakin
á málefnum safnsins og vona að
þaö verði til góös”, sagði Heimir
Steinsson i Skálholti. — ká
Auglýsing um styrkveitingu
Foreldra- og styrktarfélag blindra og
sjónskertra hefur ákveðiið að styrkja
kennara i sérnám i kennslu og þjálfun
blindra og sjónskertra.
Skilyrði er að umsækjandi hafi lokið námi
i sérkennaradeild Kennaraháskóla
íslands.
Allar nánari upplýsingar veitir Margrét
Sigurðardóttir blindrakennari i sima 30246
fyrir næstkomandi þriðjudag.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
SJÚKRAÞJÁLFARAR óskast frá 1.
mars n.k. eða eftir samkomulagi. Upp-
lýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari i
sima 29000.
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
SJÚKRALIÐAR óskast að Vifilsstaða-
spitala nú þegar eða eftir samkomu-
lagi. Upplýsingar veitir hjúkrunar-
framkvæmdastjóri i sima 42800.
Reykjavik, 1. febrúar 1981
Skrifstofa rikisspitalanna
Eiriksgötu 5, simi 29000.
Lækningastoia
Hef opnað lækningastofu i Domus
Medica, Egilsgötu 3, 5.hæð.
Viðtalspantamr i sima 15477.
Gunnar Valtýsson læknir
Sérgrein: Almennar lyflækningar, inn-
kirtla- og efnaskiptasjúkdómar (sykur-
sýki).
Allur akstur
krefst
varkárni
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
||UMFERÐAR
Námsgagnastofnun
Staða starfsmanns i kennslumiðstöð
Námsgagnastofnunar er hér með auglýst
laus til umsóknar. Umsækjendur skulu
hafa kennaramenntun, kennslureynslu
eða annan sambærilegan undirbúning.
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekk-
ingu á sviði námsgagna, kennslutækja.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist Námsgagnastofn-
un, Tjarnargötu 10, Reykjavik, Pósthólf
1274, fyrir 1. mars 1981.