Þjóðviljinn - 31.01.1981, Blaðsíða 29
Helgin ;il. jaji. — 1, febr. 1981.» ÞJÓÐVILJ.INN ^ SIÐA 29
Siðustu sýningar á ballettin-
um Klindisleik eftir Jón
Asgeirsson og Jochen Ulrich
verða nú um um helgina. Sýn-
ingarnar hafa verið mjög vel
sóttar, en geta ekki orðið fleiri,
þar eð gestirnir tveir, Michael
Molnar og Conrad Bukes, sem
fara með aðalkarlhlutverkin,
eru á förum héðan.
Blindisleikur var jólaverkefni
Þjóðleikhússins og hefur hlotið
frábærar viðtökur. tslensk
dansmær, Ingibjörg Pálsdóttir,
,,slói gegn” i aðalkvenhlutverk-
inu, Freyju, sem hún tók við af
Sveinbjörgu Alexanders, sem
dansaði fyrstu sýningarnar.
Komið hafði til tals að taka
þessa sýningu upp fyrir
sjónvarpið, en frá þvi var fallið
af tæknilegum ástæðum. Sýn-
ingarnar i kvöld og annað kvöld
verða þvi siöasta tækifærið fyrir
þá sem ekki vilja láta þennan
menningarviðburð fram hjá sér
fara. — ih
Síðustu for-
voð að sja
Vetrarmynd
Nú um helgina eru siðustu
forvöð að sjá sýninguna Vetrar-
mynd að Kjarvalsstöðum.
Aðsókn hefur veriö mjög góð.
11 myndlistarmenn standa að
sýningunni að þessu sinni, og
sýna 91 verk af ýmsum toga:
oliumyndir, skúlptúr, kritar-
myndir, teikningar, vefnað og
myndir unnar með blandaðri
tækni. Sýningin er opin i dag og
á morgun kl. 14—22. — ih
Hvar ertu Bagíra?
1 MlR-salnum, Lindargötu 18,
eru kvikmyndasýningar á
hverjuin laugardegi kl. 15.
Sýndar eru sovéskar kvik-
myndir, nýjar og gamlar, og er
aðgangur ókeypis og öllum
heimill.
1 dag verður sýnd myndin
,,Hvar ertu Bagira?”, sem er
leikin mynd, gerð íyrir nokkr-
um árum og íjallar um telpuna
Tönju og hundinn hennar. Leik-
stjóri er Vladimir Levin.
Myndin er sýnd með enskum
skýringartextum. — ih
Sálin hans Jóns míns
í Leikbrúðulandi
1 Leikbrúðulandi, sem stað-
sett er i kjallaranum að Fri-
kirkjuvegi 11, hefjast á morgun
sýningar á vinsælum brúöuleik:
Sálinni hans Jóns mins, scm
sýndur var að Kjarvalsstöðum í
fyrravor við góöar undirtektir.
Sálin hans Jóns mins er til-
valin fjölskyldusýning, en ráö-
legter þó að fara ekki með allra
yngstu börnin að sjá hana. Leik-
stjóri er Briet Héðinsdóttir.
Messiana Tómasdóttir gerði
brúður og leiktjöld með aðstoð
þeirra Bryndisar, Ernu, Hall-
veigar og Helgu i Leikbrúðu-
landi, en þær sjá um stjórn
brúðanna.
Margir þekktir leikarar ljá
brúðunum raddir sinar. Guðrún
Þ. Stephénsen leikur kerlingu,
Baldvin Halldórsson Jón bónda
og Arnar Jónsson kölska, svo
nokkrir séu nefndir.
Sýningin á morgun hefst kl. 15
og sýningar verða framvegis á
sunnudögum. Svaraö er i sima
Æskulýðsráðs 15937 eftir kl. 1 á
sunnudögum.
— ih
Markólfa í
Einsog sagt hefur verið frá
hér i blaöinu er leikfélagið
Grimnir i Stykkishólmi nú i
leikför i Kópavogi og sýnir
gamanleikinn Markólfu eftir
Dario Fo.
Sýningin hefur vakið mikla
Kópavogi
hlátra fyrir vestan, enda er
leikritið hreinræktaður farsi.
Leikstjóri er Jakob S. Jónsson.
Signý Pálsdóttir þýddi leikritið.
Seinni sýning þeirra Hólmara i
Kópavogsleikhúsinu verður i
dag,laugardag,kl. 15. — ih
Plútus
Annað kvöld, sunnudag kl.
20.30 verður fjórða sýning
Breiðholtsleikhússins á gaman-
leiknum Plútusi eftir Aristofa-
nes. Sýnt er i Fellaskóla.
Viðtökur áhorfenda og gagn-
rýnenda hafa verið mjög góðar
og margir hafa lofað þetta
framtak, að færa ieiklistina út i
úthverfin. Fólk úr öðrum
borgarhlutum hefur einnig
verið duglegt að sækja sýning-
arnar, að sögn Þórunnar Páls-
dóttur, eins af stofnendum
Breiðholtsleikhússins. Rétt er
að taka fram, að strætisvagnar
nr. 12og 13 stansa rétt viö Fella-
skólann. —ih
Að svínbeygja konu
Norræna húsið
Helgi Þorgils i kjallaranum
llelgi Þorgils Friðjónsson opn
aði i gærkvöldi sýningu i kjaliara
Norræna hússins. Þar sýnir hanr
fjölda mynda sem unnar eru inef
ýmsum aðferðum; þar iná sjá
teikningar, málverk, leikinyndir
útsaum og bækur.
Helgi lagði stund á myndlistar-
nám i Myndlista-og handiöaskól
anum en hélt siðan til Hollands
þar sem hann stundaði lram-
haldsnám.
Helgi vildi ekki flokka myndir
sinar undir neina ákveöna stelnp
hann sagði aö þær væru einna
helst i ætt viö það sem kallað
hefur verið nýja málverkiö. Helgi
notar litinn myndflöt að öðru
jöfnu, og þar al leiöir aö hann
getur komið verulegum fjölda
mynda lyrir á veggjum kjallar-
ans. Hann notar brot úr veruleik-
anum sem efnivið, textabrot,
teiknimyndasögur og fleira sem
við sjáum og heyrum daglega, en
Helgi setur i nýtt samhengi.
Sýningin stendur til 15. febrúar
og er opin alla daga frá kl. 4—10.
— ká
gamanleikur Shakespeares og
sá þeirra sem kemst næst þvi að
vera ærslaleikur. Þar er fjallað
um samskipti kynjanna á
gáskafullan hátt. Katrin (Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir) er
annáluð fyrir skapofsa og erfiða
lund, og Petrútsió (Þorsteinn
Gunnarsson) tekur að sér að
temja hana, gera hana að bliðri
og undirgefinni eiginkonu.
Böðvar Guðmundsson hefur
samið forleik og eftirleik sem
fluttir eru með verkinu og er
þeim ætlað að tengja verkið
áhorfendum. Shakespeare sjálf
ur samdi verkinu slikan ramma
á sinum tima, en honum er
oftast sleppt. Þórhildur
Þorleifsdóttir er leikstjóri sýn-
ingarinnar, og sagði hún um
verkið, að ekki bæri að lita svo a
að i þvi kæmi fram skoðun
Shakespeares á ,,stöðu konunn-
ar”, heldur væri hér grin á
ferðinni. Hinsvegar væri ekkert
þvi til fyrirstöðu að leikritiö
vekti upp umræöu um jafn-
réttismálin.
— ih
llelgi Þorgils Kriðjónsson millitveggja verka sinna. Ljósm: gel.
Þórunn Pálsdóttir, Evert Ing-
ólfsson og Eyvindur Erlendsson
i hlutverkum sinum.
A sunnudagskvöldið verður
fjórða sýning Leikfélags
Reykjavikur á Ótemjunni eftir
William Shakespeare.
Ótemjan, eða Snegla tamin,
einsog leikritið heitir fullu nafni
i þýðingu Helga Hálfdanar-
sonar, er einn vinsælasti
Katrin, áður en hún er
svínbeygö, og Petrútsió.
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ HAFNARBÍÓÍ
•y.
:::::
:::::
::::
Kona
Eftir Dario Fo
2. sýning
sunnudag
kl. 20.30
aá
i. k
Kóngsdóttirin
sem kunni
ekki að tala
Sýning
sunnudag
kl. 15.00
Stjórnleysingi
ferst af slysförum
Eftir Dario Fo
Leikstjórn: Lárus Ýmir
Óskarsson
Leikmynd og búningar:
Þórunn Sigriður Þorgrimsdóttir
Hljóðmynd: Leifur Þórarinsson
Frumsýning
fimmtudag 5. febr.
kl. 20.30
MIÐASALAhl opin laugardag kl. 17-19, sunnudag kl. 13-15 og 17-20.30.
.......
SÍMI: 16444