Þjóðviljinn - 31.01.1981, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 31. jan. — 1. febr. 1981.
Minningarorð
Steinþór Þórðarson, Hala
Ég var ekki gamall, þegar ég
heyrði alloft minnst á ungan
bónda i Suðursveit. Steinþór hét
hann og bjó á Hala. Þótti sumum
bæjarnafnið fremur einkennilegt
og jafnvel litt virðulegt. Frá
æskuheimili minu, Reyðará i
Lóni, til Hala i Suðursveit, þótti
mikil vegalengd á fyrsta
þriðjungi þessarar aldar. Enda
mun hún vera um 90 km., en bill
kom fyrst i sýsluna árið 1927 og
komst hann ekki nema um Nesja-
sveit, og raunar ekki alla. Það
var þvi ekki fyrr en siðar á æv-
inni, að ég kynntist Steinþóri á
Hala, fjölskyldu hans og heimili.
Og ekki leið á löngu þangað til
mér fór að þykja bæjarnafnið sér-
lega viðfeldið, þvi eins og raunar
allir vita, þá er það fólkið á hverj-
um stað,viðmót þess, eiginleikar,
og framkoma öll, er skapar það
andrúmsloft hlýju og góðvildar,
er yfirgnæfir flest annað. Og þrátt
fyrir allt, sem i hugann kemur,
þegar ég minnist Steinþórs vinar
mins nýlátins, þá verða þó sam-
ræðustundirnar á heimili þeirra
hjóna einna eftirminnilegastar.
Sjálfur hefir Steinþór rakið
helstu æviatriði sin i útvarpsvið-
tölum, er Stefán Jónsson, alþm.
átti við hann og alþjóð gafst kost-
ur á að heyra veturinn 1969—-1970.
Þessar minningar voru siðan
gefnar út i bókinni, er hlaut hið
sérkennilega nafn Nú-Nú með
undirheitinu, bókin, sem aldrei
var skrifuð. Sennilega er það al-
gert einsdæmi i islenskri bók-
menntasögu a.m.k. siðari aldir,
að slik bók hafi verið prentuð
beint eftir munnlegri framsögn
án þess aö penni eða ritvél væri
milliliður að nokkru orði, engum
stafkrók breytt, og engir skrifaðir
minnispunktar til að styðjast við i
frásögninni.
Steinþór var fæddur á Hala i
Suðursveit þann 10. júni 1892 og
hafði þvi meira en hálfnað 89.
aldursárið, er hann lést. Voru
foreldrar hans Anna Benedikts-
dóttir Þorleifssonar, Hallssonar i
Hólum i Nesjum og Þórður
Steinsson Þórðarsonar frá Kálfa-
felli i Suðursveit. Uppvexti sinum
lýsir Steinþór i minningabókinni,
sem fyrr er nefnd. Verður sú frá-
sögn ekki rakin hér. Tveir bræður
Steinþórs urðu einnig kunnir
menn, Þðrbergur Þórðarson, rit-
höfundur,sem ekki þarf að kynna
fyrir alþjóð og Benedikt, siðar
bóndi á Kálfafelli i Suðursveit.
Enn fremur áttu þau hjón eina
dóttur, er lést á barnsaldri. Lýs-
ing Steinþórs á bernskuárum
þeirra bræðra er sem að likum
lætur svipuð uppvaxtarsögu
fjölda islenskra sveitabarna frá
þeim tima, þar sem flestir bjuggu
við þröngan efnahag og börn og
unglingar byrjuðu að hjálpa til
við heimilisstörf þegar aldur og
kraftar leyfðu. En tvennt skal þó
minnst á, sem viss áhrif mun hafa
haft á þroska og áhugamál ung-
lings á viðkvæmu þroskaskeiði.
Annað er það, að bækur munu
hafa verið mikiþ um hönd hafðar
á heimilinu. Aorir kunnugir hafa
tjáð mér, að foreldrar hans hafi
bæði verið bókhneigð. Og eins og
gerðist í sveitum á Islandi voru
bækur lánaðar bæja á milli. Enn
fremur minntist hann á það i
fyrrnefndum minningum, að fað-
ir sinn hafi verið einn af fjórum
mönnum, er fyrst stofnuðu til
félagsskapar um bókakaup. Sýnir
það best fróðleiksfýsn og lestrar-
löngun þessa fólks.
Þetta reyndist Steinþóri þó ekki
nóg. Tæplega tvitugur gengst
hann fyrir stofnun almenns
lestrarfélags i sveitinni. Þvi sam-
kvæmt frásögn hans sjálfs þótti
honum tvennt á skorta. Annað
var það, að of litið bærist af nýj-
um bókum gegn um þennan fá-
menna félagsskap og allt of fáir
sveitungar sinir fengju notið
þeirra. Þess vegna væri þörf á al-
mennum félagsskap um þessi
mál. Þarna kom þegar i ljós sá
félagsandi, sem enn þá betur átti
eftir að setja mark sitt á öll lifs-
viðhorf hans áiðar á ævinni og
betur mun vikið að siðar.
Litlu siðar hefir hann forgöngu
um stofnun ungmennafélags
sveitarinnar, sem starfar enn.
Annað, sem ég vil nefna i sam-
bandi við áhrif unglingsáranna,
var sambýli og samhjálp fólksins
á bæjunum vestan Steinasands
og þá ekki sist á hinum þremur
bæjum i Breiðabólsstaðartorf-
unni, þar sem túnin liggja saman.
Og i þessu umhverfi léku börnin
sér að þvi, að mynda sitt eigið
þjóöfélag með embættismönnum,
sambærilegum við embættis-
menn þjóðarinnar, s.s. landshöfð-
ingja, sýslumanni, pósti o.fl.,
stofnuðu banka, er gaf út seðla,
ráku verslun, þar sem seðlarnir
voru notaðir sem gjaldmiðill og
annaö i þá veru. Hver veit hvað
þetta barnaþjóðfélag hefir átt
mikinn þátt i að móta skapgerð-
areinkenni unglinganna þótt leik-
ur einn væri.
Sumarið 1914 kvæntist Steinþór
frænku sinni, Steinunni Guð-
mundsdóttur frá Reynivöllum.
Búskap hófu þau á Hala, fyrst i
félagi við foreldra hans. Siðar
tóku þau við búinu ein og bjuggu
þangað til Torfi, sonur þeirra,
gerðist kennari i sveitinni, siðar
skólastjóri, og varð þegar þátt-
takandi i búskapnum með konu
sinni, Ingibjörgu Zophóniasdóttur
ættaðri úr Svarfaðardal. Fullyrði
ég að með Ingibjörgu hafi þau
eignast tengdadóttur, sem bæði
kunnu að meta, enda hefir það
komið i hennar hlut að halda uppi
reisn húsmóðurstarfsins á þessu
stóra heimili i vaxandi mæli og
algjörlega hin siðari ár. A Hala
hefir hin stækkandi fjölskylda bú-
ið og sumt af yngra fólkinu stofn-
að þarsin eigin heimili, enda hef-
ir véltækni nútimans verið notuð
til að auka afrakstur jarðarinnar.
Veit ég að það var hinum öldruðu
hjónum óblandin ánægja á efri
árum að sjá barnabörnin vaxa
upp og ilendast á þessum stöðv-
um, eftir þvi sem ástæður leyfðu.
Steinþór Þóröarson
Dóttir þeirra, Þóra, héfir verið
búsetti Reykjavik, gift Ólafi Guð-
jónssyni, húsgagnasmið.
Með búskapnum á Hala, sem
þau hjón hófu svo ung, hófst einn-
ig annar þáttur i ævi Steinþórs,
sem við sýslungar hans og aðrir
kynntumst þvi meira sem árin
liðu. Það var hið margþætta starf
hans að allskonar félagsmálum,
þar sem hann ætið var reiðubúinn
að fórna bæði tima og kröftum i
þágu þeirra málefna, sem hann
bar fyrir brjósti og til almenn-
ingsheilla horfðu.
Eins og fyrr er á minnst gekk
hann kornungur fram fyrir
skjöldu við stofnun lestrarfélags
og ungmennafélags i sveit sinni.
Siðar kom forustustarf i búnað-
arfélagi sveitarinnar og kaup-
félagi sýslunnar, þegar við stofn-
un þess. Stjórnarstarf i Búnaðar-
sambandi Austur-Skaftfellinga og
má þá ekki sist nefna hans ötulu
forgöngu i aö koma á bændafund-
um Austur-Skaftfellinga, sem ár-
um saman voru haldnir i sveitun-
um til skiptis.
Þá fundi sátu, i fyrsta lagi,
kjörnir fulltrúar búnnaðarfélag-
anna, venjulega fimm frá hverju
félagi, en einnig var öðrum heim-
ilt að fylgjast með þvi, sem fram
fór. A þessum fundum voru rædd
og reifuð flest þau framfaramál
héraðsins, er mest þóttu aðkall-
andi hverju sinni og samþykktir
gerðar eftir þvi sem ástæður
þóttu til. Alla tið var Steinþór ein-
hver albesti stuðningsmaður
þessarar starfsemi, raunar má
likanefna Benedikt bróður hans á
Kálfafelli, og þó e.t.v. sé erfitt að
meta, hver voru bein áhrif hennar
á framkvæmdir og framfaramál
þá munu flestir sammála um að
þau hafi verið nokkur.
Hitt þarf ekki að draga i efa, að
áhrifin til að auka kynningu,
skapa heilbrigðan félagsanda og
skilning á viðhorfum og þörfum
hinna ýmsu hluta héraðsins voru
mikil. Og enn fremur tel ég mega
fullyrða, að áhrifin til að teysta
persónuleg vináttubönd milli
fólks i fjarlægum sveitum hafi
ekki verið litil.
í þessu sambandi má einnig
minnast annars féiagsskapar, er
Steinþór lagði sitt góða lið, en það
var Menningaríélag Aust-
ur-Skaftfellinga, er starfaði um
árabil og var hann jafnan einn
glæsilegasti ræðumaður á mótum
þess.
Sem beint framhald og eðli-
legt af störfum hans að félags-og
framfaramálum héraðsins var
hann árum saman fulltrúi þess á
aðalfundum stéttarsambands
bænda, eftir að það var stofnað.
Veit ég að hæfileikar hans og góð-
vilji hafa ekki notið sin siður þar
en annarsstaðar.
Ekki vil ég enda þessar linur án
þess að minnast litið eitt frekar á
heimilið á Hála og þá ekki sist
hina hlýju gestrisni, er ætið var
þar sýnd, hverjum sem að garði
bar. Gistinætur þær, er ég átti
sjálfur og siðar ásamt konu
minni, á þvi heimili hef ég ekki
talið saman, en þær urðu margar
eftir þvi, sem árin liðu. Og alltaf
voru viðtökurnar jafn hlýjar hjá
þeim hjónum báðum. Alltaf jafn
gaman að ræða við fjölskylduna
um þau málefni, sem efst voru á
baugi og njóta hinnar alþekktu
frásagnarsnilli húsbóndans þegar
á góma bar eitthvað frá eldri tim-
um. Ekkert af þessu breyttist þótt
yngri hjónin, Torfi og Ingibjörg
tækju smám saman við öllum
búsforráðum.
Sem kunnugt er þá er Hali i
þjóðbraut,og hefðu verið skrifað-
ar þar gestabækur er ég viss um
að hvert bindi hefði verið fljótt að
fyllast.
Um leið og ég enda þessi
kveðjuorð til Steinþórs, vinar
mins, vil ég færa eftirlifandi eig-
inkonu hans, börnum þeirra
tengda-<og barnabörnum innileg-
ustu samúðarkveðjur frá okkur
Guðrúnu með kærum þökkum
fyrir alla kynningu og vináttu lið-
inna ára.
Ásmundur Sigurðsson.
•
Hann hafði trú á þvi, að ein af
ástæöunum fyrir þvi hvað hans
kynslóð entist vel væri sú, aö þau
fengu hóflega mikið að borða i
æsku. Þar átti hann viö heilsuna.
Frá þessu sagði hann mér og öðr-
um efnum i lifshlaup sitt fyrir
býsnamörgum árum. Ég hljóörit-
aöi við hann spjall i eina 36
klukkutima og klippti svo úr
segulböndunum efni i 25 hálftima
útvarpsþætti. Seinna var þetta
svo gefið út undir heitinu Nú
nú — Bókin sem aldrei var skrif-
uð, sýnisrit um munnlega frá-
sagnarlist sunnan jökla. Þetta
finnst mér enn vera nokkuð
merkileg bók, þvi þar er ekki
vikið við einu orði frá þvi sem þau
komu beint út úr Steinþóri — og
svo réttlættum viö hana ennþá
frekar með þvi að hún gæti orðið
ágæt kennslubók við notkun
segulbandanna sjálfra ef ein-
hvern tima yröi gengið i það að
kenna islenska hljóðfræði við ein-
hverja menntastofnun á tslandi.
1 þessum sagnaþáttum greinir
Steinþór frá þvi hvaðan voru
raktir aörir þættir persónunnar
en þeir sem beint lutu að fóðrum
holdsins, til þeirra Steins gamla,
Oddnýjar i Geröi og sona hennar,
Breiðabólstaðarfólksins og
Reynivalla, en af sama þela var
spunnið ivaf i skapgerð bræðra
hans, Þórbergs skálds og Bene-
dikts bónda Þórðarsonar. Enn
eitt furöulegt dæmið um það
hversu þrir nauðalikir afbragðs-
menn geta orðið sinn meö hverj-
um hætti. Um efnisatriði þessara
minninga visa ég til Bókarinnar
sem aldrei var skrifuð, en bið þá
sem ekki heyrðu útvarpsþættina
gæta þess við lesturinn að sá
tandurhreini tónn sem orðin að
tarna voru kveðin við, hann
komst náttúrlega ekki til skila i
prentverkinu, enda vænti ég þess
að orðlist af þessu tæi verði ekki
gefin út framar nema á segul-
bandspólum.
Ég hef rætt við margan orð-
snillinginn víðsvegar um landið
og hvergi heyrt islenskuna
hljóma eðlilegar en af vörum
Steinþórs á Hala, gjörsneidda
bókmálstilgerð og málfræðilegri
fordjörfun. Raunar hef ég löngu
komist að þeirri niðurstöðu að til
þess að iðka tungutak á borð við
það sem Steinþór kunni þurfi efa-
laust sérstakt hjartalag. Það
getur ekki verið tilviljun að allar
þessar þrjátiu og sex klukku-
stundir sem ég ræddi við Steinþór
á Hala á segulband skyldi hann
aldrei nafngreina svo mann að
hann gerði ekki hlut hans góðan
Stefán Jónsson
Þeir safnast nú óðum til feðra
sinna er helguöu líf sitt og starf
þvi að berjast gegn fátækt og
menntunarskorti og gera
islenska þjóð bjargálna I and-
legum og veraldlegum efnum I
anda þeirra hugsjóna sem
kenndar eru við aldamótamenn-
ina svonefndu. Þá hugsjón sem
fann sér farveg I félagshyggju
ungmennafélagshreyfingarinnar
og hugsjón samvinnufélags-
skaparins.
Einn af þeim sem stóö I fylk-
ingarbrjósti þessarar baráttu
fyrir land sitt og þjóð, sveit sina
og hérað er horfinn af vettvangi.
Hann Steinþór á Hala er nú
fluttur búferlum til annarra
veralda.
Ég tel að það hafi verið þeim
sem þessar linur ritar mikið lán
að alast upp í næsta nágrenni við
Steinþór á Hala og eiga þess kost
að kynnast slikum öðlingi sem
hann var. Slík kynni voru
vekjandiogörvandiog vöktugleði
I sinni. Og þar sem fundum bar
saman við Steinþór var löngum
bryddað upp á nýjungum, hvatt
til framfara á flestum sviðum
mannlifs undir merki óbifan-
legrar trúar á félagslegt framtak.
Það var lifsskoðun Steinþórs að
meö félagslegu átaki mætti
margan vanda leysa til aukinna
framfara og bættra lifskjara fyrir
hinn almenna mann, enda I
fýllsta samræmi viö þá llfshug-
sjón hans, sem ég hygg að hafi
veriö sU, að allir menn væru með
sama réttifæddirtil þessa lifs, og
þar bæri þeim sem byggi yfir
meira atgervi aö miðla hinum
veikari i þjónustu þess lífs sem
höfuðsmiöurinn mikli hefur bUið
öllu lifi.
Sjálfstæði Islands, þaö er stórt
orð og það var mikill fögnuöur
sem rlkti i huga þjóðarinnar
þegar lýðveldið var stofnað 17.
júni 1944. Ég tel á engan hallað þó
hér sé sagt að sveitinni okkar
Steinþórs hafi hann leitt þann al-
menna fögnuð. En á skammri
stund skipast veöur i lofti og hann
Steinþór varaði okkur hin við
þeim óveðursskýjum sem brátt
tóku að hrannast á himin hins
unga lýðveldis. Og það veit ég
fyrir vist að þessi aldni heiðurs-
maður hefði helst af öllu kosið
áður en hann gekk til feðra sinna
að sjá aftur þá heiörikju sem
hvelfdist yfir Islensku þjóöinni i
rigningunni 17. jUni 1944.
Þvi þarf varla aö lýsa hér
hversu mikill afburöa sögumaður
og fræöaþulur Steinþór á Hala
var, enda afrekaði hann það
Þorrablót
Alþýðubandalagsfélögín í Garðabæ,
Hafnarfirði og Seltjarnamesi
efna fil þorrablóts í Garðaholti, Garðabæ,
laugardaginn 14. feb. n.k. og hefst það kl. 19.30
Ávarp flytur Sigurður Blöndal.
Glens og gaman, söngur og gleði. Félagar fjölmennið og takið
með ykkur gesti. Miðasala og nánari upplýsingar: Rakel, s.52837,
Hilmar s. 43809, Þórir s. 44425 og Guðrún s. 23575.