Þjóðviljinn - 31.01.1981, Side 23
Helgin 31. ian. — 1. febr. 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
Sveinn Kristinsson hefur ekki tekiö þátt i opinberri skákkeppni i meira en 18 ár. Hann teflir nú i B-riöli
og virðist fáu hafa gleymt þó að e.t.v. skorti hann snerpu fyrri daga þegar hann var i fremstu röð
islenskra skákmanna. Hér teflir hann viö Guömund Halldórsson (Ljósm.: gel)
Skákþing Reykjavíkur:
Gömul kempa kveður
ser
hlj óðs
Þegar tefldar hafa veriö 7
umferöir á Skákþingi Reykjavík-
ur 1981 er staöan i A-riöli þessi:
1. Jón L. Arnason 4 v. + 2 biösk.
2. Bragi Halldórsson 4 v.
3. Helgi Ólafsson 3 1/2 v. + 1
biösk. og 2 frestaöar skákir
4. Karl Þorsteins 3 1 /2 v.
5. Þórir Ólafsson 3 v. + 1 biösk.
og frestuð skák.
6. Dan Hansson 3 v. + 1 biðsk.
7. Sævar Bjarnason 2 1/2 v. + 2
biösk.
8. Asgeir Þ. Arnason 2 1/2 v. + 1
biðsk.
9. Elvar Guðmundsson 2 v. + 2
biösk. og 2 frestaöar skákir
10.—11. Björgvin Viglundsson og
Hilmar Karlsson 2 v. + 1
biösk.
12. Benedikt Jónasson 1 v. + 1
frestuð skák.
Biöskákir og frestanir setja þvi
enn talsvert mark á mótið þó
greina megi f gegnum þokuna, aö
baráttan um efsta sætiö komi til
meö aö standa á milli greinarhöf-
undar og Jóns L. Arnasonar.
Hvor reynist hlutskarpari skal
auðvitað ósagt látiö en ávallt skal
varast aö taka Urslit móta mjög
alvarlega þegar 2—3 keppendur
skera sig Ur hvaö styrkleika
áhrærir. f 7. umferö sem tefld var
á miövikudagskvöldiö uröu úrslit
sem hér segir: Ásgeir vann
Braga og Karl vann Björgvin.
Jafntefli geröu Sævar og
Benedikt. Skákir Hilmars og Dan,
Helga og Þóris og Elvars og Jóns
fóru í biö. Dan, Helgi og Jón
standa allir betur að vigi. Þvi
miöur hefur greinarhöfundur
ekki stööuna i öörum riölum en Ur
þvi veröur bætt fljótlega. Hér
kemur svo ein skák Ur keppninni i
A-riöli. Þar vinnur Asgeir Þ.
Arnason sinn fyrsta sigur i
mótinu gegn Braga Halldórssyni,
sem hefur átt miklu fylgi aö
fagna til þessa. Þeir félagar hafa
marga hildi háö og hefur Asgeir
yfirleitt orðið hlutskarpari og
vinnur þá jafnan meö glæsilegum
tilþrifum. Svo er einnig hér þó
taflmennskan standist e.t.v. ekki
ströngustu gæðaprófanir:
Hvitt: Asgeir Þ. Arnason
Svart: Bragi Halldórsson
Kóngsindversk vörn
1. C4-RÍ6 6. Be2-e5
2. Rc3-g6 7. O-O-Rcö
3. e4-d6 8. d5-Re7
4. d4-Bg7 9. c5?
5. RÍ3-0-0
(Þessi leikur hefur aldrei hlotið
náö fyrir augum byrjanasér-
fræðinga og ekki aö ófyrirsynju.
Ýmsir brUklegir finnast i
stööunni s.s. 9. Rd2, 9. Rel, 9. Bd2
eöa 9. b4. Hitt er svo annaö mál aö
Ásgeir bindur ekki ávallt bagga
sina sömu hnútum og samferöa-
mennirnir.)
9. ...-dxc5!
10. Rxe5-Rxe4
(Einnig kemur til greina aö leika'
10. -Rxd5.) 12. Bg5-b6
11. Rxe4-Bxe5 13. Rf6 + -Kg7?
(Gengur beint til móts viö hvitan.
Eftir 13. -Kh8 sem hótar 14. -h6
hefurhvitur ekkert fyrir peðið og
það sem meira er; staöa hans er
mjögslæm.)
B i Bi^i
fi±
'9* IIS
i ±
tm m&m&m
m t# s®
14. Dd2!
(Skemmtileg hugmynd sem
Bragi gengur rakleiöis til móts
viö.)
14. ...-Bxf6?
(Enn var ekki of seint aö leika 14.
-Kh8.)
15. Bxf6+-Kg8
(Þegar á hólminn er komið brest-
ur Braga kjark til aö mæta öröug-
leikunum sem framhaldið 14. -
Kxf6 15. Dc3-Kg5 16. Dg7! hefur i
för meö sér. En ekki tekur nU
betra viö. Biskupinn á f6 er slikur
fleinn istööu svarts aö hann getur
ekki látið sig dreyma um aö
sleppa lifandi.)
16. d6!
(Tekur d6-reitinn af drottning-
unni.)
16. ,..-cxd6 17. Bd3
(Það er einkar athyglisvert við
þessa stööu að eins og leppun
riddarans á e7 er óþægileg svört-
um þá er hUn engu aö siöur hon-
um nauðsynleg, þvi -Dh6 verður
hann aö geta svarað meö -Rf5.)
17. ...-a6
18. Hael-Be6
(Eöa 18. -Ha7 19. Hxe7-Hxe7 20.
Dh6 og mátar. Svartur gat einnig
reynt 18. -He8 en þaö hefði ekki
breyttmiklu.)
19. Í4-C4 21. Dh6-Rxf5
20. f5-b5 22. Hxf5
— Og Bragi gafst upp.
W
Félag
járniðnaðar-
manna
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið heíur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og
trúnaðarmannaráðs Félags járniðnaðar-
manna fyrir næsta starfsár.
Tillögur eiga að vera um 7 menn i stjórn
félagsins og auk þess um 14 menn til
viðbótar i trúnaðarmannaráð og 7
varamenn þeirra.
Frestur til að skila tillögum rennur út kl.
18.00 þriðjudaginn 3. febrúar n.k.
Tillögum skal skila til kjörstjórnar
félagsins á skrifstofu þess að Suðurlands-
braut30,4. hæð, ásamt meðmælum a.m.k.
80 fullgildra félagsmanna.
Stjórn
Félags járniðnaðarmanna.
Stöður í Kenya
Danska utanrikisráðuneytið hefur óskað
eftir þvi, að auglýstar yrðu á íslandi eins
og á hinum Norðurlöndunum, sex
ráðunautastöður við norræna samvinnu-
verkefnið i Kenya.
Um er að ræða eina stöðu i smáiðnaði,
eina stöðu við rannsóknarstarfsemi, tvær
stöður við stjórnun fyrirtækja og tvær
stöður við bankastarfsemi.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást að Lindargötu 46,2. hæð, sunnudaginn
1. febr. kl. 13—15, miðvikudaginn 4. febr.
og fimmtudaginn 5. febr. kl. 17.30—19.
Umsóknarfrestur er til 6. febr. n.k.
Umsóknarfrestur er til 6. febr. n.k.
Aðstoð islands við þróunarlönd.
Ath. að fjárhæðir í framtalinu eiga að vera í GÖMLUM KRÚNUM
Síðasti skiladagur fyrir einstaklinga með
sjálfstæðan atvinnurekstur er 15.mars.
Ríkisskattstjóri