Þjóðviljinn - 08.08.1981, Qupperneq 20
ysrur/aoi'i
Wfí ri rn1! i HTi II 1 *
/1 A018
I li'l'4'1 lYf'í
íí!)^ .h-.H iIí!j!->a1
>-<//««/^A)u»aukVktknu^»mii»nt< »-»«»* » »t« »v*»*«w.
2» SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 8.-9. ágúst 1981
ÉG Á MIG SJÁLFUR
Meðaliö hennar
Steinunnar
Steinunn Jóhannesdóttir heit-
ir kona. Hún skrifar athyglis-
veróa grein I Sunnudagsblaöiö
siöasta, „Eiga Askur og Embla
aö skilja?” Ekki veit ég nákvæm-
lega hvern tilgang hún ætlar
þessari grein, sennilega á hún aö
vera innlegg i umræöu um
kvennabaráttu, kannski á hún
bara aö halda henni viö, án þess
aö Steinunni sé mikiö i mun, aö
viöhorf sin hljóti fylgi. Ef til vill
varö greinin til, vegna þess aö
þarna var pláss i blaöinu og þaö
sem þar stendur, þjónar þá þeim
tilgangi að koma i veg fyrir að
þaö sé autt. Fyrir mig hefur
greinin fyrst og fremst þann til-
gang að vera innlegg i umræöu
um málefni lesbia og homma,
sem er, sem ‘betur fer aö komast
af staö i islenskum fjölmiölum.
Tilgangur
og tilgangur
Tilgangur er enginn til.án þess
að getið sé hver hann er. Steinunn
Jóhannesdóttir hefur áreiðanlega
fundið sér margvislegan tilgang,
þaö er þá tilgangur hennar. Þeir
sem henni eru nánastir.gefa henni
sjálfsagt lika hver sinn tilgang
og ætlast þá til þess af henni að
hún komi eins mikið til móts við
hann og hún getur. Starfsfélagar
hennar og kunningjar ætla henni
áreiðaniega enn annan tilgang
hver um sig, en óneitanlega á
Steinunn hægara meö að komast
hjá þvi aö þjóna tilgangi annarra
eftir þvi sem þeir standa henni
fjær. Sjálfur ætla ég Steinunni Jó-
hannesdóttur alls engan tilgang
og hún ber, sem slík, engar skyld-
ur gagnvart mér.
Hlutverk
og hlutverk
Sjálfur hef ég fundið mér ýmiss
konar tilgang, en ég frábiö mér aö
einhver kona úti I bæ sé aö setja
þaö i blöðin aö tilgangur minn
(lifs mins) sé aö ná saman viö
konu.til þess aö viö aukum viö kyn
okkar. (Hér eftir nefni ég þaö
hlutverk.sem Steinunn kallar til-
gang, ég sé ekki betur,en aö þaö
sé hlutverkaskipan, sem vakir
fyrir henni.) Ég frábið mér sem
sagt,að einhver kona úti i bæ rétti
mér fullsamiö fjölrit upp i
hendurnar og segi meö þjósti:
Hana, þar hefurðu hlutverkiö! Ég
vil ekki vera leikari.
Hómósexúalismi
getnaðarvörn?
Við lesbiur og hommar i Sam-
tökunum ’78 notum ekki orðin les-
bianismi og hómósexúalismi, við
erum á móti öllum sexisma, bæöi
heterósexisma og hómósexisma.
Við viljum ekki aðskilnaö, ekki
búa i gettói, viö viljum taka fullan
þátt á öllum sviðum samfélags-
ins. Við höfum ekki neina stefnu
varðandi það, hvort lesbiur og
hommar eigi að ala af sér börn
eða ekki.
Meiri hluti homma og lesbia á
Islandi er giftur eöa fráskilinn,
ekkill eöa ekkja, og á börn. Hluti
félagsmanna i Samtökunum ’78
er gift fólk. Kynhneigö, sem er
sterkari gagnvart manneskjum
af sama kyni en gagnstæöu kyni,
er ekki getnaöarvörn. Spurningin
er hlaöin sexisma.
Eða hversu frjórra er sam-
band frjós karls og frjórrar konu,
sem koma i kring getnaöi einu
sinni eöa tvisvar á lifsleiöinni, en
samband annarra persóna, sem
leiöir ekki til barnsfæöingar?
Eiga Askur og
Embla að skilja?
Spurningin gefur til kynna.aö
báöum sé ljós ástæöa til þess að
skilja. Viö i Samtökunum ’78 höf-
um rætt við fjöldamargt gift fólk,
en við höfum aldrei heyrt þessa
spurningu frá þvi. Frekar að
spurt sé: ,,A Askur aö skilja viö
Emblu? A Embla aö skilja viö
Ask?” Þó miklu frekar: Aski
finnst sálarlega lýjandi aö þurfa
aö halda fram hjá Emblu, hvaö á
hann aö gera? Hann langar ekki
til þess aö skilja viö hana (langar
ekki, treystir sér ekki, þorir ekki,
leyfir sér ekki?) Eða: ,,Ég er
fimm barna faðir og sextán barna
afi, ég á heima i þorpi, þar sem
allir búa i einbýlishúsum. Ég get
þess vegna hvorki farið i hús né
fengið heimsóknir án þess að allt
þorpið viti. Hvað get ég gert?”
Eða: ,,Það koma hótunarbréf um
að manninum minum verði sagt
að ég sé lesbia. Hvað get ég
gert?”
Áttu Askur og
Embla að rugla
saman reitunum?
Ef bæði álitu sig vera heteró-
sexúal og ekkert annaö, og allt
annað féll eins og flis viö rass, þá
lá þaö beint viö. Meö timanum
kemur margt i ljós, sem lætur
manni finnast auövelt aö vera vit-
ur eftir á: Þau heföu nú aldrei átt
aö láta þetta ganga svona langt!
Þar á meöal er þaö, aö annað
hvort eöa bæöi komast aö þvi eftir
giftinguna, að þau eru les-
bia/hommi. En það kom ekki til
álita i upphafi, frekar en svo
margt annað sem fólk skilur út af
eða þá lætur sér lynda og lynda
ekki i sambúðinni.
•e
Eiga Askur og
Embla að láta
slag standa?
A Askur að reyna að gifta sig?
Hann er hommi og á heima úti á
landi. Það er ekkert um að vera
fyrir homma þar, ekkert fólk á
þeim aldri sem hann er aö komast
á nema hjónafólk, ekki einu sinni
fáanlegt annaö húsnæöi en ein-
býlishús fyrir fimm manna fjöl-
skyldur eftir teikningum frá Hús-
næöismálastofnun. A hann aö fá
sér konu og gá hvort þetta lagast?
A hann aö fá sér konu, svona i
þeim tilgangi sem maður fær sér
konu, en hafa samband viö gifta
karlinn sem er altalaö aö sé
hommi, eða einhverja aðra sem
koma kannski seinna? A hann aö
koma sér burtu úr bænum, suöur?
A hann að koma sér úr landi, til
Kaupmannahafnar? Mamma
gamla veröur þá aö gera boö á
undan sér ef hún ætlar að heim-
sækja hann til Kaupmannahafn-
ar.
Ráð undir
rifi hverju
Ég er hræddur um aö okkur i
Samtökunum ’78 veitist erfiöara
en Steinunni að gefa greið svör
viö spurningum sem þessum
varðandi hjónaband lesbia
og/eða homma. Við teljum okkur
ekki geta sagt: Þú átt að skilja og
byrja nýtt lif. Eða: Þú átt að
«---------
Eiga Askur og
•Embla að skilja?
leda hvernig urdum vid svona?
t Aðskiinaáar
sicfna.’
06 t>Au n* ho 16»
Svstralag
bræðralag
mcr daCC það i hug
l inlalt svar
71 Uoti hlutvcrk
■'* má titx\ir
aiV»t;cður
Hvað verður um Ask og Emblu?
Skilnaði afstýrt
Steinunn Jóhannesdóttir geyst-
ist fram á ritvöllinn i siöasta
helgarblaði Þjóöviljans. AHt í
einu reis upp höfundur sem ekki
haföi sést um margra vikna
skeiö, svo ljóst mátti vera aö hon-
um hafi dottiö eitthvaö mikilvægt
i hug. Penninn var skarpur
aö vanda, en við viljum meina aö
blekiö hafi veriö nokkuö mengaö,
gott ef pennanum var ekki dýft
niöur í annarra blekbyttur. Svo
, mikiö er vfst aö okkur finnst viö
veröa aö svara.
Grein Steinunnar gengur út á
þaö aö sanna.aö upp sé risin ný
stefna kvenfrelsissinna, I þá veru
að konur skuli nú allar ganga i
eina sæng og afneita karlkyninu
meö öllu. Meö þvi „sterka kyni”
sé ekki hægt aö vinna og einskis
af þvi aö vænta. Hvaö skyldi
Steinunn nú meina meö þessu, viö
hverja er átt? Hvaöa konur hafa
veriö aö boöa aöskilnaöarstefnu
og hvaöan er vitneskja hennar
komin? Steinunn notar blaö
Rauðsokkahreyfingarinnar á
vægast sagt hæpinn máta, til þess
aö koma lesbiustimpli (þaö er
eins og maöur hafi séö þann
stimpil áöur) á þá hreyfingu
kvenna sem nú lætur á sér kræla
og vill leita nýrra baráttuleiða.
Þær konur skuiu dæmdar ein-
angrunarsinnar, gegn lifinu, gegn
barneignum og maður veit ekki
hvað. Þaö er eins og viö séum
komin ein tiu ár aftur I timann.
Hvað er undir
hauspokanum?
Steinunn byrjar á þvi að gefa i
skyn aö blaöið Forvitin Rauö 2.
tbl. 1981 fjalli aö mestu um sam-
kynhneigö kvenna (lesbianisma).
Hún rýnir i myndina framan á
blaöinu og þykist einna helst sjá
tvær konur aö kyssast. Auövelt er
þó aö sjá að þar eru á ferð karl og
kona. Þaö sést i bera öxl kon-
unnar og karlinn er i jakka,
skyrtu og meö bindi. Nema þaö sé
hinn nýi einkennisbúningur i
lesbiuféiaginu? Þau skötuhjú eru
meö hauspoka, sem hver og einn
getur aö sjálfsögöu túlkað á sinn
veg, en okkur finnst nærtækasta
skýringin, aö myndin sé táknræn
fyrir þá blindu sem oft rikir i
samskiptum kynjanna (þess má
geta. að myndin er fengin úr
danska timaritinu „Hug”, úr
grein eftir tvo karla sem fjallar
um samskipti kynjanna).
Næst segir Steinunn aö ekki sé
fjallað um öll afbrigöi kynlifs
(alls þess sem faliö er I pokum).
„heldur er látið duga aö spyrja
nokkra viömælendur FR um af-
stöðu þeirra til kynvillu”. Stein-
unn getur þess ekki aö þessi
spurning er ein af mörgum um
kynlif almennt, sem fjórir karlar
og fjórar konur svara, enda er
meginmarkmiö Steinunnar aö
sýna fram á, aö þaö sé veriö aö
boöa samkynhneigö kvenna sem
stefnu og lausn á baráttu kynj-
anna. Hún leggur út af grein
þeirra Sue Cartledge og Susan
Hemmings i FR sem fyrst birtist
i Spare rib 1979, en þaö er blaö
ensku kvennahreyfingarinnar,
sem hefur okkur vitanlega. ekki
lýst yfir stuðningi við samkyn-
hneigöarstefnuna.
Forvitnilegt efni
Astæöan fyrir þvi aö greinin um
lesbiurnar var birt I FR var
einfaldlega sú.aö okkur þótti hún
forvitnileg. hún fjallar um efni
sem litt hefur veriö rætt hér á
landi, en hefur mjög svo tröllriöið
kvennahreyfingum erlendis.
Greinin tengist aðalefni blaösins,
kynlifi, sem auk viötalanna er um
framhjáhald, Hite-skýrsluna (um
kynlif kvenna) og getnaöarvarn-
ir. Birting greinarinnar er engin
stefnuyfirlýsing af hálfu
Rauösokkahreyfingarinnar, hvað
þá blaöhóps og þýöir ekki aö við
séum sammála niöurstööum
þeirra Sue og Susan. Hins vegar
töldum við að greinin gæti vakiö
umræöur og etv. skilning, þvi svo
mikiö vitum viö, aö þær konur
islenskar sem kjósa aö elska aðr-
ar konur (eöa geta ekki annaö)
fela þær forboönu ástir, eöa búa
erlendis, vegna þess aö þær
treysta sér ekki til aö horfa
framan I okkar haröa islenska
heim. Hitt er svo annaö mál, aö
viö getum veriö Steinunni fylli-
lega sammála um þaö, aö sam-
kynhneigö er engin lausn fyrir
konur og breytir engu um stööu
kvenna I samfélagi karlveldisins.
Þetta er þeim Sue og Susan einnig
ljóst er þær segja: „1 fyrsta lagi
álltum viö þaö mjög ósennilegt aö
sá timi komi aö allar konur veröi
lesbiur..”
Allra kvenna
róttækastar
Steinunn alhæfir út frá birtingu
greinarinnar er hún segir: „Nú
fæ ég ekki betur séð en þær konur
sem telja sig allra kvenna
róttækastar, kalli þetta eðlilega
þróun” þ.e. að kynin þróist hvort i
sina átt. (hér rifjar Steinunn upp
gömul kynni viö kenningar
Hovhannesar Pilikians um
„valdabaráttueðli kynvillunnar
og kynvillueðli valdabarátt-
unnar” sem mjög voru til
umræðu fyrir nokkrum árum, en
eiga litið skylt við kröfur lesbia
um viöurkenningu i sam-
félaginu.) Hverjar eru þessar
konur sem telja sig allra kvenna
róttækastar? Hvar hafa þær sett
fram slikar kenningar i eigin
nafni? Viö erum aö nálgast það
sem Steinunn er raunverulega aö
segja I grein sinni.
Samkvæmt S.J. eru einhverjar
róttækar konur aö boöa
aöskilnaöarstefnu. Þær segja aö
ekki sé til neins aö eiga samskipti
viö karla. Hverjar hafa boöaö þaö
fagnaöarerindi? Hvernig dettur
Steinunni i hug aö draga svo
viötækar ályktanir af einni