Þjóðviljinn - 08.08.1981, Síða 21
Helgin 8.-9. ágúst 1981
ÞJÓÐVILJINN — StÐA 21
hanga i hjónabandinu, en hafðu
alla þina hentisemi. Eða: Láttu
eins og þú vitir ekki aö þú ert les-
bia/hommi.
En eitt höfum við alveg klárt:
Við ráðum lesbium og hommum,
sem eru ekki gift en eru að velta
sliku fyrir sér, eindregið frá þvi
að fórna sér og makanum til þess
háttar tilraunastarfsemi.
í fyrsta lagi: Það hefur ekki
veriö sýnt fram á það i einu ein-
asta tilfelli i viöri veröld, að mað-
ur geti hætt að vera
lesbia/hommi við það að taka upp
hjónabandssambúð.
1 öðru lagi: bó að þú vonir ein-
læglega og sért þess jafnvel full-
viss að þú veröir undantekningin
sem sannar regluna, þá hefur þú
engan rétt til þess að leggja lif
maka þins undir i sliku áhættu-
spili.
t þriðja lagi: Þú munt fyrr eða
siöar standa frammi fyrir ákaf-
lega vandasömu siðferðislegu úr-
lausnarefni, hvort á að hafa for-
gang, hjúskaparskilmálinn eða
kynhneigð þin.
A Embla að gifta sig Hún er
lesbia, en pabbi og mamma eru
komin i kerfi af þvi aö hún er enn
ógift og barnlaus og er að nálgast
miöjan þritugsaldurinn. A hún aö
fara i Óðal og reyna við þennan
læknanema? Kannski verður
þetta allt i lagi, en annars er
heldur ekki svo óalgengt, að fólk
skilji ef það á ekki saman. Þau
geta þá ekki kent henni einni um.
1 fjórða lagi: Þú átt á hættu að
grafa undan hamingju þinni,
sjálfstrausti og sjálfsvirðingu
með þvi að þurfa látast vera
„ekki lesbia/ekki hommi” gagn-
vart umhverfi þinu, segja það
svivirðilegt sem þú veist að þú ert
sjálfur — þó ekki væri nema
aumkunarvert.
I fimmta lagi: Þú átt lfkur, sem
eru miklu meiri en i meðallagi, á
þvi að veröa alkóhólisti. Afengis-
drykkja er hérumbil eina afsökun
karlmanns fyrir þvi að hafa ekki
áhuga á kynmökum, og það er
hætt við þvi að þú gripir tii hennar
oftar og oftar.
Og þetta eru aöeins beinustu og
augljósustu ástæðurnar.
,,Ef þaðer tilgangur þinn, meðþvi að segja mér að þú sért lesbia, að fá
mig ofan af þvi að þú verðir i hvitu þegar þú hættir þessari vitleysu og
giftir þig, þá skal ég segja þér það, að i þvi efni verður mér ekki hagg-
að.”
„Nonni minn, það getur vel verift aft þú eigir I honum hommaskapinn,
en ég á nú talsvert I framtaksseminni.”
Hauspokinn
Hvaðan skyldi Rauðsokkum
koma sú hugmynd, að sýna lesbi-
urnar sinar meö hauspoka?
Hvers vegna ætli Þjóðviljinn hafi
prýtt forsiðu sina meö bakmynd
af hettuklæddum mönnum i
Hljómskálagarðinum i haust er
leið, þegar inni i blaöinu var and-
litsmynd af tveimur upplitsdjörf-
um Kanadamönnum og opnuvið-
talviðþá: „Viö erum hommarnir
i næsta húsi”? Það er af þvi aö
Rauösokkar og Þjóðviljinn halda
að svona vilji fólk hafa lesbiur og
homma. betta er okkar hlutverk,
Steinunn! En við erum ekki eins
ánægð og þú, og það er rétt hjá
þér, hlutverkiö er margfalt lak-
ara! Eða aðstæðurnar, segðu!
Niður með hann!
Hvers vegna ættu lesbiur og
hommar að bera hauspoka? Jújú,
þaö er af þvi, að þetta er svo aga-
legt. Foreldrarnir og ættingjarnir
snúa við manni baki, að ekki sé
talað um bestu vinina, maður
missir vinnuna og það er piskrað i
partium/samkvæmum. — En
væna min, viö segjum nei takk,
við þurfum ekki að þiggja svona
hlutverk. Þau bjóðast miklu
betri!
Ég segi ekki að þau séu i sjálfu
sér betri en þitt hlutverk er fyrir
þig, en þau eru ekki lakari. Eins
ogsamin fyrir okkur! Pokann af,
við erum frjáls og fullvalda lesbi-
ur og hommar.
Einfaldara gæti
það verið!
Satt er það, að erfitt er aö
kenna gömlum hundi að sitja, og
erfitt aft kenna gömlum homma
nýjan hugsunarhátt. En Steinunn,
frekar en aft drifa ungu lesbi-
urnar og wigu hommana I hjóna-
bandift, eigum við ekki aft láta
þau ráða, og láta þau hafa allar
forsendur til þess að geta valiö?
Þegar timar liða veröur þaö ekki
nema úrvals hjónabandsfólk sem
giftir sig, og þá verður nú meðal-
hjónabandiö til fyrirmyndar!
En til þess að ung manneskja
geti valiö um lifshlaup (á þvi sviði
sem við erum að ræöa), þurfa að-
stæðurnar að vera góöar frá upp-
hafi. Börn og unglingar eiga ekki
aö þurfa að sæta frá blautu barns-
beini heterósexúalinnrætingu,
sem er búin að koma inn hjá þeim
hómófóbiu þegar þau komast aö
þvi.að þau eru iesbiur og hommar
sjálf. Þau eiga að fá upplýsingar
um allar tegundir samlifsforms i
samfélagsfræðslu i skóla, svo aö
þau viti hvaða leiöir standa þeim
opnar.
Unga fólkið þarf fyrirmyndir:
Lesbiur og homma sem hafa
komið úr felum og sýna með þvi
að það er fleiri kosta völ. Jafnvel
þótt Stóri Bróðir segi: Vertu þá
eins og homminn i sjónvarpinu,
eða alls enginn hommi! Hefðum
við átt að sætta okkur viö þetta,
Steinunn?
En fyrirmyndirnar, það eru
allar lesbiurnar og allir homm-
arnir, sem eru i sviðsljósinu, fólk-
iö i áhrifastöðunum, fólkið sem
tekiö er eftir: Listamennirnir,
stjórnmálamennirnir, fjölmiðla-
mennirnir, skemmtikraftarnir,
iþróttamennirnir, visindamenn-
irnir, kennararnir...
Hvað er allt þetta fólk að
hugsa?
Nýr tilgangur
Steinunnar
Þessari grein er ekki beint gegn
Steinunni Jóhannesdóttur. Mér
fellur ekki við hana eins og hún
er. Þó held ég að við séum sam-
mála um eitt: Það skiptir okkur
Steinunni engu máli hvernig við
urðum eins og vift erum, við erum
svona.
Ég vona að hún og aörir, sem
hlut eiga að máli, finni sér tilgang
iaðhalda þessari umræðu áfram.
Guftni Baldursson
erlendri grein, að þar sé um nýja
stefnuyfirlýsingu að ræða? Hvert
er konan að fara? Hverjir eru
þessir sumir beftendur fagnaftar-
erindisins? Hvað áttu við, Stein-
unn? «
Hjartanlega
sammála
„t sannleika sagt, þá sé ég ekki
haða vit er i kvenfrelsisstefnu
sem ætlar aft frelsa konur meft
öllu frá því aft eignast börn, þvi
frá þvi vilja fæstar konur iáta
frelsa sig i raun. Aftur á móti er
frelsi fólgift i þvi aft ráöa, hvenær
þaft gerist og meft hverjum og
deila siftan ábyrgftinni af
uppeldinu meft öftrum. Konur
hafa ákveönu liffræftilegu hlut-
verki aft gegna hér á jörft og fram
hjá þeirri staftreynd verftur ekki
gengiö. Og þaö er gott hlutverk
vift góftar aftstæftur. Þess vegna
hélt ég aft kvenfrelsisbaráttan og
jafnréttisbaráttan miöaöi aft þvi
aft bæta þær aftstæftur og jafna,
auka skilninginn á mikilvægi
þessa fræga hlutverks og virfta
þaft og meta eftir þvi”.
Þetta er einmitt það sem vift
viljum, sjálfur kjarni málsins,
enda stendur allt þetta i þessu
sama blaöi af FR. Það er bara i
framhaldinu og baráttuleiðunum
sem okkur virðist greina á viö
Steinunni. Hún visar til lagalegs
jafnréttis á öllum sviöum (sern
reyndar er umdeilanlegt hvort
riki hér) og telur upp hóp af kon-
um sem komist hafa til vegs og
virðingar (næstum þvi allar sem
eru á toppi piramídans), en
hverju breytir þaö fyrir
meginþorra kvenna? Jú, við
erum að fikra okkur áfram, en
hvað komumst viö langt innan
okkar kapitaliska karlveldis?
Trúir þú þvi, að viö komumst alla
leið, Steinunn?
Þaö eru einmitt þessar góftu
aftstæftursem skortir, skilninginn
á mikilvægi þess sem er raun-
verulega undirstaöa og hlutverk
mannkynsins; að viöhalda sjálfu
sér og annast nýtt lif I samein-
Hvaft viljift þift konur eiginlega?
ingu. Af hverju er þessi skilning-
ur ekki til staöar? Hvað hefur
ekki verift reynt, Steinunn?
Hversu margar konur hafa ekki
reynt að berjast innan sinna
flokka? Hverju hafa þær áorkaö,
er hlustað á þær? Hvernig stend-
ur á þvi að svona margar konur
hreinlega gefast upp i flokka-
kerfinu? Af hverju eru svona fáar
konur virkar i pólitisku starfi?
Getur verið að skipulag flokk-
anna eigi ekki við konur? Hvernig
stendur á þvi að konur standa
ekki betur að vigi (þrátt fyrir
lagasetningar) en raun ber vitni?
Innan eða utan
hagkerfis
Konur eru sjálfstæöir skatt-
greiðendur, satt er það, en veistu
það, Steinunn, að aöeins 3%
giftra kvenna náftu meöaltekjum
árift 1979,meftan 61% giftra karla
náðu þvi marki? Það þarf ekki að
segja þér það að stærstur hluti
kvenna er i láglaunastörfum, og
það þarf heldur ekki að segja þér
aö karlveldiö hefur ákaflega lit-
inn áhuga á að bæta hag þeirra,
eins og komiö hefur fram i hverj-
um kjarasamningunum á fætur
öörum. Það er nefnilega karla-
veldinu i hag aö halda konum
niöri. Karlar fá áfram sina þjón-
ustu heima sem hvergi er tekin
með i hagkerfinu, hvað þá þjóðar-
framleiðslunni. Konur gegna
ákveönu hlutverki innan okkar
kapitaliska þjóöfélags, eins og
annars staöar; aö sjá um endur-
framleiðsluna (þjóna karlmönn-
um og ala af sér nýja einstak-
linga, sem sagt; að viöhalda
vinnuaflinu allt utan hagkerfa),
auk þess að vera varavinnuafl
sem stýrt er inn og út af vinnu-
markaönum eftir þörfum
kapitalsins. Meöan ekkert leysir
konur frá þessu hlutverki, eða
gerir þaö auöveldara, breytist
staða þeirra litið sem ekkert.
Þvi fyrr sem konur gera sér
grein fyrir þvi, að þær eru
kúgaðar af karlveldinu (auk
stéttakúgunar) og að konur veröa
að frelsa sig sjáHar með eigin
baráttu, þeim mun betra. Ef við
ætlum að biða eftir velvilja karl-
veklisins á atþingi, i borgar-
kerfinu, verkalýðshreyfingunni
o.s.frv., þá getum viö örugglega
beðið i 100 ár eins og Þyrnirós.
Hvað liggur
að baki?
Konur veröa að frelsa sig
sjálfar og finna til þess áhrifa-
rikar baráttuleiðir, en þaö þýöir
ekki aö karlmönnum sé hafnaö,
eða aö konur segi sig úr lögum viö
karla. Sem betur fer hefur átt sér
stað jákvæð þróun og margir
karlar eru tilbúnir til að koma til
móts viö konur og taka á sig sinn
hluta ábyrgðarinnar á heimili og
börnum. Það er bara kerfið sjálft
(þetta aldagamla), sem miöað er
við þarfir karla, sem gerir okkur
svo erfitt fyrir. Við verðum aö
brjóta það kerfi niður og byggja
nýtt ef við ætlum að öðlast frelsi
og jafnrétti. Við ætlum ekki að
sofa og biða i 100 ár, þvi við sjáum
ekki betur en að karlveldið um
allan heim sé að draga okkur
niður i forarpytt, enn
ómanneskjulegra samfélags, þar
sem kossar i hnésbætur heyra
fortiðinni til.
Er karlaveWið tilbúið að koma á
jafnrétti? Verðum við ekki að
beita það þrýstingi til að á okkur
sé hlustaö? Hafa karlar einfald-
lega forsendur til að skilja.hvaö
það er sem viö viljum? Verðum
við ekki að skýra málstaö okkar
betur og fá karlana i liö með
okkur? Gengur dæmið upp öðru
visi? Verðum við ekki að leita
nýrra baráttuleiða og standa
saman?
Við erum greinilega sammála
um það hvaö við viljum, Stein-
unn, en grein þin var eins og blaut
tuska i andlit okkar. Hver heldur
á tuskunni, ert það þú, eða liggja
aörir hagsmunir aö baki????
Rán Tryggvadóttir
Kristln Astgeirsdóttir
i blaöhóp Forvitinnar Rauðrar