Þjóðviljinn - 17.10.1981, Page 3
Helgin 17,—18. október 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Helder Camara hálfa öld á biskupsstóli:
Rauði erkibiskupinn og
auðhringir
í augum brasílskra
stjórnvalda var Dom
Helder Camara undir-
róðursmaður/ nytsamur
sakleysingi í höndum
kommúnista. Aðrir
dáðust að hugrekki þessa
vinar fátæklinganna og
andlegs föður margra
þeirra kirkjunnar manna
í Rómönsku Ameríku,
sem kenna sig við frels-
unarguðfræði.
Hann tók biskupsvígslu fyrir
50 árum og var þess minnst fyr-
ir skömmu i hinum fátæku sókn-
um hans í Brasiliu norðaustan-
verðri með messugjörðum,
heillaóskum og gestakomum.
Á svörtum lista
Um niu ára skeið, frá 1968 til
1977, var „rauði erkibiskupinn”
á svörum lista I brasiliskum
blöðum. Nafn hans var ekki
nefnt, rödd hans heyrðist ekki I
útvarpi, andlit hans sást ekki I
sjónvarpi. Allt þar til herfor-
ingjastjórnin byrjaði að slaka
nokkuð á eftirliti sinu með öllu
pólitisku lifi voru vissir menn og
málefni bannhelg, og Dom
Helder Camara var einn aí
þeim. Og um leið liggur mikill
straumur manna til hins
aldraða erkibiskups, sem tekur
öllum með mestu ljúfmennsku,
hefur þó óbeit á tilstandi öllu og
segir: það er kirkjan með fólk-
inu sem skiptir máli.
Kirkjan breyttist
Kirkjan i Rómönsku Ameriku
breyttist mikið á sjöunda
áratugnum. Biskuparáðstefnur,
hirðisbréf, fjölmargir kirkj-
unnar menn fluttu svipaðan
boðskap: Það er sjálf gerð sam-
félaganna i Rómönsku Ameriku
sem heldur svo mörgum i
fátækt. Og kenningar Krists
krefjast þess, að kirkjan, eina
stofnunin sem nær til allra
stétta og allra byggðra bóla,
vinni bæöi að þvi að útrýma
þessari fátækt og að þvi að skapa
samfélag sem ekki kúgar fólk.
Þetta gat þýtt margt. A einum
staö er nunna að kenna starfs-
hópi i lltilli kirkju hvernig hann
getur barist fyrir rafvæðingu
fátækrahverfis. í öörum staö
veitir prestur vinstrisinnum á
flótta undan hermönnum
griðstað i kirkju sinni. f dóm-
kirkjunni hefur eini lögfræðing-
urinn sem þorir að taka að sér
mannréttindamál leitað hælis.
Nýskipaöur erkibiskup kallar
saman blaðamannafund til að
lesa upp nöfn saklausra manna
sem settir hafa verið i fangelsi.
,,Án umbóta i sveitum mun
hin ómennska eymd sem leigu-
liðar búa við halda áfram. An
breytinga á bankastarfsemi
verður fátt gert fyrir þróun
lands okkar. Og án umbóta i
skattamálum munu hinir riku
verða rikari, en hinir fátæku
halda áfram að þjást.”
Svo komst Helder Camera að
orði á blaðamannafundi árið
1964. Fjórum mánuðum áður
höföu herforingjar I Brasiliu
steypt stjórn Joao Goularts for-
seta, sem bandarísk blöð höfðu
kallað „vinstrisinnaöa” (Þaö er
svo sem ekki nýtt að
Bandarikjamenn vilji heldur
einræðisstjórn „hefðbundinna”
herforingja en kjörna umbóta-
stjórn I álfunni). Og herfor-
ingjarnir tóku til óspilltra mála
við að kæfa niöur andóf af öllu
tagi. Helder Camara var einn
þeirra fáu sem hvergi hopaöi:
hann fordæmdi eymdarkjör
alþýðunnar þar til öllum fjöl-
miðlum var lokað fyrir honum.
Hann neitaði að syngja messur
til heiðurs stjórninni, hann for-
dæmdi Vietnamstriöið og efndi
til námskeiða fyrir þá sem
reyndu að skipuleggja landbún-
aðarverkamenn I samtök.
Sósialismi
ekkibannorð
I ræðu sem hann hélt á
ráðstefnu i Sao Paulo árið 1967
komst hann m.a. svo að orði:
„Hviskyldum við ekki viður-
kenna að þaö er ekki til einhver
ein gerð af sósialisma? Hvers
vegna ættum viðekkiaðkrefjast
þess að kristinn máður geti með
frjálsum hætti notað orðið
sósialismi? Það er ekki endilega
tengtefnishyggju. Það þarf ekki
að tákna kerfi sem eyðileggur
einstaklinginn og samfélagið.
Það getur táknað stjórn sem
þjónar samfélaginu og einstak-
lingnum”.
Helder Camara hefur sagt við
franskan ævisöguritara sinn að
Dom Helder Camara: Ahrifamestur þeirra manna sem ’-eynt hafa að
taka kirkjuna úr þjónustu valdastétta.
hann beri virðingu fyrir þeim
mönnum sem hafa „með
hreinni samvisku” kosið leið of-
beldis i hinni pólitisku baráttu
(en ekki fyrir stássstofuskæru-
liðum). En hann telur andóf án
ofbeidis, bæði kristilegri aöferð
og raunbetri — þvi ofbeldisbylt-
ingar i þriðja heiminum leiði
jafnan til þess að risaveldin
koma á vettvang til að ráða þvi
sem þau vilja.
Helder Camara hefur einnig
beðið forláts á þvi að stundum
virðist hann i starfi sinu og
prédikunum meira likjast
stjórnmálamanni en biskupi.
En viö aðstæður i heiminum i
dag, segir hann, er sem guð-
spjöllin skipi svo fyrir aö menn
séu önnum kafnir I mannleg
vandamál.
Voldugasta
aflið
Helder Camara komst nokkru
eftir strið að þeirri niðurstöðu
að höfuöandstæðurnar i heimin-
um væru ekki milli Austurs og
Vesturs, heldur milli auðugra
iðnrikja og hinna fátæku fram-
leiðenda hráefna. Honum fannst
þaö hin mesta hræsni ef aö
kirkjan styddi eða legöi blessun
sina yfir þann kapitaliska
ránsskap. Hann hefur meðal
annars sagt:
Herir eru sterkari en þjóðar-
leiötogar og fjölþjóöahringirnir
eru öflugri en herir.
Njósnaþjónusturnar skipta og
miklu máli fyrir fjölþjóðahring-
ina og ekki aðeins til að kanna
viöskiptaaöstæður. Auðhring-
irnir þurfa að vita hvort rikis-
stjórnirnar séu reiðubúnar til að
vinna meö þeim eða hvort þær
'ætla að gera þeim erfitt fyrir.
Og ef svo er, þá geta hringirnir
skipt um stjórn eða hvað sem
er. Þaö eru fjölþjóöahringirnir
sem eru i raun og veru sterkasta
aflið i lifi okkar...
Svo segir þessi kirkjuhöföingi
sem hefur veriö kallaöur
kommúniskur áróðursmaður af
auökýfingum, er elskaður af
fátækum mönnum og ber ekki
önnur virðingartákn en tré-
kross...
(áb byggði á Guardian.)
Ijondon er...b
sembýöur
þér næstum því aut fyrir sárálítíð
AJIt sem þú hefur heyrt um London er satt.
Tveggja hæða, rauðir strætisvagnar iulla
niður götur fullar af heimsfrægum verslun-
um. Verðir drottningarinnar skipta um vakt
á vélrænan hátt framan við Buckingham
höllina og á hver ju homi virðist vera eitthvað
sem allir kannast við. Westminster Abbey er
rétt hjá Big Ben, sem er aðeins steinsnar frá
styttunni af Nelson og hinum megin við
homið er Piccadilly Circus.þú röltir bara
ámilli.
Og London er ennþá aðal verslunarmið-
stöð Evrópu, uppfull af alls konar tilboð-
um. Þú færð t.d. gallabuxur í skemmunni
hjá Dickie Dirts í Fulham fyrir 130 krónur
og hljómplötur á spottprís í plötubúð-
unum við King’s Road.
London er.... full af
ókeypis fjársjóðum
í London eru yfir 400 söfn og listasalir og
að þeim er yfirleitt ókeypis aðgangur. Ef
þú kaupir farmiða, sem heitir London
Transport Red Rover, getur þú ferðast um
borgina í heilan dag og skoðað London af
efri hæðinni á stórum rauðum strætó.
Miðinn kostar aðeins um 33 krónur.
London er... ódýr,
yinalegur pub
Þegar þú verður svangur skaltu gera eins
og Bretar gera, bregða þér inn á næsta
pub. Þótt þeir séu ólíkir, segja þeir hver
London
=1=
Ef þú ert hrifinn af knattspyrnu mætti
minna á að í London eru 3 fyrstudeildar
lið. Þú kemst á leik fyrir 30 krónur .
Það er fallegt að virða London fyrir sér frá
ánni. Þess vegna er upplagt að sigla frá
Westminster Pier til Greenwich, - en þar
er National Maritime safnið. Þeim 30
krónunum er vel varið - og svo er ókeypis
innásafnið.
London er .... hótel við
þitt hæfi
London er full af hótelum. Þar em lítil
hótel þar sem þú færð herbergi fyrir 180
krónur og enskan morgunverð fyrir 25
krónur, stærri hótel á meðalverði og luxus
hótel í hæsta gæðaflokki.
London er alltof stór í eina auglýsingu.
Það er því gott að geta gengið að bækling-
um og bókum BTA hjá bókaverslun Snæ-
bjamar. En það er ekki nóg. Þú verður að
sjá London sjálfa. Þú kemur aftur hlaðinn
ómetanlegum minningum og líklegast með
afgang af gjaldeyrinum.
um sig heilmikið um breskan lífsmáta. Glas af
bjór og k jötkaka með salati kostar ekki nema svo
sem 25 krónur og vingjamlegt andrúmsloftið
kostar hreint ekki neitt.
London er.... full af íjöri
Það er alveg sama á hverju þú hefur áhuga -
leiklist eða tónlist, þú finnur það í London. Þar
eru yfir 50 leikhús, 3 ópemhús, 5 sinfóníuhljóm-
sveitir, og engin poppstjama hefur „meikaða”
almennilega fyrr en hún hefur spilað í London.
Nú er líka hægt að kaupa leikhúsmiða á sýningar
samdægurs í miðasölunni á Leicester Square fyrir
hálfvirði.
FLUGLEIDIR
lækka ferðakostnaðinn
Þú getur notfært þér ódým sérfargjöldin
og hagstæða samninga Flugleiða við
Grand Metropolitan hótelkeðjuna og
keypt flugfar og gistingu á einu bretti!
Einnig hafa ferðaskrifstofumar á boðstól-
um stuttar helgarferðir með flugferð, gist-
ingu og morgunverði inniföldum í verðinu.
Athugaðu málið, - úrvalið er gott.
BRITISH TOURIST AUTHORITY
veitír ókeypis upplýsmgar
Ef þú hefur samband við söluskrifstofur
Flugleiða, umboðsmenn þeirra eða ferða-
skrifstofumar, getur þú fengið sendan
bækling frá British Tourist Authority með
nánari upplýsingum um London, ásamt
verðskrá og ferðaáætlun Flugleiða..
Komdu sem fyrst
í heimsókn!
nógaðsjá,nógaðgera!