Þjóðviljinn - 17.10.1981, Blaðsíða 12
12 SIÐA— ÞJÓÐVILJINN Helgin 17,—18. október 1981
Dans
á
rósum
Samtal úr leikriti
Steinunnar
Jóhannesdóttur
Auftur: Af hverju fá menn magasár,
Asta? Er það af stressi, eða er þaö af
drykkjuskap, eða er þetta bara ættgengt?
Asta: Ætli það sé ekki allt þetta. Og
sjálfsagt margt fleira.
Auður: Já. Bara maður vissi, hvað
maður ætti að gera.
Asta: Þið gætuð reynt að hætta að rifa
hvort annað i ykkur eins og úlfar.
Auður: Höfum við gert það?
Asta: Hvað finnst þér sjálfri?
Auður: Og er það mér að kenna?
Asta: ÞU ert nú varla alveg heilög. —
Annars ætla ég mér ekki að taka afstöðu i
þvimáli, hvoru ykkar það er að kenna, en
þú getur verið alveg voðalega
ósveigjanleg, mamma.
Auður: Já,þaö er auðveltað standa fyr-
ir utan og dæma fólk.
Asta: Ég er ekki að dæma
ykkur....ég.... Hvað, ertu að fara eitt-
hvað?
Auður: Nei, nei, bara Ut á snUru.
Asta: (Þegar Auður er farin). Reynið
þiö bara að vera góðar við pabba, þegar
hann kemur.
Vala: En ef ég verð ekki hér. Varstu
ekki að bjóða mér að koma suður?
Asta: Jú, en þú sagðist ekki vilja það.
Vala: Ég sagðist ekki vita það.
Asta: Nú viltu það þá?
Vala: Ég veit það ekki.
Asta: Ó, guð hvað þú getur verið erfið.
Vala: Ég veit ég er erfið. Ég hef heyrt
þaö áður. En það getur lika verið erfitt að
Vala (Sigrún Edda Björnsdóttir) og Asta (Saga Jónsdóttir). Ljósm.: Jóhanna ólafs
dóttir
Mæðgurnar
Auður, Ásta og Vala
ræðast við.
Vala er 14 ára
eiga svona mommu eins og þig. Ég skal
bara láta þig vita það.
Asta: Vala min!
Vala: Já, heldurðu að það sé eitthvað
gaman að eiga einhverja mömmu ein-
hversstaðar, sem maðurþekki ekki neitt,
en er samt að reyna að skipta sér af
manni. Ég vil fá að vera i friði. — Eða
þessi pabbi minn? Hver er hann? Hver er
þessi andskotans Vésteinn? Bók eða plata
á jólunum?
Asta: Pabbi þinn var gjörsamlega von-
laus maður. Heldurðu að það hefði verið
betra ef ég hefði gifst honum?
Vala: Mér er alveg sama. Ég gef skit i
svona andskotans foreldra! Ég ætla bara
að fá að vera hjá afa og ömmu, þangað til
ég get séð um mig sjálf. — Ég ætla að
saf na peningum og reyna að komast til út-
landa.
Asta: Heldurðu að þú safnir peningum
með þvi' að vinna i fiski?
Vala: Ef maður er duglegur. Ég get
farið i bónus. Svo get ég ltka reynt að fá
mér betri vinnu.
Asta: Maður fær ekki góða vinnu nema
hafa menntun.
Vala: Þér finnst náttúrlega ekkert góð
vinna nema milljón á mánuði.
Asta: Ég hef ekki milljón á mánuði.
Vala: En Siggi? Hann hefur kannski
tvær.
Asta: Vala min, af hverju erum viö að
rifast þetta?
Vala: Af þvi bara. Ég vil ekki að eitt-
hvert fi'nt fólk úr Reykjavik sé að skipa
sér af mér. Bjóða mér hitt og þetta. Þið
ætlið bara að kaupa mig.
Asta:Égætla ekki að kaupa þig. Og ég
er ekki ffntfólkúr Reykjavik. Ég er alin
upp i þessu húsi. Ég er mamma þin.
Vala: Nei.
Asta: Vala!
Vala: Já,mér er alveg sama þó ég segi
það. Ég á enga mömmu og engan pabba.
Ég á bara afa og ömmu.
Ésta: Vala min.
Vala: Láttu mig vera!
Asta: Nei, Vala. Lof mérað tala við þig
barn. Lof mér að biðja þig fyrirgefningar
ef ég hef brugðist þér. Elsku Vala min.
Komdu til min suður og leyfðu mér að
reyna að bæta fyrir það.
Vala: Nei. Þú vilt bara fá að bæta fyrir
það, svo þú fáir betri samvisku.
Asta: Nei, Vala min, það skiptir máli
fyrir okkur báðar. Það er ekki of seint að
lÖ'nnast upp á nýtt. Okkur hefur alltaf
þótt vænt hvorri um aðra, er það ekki.
Siggi er ágætur, og Hörður litli bróðir þinn
er yndislegt barn.
Vala : Hálfbróðir minn!
Asta: Hann er bróðir þinn. Þú þarft ekki
að vera afbrýðisöm út i hann. Ég elska
þig barn.
Vala: ÞU elskar bara sjálfa þig.
Asta: (Uppgefin) Hvað hefur eiginlega
gert þig svona grimma?
Vala:Lifið, manneskja!
Astarævintýri á Akureyri. Asta (Saga Jónsdóttir) og Vaiur læknir (Sigurður Skúlason).