Þjóðviljinn - 17.10.1981, Page 27
VJÓÐVILJINN — StÐA 27
um helgina
Opnuðhefur veriðað Laugavegi 41 ný verslun, Marella.sem selur
svokallaða „hvitu linuna” i postulini. Eigendur verslunarinnar eru
Elin Nóadóttir og Margrét Kjartansdóttir og sjást þær hér á meö-
fylgjandi mynd. Þær hafa fengið einkaumboð hér á landi fyrir
franska merkið „Pillivuyt”, sem þær flytja inn milliliðalaust frá
verksmiðjunni.
Ahugamenn um kvikmyndir:
Helgarferð
í Ölfusborgir
T rpu* *«1 f * * •
Ivan Torok 1 Djupinu
Ivan Török opnar i dag, laugardag, málverkasýningu i Galleri
Djúpinu. Ivan er þekktari sem leiktjaldamálari en sýnir hér aö hon-
um er fleira til lista lagt en að mála leiktjöld. Sýningin opnar kiukk-
an 3.
Tónleikar á grafiksýning-
unni í „Norræna”
Grafiksýning sú sem nú stendur yfir i Norræna húsinu á vegum
félagsins Islensk grafik hefur verið geysivel sótt og margar myndir
hafa selst.
I kvöld kl. 8.30 munu þau Manuela Wiesler og Snorri Snorrason
koma og leika nokkur verk á sýningunni á flautu og gitar. Er þar um
að ræða verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson og
Ravel og e.t.v. fleiri.
Er þá tilvalið tækifæri fyrir fólk að koma og hlýöa á tónlist og
skoða grafikmyndir á undan og eftir. Geta menn þá jafnvel komið
og skoðað sýninguna aftur ef þeir eru þegar búnir að þvi.
Beethoventónleikar
í Austurbæjarbíói
Samtök áhugamanna um kvik-
myndagerö gangast fyrir helgar-
ferö i ölfusborgir 17.—18. október
n.k. Veröur þetta I senn skemmti-
ferö og námskeiö þvi haldin veröa
námskeiö i kvikmyndagerð.
Dagskráin hefst kl. 1 i dag með
setningu, en að þvi búnu hefst
námskeiö Jóns Axels Egilssonar,
og stendur þaö I u.þ.b. 4 klukku-
stundir. A laugardagskvöld verð-
ur kvöldvaka, Grétar Hjaltason
eftirherma kemur fram og sýnd-
ar veröa kvikmyndir.
Klukkan 1 á sunnudag er kynn-
ing á SAK og sýning verölauna-
kvikmynda siöustu kvikmynda-
hátiða. Þá verður fjallaö um
video en erlendis hafa áhuga-
Hjálparstofnun kirkjunnar,
Hazelden-hópurinn, S.A.A. og
áfengisvamarráö hafa ákveöiö
aö efna til námstefnu i samráði
viö biskup Islands i Reykjavik,
á Akureyri, Egilsstöðum og i
Vestmannaeyjum. Námstefnan
er ætluð prestum, kennurum,
læknum, sálfræöingum, félags-
ráðgjöfum og öðrum þeim, sem
mæta vandamálum drykkju-
sjúkra i starfi. Allt áhugafólk
um þessi málefni er ánnig vel-
komið.
Basar og
kaffisala
Kvennadeild Baröstrendinga-
félagsins veröur með basar og
kaffisölu I Domus Medica á
mogun, sunnudag frá kl. 2. A
basarnum veröur mikið af
prjónlesi, vettlingum, sokkum,
nærfötum barna, sokkabuxum
o.fl. Einnig veröur kaffisala i
stórasal og hlaðið borð af góm-
sætu meðlæti. öllum ágóöa
verður variö til aö gleðja eldri
kynslóðina.
menn um video verið teknir inn i
samtök áhugamanna um kvik-
myndagerð. Aætlaö er aö dag-
skránni ljúki kl. 18.
öllum, jafnt félögum sem ófé-
iagsbundnum, er heimil þátttaka
og er verðiö 250 krónur. Innifalin
er gisting, námskeiöagjald, mat-
ur á laugardagskvöld og í hádeg-
inu á sunnudag. Þátttakendum er
þó bent á að hafa með sér eitthvað
matarkyns þar sem góð eldunar-
aðstaða er á staðnum. Þeir sem
ekki hafa hug á að vera yfir alla
helgina borga fyrir einstaka liöi
fyrir sig. Allar nánari upplýsing-
ar veitir Marteinn Sigurgeirsson
simi 40056.
Hingað til lands hefur veriö
boðið sr. Melvin Schroeder, sem
starfar á meöferöar- og
kennslustof nun Hazelden
Foundation i Minnesota I
Bandarikjunum, en þangað
hafa nokkrir Islandingar lagt
leið sina til að fá bata viö áfeng-
isböli sinu. Sr. Schroeder mun
flytja hér fyrirlestra og sýna
kvikmynd.
Dagskráin fer fram á ensku
og ber yfirskriftina: Hope for
Relationships. Dagskráin verð-
ur sem hér segir:
18. okt.: Messa i Hallgrims-
kirkju kl. 11. Sr. Melvin
Schroeder prédikar, sr. Karl
Sigurbjörnsson þjónar fyrir
altari.
19. okt.: Námsstefna i Hall-
grimskirkju kl. 9.30—18.
20. okt.: Námstefna endurtekin
i Hallgrimskirkju kl. 9.30—
18.
21. okt.:Kvikmynd og fyrirlest-
ur að Hótd Loftleiöum kl. 9.
23. okt.: Námstefna að Hótel
Varöborg, Akureyri kl. 13—
18.
25. okt.:Námstefna I Valaskjálf,
Egilsstöðúm, kl. 15—19.
27. okt.: Kvöldfundur i Vest-
mannaeyjum (nánar aug-
lýstur siöar).
Nýr sýningarsalur:
Galleri 32
t dag, laugardag, veröur
opnaður nýr málverkasýn-
ingarsalur, Galleri 32 að
Hverfisgötu.
Fyrstur sýnir þar Veturliöi
Gunnarsson 47 oliukritar-
myndir og stendur sýningin i
hálfan mánuð.
Ætlunin er aö listamenn fái
þarna aðstöðu til myndlistar-
sýninga, en jafnframt veröur
þar til húsa innrömmunar-
verkstæðiö Rammaiðjan.
Aðgangur veröur ókeypis.
Þorsteinn Gunnarsson I hlut-
verki sinu.
Barn í garöinum:
Aukasýning
Leikfélag Reykjavikur hefur
ákveðiö að hafa aukasýningu á,
bandariska verðlaunaleikritinu
Barni í Garöinum, en mikil
aösókn var að siðustu sýningum
þessa leikrits. Aukasýningin
veröur i kvöld, laugardag, og
verður þetta allra siðasta
sýning.
Þetta sérstæða leikrit Sam
Shepards hlaut Pulitzerverö-
launin, sem besta bandariska
leikritið 1979 og er höfundurinn
talinn einn fremsti leikritahöf-
undur Bandarikjanna nú.
Leikendur eru: Steindór Hjör-
leifsson, Margrét ólafsdóttir,
Þorsteinn Gunnarsson, Hanna
Maria Karlsdóttir, Hjalti Rögn-
valdsson, Sigurður Karlsson og
Guðmundur Pálsson. Leikstjóri
er Stefán Baldursson.
Stjórn leysinginn:
Aftur á
fjalirnar
Um miðnæturskeiðið i nótt
efnir Alþýðuleikhúsið til 50. sýn-
ingará Stjórnleysingjanum sem
ferst af slysfórum eftir meist-
ara hlátursleikjanna Dario Fo.
Stjórnleysinginn var sýndur
sl. leikár við frábærar undir-
tektir leikhúsgesta, segir í frétt
frá Alþýðuleikhúsinu. I sumar
sem leiö lagöi Alþýöuleikhúsið
land undir ftít meö Stjórnleys-
ingjann i piissi sinu og sótti
Vestfiröinga og Norðlendinga
heim við ,,stjórnlausa” hrifn-
ingu.
Astæðulaust er að rekja efni
leiksins og spilla þar með gleði
væntanlegra leikhúsgesta, en
Stjórnleysinginn er með ærsla-
fyllstu leikverkum Darios Fos
og er þá mikið sagt. Þráinn
Karlsson mun leika Dárann á
nokkrum sýningum hér i höfuö-
borginni,enhverfa siöan noröur
á land.
Aðrir leikendur eru: Amar
Jónsson, Bjarni Ingvarsson,
Viöar Eggertsson, Björn Karls-
son, og Elisabet Þórisdóttir.
Leikstjóri er Lárus Ýmir
Óskarsson, Þórunn S. Þor-
grimsdóttir geröi umbúnað og
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi.
Pina Carmirelli, fiöluleikari,
og Arni Kristjánsson, planó-
leikari, leika saman á tón-
leikum Tónlistarfélagsins I dag,
laugardag 17. október, kl. 2.30 i
Austurbæjarbió.
Pina Carmirelii hefur veriö
talin meðal fremstu fiðluleikara
allt siöan hún vann fyrstu verö-
laun i samkeppni, sem haldin
var árið 1937 i tilefni af þvi aö
200 ár voru liöin frá dauöa hins
fræga fiðlusmiðs Antonio
Stradivari frá Cremona. Hún
Pina Carmirelli, fiðluleikari.
I framhaldi af sveitastjórnar-
ráðstefnu Kvenréttindafélags
Islands I október 1980 boöar
KRFl til ráðstefnu I dag,
laugardag, undir heitinu Konur
og kosningar. Ráöstefnan er
opin öllum félögum KRFl.
Konum sem eiga sæti á
Alþingi og i sveitastjórnum er
sérstaklega boðið, ennfremur
tveimur fulltrúum frá hverjum
stjórnmálaflokki. Ræöumenn á
ráöstefnunni veröa:
leikur jöfnum höndum einleiks-
og kammerverk. Hún stofnaði
bæöi Boccherini kvintettinn og
Carmerelli kvintettinn, sem
báðir hafa leikið á fjölda tón-
leika i Evrópu og Ameriku við
góðan oröstir.
A efnisskrá tónleikanna i
Austurbæjarbiói eru þrjár fiðlu-
sónötur eftir Ludvig van Beet- *
hoven. Þess má geta, að þau
Varmirelli og Arni leika nú
saman i fimmta sinn hér á
landi.
Arni Kristjánsson, pianóleikari.
Kristin Guömundsdóttir
(Alþýöuflokki)
Sigrún Magnúsdóttir (Fram-
sóknarflokki)
Svanhildur Björgvinsdóttir
(Sjálfstæðisflokki)
Alfhildur Ingadóttir (Alþýðu-
bandalagi)
Ráðstefnan hefst kl. 13.00 á
laugardag og er haldin i Félags-
heimili Seltjarnarness. Aætlað
er, að ráðstefnunni ljúki kl.
17.00.
Námstefna
um áfengisbölið
Konur og kosningar