Þjóðviljinn - 27.02.1982, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 27.-28. febrúar 1982
Afopnu bréfi til ritstjóra
Morgunblaðsins, Tímans,
ÞjóðviljansogDagblaðsins Vísis
Rvik. 24. febr. 1982.
Herra ritstjóri.
Ég hef nú um nokkurt árabil verið fastur á-
skrifandi að hinu ágæta blaði yðar og hef
jafnan borgaðafnotagjöld skilvíslega.
Ástæðan til þess að ég hef f undið mig knúinn
til að kaupa blaðið reglulega, er einskær ótti
við að verða, að öðrum kosti, ekki gjaldgengur
í menningarlega umræðu um bókmenntir og
listir almennt, en skoðanir mínar í þeim efn-
um hafa lengi, að verulegu leyti,verið bornar
uppi af innviðum blaðs yðar, þar sem hæf ustu
menn þjóðarinnar — svonefndir gagnrýn-
endur — fjalla reglulega um listina og menn-
inguna í landinu.
Þér hafið löngum borið gæfu til að hafa á
yðar snærum svo vitra menn og glöggskyggna
að undrum sætir, menn sem geta hæglega
skoðað og skilgreint aðskiljanlegustu náttúrur
hinna fjölmörgu listgreina, menn sem eru
fjölvísir um allt, sem heyrir ,,listinni“ til,
menn sem eru jafnvígir á báðar hendur og fer
þá oft einn maður létt með að fella viturlega
dóma á söng, dans og leiklist og jafnvel
málaralist og tónlist í hjáverkum, að ekki sé
nútalað um bókmenntirnar.
Hér þjónar blað yðar þeim tilgangi að koma
i veg fyrir að almenningur þurf i að velkjast í
óvissu um álit sitt á listinni í landinu.
Daginn eftir leiksýningar á flóknustu verk-
um kemur frá gagnrýnendum yðar greinar-
góð úttekt á því hvað manni á að finnast um
verkið, hvert sé ,,inntak þess, skirskotun,
skilningur, aðferð, túlkun, tjáning, Ijósa- og
raddbeiting, dínamík, plastik, tæmíng og nýt-
ing á möguleikum sviðsins til hins ítrasta".
Með svipuðum hætti eru aðrar listgreinar
afgreiddar í blaði yðar, af f Ijótvirkum, glögg-
skyggnum og gáfuðum gagnrýnendum, svo
hinn listelski i landinu þurfi ekki of lengi að
velta vöngum yfir því hvað honum finnst,
heldur geti f lett því upp í blaði yðar hvað hon-
um á að finnast.
Bókmenntagagnrýnendur eru ef til vill
fIjótvirkastir og áreiðanlegastir allra þeirra
sem um listir f jalla, en áður en prentsvertan
er þornuð i nýútkomnum bókum hafa bók-
menntafræðingar ,,rýnt þær, skoðað, skil-
greint, brotið innihaldið til mergjar", og birt
gagnrýni.
I jólabókaf lóðinu er mér næst að halda að
einn og sami maðurinn afgreiði með þessum
hætti stundum eina bók á dag. Þetta hefur
siðan orðið til þess, að bæði ég og annar al-
menningur í landinu myndar sér kórréttar
skoðanir á bókum og bókmenntum, án þess að
bóklestur þurf i að koma til.
Af þessum sökum hef ur blað yðar verið mér
ómissandi til þessa dags.
En semsagt, herra ritstjóri. Nú hefur blað
yðar brugðist trausti mínu.
Nærri mánuður er nú liðinn síðan út kom, á
vegum hins íslenska bókmenntafélags, mikið
og forvitnilegt verk, „Rætur Islandsklukkunn-
ar", eftir Eirík Jónsson.
Ég krefst þess nú, sem skilvís áskrifandi, að
þér gerið mér grein f yrir því hvers vegna ekki
hefur enn verið um þetta verk fjallað í blaði
yðar.
Ég get tekið mér í munn orð skáldsins:
„Hvar eru (nú) fuglar þeir á sumri sungu?"
Svo hjartfólgin er (slandsklukkan (Hið Ijósa
man, Eldur í Kaupinhafn) íslensku þjóðinni,
að mér er næst að halda að næstum hvert
mannsbarn í landinu kunni lungann úr verkinu
utanbókar. Því mætti ætla að bókmennta-
gagnrýnendur væru næsta hagvanir á þvi
gósenlandi sem Islandsklukkan er. Hvað heft-
irflug þeirra, þegar „Rætur íslandsklukkunn-
ar" eiga í hlut?
Nægir þeim ekki mánuður til afreka sem
venjulega eru unnin á einni nóttu?
Hérna í háskólahverf inu, þar sem ég bý, er
dýralíf með nokkrum blóma og ég hef haft
dágóð tök á að fylgjast með atferli ferfætlinga
á þessum slóðum. Bröndóttur fressköttur,
kallaður Gulli, hef ur ráðið hér lögum og lof um
um árabil og helgað sér svæðið með því að
míga í allar gáttir á háskólalóðinni og um-
hverfis þessa æðstu menntastofnun þjóðar-
innar. Guðforði þeim fressketti, sem hætti sér
inní það „aroma" sem liggur í loftinu hér um
slóðir á umráðasvæði Gulla.
Er hugsanlegt að tvífætlingarnir hérna á
svæðinu séu jafn heimaríkir og Gulli og þoli
ekki aðkomueintak sömu tegundar og þeir eru
sjálf ir?
Eða er það ef til vill satt, herra ritstjóri, sem
altalað er í bænum um þessar mundir, að bók-
menntagagnrýnendur blaðs yðar hvorki vilji,
geti né þori, að skrifa um verk Eiríks, fyrr en
sá einn, sem veit til hlítar hvert gildi það hef-
ur, gefur þeim grænt Ijós og segir þeim hvað
þeim á að finnast um „Rætur fslandsklukk-
unnar"? Ef svo er vona ég, að þeir segi mér
sem allra fyrst, hvað mér á að finnast.
Ef til vill passar þessi gamla vísa í dag.
Jónas eins og eitthvað dúmm,
Elli og Jóhann tregir,
ólafur er orðinn stúmm,
Árni Bergmann þegir.
Virðingarfyllsf,
skráargaiid
Fulltrúaráðs-
fundur
Alþýöubandalagsins i Reykja-
vik var haldinn á sprengidag s.l.
á Hótel Esju þar sem listi til
borgarstjórnarkosninga var til
umfjöllunar. Svo hittist á að
aðalfundur Félags islenskra
fræða var i næsta sal og þar var
Gunnlaugs saga ormstungu
rædd. Barst orustugnýr milli
funda i gegnum þunnt þil og sló
jafnvel ræðum saman ef mönn-
um lá hátt rómur. Stundum
fengu hinir virðulegu islensku-
fræðingar dynjandi lófaklapp að
handan og var til þess tekið
hversu mikið var klappað fyrir
Helgu Kress er hún hafði gert
grein fyrir skoöunum sinum á
Helgu hinni fögru i Gunnlaugs
sögu. Þá hlógu islenskufræðing-
arnir stundum upphátt á við-
kvæmum augnablikum á Alla-
ballasamkundunni. Daginn eftir
birtist i Morgunblaðinu frásögn
af fulltrúaráðsfundinum og var
hún öll i skötuliki. Voru uppi
getgátur um það að heimilda-
maðurinn hefði setiö öðru hvoru
megin við þilið og ruglað saman
fundunum, sett Vilborgu
Harðardótturog Erling Viggós-
son aftur á söguöld en sviðsett
hólmgöngu þeirra Hrafns
Illugasonar og Gunnlaugs
ormstungu á Allaballafund-
inum.
Þær
llelga Kress
Katrin Fjeldsted
Hafsteinn Baldvinsson Ingi G. Magnússon
vart vatni halda fyrir hrifningu
á Sjöfn Sigurbjörnsdóttureru nú
afar óhressar með það að
Katrin Fjeldsted skuli hafa
verið sett i baráttusæti á lista
Sjálfstæðisflokksins. Eins og
Sjöfn er grunuð um að vera
laumuihald er Katrin nefnilega
grunuð um að vera laumu-
kommi.
Nýlega
eru margar framboðsraunirnar.
Ýmsar ihaldskonur sem mega
var sagt frá þvi i blöðum með
miklum fyrirgangi að tveir
menn alkunnir úr ,,hinu frjálsa
viðskiptalifi”, þeir Sveinn
Halldórsson og Hafsteinn Bald-
vinsson, hafi stofnað fyrirtæki
með Aröbum til þess að selja
þeim kindakjöt, lýsi, aldinsafa
o.fl., undir hinu þjóðlega heiti
Shams Trading. A.m.k. tvö
fyrirtæki nefndra manna hafa
nýlega orðið gjaldþrota:
Ice-sound hf. og Scanhús hf.,
sem sagt er, að hafi starfað i
Nigeriu. Annar tvimenninga
þessara mun og hafa komið við
sögu hjá Breiðholti sáluga. Þá
er og rætt um, að fyrrnefndir
bissness-garpar hafi stofnað
fyrirtæki undir nafninu Nigis hf.
til umsvifa i Afriku. Viða liggja
leiðir landans.
Hafnarbíó
þar sem Alþýðuleikhúsið er til
húsa kann að hverfa innan tiðar.
Eigendur lóðarinnar og næstu
lóðar við munu hafa fullan hug á
að byggja stórhýsi á þessum
stað og munu nýlega hafa geng-
ið á fund fjármálaráðherra með
hugmyndir um að þarna yröi
byggt Dómhús, þar sem ýmis
dómstig yrðu sameinuð undir
einu þaki. Alþýðuleikhúsið hef-
ur aðeins samning um Hafnar-
bió til þriggja mánaða i senn og
gæti þvi lent á hrakhólum með
húsnæði innan tiðar og er það
miður. Þess skal getið að Jón
Ragnarssoná aðeins innrétting-
ar i húsinu en annar eigandi er
að ytra byrði þess. Nanna Her-
mansson borgarminjavörður
hefur falast eftir bragganum
upp i Arbæ til að koma fyrir i
honum striðsminjasafni. Að lok-
um má geta þess að deiliskipu-
lag vantar enn fyrir þetta svæöi
en Skúlagatan á vist að hverfa
fyrir neðan Hafnarbió með til-
komu nýju sjávarhraðbrautar-
innar.
Samskipti
ibúa hússins við Þangbakka
(Hússins á sléttunni) við gatna-
málastjóra, Inga Ú. Magnús-
son, eru orðin eitt allsherjar-
hneyksli. Fyrir um tveimur ár-
um borguðu þeir 450 þúsund
krónur gamlar umfram venju-
leg gatnagerðargjöld til þess að
bilastæði yrðu malbikuð af
borginni. Ekkert hefur verið
gert i málinu ennþá nema á sin-
um tima var borin möl ofan i
moldarflag og hefur verið not-
ast við það fyrir bilastæði til
þessa. Nú er verið að malbika
bilastæði fyrir Broadway við
hliðina eins og fram hefur
komið i fréttum. Fyrrgreint
bilastæði hefur og verið tekiö af
Þangbakkablokkinni i þvi skyni
að malbika það fyrir fyrirhugað
bió sem er sambyggt skemmti-
staðnum. Eftir sitja ibúar i
Þangbakka með mold og drullu.
Hafnfirðingar
hafa upp á siðkastið orðið að
gjalda þess blásaklausir — eða
hér um bil — að verða allsherjar
blórabögglar fyrir brandara-
smið landsmanna, likt og
Arósarbúar i Danmörku og
Frisar i Hollandi. Þessa tvo
heyrði skráargatið nýlega og
lætur þá fljóta með: Hvers
vegna hafa Hafnfirðingar alltaf
með sér stiga þegar þeir fara i
búðir? Svar: Af þvi að verðið er
svo hátt. Og hinn: Hvers vegna
horfa Hafnfirðingar til lofts
þegar þeir koma út á morgn-
ana? Svar: Þeir búast við fljúg-
andi hálku.
r
I
siðasta Skráargati var þess
getið að fyrirtækið Videósón
hefði boðið Morgunblaðinu að
kaupa sig, enda mun nú mesta
videóæðið gengið yfir og fólk
tekið að segja þessari þjónustu
upp i einhverjum mæli.
Morgunblaðið hafnaði kaupum
en nú hefur skráargatið frétt að
eigendur fyrirtækisins hafi
snuið sér til Dagblaðsins & Visis
sömu erinda.