Þjóðviljinn - 16.10.1982, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 16.10.1982, Blaðsíða 3
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Ritið Safnamál: , ,Lítið að utan stórt að innan” Út er kominn 6. árg. ritsins Safn- amál. Útgefendur þess eru Héraðsskjala- og héraðsbókasafn Skagfirðinga. Ritið er gefið út með styrk úr Menningarsjóði Magnúsar heitins Bjarnasonar kennara, en umsjónarmenn með útgáfunni eru þeir Hjalti Pálsson, Kári Jónsson og Kristmundur Bjarnason. Safnamál er að sjálfsögðu fyrst og fremst helgað málefnum safn anna, en hefst á úrslitum vísna- keppninnar 1981. Allmargar vísur bárust, en dómnefnd skipuðu þeir Andrés Björnsson, útvarpsstjóri og Sigurjón Björnsson, prófessor. Töldu þeir 3 vísur bestar án þess þó að gera upp á milli þeirra. Fara þær hér á eftir: „Sólarhaddur suðri frá sviptir gaddinn ráðum. Vonsku-saddur vetur þá verður kvaddur bráðum. “ Höfundur er Andrés Valberg, Reykjavík. „Veitir blíðu vorsins tið, vindur þíður hressir lýð. Grösum skrýðist grund og hlíð. Gyllir víði sólin fríð“. Höfundur Friðrik Friðriksson, Sauðárkróki. „Þraukað hef ég þorrann enn, þar á ofan góu. Einmánuður úti senn, orðið stutt í lóu“. Höfundur Baldur Pálmason, Reykjavík. Óskað er eftir botnum við tvo fyrriparta, vegna vísnakeppni 1982: „Viltu berja botninn í böguna þá arna?“ og „Sólin býður birtu og yl, brosin kvikna á vanga". Hjálmar Jónsson sér um þáttinn Vísnamál og birtir þar 12 vísur eftir ýmsa höfunda. Minnst er þriggja Skagfirðinga, sem allir komu mjög við sögu safnanna. Hjalti Pálsson ritar um Stefán Magnússon, bók- bindara, og Kristmundur Bjarna- son um þá Gísla Magnússon bónda í Eyhildarholti og Stefán Jónsson, fræðimann á Höskuldsstöðum. Birt er ársskýrsla Héraðsbókasafns Skagfirðinga og Safnahússins, sagt frá Listasafninu og starfsemi þess og Héraðsskjalasafni Skagfirð- inga. Getið er allra þeirra, sem fært hafa söfnunum gjáfir á s.l. ári, Krabbameinsfélag Reykjavíkur Opinn fræðslu- fundur Á mánudaginn kl. 20.30 held- ur Krabbameinsfélag Reykjavíkur opinn fræðslufund um starfsemi Leitarstöðvar Krabbameinsfélags- ins og verður þar spjallað um krabbameinsleit almennt hér á landi. Fyrirlesarar verða Jón Þor- geir Hallgrímsson kvensjúkdóma- læknir og Ásgeir Theódórs melt- ingarsérfræðingur. Þeir svara einn- ig fyrirspurnum. Þá verður sýnd kvikmynd sem tengist fundarefn- inu með íslensku tali. Leiðrétting f frétt af huganlegri ráðningu úti- bússtjóra Búnaðarbankans í Grundarfirði, Árna Emilssonar í blaðinu í gær slæddust þær villur inn í niðurlag greinarinnar, að Árni var sagður hafa gegnt störfum sveitarstjóra á Hellissandi, en átti auðvitað að vera á Grundarfirði. Þá var Árni sagður fyrrverandi hreppsnefndarmaður Sjálfstæðis- flokksins en á vera núverandi. Hann var og er hreppsnefndar- maður Sjálfstæðisflokksins. en þeir eru 85 talsins. Framhald er af skrá yfir það, sem Héraðsskjala- safninu hefur borist frá sveitarfél- ögum í sýslunni. Þá er þátturinn: „Úr Héraðsskjalasafni" og birtast þar að þessu sinni dagbókarbrot eftir Þóri Bergsson, rithöfund (Þorstein Jónsson), en hann gaf Héraðsskjalasafninu höfundarrétt að ritverkum sínum, prentuðum jafnt sem óprentuðum og „Enn um sveitarblað í Lýtingsstaðahreppi". Birtar eru 18 mannamyndir, sem ekki er vitað af hverjum eru, og þess óskað, að þeir, sem kunna að bera kennsl á þær, hafi samband við Héraðsskjalasafnið. Loks eru svo í ritinu „Safnafréttir“, fróð- leikur um starfsemi safnanna. Safnamál er ekki fyrirferðar- mikið rit, einar 36 bls. í frekar litlu broti. En það rúmar ótrúlega mik- inn fróðleik. Við lestur ritsins rifj- ast upp sagan af konunni, sem kom inn í skóbúðina og bað um skó, sem væru stórir að innan en litlir að utan. -mhg Gítar- tónleikar á Norðurlandi Síðustu daga hafa gítarleikar- arnir Símon H. ívarsson og Sieg- fried Kobilza haldið tónleika víða á Norðurlandi, þ.á.m. á Dalvík, Húsavík og Rleynihlíð, og hefur þeim hvarvetna verið vel fagnað. Næstu daga leika þeir félagar á Akureyri, Siglufirði og á Sauðár- króki. Föstudaginn 15. okt. leika þeir í Akureyrarkirkju, kl. 20:30, laugardaginn 16. okt. í Siglufjarð- arkirkju kl. 16:00 og sunnudaginn 17. okt. leika þeir síðan á Sauðár- króki kl. 16:00, á vegum Tónlistar- félagsins þar. Umhverfis jörðina á 26 viöbuiöaríkum dögum Föstudaginn 17. desember leggjum við upp í fyrstu íslensku hópferðina umhverfis jörðu. Við fljúgum í breiðþotu milli heimsins stærstu borga, stökkvum úr einu menningarsvæðinu í annað og eigum ævintýralega hnattferð að baki eftir 26 við- burðarríka daga. Við fylgjumst með jólaundirbúningi í Amsterdam, skoðum Búddamusteri í Bangkok, ráðumst í frum- skógarferð á Filipseyjum og borðum með prjónum í Tokio. Og auðvitað liggjum við í leti í Honolulu, njótum stórborgarlífs í San Fransisco, kynnumst næturlífi Las Vegas, könnum merkustu staði New York borgar og hvílumst eftir spennandi daga á stórglæsilegum hótelum sem bíða okkar „í hverri höfn“. DAGSKRÁ: 1. dagur: Flogið til Amsterdam. 2. dagur: Amsterdam, frjáls dagur. 3. dagur: Flogiö síðari hluta dagsins til Bangkok. 4. dagur: Bangkok. Hvíld og dæmigerður Thailenskur kvöldveröur. 5. dagur: Bangkok. Kynnisferð um borgina, bátsferö og heimsókn á bóndabýli. 6. dagur: Bangkok. Frjáls dagur sem til- valinn er til aö skoða fljótandi markaði pg veitingastaöi. 7. dagur: Bangkok-^anila: Flogiö um miöjan dag til Manila, höfuöborgar Filipseyja. 8. dagur: Manila: Kynnisferð um borgina fyrri hluta dagsins en síðari hlutinn er frjáls. Þjóðdansasýning og þjóðlegur kvöldverður. 9. dagur: Manila-Pagsanja-Manila. Dags- ferð til Pagsanja, bátssigling og sundsprettur fyrir þá sem vilja, undir Pggsanja fossunum. 10. dagur: Manila-Tökio. Flogið til Tokio og lent þar kl. 14.30. Gist á Grand Palace hótelinu. 11. dagur: Tokio. Skoðunarferð um borgina og hádegisverður í hinum fræga „Chinzanso Garden". Siðari hluti dagsins frjáls og um kvöldið er t.d. tilvalið að bregða sér í leikhús. 12. dagur: Tokio-Nikko-Tokio. Musteri og hof skoðuð í Nikko, farið að Chuzehki-vatni og að Kegon- fossum. 13. dagur: Tokio-Honolulu. Fyrri hluti dags- ins frjáls, flogið um miðjan dag til Honolulu. Lent þar klukkan 9 að morgni þannig að þú nýtur dagsins tvisvar. Frjáls dagur í Honolulu. 14. dagur: Honolulu, frjáls aagur. Tilvalið að flatmaga á ströndinni eða skoða eyna með bílaleigubíl. Hawaiskt skemmtikvöld. 16. dagur: Honolulu. Frjáls dagur. 17. dagur: Honolulu-San Fransisco. Flogið fyrri hluta dagsins til San Fransisco. 18. dagur: San Fransisco. Skoðunarferð um borgina fyrri helming dagsins. Síðari hluti hans er frjáls. 15. dagur: Honolulu. Dagsferð til sjálfrar Hawaiieyjunnaroggamlárskvöldið i Honolulu verður ógleymanlegt. 19. dagur: San Fransisco-Las Vegas. Dagurinn frjáls til að skoða borgina. Flogið um kvöldið til Las Vegas. 20. dagur: Las Vegas-Grand Canyon. Farið í kynnisferð til Grand Canyon, rómaðs náttúrusvæðis sem áin Colorado rennur um. 21. dagur: Grand Canyon-Las Vegas. Ekið um hádegi aftur til Las Vegas þar sem lífsins er notið um kvöldið í spilavíti eða skemmtistað. 22. dagur: Las Vegas-New York. Fiogið til New York þar sem lent er kl. 20.00 að staðartíma. Gist á Lexington-hótelinu á Manhattan. 23. dagur: New York. Heimsókn í Greenwich Village, byggingu Sameinuðu Þjóð- anna, Chinatown, Harlem og víðar. 24. dagur: New York. Frjáls dagur. 25. dagur: New York-Amsterdam. 26. dagur: Komið til Keflavíkur. Innifalið: Verð kr. 58.500 Allt flug.flutningur til og frá flugvöllum erlendis, miðað við gistingu í 2ja manna herbergi. gisting m. morgunverði, 7 hádegisverðir, 4 kvöld- Aukagjald vegna eins manns herbergis kr. 7.500 verðir, íslensk fararstjórn. Nánari upplýsingar á söluskrifstofu Arnarflugs og hjá ferðaskrifstofunum _ Flugfélag með ferskan blæ WfARNARFLUG Lágmúla 7, sími 84477 1082-6

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.