Þjóðviljinn - 16.10.1982, Síða 7
Helgin 16.-17. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Björn ríki veginn á Rifl 1467:
Attust þeir
þar illt við”
Sögulegur steinn verður tilefni
upprifjunar. Hér segja sögur að
enskir hafi hálshöggvið Björn
ríka Þorleifsson hirðstjóra.
Vígið varð tilefni mikilla
eftirmála og margir rekja ófrið
Dana og Englendinga árið 1468
sem stóð í nokkur ár til þessa
vígs í Rifi. Björn hirðstjóri sem
var kvæntur Ólöfu dóttur Lofts
ríka stóð í ströngu við enska um
langa tíð. í bók Gunnars M.
Magnúss, Landhelgisbókinni,
segir m.a um þessa atburði:
„Eftir að Björn ríki var orðinn
hirðstjóri hér, lét hann enska
hvergi í friði þarsem hann til spurði
um ólöglegar atfarir þeirra. Þau
hjón hafa búið á Skarði á Skarðs-
strönd. Hið strengilega bann er
Kristján konungurgaf út hið síðasta
ár, og afturköllun verslunarleyfa
handa Englendingum, virðist hafa
verkað í gagnstæða stefnu. Enskir
hafa siglt hingað eftir sem áður,
meðal annarra hafa á þessu ári
komið hingað Englendingar frá
Lynn. Björn hirðstjóri mætti þeim
á Rifi á Snæfellsnesi. „Áttust þeir
þar illt við“ og „féll þar Björn og
sjö menn aðrir með honum, en
Þorleifur sonur hans varð handtek-
inn, en Ólöf komst undan með XX
menn, og þó sem nauðulegast, því
þeir veittu henni eftirför; hún kom
til Rauðamels ytra“.
Hirðstjóri
höggvinn
í spað og
sjö menn
aðrir
Eigi skal gráta
Björn bónda
Berast hinar hroðalegustu fregn-
ir af viðureign þessari, sú er ein, að
Englendingar hafi höggið líkama
Björns í stykki og sökkt þeim í sjó.
Þetta er haft eftir Ólöfu konu hans,
eftir atburðinn:
— Eigi skal gráta Björn bónda,
heldur safna liði.
Lét hún síðan leysa út Þorleif son
sinn, en eftir það hefur hún leitað
grimmilegra hefnda; eru nú enskir
hvergi óhultir fyrir henni og hennar
mönnum. Hefur hún látið drepa
þá, hvar sem þeir hafa náðst, en
vestur á ísafirði hefur hún látið
taka 3 duggur með áhöfn allri.
Ganga nú hinar stórfenglegustu
sögur af framgöngu Ólafar, enda
skelfast enskir, er þeir fregna af
ferðum hennar".
Síðar dró til stórátaka þegar
Kristján konungur I. lét gera
nokkur skip enskra upptæk í
Eyrarsundi. En það er framhald
þessarar sögu. — óg
Blaðamaður í því bóli Bjarnar sem enginn vildi gista. Það er þingmaður
og héraðshöfðingi sem fer með dárskap ogspé við blaðamann. Farið í
steininum er sagt vera eftir eggvopn enskra er þeir vógu Björn bónda á
Skarði. Steinninn er á Rifi.
.. Helgarferöir-vikuferöir
AMSTERDAM.
- eina sanna ..Evrópuhjartað
Amsterdam er óumdeilanlega í sviðsljósinu um þessar mundir - jafnt hér-
lendis sem erlendis. Þessi fallega stórborg hefur í æ ríkara mæli tekið við
hlutverki hins eina sanna „hjarta Evrópu" og í borginni finnur þú tækifæri
til nær allra þeirra hluta sem hugurinn girnist.
Einstaklingsferðir
Brottför alla föstudaga í 5 daga ferðir.
Brottför alla þriðjudaga eða föstu-
daga í vikuferðir.
Innifalið f verði:
Flug, gisting með morgunverði.
Gisting
á lúxushótelunum
Marriott og Hilton eða á
hinu stórskemmtilega og vingjarnlega
Parkhotel. Allt einstaklega vel
staðsett hótel.
Hópferðir
aðildarfélaga
5 daga ferðir (hægt að framlengja)
Október: 22, 29
Nóvember: 12, 26.
Desember: 10.
Verð er sama og f einstaklings-
ferðunum en auk flugs og
gistingar með morgunverði er
eftirfarandi innifalið:
Ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og skemmtisigling
um síki Amsterdam.
Næturlífið er fjölskrúðugt og eldfjörugt, verslanirnar í sérflokki, veitingastað-
irnir hver öðrum skemmtilegri og listheimurinn óviðjafnanlegur. Síðast en ekki
síst mætir þér hvarvetna glaðvært og hlýlegt viðmót sem Hollendingar hafa
löngum verið annálaðir fyrir.
Hvað er gert í Amsterdam?
Verslun
Glæsilegar verslanir af öllum
tegundum. Verðlagið er engu líkt.
Veitingahús
Veitingahúsin eru frá öllum heims-
hornum enda gjarnan sagt að (
Amsterdam sé hægt að „borða á
öllum tungumálum". Líflegir barir og
notaleg kaffihús að auki.
Næturlífið
Diskótek, næturklúbbar og
skemmtistaðir skipta hundruðum.
Myndlistin
50 listasöfn, t.d. Rembrandt- og Van
Gogh söfnin, Rijksmuseum, Stede-
lijks Museum, vaxmyndasafnið
Madame Tussaud's, hús önnu
Frank o.fl.
Tónlistin
Klassík, popp, jazz, kirkjuorgel og
margt fleira. Snjöllustu listamenn
heims troða upp í hverri viku.
Gleymum heldur ekki ballettinum og
50 kvikmyndahúsum með allar
nýjustu myndirnar með ensku tali.
Knattspyrnan
Deildarkeppnin, Evrópuleikir, lands-
leikir.
Verð frá
kr. 4.950
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
ib
Verð miðast við flug og gengi 1.9.1982