Þjóðviljinn - 16.10.1982, Síða 11
Helgin 16.-17. október 1982 ÞJóÐVILJINN — StÐÁ 11
Úr stórmyndinni „Stórjapanska keisararíkið“ sem sýnd er við mikla aðsókn.
/ kvikmyndum og sögubókum:
Japanir fegra framgöngu
sína í heimsstyrjöldinni
NágrannarJapana,
Kínverjar, Kóreumenn í norðri
og suðri, og margir aðrir hafa
vaxandiáhyggjur afþvíað í
Japan er margt reynt til að
fegra fortíð japanska
heimsveldisins og dæmdir
stríðsglæpamenn eru settir á
hetjustall í kvikmyndum.
í sögubókum sem nú eru notaðar
í japönskum skólum er sagt frá
landvinningum Japana með full-
komnu hlutleysisyfirbragði, rétt
eins og um sjálfsagðan hlut hefði
verið að ræða. Ekki er lengur
minnst á fræg ódæði eins og þegar
japanskir hermenn slátruðu um
200 þúsund Kínverjum við Nank-
ing 1937 né heldur segir frá hundr-
uðum þúsunda Kóreumanna sem
voru fluttir nauðugir til þrælkun-
arvinnu í Japan. Árásarsinnar
þeirra tíma breytast með sérstæð-
um hætti í skyldurækna og eins og
misskilda friðarsinna í filmum og
bókum.
Stríðið er nú sýnt í sögubókum
og í kvikmyndum sem vinsælar eru
orðnar einkum' í tveim þáttum:
annarsvegar f er dýrleg fórnfýsi j ap-
anskra hetja, hinsvegar miklar
þjáningar japönsku þjoðarinnar.
Tojo hershöfðingi og forsætis-
ráðherra, sem Bandaríkjamenn
hengdu árið 1948 fyrir stríðsglæþi
fær einskonar uppreisn æru í stór-
myndinni „Dai Nippon Teikoku",
sem mjög vinsæl hefur orðið og
þýða mætti heiti hennar með „Stór-
japanska keisararíkið". í mynd
þessari eru herstjórar Japans hinir
friðsömustu menn, sem ekki mega
ógrátandi og þá út úr neyð gefa
fyrirskipanir sem grimmdarlegar
afleiðingar hafa. Hinn japanski
keisaralegi hermaður berst jafnan
eins og hetja, þótt öðru hvoru sé
hann plagaður af samviskubiti.
Aftur á móti eru andstæðingarnir,
hvort sem þeir eru kínverskir,
breskir eða bandarískir heldur en
ekki hugleysingjar og launvíga-
menn.
Japanir hafa ekki komið sér upp
miklum her eftir stríð, en sagt er að
hann sé ákaflega vel búinn. Banda-
ríkjamenn hafa lengi viljað að Jap-
anir legðu meira fé í herinn (og
léttu þar með ýmsum útgjöldum af
þeim sjálfum, en Bandaríkjamenn
hafa sem kunnugt er allmiklar her-
stöðvar í landinu). Nú hafa sumir
grannar Japana tilhneigingu til að
ætla að sögufölsun í kennslubókum
og kvikmyndum geti verið liður í
undirbúningi að því að vekja upp
aftur japanska hernaðarstefnu.
áb tók saman.
ÍSAFOLD
Fjárfestingaákvarðanir
á íslandi
Stjómunarfélag íslands boðar til ráðstefnu fimmtudaginn
21. október nk. um efnið „FJÁRFESTINGAÁKVARÐANIR
Á ÍSLANDI” Ráðstefnan verður haldin í Kristalssal Hótels
Loftleiða og hefst kl. 10:15.
Dagskrá ráðstefnunnar er sem hér segir:
10:15 Ráðstefnan sett
- Hörður Sigurgestsson stjórnarformaður Stjórn-
unarfélags íslands
10:30 Uppruni fjármagns á íslandi
- Dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
10:50 Fjárfesting opinberra aðila
- Halldór Ásgrímsson alþingismaður
11:10 Fjárfesting einkaaðila
- Víglundur Þorsteinsson framkvæmdastjóri
B.M. Vallá hf.
11:30 Umræður og fyrirspurnir
12:00 Hádegisverður
13:15 Fjárfesting og framlag einstakra atvinnu-
greina til hagvaxtar
- Sigurður B. Stefánsson, Þjóðhagsstofnun
13:35 Ákvarðanataka um fjárfestingar
- Pétur Maack dósent, Háskóla íslands
13:55 Félagsleg sjónarmið og arðsemi
- Björn Björnsson hagfræðingur,
Alþýðusambandi (slands
14:15 Helstu kostir í stýringu fjármagns
- Kristján Jóhannsson, hagfræðingur
Félags íslenskra iðnrekenda
14:35 Umræður og fyrirspurnir
15:00 Kaffihlé
15.30 Hvað er að? Hvert stefnir?
-dón Sigurðsson forstjóri
íslenska járnblendifélagsins
15:50 Pallborðsumræður
- Halldór Ásgrímsson, alþingismaður
- Jón Baldvin Hannibalsson, alþingismaður
- Páll Sigurjónsson, forstjóri ístaks hf.
- Sigurgeir Jónsson, aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans
ÞÁTTTAKA TILKYNNIST TIL STJÓRNUNARFÉLAGS ÍS-
LANDS í SÍMA 82930
Jakob Hálfdanarson
Tölvuskólinn
Arkimedes
Sjálfsævisaga
Bernskuár Kaupfélags Þingeyinga
Raunhæf tölvustjórn -
Opið hús í dag kl. 10-17
og sunnudag kl. 13-17
Jakob Hálfdanarson
Sjálfsævisaga
Bernskuár Kaupfélags Þingeyinga
Undirritaður óskar að fá...eint. af bókinni
„Sjálfsævisaga, bernskuár Kaupféiags
Þingeyinga,“ eftir Jakob Hálfdanarson á
kr. 444,60. pr. eintak.
Nafn
Heimili
Póstnúmer-póststöö
□ Greiðsla kr.........fylgir. □ Óskast
sent í póstkröfu.
ISAFOLD
AUSTURSTRÆTI 10 101 REYKJAVÍK
...........
Námskeið:
Forritun I og II
Skráavinnsla I og II
Kerfisfræði I og II
Ath.:
Ný ísl. kennsluforrit
Tölvur m/litastýringu
Diskettustöð með
hverri vél
Byrjenda- og framhaldsnámskeið.
Ný námskeið hefjast 18. okt. ’82.
Kennari Steinþór Dilljar Kristjánsson
Innritun á Laugavegi 97 (2h) í síma 17040, sýningar-
dagana, og í síma 50615 á kvöldin.
- Þú getur haldið áfram hjá Arkimedes.
Arkimedes
Laugavegi 97, Reykjavík