Þjóðviljinn - 16.10.1982, Síða 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.-17. október 1982
dægurmál
Umsjón: Sif Gunnarsdóttir •
Halldór á „Halló“
Elísabet, Kristbjörg, Örn og Gunnar á ,Villta“. myndir: - gel.
[Góðirhá'sar‘l
Jæja, í þessu blaði byrjar nokk-
urs konar unglingasíða sem mun
vonandi koma hálfsmánaðarlega.
Það verður fjailað um ýmislegt á
henni, t.d. verða viðtöl, umsagnir
um bækur (fyrir jólin), einnig
auglýsingar frá menntskólum um
uppákomur, hljómleika ofl. og ým-
islegt annað. Á fyrstu síðunum hef
ég hugsað mér að taka Villta tryllta
Villa fyrir og pæla svolítið í honum.
Ég byrjaði á að spyrja unglinga á
Villta og niðri á Halló hvað þeim
fyndist um staðinn. Svörin voru
mjög misjöfn en þó var ein skoðun
nokkurn veginn augljós, að Villti er
næstum einungis stundaður af
diskóliði og þá aðallega vegna þess
að músíkin höfðar meira til þeirra
en pönkara eða rokkara.
Þá er það kannski spurningin
hvort vanti stað fyrir pönkara þar
sem þeir geta komið saman og
Eftir nokkra stressaða
hringi á Villta, valdi ég ungan
myndarlegan dreng, dró hann útí
hom og bað hann um viðtal.
Hann sagðist heita Gunnar
Gunnarsson.
Blm.: Kemurðu hingað oft?
G.G.: Nei þetta er í fyrsta
skipti.
Blm.: Hvert ferðu þá aðal-
lega um helgar?
G.G.: Mest lítið, ég fer auðvit-
að á skólaböll, svo reynir maður
stundum að komast í Sigtún en
það er sjaldan. Ég fer ekkert á
planið, ég hef aldrei stundað
þann stað og ekki félagsmið-
stöðvarnar heldur.
Blm.: Heldur þú að Villti
hafi leyst einhver vandamál í
sambandi við hallærisplanið?
G.G.:Jáaðmörgu leyti, hérna
erum við inni en hingað koma
bara krakkar sem geta skemmt
sér án víns því það má auðvitað
ekki drekka hérna. (Ölvun var
ekki áberandi.)
Blm.: Finnst þér Villti dæmi
um góðan unglingastað?
hlustað á músík sem þeir fila?
Ef þið hafið einhverja skoðun á
málinu og viljið koma henni á fram-
færi skuluð þið endilega skrifa, líka
ef þið eruð með einhverjar meiri-
háttar hugmyndir, endilega festa
þær á blað og skrifa til : Þjóðvilj-
ans, Síðumúla 6, merkt: Dægurmál
(sígild?). Sif
hljómplöfuklúbburinn
lON-UST
Hljómplötuklúbburinn TÓN-LIST býður þig velkominn í hópinn. Hjá
okkur snýst allt um hljómplötur. Klúbburinn er nýjung hér á landi, en
erlendis hafa hliðstæðir klúbbar starfað árum saman. Markmið TÓN-
LISTAR er að bjóða félagsmönnum sínum allar markverðar og
vinsælar hljómplötur og snældur með allt að 20% afslætti!
Inntökuskilyrði í TÓN-LIST eru þau ein að kaupa 1 hljómplötu með
10% afslætti og siðan eins og þér hentar best. Klipptu nú út miðann
hér fyrir neðan, skrifaðu á hann nafnið þitt og heimilisfang og sendu
hann í Hljómplötuverslunina LIST Miðbæjarmarkaði (eða líttu inn).
Þá færðu sendan um haél bækling með nánari upplýsingum og
plötulista yfir allar tegundir af tónlist: Ný-bylgja — jass— pönk —
klassik — country — þjóðlög — disco — íslenskar og erlendar.
Ath.: Vertu snar því við verðum að takmarka fjölda klúbbfélaga —
svo þeir fyrstu verða fyrstir, en þeir síðustu komast ekki að.
I
ýNafn:
Tappi trommari, Tappi bassaleikari, Tappi gítarleikari, Tappi hljómborðsleikari og söngvari. Tappaljós-
myndari Jón Hólm.
Loksins er hin langþráða plata
Tappa Tíkarrass komin í verslanir.
Beðið hefur verið eftir þessari
plötu með mikilli óþreyju því
Tappinn, með Björk íbroddi fylk-
ingar, hefur verið eitt stærsta núm-
erið á tónleikum sumarsins. Það er
mál manna að Tappinn sé ein af
okkar al-efnilegustu hljómsveitum
í dag og miklar vonir við hana
bundnar á komandi árum.
Hljómsveitina skipa, Björk
Guðmundsdóttir söngvari, Jakob
Smári Magnússon á bassa, Eyjólf-
ur Jóhannsson á gítar og Guð-
mundur Þór Gunnarsson slær á
trommur. Þessi plata, sem ber
nafnið bitið fast í vitið, hefur að
geyma fimm lög eftir hljómsveit-
armeðlimi.
Þegar ég setti plötuna á fóninn í
fyrsta sinn varð ég fyrir dálitlum
vonbrigðum en eftir því sem ég
hlustaði á hana oftar þeim mun
betri fannst mér hún. Þetta er ein
af þessum plötum sem vinna stöð-
ugt á. Tónlist Tappans lætur vel í
eyrum, einföld, kraftmikil oggóð.
Ekki treysti ég mér til að lýsa tón-
list Tappans svo vel fari. Það verð-
ur hver að gera fyrir sig.
Textar Tappans, eru veikasti
hlekkur plötunnar. Smá glæta er í
,,Óttar‘ en að öðru leyti finnst mér
þeir frekar bragðdaufir.
Vid svífum yfír bláma veraldarinnar
í leit ad endalausri sælu
med ótta gagnvart raunvcruleikanum
viö lifum í draumi, lifum í draumi.
(Óttar)
Hljóðfæraleikur á plötunni er
nokkuð góður. Guðmundur,
Jakob og Eyjólfur sleppa ágætlega
frá sínu, trommuleikarinn er veik-
asti hlekkur plötunnar. Björk
stendur sig mjög vel og er ég efins
um að við eigum marga jafnoka
hennar í söngvarastétt.
Yfirleitt þá er ég hrifinn af plöt-
unni og tel hana með því betra sem
út hefur komið í ár þó örlítill byrj-
endabragur sé á henni. Það er
bjart framundan hjáTappanumog
vænti ég mikils af honum á kom-
andi árum. Tappinn hefur kvatt
sér hljóðs í tónlistarlífi lands-
manna og öðlast sess sem ein af
okkar betri hljómsveitum.
JVS