Þjóðviljinn - 16.10.1982, Page 23
Helgin 16.-17. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23 '
Höfum flutt starfsemi okkar
aö Smiöjuvegi 8 í Kópavogi.
Nýtt símanúmer:
79400
HVERFIPRENT ##
Plastpokagerö — Umbúöaprentun
Iðnfræðsluráð
Dregin
3.febrúar
1983
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði -
bæjarmálaráðsfundur
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði heldur bæjarmálaráðsfund mánudaginn
18. október í Skálanum (Strandgötu 41) kl. 20.30. Á dagskrá er kosning
stjórnar og önnur mál. Sigurður Gíslason arkitekt mætir á fundinn og
skýrir út næstu lóðaúthlutanir í bænum. - Félagar fjölmennið. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Egilsstöðum
Fundur á vegum hreppsmálaráðs mánudaginn 18. október n.k. að Tjarn-
arlundi 14, kl. 20.30. Dagskrá: Dagvistunarmál. Frummælandi Bryndís
Símonardóttir. Allir velkomnir - Stjórnin
Alþýðubandalag Selfoss
og nágrennis
Garðar Sigurðsson alþingismaður verður nteð við-
talstíma að Kirkjuvegi 7, Selfossi laugardag 16. okt-
óber kl. 14.00.
Stjórnin. Garðar.
Lífeyrissjóður
verslunarmanna
hefur flutt starfsemi sína í Hús Verslunarinn-
ar Kringlumýri 4. hæö og opnar þar mánu-
daginn 18. október kl. 9.
Tilkynning
frá Samtökum grásleppuhrogna-
framleiðenda
Vegna hugsanlegrar greiðslu flutninga-
styrkja til framleiöenda saltaðra grásleppu-
hrogna á vertíðinni 1981, óska samtökin eftir
því að framleiðendur sendi upplýsingar þar
að lútandi til skrifstofu samtakanna að Síðu-
múla 37 Reykjavík eigi síðar en 10. nóvem-
ber n.k.
Upplýsingar er berast eftir þann tíma verða
ekki teknar til greina.
Auglýsing
um réttindaveitingu
í rafeindavirkjun og stálsmíði.
Með reglugerð um iðnfræðslu nr. 558/1981
voru löggiltar tvær nýjar iðngreinar:
Rafeindavirkjun með þrjú sérsvið:
fjarskiptasvið, tölvusvið og útvarpssvið, sem
kemurí stað útvarpsvirkjunar og skriftvéla-
virkjunar ásamtþví að símvirkjunfellurundir
hina nýju iðngrein.
Stálsmíði með tvö sérsvið: stálskipasmíði og
stálvirkjasmíði, sem kemur í stað ketil- og
plötusmíði.
Dregin
út
2. des.
1982
Þeim sem telja sig eiga rétt til starfa í þessum
nýju iðngreinum, með því að hafa sveins-
eða meistarabréf í hinum eldri iðngreinum
eða starfa á því sviði er rafeindavirkjun og
stálsmíði taka til, er bent á að snúa sér til
Sigurðar Kristinssonar hjá Landssambandi
iðnaðarmanna, Hallveigarstíg 1, Reykjavík.
Nokkur kveðjuorð:
Þórdís Guðmundsdóttir
frá Helgavatni
Fædd 3. febrúar 1900
Dáin 10. október 1982
Á mogrun, mánudag, verður til
moldar borin Þórdís Guðmunds-
dóttir mágkona mín frá Helgavatni
í Pverárhlíð.
Hún var elst þeirra Helgavatns-
systra, dóttir hjónanna Önnu
Ásmundsdóttur frá Höfða og Guð-
mundar Sigurðssonar bónda að
Helgavatni.
Þórdís var fædd aldamótaárið
1900, sagðist fylgja öldinni. „Það
liggur við að ég skammist mín fyrir
hvað ég er orðin gömul“, varð
henni einhverju sinni að orði í mína
áheyrn. Hún var greind og
skemmtileg kona og gæddi viðræð-
ur skemmtilegum húmor.
Þórdís átti enga afkomendur og
giftist aldrei, en því sterkari urðu
tengsl hennar við fjölskyldu sína.
Það er erfitt að minnast þeirrar
konu, sem aldrei vildi sj álf láta á sig
minnast og var jafnan til baka á
sviðinu; vildi aldrei neitt láta fyrir
sér hafa; gekk svo hljóðlega um
garða, að vart mátti nema skó-
hljóð, en vissi þó hvers manns þarf-
ir, sem hún jafnan leysti hávaða-
laust og óumbeðið. f návist hennar
andaði maður að sér hreinu lofti.
Aðalfundur
Verkalýðsfélagsins Rangæings
verður haldinn sunnudaginn 31. október n.k.
í Verkalýðshúsinu Hellu og hefst kl. 15.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Allt frá tvítugsaldri gekk hún
ekki heil til skógar. Er því með ó-
líkindum hve þessi kona hefir mik-
ið gott látið af sér leiða. Hún hjúkr-
aði og líknaði allt í kringum sig, af
mikilli nærfærni. Sjálf mun hún
hafa notið slíkrar umönnunar síð-
ustu stundirnar á Elliheimilinu
Grund, og bar hún hjúkrunarliði
þann vitnisburð, sem stofnuninni
er til sóma.
Það eru hlýjar kveðjur frá ótai
mörgum, sem nú fylgja henni inn í
svefninn.
Við söknum hennar öll.
. Halldór Þorsteinsson
Utförin fer fram frá Fossvogs-
kapellu mánudaginn 18. október
kl. 1.30.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
125.000,■krvöruúttektí
□fcJLdHliJLU
Dregin út 4. nóvember 1982