Þjóðviljinn - 16.10.1982, Qupperneq 27
Helgin Í6.-17. október 1982 ÞJÓÐVILJINN - StÐA 27.
Á sextugsafmæli Árna
lögmanns Halldórssonar
Hversu óðfluga líður tíminn
ekki. Að því er bestu heimildir
herma, er Árni lögmaður okkar
Austfirðinga sextugur í dag.
Karskur gengur kappinn að
sjálfsögðu enn til leiks og ann sér
engrar hvfldar í erilsömum störfum
sínum, oftlega hafa þau störf beinst
að því að rétta hlut þess, sem lotið
hefur í lægra haldi, enda í góðu
samræmi við lífsskoðun hans. En
málasviðið er vítt og engu erindi er
neitað, ef nokkur kostur er á úr-
lausn.
Árni er fæddur og uppalinn á
einu þekktasta Framsóknarheimili
á Austurlandi, sonur þeirra miklu
merkishjóna Önnu G. Guðmunds-
dóttur, kennara og Halldórs Ás-
grímssonar, kaupfélagsstjóra og al-
þingismanns.
Ungur hvarf hann á vit þeirrar
mannúðar- og réttlætisstefnu, sem
sósíalisminn byggist á og hefur þar
hvergi hvikað frá á hverfulli tíð. f
því sem öðru hefur hann ekki legið
á liði sínu, sósíalisminn hefur þar
átt ötulan talsmann og áróðurs-
mann um leið og skeleggan barátt-
umann, þegar á hefur reynt. Mestu
skiptir þó að þar fer góður drengur,
sem sækir og ver sín mál af einlægni
og kappí og er hverjum manni til-
lögubetri, ef í harðbakkann slær.
Margvísleg störf Árna rek ég
ekki hér, en Árni er mikill félags-
málamaður og hefur víða við kom-
ið. Félagslegum áhuga hans hefi ég
kynnst síðustu árin og m.a. hefur
hann sett mark sitt á fundi okkar
félaganna í Alþýðubandalaginu
eystra og best vita þeir það á Egils-
stöðum, hvern liðsmann og hauk í
horni þeir eiga þar sem Árni er.
Fjarri fer því að við höfum ætíð
verið á einu máli, enda lognmolla
jáyrðanna honum lítt að skapi. En
ráðhollur hefur hann reynst og
gagnrýni hans hefur verið sett fram
til þess að skerpa skilninginn og fá
fram frjórri umræðu um framtíðar-
hugsjón þá sem aldrei má missa
sjónar á. Súumræða hefuroft orð-
ið hin ágætasta og má ég biðja um
meira af slíku.
Árni er flugskarpur og fljótur að
átta sig á meginatriðum, kostir sem
sannarlega njóta sín til fullnustu á
Landsins mesta úrval af
VIDEÓSPÓLUM
i:
Stór sending
nýkomin
Nýtt efni
í hverri viku
Opio virka daga
kl. 11—21
laugardaga kl. 10—20
sunnudaga kl. 14—20
Holtsgötu 1
sími 16969
jli! VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
TftóJ' Síðumúla 13, 105 Reykjavík, Sími 82970.
Laus staða
Laus er til umsóknar staða
Umdæmiseftirlitsmanns
á Austurlandi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
Vinnueftirliti ríkisins Síðumúla 13 fyrir 15. nóvember n.k. á þar til
gerðum eyðublöðum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri eftirlitsdeildar í
síma (91j-29099.
starfssviði hans. Æviskrá hæfir
ekki hér, því árnaðaróskir áttu
þetta aðeins að vera með merkileg
tímamót, smákveðja til hins síunga
afmælisbarns með þökk fyrir ágæta
samfylgd, sem ég vona að vari sem
allra léngst.
Njóttu sem allra lengst lífsgæf-
unnar, sem ljær þessari jarðvist
gildi og mættum við njóta krafta
þinna í þágu hreyfingar okkar
eystra sem allra lengst.
Hamingjuóskir eru sendar
austur í Egilsstaði til ykkar hjóna
beggja. Megi framtíðin færa ykkur
ótaldar yndisstundir.
Helgi Seljan
Kæri vinur og bróðir.
Betur væri ég horfinn til þín í
Runu austur á fegursta fjörð á fóst-
urjörð á þessum fegins degi í lífi
þínu, en það verður að bíða betri
tíma að heyra í þér hressandi
hlátrasköllin og ylja sér við bjart-
sýnisgeislann í augunum þínum.
Þetta er orðin nokkuð löng veg-
ferð.
Allt frá því við sátum saman í
stúdentaráði með Ellu Pálma einni
kvenna, Palla Líndal, Tomma í
Keflavík, Víkingi, Jóni P., Jóni úr
Hornafjarðar-Hólum og Jónasi
Gísla — og ætluðum að frelsa
heiminn. Eg er raunar ekki frá því
að þú sért á þeim buxunum enn þá.
Svo líða árin og þú með öðrum
ræður mig á bæjarskrifstofurnar í
Kópavogi. Undur varstu nú mjúk-
hentur við þennan græningja sem
hvorki vissi í þennan heim né
annan f sveitarstjórnarmálunum í
þá daga.
En ég náði mér ögn niðri á þér
þegar ég gat lokkað þig til þess að
fara til Færeyja. Þú hefur ekki
sleppt af þeim hendinni síðan.
Einhvern veginn er það svona
með þig fóstri minn, að tryggðin
þín og þelið góða er það sem ég met
mest við þig og lái mér hver sem
vill.
Það er ekki að ástæðulausu að
ekki má maður óáreittur ganga um
göturnar í Klaksvík, svo ekki víki
ffiSKAM er 56 síður
Foreldrar! Gefið börnun-
um ykkar árgang af Æsk-
unní. Nýjir áskrifendur fá
einn eldri árgang í kaup-
bæti. Það borgar sig að
gerast áskrifandi. Af-
greiðsla Laugavegi 56,
sími 17336.
Bókaskrá Æskunnar 1982
er komin út.
sér að manni hver maður eða svo til
og spyrji af þér og þínum. Það segir
sína sögu og þá kemur mér það í
hug að við höfum aldrei álpast
þangað saman, að finna Álf Klakk
og fleiri snillinga á þeim bæ. Væri
það ekki ráð nú þegar heldur er
farið að hægjast um hjá okkur
báðum eða hváð?
Fyrst ætlaðir þú raunar að taka
mig með þér í róður á Færeyingn-
um þínum Klakki og verðum við að
vinda bráðan bug að því á næsta
sumri. Mér þótti vænt um að lesa
kverið þitt um hann Frissa frænda
þinn, það lagði mannlega hlýju frá
hverjum stafdrætti eins og þín var
von og vísa.
Engan veit ég vera meiri vin
þeirra er minna mega sín en þig og
er það kannski einhver ríkasti þátt-
urinn í fari þínu.
Minningarnar renna upp eins og
filmuborði.
Manstu þegar ég rakst á þig á
Kastrupflugvelli um árið. Mig
minnir það væri á þorra. Þú varst
eins og digur bóndi í rétturh, hress
og glaður sem endra nær, og svo
sungum við og hinir farþegarnir
ííka, við raust með kaupfélags-
stjórana í bassanum í flugvélinni
alla leið heim. Sú ferð var
fljótfarin — en mér ,er til efs að
annar eins konsert hafi verið flutt-
ur í flugvél fyrr eða síðar, það var
eins og söngvagleði í rútubíl.
Margar gleði- og ánægjustundir
við borð með svignandi krásum
húsfreyju megum við Nanna muna
úr ykkar húsi. Allur sá góði íslenski
matur, herra Guð. Vatnið fer að
renna út úr munnvikunum. Og all-
ar vísurnar og sögurnar sem þú hef-
ur gert tilraun til að láta tolla í
gleymnum huga mínum, þær eru
ekki færri en legíó.
Þó er það ein vísa sem mér er efst
í huga á þessari stundu, þessi sem
hann nafni þinn og frændi orti um
Sæluvoginn.
Pegar ég skilst við þerman heim
þreyttur og elliboginn
eg mun róa árum tveim
inn á Sœluvoginn.
Ekki gæti ég hugsað mér neitt
betra en fá að hverfa með þér á
fari þínu hvar þú situr keikur í skut
og heldur um stjórnvölinn með
hýruna í augunum og kúrsinn er
tekinn á Sæluvoginn.
Forláttu þessar flýtislínur elsku
legi vinur, þær eiga að flytja þér
bestu árnaðaróskir heim á Borgar-
fjörð og þrotlausar þakkir fyrir þá
gæfu að hafa fengið að kynnast þér.
Hittumst heilir sem fyrst, kysstu
Gínu og berðu kveðjur börnum og
vinum frá okkur Nönnu.
Lifðu í eilífri náðinni.
Þinn
Hjálmar Ólafsson
El Salvador-
nefndin
á íslandi heldur allsherjarfund á Hótel Borg
kl. 14 Iaugardaginn16. október.
Hefjum öflugt vetarstarf.
Fjölmennum.
Stjórnin
Þökkum auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför
Ingólfs Jónssonar hæstaréttarlögmanns Dísardal.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki á deild IA Uanda- kotsspítala fyrir frábæra hjúkrun og umönnun.
Sóley S. Njarðvík Inga Rúna Ingólfsdóttir Ása Stína Ingólfsdóttir Þór Ingólfsson Magni Ingólfsson Ingólfur N. Ingólfsson Eiríkur J. Ingólfsson Hrafnhildur Þ. Ingólfsdóttir Sóley Njarðvik Ingólfsdóttir Kristín Njarðvík barnabörn og barnabarnabörn. Kristinn Guðmundsson Rannveig Sigurðardóttir Sigríður Kristjánsdóttir Rannveig Árnadóttir Ásbjörn Sveinbjörnsson Jón Bergþórsson
Útför
Þórdísar Guömundsdóttur
frá Helgavatni
verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 18. október kl.
13.30
Rut Guömundsdóttir
Ásmundur Guðmundsson
Anna Einarsdóttir
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móðursystur
okkar
Sigríöar Friöriksdóttur
er lést 30. sept. síðastliðinn að Hrafnistu Reykjavík.
Sigríður Þ. Ottesen
og systur.