Þjóðviljinn - 20.11.1982, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Helgin 20. - 21. nóvember 1982
bókmenntrir
Þrjár bækur eru til nefndar og
skulu allar heita Ijóðabækur
þótt ein þeirra Vorganga í
vindhæringi eftir Bolla
Gústafsson, beri undirtitilinn „á
mótum Ijóðs og sögu“. Hinar
eru Heitu árin eftir Erlend
Jónsson (Almenna bókafélagið
gefur út þessar bækur tvær) og
Tréð fyrir utan gluggann
minneftirNormu E.
Samúelsdóttur(útgefandi Mál
og menning).
Allar eiga þessar bækur það
sameiginlegt, að þar er treyst á út-
málun veruleikans án þess að grip-
ið sé neitt að ráði til þeirra ráða
sem helst hafa sérkennt ljóðagerð.
Þessar bækur eru, hver með sínum
hætti af „opna skólanum“, þar er
treyst á það að þær staðreyndir sem
minnið geymir eða núið, standi
fyrir sínu, án verulegrar aðstoðar,
sögn, og skýtur reyndar öðru hvoru
inn í mál sitt alveg ódulbúnum
sögupörtum. Annars er brugðið á
það ráð að segja orðin upp í eins-
konar ljóðlínur en ekki gerist nú
ýkja margt við það:
Gatan liggur bein
niður Oddeyri
í framhaldi af
götnlu kúagötunni
sem sneiðir brekkuna
upp til suðvesturs
í átt að sundpollinum.
Upp þessa kúagötu
sem heitir Oddeyrargata
vegna tengsla við Eyrina
rölta kýr járnsmiðsins
móðurafa míns...
Þessi tilhögun í prentverki er
reyndar’tvíeggjað vopn: hún beinir
aukinni athygli að hverju orði - og
dregur þá um leið fram hve vafa-
samt er.að treysta því að upptaln-
höfuð. Hún leysir minningarnar
upp í brot, gerir þær
ágripskenndar - án þess að nokk-
uð það vinnist sem orð er á ger-
andi.
Gisinn texti
þéttist
Margt er það í minningasafni Er-
lendar Jónssonar sem er eðlisskylt
bók Bolla (sem hlaut vel á minnst
verðlaun hjá Almenna bókafé-
laginu) Þar fara svipmyndir af
mönnum og þróun, sem er í sjálfu
sér allt i lagi með, smekkleysur
verða höfundi heldur ekki til traf-
ala. Gallinn er bara sá, að lesanda
finnst að textarnir séu of gisnir -
þó að þeir séu reyndar þéttari en
textar Bolla:
Nú er verkamaðurinn
kominn í Bretavinnu
hefur látið mynda sig
á kjólfötum
Opni skólinn
Bolli Gústavsson
gegn aðferðinni, eða að minnsta
kosti viðvörun.
Skúringar
og tré
Svipað má reyndar segja um bók
Normu E. Samúelsdóttur. Hún er
lengra frá prósanum en fyrrnefndir
höfundar - m.a. vegnaþessaðhún
er lengra frá frásögninni, meira í
útmálun hugarástands. En eins og
hjá þeim er úrvinnsla efnisins
stundum í lágmarki:
Ég vakna
geng fram
hlusta á raddir barnanna
Hvað á ég að gera nú?
Laga til klœða krakkana skúra?
Ekki get ég farið að skrifa
það er ekki œtlast til þess
Árni
Bergmann
skrifar
það dugi að nefna þær, raða þeim
upp.
Efniviður
Bækur Bolla o§ Erlendar eru
minningabækur fra uppvaxtaárum
höfunda. Fugl í kattaslaginn er
skotinn yfir Oddeyrartanga í bók
Bola, kýr afa hans og fyrstamaí-
göngumenn fara um göturnar, her-
inn er kominn,karlar karpa úti í
skúr, afi er borinn til grafar. Heitu
árin Erlendar geyma samfelldari
minningasyrpu frá sömu árum:
herinn er kominn í lítið pláss, á-
standsfiðringur í stúlkum og pen-
ingafiðringur í körlum, leiksýning í
þorpi gefur tilefni til að bregða upp
svipmyndum af fyrirfólkinu á
staðnum, undir lokin er sögumað-
ur nýfermdur kominn í vegavinnu
með ilm úr hári ungra stúlkna í vit-
unum. Bók Normu er aftur á móti
um líðandi stundu, ljóðin segja frá
vandkvæðum skrifandi húsmóður.
Hvað er það
sem vinnst?
Af þessum höfundum þrem fer
Bolli næst ofur venjulegri prósafrá-
ing staðreynda og svipmynda af
þessu tagi geti orðið áhrifasterk.
Og þegar það er haft í huga, að
ódulbúnu prósakaflarnir skilja
meira eftir (frásagnir af prakkara-
skap pg barnagrimmd til dæmis),
þá kemur upp efi um alla þessa
opnu Ijóðsaðferð hjá Bolla yfir
Norma E. Samúelsdóttir.
drekkur viskí
og reykir Lucky Strike
I sumarfríinu
tekur hann leigubíl
með fjölskylduna
norður í Vaglaskóg
og œtlar að sœkja
um lóð!
Erlendur Jónsson
Þetta er sjálfsagt allt satt og rétt,
en einhvemveginn eins og of auðvelt
og sjálfsagt. Á hitt er að líta, að
öðru hvoru rifjast það upp fyrir Er-
lendi, að viss „þétting“ (Dichtung)
hefur jafnan verið ein helsta for-
senda skáldskapariðju. Dæmi um
þetta má taka úr kvæði sem er sam-
nefnt bókinni:
A heitu árunum
hljóp ofvöxtur
í blóm og illgresi.
Góða fólkið var betra
vonda fólkið verra
Hatrið varð að eldi
ástin að dumbrauðu skýi.
Pegar haustaði
féllu þung lauf
á vota jörð...
Texti af þessu tagi er einskonar
blanda úr hinum „opna“ skóla,
sem setur púnkta yfir öll i, og við-
leitni til að fara nokkuð aðrar
leiðir. Og með því að textinn fer
heldur batnandi eftir því sem
lengra er farið frá „afskiptaleysi“
opna skólans, þá verður bók Er-
lendar með sínum hætti röksemd
ekki skrifa
heldur laga til og ala upp börnin...
Og lesandinn spyr enn: hvaða
ávinningur er að ljóðforminu, er
ekki betra að halda áfram með
þessa lýsingu á hvunndegi þess sem
teygður er á milli skyldustarfa og
„fýsnar til fróðleiks og skrifta?“
gera hana ítarlegri og áþreifanlegri
og áleitnari með öðrum ráðum en
þeim sem ljóðið býður upp á en eru
ekki nýtt?
Hættur opna skólans sitja hér og
hvar fyrir Normu en heildarmynd-
in verður reýndar sterkari en það
dæmi sem áðan var nefnt gefur til
kynna. Því veldur samfléttun
húsmóðurhvunndagsleikans við
næstu staðreyndir náttúrunnar,
kríu og máfa í frelsi og kuldagrárri
lífsbaráttu tréð fyrir utan glugg-
ann, þetta „mjúka blauta fagra
yndisaukandi“ tré sem er einnig
skilningstréð „vindbarða jarð-
bundna frosna". Það reynist höf-
undinum nokkur styrkur, að binda
sig ekki í eina vídd, hverfa öðru
hvoru frá einfaldri játningu og
reyna meira á þá spennu sem vérða
kann milli hins sagða og hins
ósagða. AB
Andri Hemingway Laxness
Pétur Gunnarsson:
Persónur og leikendur.
Punktar 1982.
Þriðja bindið í sagnaflokki Pét-
urs Gunnarssonar segir frá Andra á
menntaskólaárunum. Það er kann-
ski ekki margt sem gerist: Andri
elskar Bylgju og hún hann, en að
loknum skóla skilja leiðir og Andri
fer suður til að prófa á sjálfum sér
þá París Hemingways sem hefur
verið honum mjög hugstæð um
hríð.
Þegar Pétur Gunnarsson er les-
inn kemur fljótt upp í hugann latín-
uglósan homo ludens,maður að
leik, maður að ærlslast og skemmta
sér með orð og minni í stað þes að
halda áfram að gera eitthvað eins
og Gvendur í Sumarhúsum. í þess-
ari bók er sú stefna tekin að byggja
sem flest utan um eitt megin-
einkenni Andra: Ungur maður
með skáldagrillur getur ekki lifað
sínu lífi í friði fyrir annarra manna
bókurn og persónum þeirra.
Hann er sífellt að fara í föt •
meistaranna, gera upp lífsdæmi
þcirra í huga sér og reyna að
Pétur Gunnarsson
heimfæra upp á sjálfan sig, eða þá
finna hliðstæður milli síns hlut-
skiptis, sinna ásta, og þeirra sem
segir frá í verkum Halldórs Lax-
ness og Hemingways. „Hugurinn
krauntar af Hemingwayfrösum“
þar sem Andri situr yfir sögudrög-
um á Hótel Höll. Steinn Elliði eltir
hann til Þingvalla og vill lesa fræga
ræðu yfir Bylgju (Diljá). Sem
reyndar tekst ekki því tímarnir eru
breyttir, Bylgja þegir ekki eins og
Diljá gerði í Vefaranum mikla og
leyfir herra sínum að tala. Margt er
einmitt haglega og skemmtilega
gert í leik Péturs að því misræmi
sem verða hlýtur á Andra og þeim
persónum sem hann leikur. Þegar
svo Bylgja er kannski ólétt á versta
tíma finnur Andri umhverfið
þrengja að sér - eins og smásaga
eftir Jökul Jakobsson!
Leik þennan stundar Pétur af
hugkvæmni og stílfjöri og með
hollum ávæning af hæðni: Kannski
eru bókmenntirnar „kartöflugarð-
ur sem aðrir voru búnir að taka upp
úr“?. Heldur hann fram þessari
stefnu af dugnaði (sem er ekki al-
veg óskeikull, mikil ósköp) allt þar
til André Hemingway er barinn út
úr hlutverki sínu í Veislu í farángr-
inum í París á dögum stúdentabylt-
ingar.
Sú einstefna, ef svo mætti kalla,
sem ræður þessari bók, leikurinn
ágengi með „persónur og leikend-
ur“, er bæði styrkur sögunnar og
vandi hennar. Aðferðin heldur vel
utan um efnið, sér fyrir heildar-
svipnum. En um leið útilokar þessi
aðferð margt annað sem gerist í lífi
ungs manns á þessum ævitíma.
Annað fólk verður hornreka. And-
ri einn í heiminum með bókunum.
Meira að segja ástin sjálf, Bylgja,
missir mikið blóð vegna ágengni
bókmenntanna í þessari sögu.
Hvað gerðist svo eftir að Andri
var laminn í hausinn á Sanmisj í
París 1968? Margt og mikið - og
þrjár bækur hafa verið um hann
skrifaðar. Kannski í anda þeirrar
stefnuskrár sem Andri hafði þulið
yfir Diljá sinni á Þingvöllum
nokkru fyrr: „Eina von bókmennt-
anna er að finna bylgju sem ennþá
er fersk og óbrjáluð. Bylgju sem
hægt er að senda út á bókmennta-
verk jafn eðlilega eins og bítlalag.
Ég hefi ekki fundið hana, en ég trúi
að hún sé til“.
Hver veit: Pétur Gunarsson varð
a.m.k. fyrstur yngri manna til að ná
Bítlaupplagi, og það eru í sjálfu sér
ekki lítil tíðindi. Hvað svo verður
veit nú enginn.
ÁB.
Viktoría
Hamsuns
Viktoría eftir Knut Hamsun er ný-
komin.út hjá MÁLI OG MENN-
INGU. Þetta er þriðja útgáfan af
þýðingu Jóns Sigurðssonar frá
Kaldaðarnesi, en bókin kom fyrst
út í íslenskri þýðingu árið 1912.
Viktoría er ein kunnasta og vinsæl
asta saga Knuts Hamsun. Hún var
fyrst gefin út 1898, næst á eftir Pan,
sem einnig hefur komið út hjá Mál
og menningu.