Þjóðviljinn - 10.12.1983, Side 7
Helgin 10.-11. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Listavinafélag Hallgrímskirkju
Átt þú
orð?
Nú stendur yfir samkeppni um
nafn sem nær yfir hús og gistingu og
þjónustu í sumarhúsabæjum
Samvinnuferða-Landsýnar í Hol-
landi.
Mikil þátttaka er og má skila inn
tillögum, fimm hver, til 10. janúar
n.k. Leitað er eftir einu orði og
spurt: Átt þú orð? Þátttakendur
skipta þegar þúsundum og 1. verð-
laun eru 3ja vikna dvöl fyrir fjöl-
skyldu í Femhof eða Kempervenn-
en. Dómnefnd skipa: Eysteinn
Helgason, Gunnar Steinn Pálsson
og Guðni Kolbeinsson.
- ekh.
Opið til
kl. 18 í dag
Verslunum er heimilt að hafa
opið það sem eftir er desember sem
hér segir:
Laugardag 10. des. til kl. 18.
Föstudag 16. des. til kl. 22. Laugar-
dag 17. des. til kl. 22. Föstudag23.
des., Þorláksmessa, til kl. 23.
Laugardag 24. des., aðfangadagur,
til kl. 12. Laugardagur31. desemb-
er, gamlársdagur, til kl. 12.
Fjörutíu þætt-
ir um vísindi
Leiftur hefur gefið út bók eftir
dr. Þór Jakobsson sem heitir Um
heima og geima. í bókinni eru
fjörutíu stuttir þættir um raunvís-
indi og vísindaleg málefni.
Höfundur segir í formála, að í
pistlunum sé sagt frá vísindalegum
nýjungum af ýmsu tagi og þekking-
arleit manna. Þar sé bæði ymprað á
nýjum sannindum og því sem er
enn umdeilt fræðimanna á meðal.
í bókinni er vikið að mörgum
efnum - geimferðum, tíðindum af
mannsheilanum, olíuleit, lífi í al- .
heimi, hafís, ótakmörkuðu sjón-
varpi, heimsendaspám og mörgu
fleiru.
Annað starfsárið að hefjast
og mörg verkefni framundan
Hallgrímskirkju er eftirfarandi
dagskrá fyrirhuguð:
Listvinafélag Hallgrímskirkju
hefur nú í byrjun aðventu 1983
sitt annað starfsár. Tilgangur
þess er að „efla listalíf Hall-
grímskirkju í Reykjavík, sem
samboðið sé hinni veglegu
landskirkju og hlutverki henn-
ar“. Félagiðerekki takmarkað
við sóknarmörk kirkjunnar.
Á fyrsta starfsári þjónaði félagið
tilgangi sínum með ýmsum hætti: á
Liljukvöldi komu fram Knut Öde-
gárd, Þorgerður Ingólfsdóttir,
Björn Björneboe og Gunnar
Eyjólfsson, fluttur var ljóðabálkur
dr. Jakobs Jónssonar frá Hrauni, í
kantötuguðsþjónustu fluttu kór,
hljómsveit og einsöngvarar Bach-
kantötu nr. 61, Mótettukórinn
söng á jólatónleikum, passíutón-
leikum og vortónleikum, sýndar
voru passíumyndir Barböru Árna-
son, einnig helgilist Sigrúnar Jóns-
dóttur og vinnuteikningar og frum-
drög að steindum gluggum Leifs
Breiðfjörðs.
Árgjald fyrir annað starfsár fé-
lagsins (1983-’84) ér krónur 400 og
gildir það sem áskrift að listvið-
burðum á vegum þess.
Á öðru starfsári Listvinafélags
Tónlist:
4. desember voru haldnir Að-
ventutónleikar í Kristskirkju (Mót-
ettukórinn, einsöngvarar, hljóm-
sveit), kammertónleikar verða á
föstunni (Guðrún Sigríður Birgis-
dóttir, Martial Nardeau, Þórhallur
Birgisson, Kathleen Bearden
o.fl.). Orgeltónleikar í Krists-
kirkju (Hörður Áskelsson, mars).
Passíutónleikar í dymbilviku
(Mótettukór og hljóðfæraleikar-
ar). Vortónleikar Mótettukórs
Hallgrímskirkju. Fjölbreytt tónlist
í guðsþjónustum og náttsöng.
Myndlist:
Bókmenntir:
„Tómasarkvöld", lestur úr ljóð-
um Tómasar Guðmundssonar,
Matthías Johannessen les úr sam-
talsbók sinni „Svo kvað Tómas“
tónlist (18. janúar). Ljóðakvöld
með Knut Ödegárd og Matthíasi
Johannessen.
Leifur Breiðfjörð, sem nú er
með sýningu í forkirkjunni (var
opnuð 16. okt. sl.), heldur kynn-
ingarkvöld með litskyggnum í Leiklist:
skammdeginu. Dagskrá um Kaj Munk í umsjá
Já, hún er stórglæsíleg nýja SONY samstæðan.
Fyrir aðeins 32.750,- stgr. gefst ykkur tækifæri til að eignast þessa stórglæsilegu
samstæðu, eða notfæra ykkur okkar hagstæðu greiðslukjör.
Magnari 2x35 sinus wött (2x60 músík-
vött) með fullkomnu tónstillíkerfi SOUND
EXCHANGER.
Steríó útvarp með FM, MB og LB.
Tveír 60 vatta hátalarar.
Og rúsínan í pylsuendanum, kassettutæk-
ið tekur að sjálfsögðu allar gerðir af kass-
ettum. Leítari fram og tíl baka.
Dolby B og það nýjasta Dolby C.
Mjög vandaður skápur með glerhurð og
á hjólum.
JAPIS hf
BRAUTARHOLTI 2
Akranes: Stúdíóval. Akureyri: Tónabúðin. Borgames: Kaupfélagið. Eskifjörður: Pöntunarfélagið. Hafnarfjörður:
Kaupfélagið, Strandgötu. Hella: Mosfell. Homcifjörður: Radíóþjónustan. ísafjörður: Eplið. Keflavík: Stúdíó.
Neskaupstaður: Kaupfélagið. Reyðarfjörður: Kaupfélagið. Seyðisfjörður: Kaupfélagíð. Tálknafjörður: Bjamar-
búð. Vestmannaeyjar: Músík og Myndir.
Guðrúnar Ásmundsdóttur, fyrir-
hugað á dánardegi Munks þann 4.
janúar.
ffijgh-Tech 260 (pOLBY
Ný hájprouð hljómtækjasamstæða
íynr kröfuharðan nútímann