Þjóðviljinn - 19.05.1984, Page 32
Helgin 19. - 20. maí 1984
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaösins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Framsóknarflokkurinn vill viðhalda einokun í kartöflusölu
Hótuðu stj órnarslituin
Sjálfstœðismenn fórnuðu hagsmunum sínum á altari Sambandsins
Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra og Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra hótuðu sjálfstæðismönnum í gær
stjórnarslitum ef ekki yrði komið í veg fyrir
afgreiðslu á tillögu Eiðs Guðnasonar og
fleiri þingmanna um að aflétt verði einokun
Grænmetisverslunar landbúnaðarins á
innflutningi kartaflna og annarra garðá-
vaxta.
Tillagan hefur verið til meðferðar í land-
búnaðarnefnd efri deildar og minni hluti
hennar sem m.a. Eyjólfur Konráð Jónsson
skipar skilaði áliti þar sem mælt er með
samþykki frumvarpsins. Egill Jónsson for-
maður nefndarinnar hefur hins vegar þráast
við að skila nefndaráliti á meðan stjórnar-
f lokkarnir og þá einkum þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins hafa reynt að ná saman í
málinu.
Eftir hótun Framsóknarmanna í gær um
stjórnarslit ákváðu íhaldsmenn að gleypa
kartöflurnar hráar og Sverrir Hermannsson
sem nú gegnir stöðu viðskiptaráðherra
sendi frá sér yfirlýsingu um að tillögunni
yrði vísað frá með rökstuddri dagskrá. í
yfirlýsingu Sverris sagði m.a. að stjórnar-
flokkarnir væru sammála um að rækileg
endurskoðun fari fram á sölumálum land-
búnaðarins og hann myndi beita sér fyrir
því að bráðabirgðalausn næðist í þeim mál-
um þannig að einokun Grænmetisverslun-
arinnar yrði aflétt. „Frekari ákvarðanir í
málinu verða ekki teknar“, eins og Sverrir
orðaði það.
„Meirihluti þingsins hefur ákveðið að
málið verði ekki afgreitt. Því verður ekki
mótmælt, því miður“, sagði Sverrir við
fréttamenn á hlaupum í þinghúsinu í gær.
Sverrir fékk aldrei að lesa þessa yfirlýs-
ingu sína fyrir þingheimi þar sem forseti efri
deildar Saiome Þorkelsdóttir neitaði að
taka málið til umræðu.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar þrýstu
mjög á forseta um að málið yrði tekið fyrir
og sögðust sjaldan hafa orðið vitni að öðr-
um eins bolabrögðum stjórnarinnar. Lýsti
Eiður Guðnason því yfir að yrði málið ekki
tekið fyrir væri samkomulag flokkanna um
afgreiðslu þingmála nú síðustu daga þings-
ins úr sögunni. Má telja víst að stjórnar-
andstöðuþingmenn muni halda uppi mál-
þófi vegna þessa og sjá til þess að lög um
ríkismat sjávarafurða verði ekki afgreidd á
þinginu.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur fórnað
hagsmunum sínum á altari Sambandsins.
Hann má sig hvergi hreyfa í
hagsmunamálum neytenda því hann er
flæktur í þetta spillingarnet einokunarinn-
ar“, sagði Eiður Guðnason.
Forseti efri deildar hefur lýst því yfir að
málið verði tekið til afgreiðslu á fundi
deildarinnar kl. 10.00 í dag. - Ig
Ríkisstjórnin fordæmd
Mótmœla meðferð meirihluta alþingis á húsnœðisfrumvarpinu
„Fundur haldinn við Alþingis-
húsið föstudaginn 18. maí 1984
mótmælir harðlega dæmalausri
meðferð meirihluta alþingismanna
á húsnæðisfrumvarpinu“, segir í
ályktun sem Búsetafólk afhenti
forseta þingsins eftir útifundinn á
Austurvelli í gær.
„Við lýsum fullri ábyrgð á hend-
ur ríkisstjórninni og fordæmun þau
vinnubrögð, sem hér hefur verið
beitt. Um leið og við brýnum ríkis-
stjórnina til þess að skoða hug sinn
alvarlega í þessu máli, viljum við
minnahanaá að húsnæði er ein af
frumþörfum mannsins. Öruggt
húsnæði fyrir alla er krafa, sem
engin ríkisstjórn getur vísað á bug.
Við krefjumst nýrra valkosta í
húsnæðismálum, þar sem fullt tillit
verði tekið til þarfa og óska allra
landsmanna".
í ályktuninni er enn fremur bent
á að meirihlutavilji alþingis hafi
legið fyrir um að veita húsnæðis-
samvinnufélögum rétt til lána úr
Byggingasjóði verkamanna, en
„Sjálfstæðisflokknum tókst með
hrossakaupum að koma í veg fyrir
að svo yrði. Öll fyrirheit félags-
málaráðherra voru þverbrotin og
þær þúsundir landsmanna sem kos-
ið hafa þessa nýju leið í húsnæð-
ismálum, eru nú sviptar öllum
möguleikum á öruggu húsnæði.
Þessi leið hefði getað valdið hvað
mestum umskiptum í húsnæðis-
málum landsmanna, eins og um-
fjöllunin á alþingi og í fjölmiðlum
ber vott um“.
-óg
Húsavíkursöfnunin breiðist út
Fólki ofbýður gjöfin
Söfnun hafin í Mývatnssveit
„Mönnum ofbjóða svo mál-
vcrkagjafirnar til embættis-
mannsins Jóhannesar Nordal að
undirskriftasöfnunni gengur
mjög vel og er farið að safna þeim
út um sveitirnar“, sagði Þorkell
Björnsson á Húsavik við Þjóðvilj-
ann í gær.
„Ég er fullviss um að mikil
þátttaka verður í minni sveit“,
sagði Stefánía Þorgrímsdóttir
Garði III í Mývatnssveit. „Ég er
að byrja að safna undirskriftun-
um og vona bara að fleiri drífi í
þessu. Þetta eru niálverk að and-
virði þrennra verkamannalauna.
Hér kaupir fólk raforku til hús-
hitunar beint af Rafmagsveitum
ríkisins og verðið er gífurlegt.
Fólki finnst forkastanlegt að gefa
formanni Landsvirkjunar svo
mikla afmælisgjöf þegar það
varla hefur efni á að kynda húsin
sín“, sagði Stefánía.
- jp
launum hjá Há-
skóla íslands
á sama tíma og hann er á fullum
launum sem alþingismaður
Gunnar G. Schram alþingismað-
ur hefur í vetur stundað kennslu
við Háskólann, meðfram störfum
alþingismanns og þegið 50% laun,
en það er samkvæmt lögum og regl-
um. Nú hefur Gunnar sótt um svo
kallað rannsóknarleyfi í eitt ár frá
Háskólanum og fengið það. Hér er
um að ræða leyfi á fullum launum,
en í þessu tilfelli fær Gunnar 50%
af launumeinsogþegarhann kenndi
í vetur. Á sama tíma hefur hann
svo full laun allt árið um kring sem
alþingismaður.
Að sögn Halldórs Guðjónssonar
hjá Háskólanum eiga prófessorar
við Háskólann rétt á rannsóknar-
leyfum samkvæmt kennslutíma-
fjölda síðustu sex ára og það not-
Blma Þórðardóttir gerlr þlngmönnum gylllboð á útifundi Búseta á Austurvelli í gser. (Mynd - eik).
Búsetafundur á Austurvelli í gær
Gunnar G. Schram sækir um ársieyfi
á launum hjá Háskóla fslands.
færir alþingismaðurinn Gunnar G.
Schram sér núna.
Samkvæmt þessum sömu reglum
á Gunnar rétt á ferðastyrk og dag-
peningum meðan hann er í
rannsóknarleyfinu og getur fengið
hvorutveggja ef og þegar hann
sækir um slíkt.
Þjóðviljinn innti Gunnar eftir
því hvort honum þætti það ekki sið-
leysi að sækja um launað leyfi, á
sama tíma sem hann hefur full
þingmannslaun.
Gunnar sagði svo ekki vera,
hann væri bara að nýta réttinn sinn
samkvæmt kjarasamningum.
Hann ætlaði að vinna að ritstörfum
í sumar og myndi það vera gefið út í
haust. Gunnar sagðist bara vera í
hálfsárs leyfi, ekki ársleyfi eins og
Halldór Guðjónsson sagði að hann
hefði sótt um. - S.dór/Ig
1. deildin:
ÍA-Fram
1 -0
Valur - ÍBK
0-0
Sjá bls. 18
Gunnar G. Schram alþingismaður
Fær árs frí á