Þjóðviljinn - 29.07.1988, Page 11
„Hertoginn" í lukkunnar velstandi.
Michael Dukakis, forsetafratn-
bjóðandi Demókrataflok-
ksins, nýtur mun meira fylgis
landa sinna um þessar mundir en
keppinauturinn George Bush. Ef
marka má glænýja fylgiskönnun
sem gerð var á vegum „Wall
Street Journal“ og NBC sjón-
varpsstöðvarinnar hefur fylkis-
stjórinn í Massachusetts 17 af
hundraði í forskot á varaforset-
ann.
Afganistan
Eldur í Kabúl
Þótt eldflaugum rigni dag og nóttyfir höfuðborg Afganistans ferþvífjarri
að uppreisnarmenn ógni valdhöfum
Pótt afganskir skæruliðar hafi
aukið mjög eldflaugaárásir
sínar á Kabúl fer því fjarri að
ráðamenn séu á fallanda fæti.
Þetta er dómsorð ýmissa frétta-
skýrenda og sérfræðinga í stríðs-
rekstri.
Undanfarnar vikur hefur ekki
liðið sólarhringur án þess að
sprenging hafi kveðið við í höfuð-
borginni. Eldflaugar uppreisnar-
manna valda skelfingu og upp-
lausnarástandi enda falla þær á
víð og dreif, ekki síður í íbúðar-
hverfum en við herbækistöðvar.
En þótt skæruliðar geri borgar-
búum lffið leitt ógna þeir ekki
vörnum Kabúl. „Ég tel ekki
nokkrar líkur á því að upp-
reisnarmenn hernemi borgina í
bráð eða að til átaka komi í nám-
unda við hana,“ sagði sendiherra
ónefnds Vestur-Evrópuríkis í ó-
formlegu spjalli við fréttamann í
fyrradag.
Hinsvegar blandast náttúrlega
engum hugur um það að skæru-
liðum hefur vaxið ásmegin uppá
síðkastið eða frá því Kremlverjar
hófu brottflutning herliðs síns
þann 15da maí síðastliðinn. Fyrir
þann tíma var eldflaugaárás á
höfuðborgina fremur sjaldgæfur
atburður. En í síðustu viku féllu
170 eldflaugar á Kabúl.
Varnarlína stjórnarhersins er
enn sem fyrr í 20 kílómetra fjar-
lægð frá borginni en það eru fleiri
„göt“ á henni nú eftir brotthvarf
Sovétmanna, sannkallað skarð
fyrir skildi.
Reuter/-ks.
ERLENDAR FRÉTTIR
r
Iranskir stríðsherrar staðhæfðu
í gærkveldi að árásarsveitir
sínar hefðu sótt fram á norður-
vígstöðvunum og unnið glæsta
sigra á óvinum sínum. Þeir hefðu
fellt að minnsta kosti 780 íraka og
náð tveim hernaðarlega mikil-
vægum fjallshryggjum á sitt vald.
Fréttastofan IRNA flutti
mönnum þessi tíðindi í gær. Hún
greindi ennfremur frá því að ír-
anskar hersveitir hefðu í rauða-
býtið í gærmorgun lagt til atlögu
við íraka og íranska uppreisnar-
menn í bænum íslamabad-
Gharb. Bær þessi liggur sem
kunnugt er um 100 kílómetrum
austan landamæra styrjaldarríkj-
anna.
IRNA kvað írani hafa
„hreinsað“ um 150 ferkílómetra
svæði við Íslamabad-Gharb í gær-
morgun og fyrrakvöld. Að
minnsta kosti 4 þúsund óvinadát-
ar hefðu fallið og lægju lík þeirra
einsog hráviði um allt svæðið.
Þorri hinna föllnu væri úr röðum
íranskra „landráðamanna“, það
er að segja félaga Mujahedin-
Khalq, og þar á meðal væru all
margar konur.
Málsvari Mujahedin í Bagdað
staðfesti í gær að harðir bardagar
hefðu geisað við og í íslamabad-
Gharb en fullyrti að fréttir írans-
stjórnar af falli fjenda sinna
Viðræður fulltrúa fjendafvlk-
inga Kampútseu, Víetnama
og sjö annarra ríkja í Suðaustur-
Asíu fóru út um þúfur í gær.
Fundur þessi fór sem kunnugt er
fram í Indónesíu og var efnt til
hans í því augnamiði að efla líkur
á friði og réttlæti í Kampútseu.
Að loknum síðasta fundinum í
gær efndu fulltrúar til frétta-
mannafunda og báru hver annan
sökum. Hun Sen, forsætisráð-
herra Kampútseu, bar fulltrúa
Rauðu kmeranna á brýn að hafa
gert allt sem í hans valdi stóð til
þess að fundurinn misheppnað-
ist.
„Þið spyrjið vafalaust að því
hvers vegna við gefum ekki út
neina sameiginlega yfirlýsingu?
Svo er að sjá sem ekki hafi orðið
neinn árangur af þessum fundar-
höldum. Fulltrúar allra nema
Rauðra kmera lögðu sig í fram-
króka um að eyða ágreiningi og
ná samkomulagi. Því miður,
Rauðu kmerarnir höfnuðu öllum
tillögum,“ sagði Hun Sen.
Fulltrúi Rauðu kmeranna,
Khieu Samphan, sakaði Vfet-
nama um að hafa notað fund
þenna til þess eins að koma
áróðri sínum á framfæri. Hann
kallaði Hun Sen strengbrúðu
Víetnama og stjórn hans lepp-
stjórn þeirra. Víetnamar hygðust
vera um kyrrt í Kampútseu um
aldur og ævi og því ættu sínir
menn ekki annars úrkosti en að
berjast gegn þeim með oddi og
eggju.
Utanríkisráðherra Indónesíu,
Ali Alátas, greindi frá þvf að þótt
ekkert samkomulag hefði tekist
með deiluaðilum væri vinna
manna ekki með öllu unnin fyrir
gýg. Ákveðið hefði verið að skipa
nefnd fulltrúum allra ráðstefnug-
esta og skyldi hún freista þess að
finna leiðir að samkomulagi.
Reuter/-ks.
„...lá sviðið lík hermanns." 1 af 1.000.000.
væru, einsog oft vildi brenna við
úr þeirri áttinni, stórlega ýktar.
franska sjónvarpið sýndi í gær
kvikmyndir frá vígvellinum við
Íslamabad-Gharb. Á skjánum
birtust tugir sundurskotinna og
logandi skriðdreka og herflutn-
ingabifreiða. Svartir reykjar-
strókar stigu upp til himna og á
víð og dreif lágu skyttur íranshers
við störf.
Tveir íraskir bryndrekar stóðu
í ljósum logum og steinsnar frá
þeim röðuðu íranskir hermenn
sér upp fyrir myndatöku. Þeirra á
meðal var kampakátur klerkur
með vefjarhött. Þegar þeir komu
auga á kvikmyndatökuvélina
brostu þeir og hófu löngutöng og
vísifingur á loft til marks um
sigur.
Skammt frá þessum vígreifu
dátum var ónýt jarðýta, hálf-
grafin í bleikan sandinn. Hjá
henni lá sviðið lík hermanns.
Reuter/-ks.
Kampútsea
Viðræður
út um
þúfur
Bandaríkin
„Hertoginn“
í áliti vestra
En ekki er allt sem sýnist.
Könnunin var gerð á laugardag-
inn var en þá voru landsmenn enn
í vímu eftir skrautsýningu Dem-
ókrata í Atlanta þar sem Dukakis
var formlega útnefndur forseta-
frambjóðandi. Vera má að annað
hljóð verði komið í kanann þann
20. ágúst þvídagana 15.-18. ágúst
halda Repúblikanar sína auglýs-
ingahátíð og útnefna Bush.
En niðurstöður ofannefndar
könnunar urðu semsé þær að 51
af hundraði sögðust ætla að
greiða Dukakis atkvæði en að-
eins 34 af hundraði hyggjast
kjósa Bush. Þetta eru ótrúlega
svipaðar niðurstöður og fengust í
könnun vikuritsins Newsweek.
Þar vildu 55 af hundraði Dukakis
en 38 af hundraði Bush. Sami
munur eða 17 prósent.
En það var spurt um fleira. 54
af hundraði kváðust hæstánægðir
með meðreiðarsvein Dukakisar,
íhaldssaman öldungadeildaþing-
mann frá Texas, Lloyd Bentsen
að nafni. 19 af hundraði finnst
lítið til hans koma.
Og fleira kom í ljós sem til tíð-
inda má telja. Þrír af hverjum
fjórum Demókrötum er tóku
Ronald Reagan fram yfir Walter
Mondale árið 1984 hyggjast kjósa
Dukakis. 56 af hundraði banda-
rískra kvenna vilja Dukakis en
aðeins 26 af hundraði líst betur á
Bush.
Reuter/-ks.
Palestína
Verkföll
í dag
Palestínumaður lést í gœr
afskotsárum.
Allsherjarverkfall til þess
að vekja athygli á
slœmum
aðbúnaði palestínskra
kvenfanga í ísrael
Palestínumaður lést á sjúkra-
húsi í gær af völdum skotsára
sem hann hiaut þegar í odda
skarst með mótmælendum og ís-
raelskum hermönnum á sunnu-
dagskvöld.
Heimamenn á Gazasvæðinu og
herteknu spildunni vestan Jór-
danar sitja heima í dag. Allar
verslanir eru lokaðar, engin al-
menningsfarartæki ganga og eng-
ir verkamanna sem starfa í Israel
hafa haldið til vinnu. Allsherjar-
verkfallið er tileinkað palestínu-
konum í fangelsum fsraelsmanna
og á að vekja athygli á illri ævi
þeirra.
Palestínumaðurinn sem lést í
gær hét Hani Al-Turk og var 37
ára gamall. ísraelskir hermenn
særðu hann fjórum skotsárum í
róstum á Gazasvæðinu að kveldi
sunnudagsins var. Sjónarvottar
kváðu hermenn hafa skotið tára-
gassprengjum að syrgjendum
Turks þegar þeir hófu að reisa
vegartálma skammt frá heimili
hans að útför lokinni.
Al-Turk var 246. heimamaður-
inn sem ísraelskir hermenn drepa
á herteknu svæðunum Gaza og
vestan Jórdanar frá því upp-
reisnin hófst þar í desember í
fyrra.
Reuter/-ks.
íran/írak
Barist í norðri
íranir „hrósa sigri“ í
norðri. Brœðravígí
algleymingi við
Íslamabad-Gharb
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11