Þjóðviljinn - 23.12.1988, Page 6
Undanfarna daga hafa jólasveinamir
heimsótt Þjóðminjasafnið um leið og
þeir hafa komið til byggða. Þetta hef-
ur vakið mikla ánægju hjá yngstu
kynslóðinni sem hefur fjölmennt í
safnið og á miðvikudag þegar Ijós-
myndari Nýja Helgarblaðsins brá sór
á safnið voru um 500 börn mætt til að
heilsa uþþ á jólasveininn. Myndir
Þóm.
manna þjóðminjaráð skal fara
með yfirstjórn þjóðminjavörsl-
unnar í umboði menntamálaráð-
herra. í frumvarpinu sem lagt var
fram sl. vor var gert ráð fyrir
stjórnarnefnd yfir Þjóðminja-
safninu og hinsvegar fornleifa-
ráði, sem átti að vera þjóðminja-
verði til ráðgjafar.
Eftirfarandi aðilar eiga að
skipa fulltrúa í þjóðminjaráðið:
Minjaverðir og deildastjórar við
Þjóðminjasafnið, Félag íslenskra
safnmanna, Sagnfræðistofnun
Háskólans og Bandalag kenn-
arafélaga. Þjóðminjavörður er
framkvæmdastjóri ráðsins.
Reglugerð gerir ráð fyrir því að
tveir þessara manna séu að jafn-
aði fornleifafræðingar en það er
fulltrúi minjavarða og og deildar-
stjóra safnsins og fulltrúi Félags
íslenskra safnmanna.
Með þjóðminjaráði fæst stjórn
yfir alla þætti þjóðminjavörsl-
unnar, svo sem húsvemd, þjóð-
háttarannsóknir, fornleifarann-
sóknir o.fl. auk þess sem ráðið er
stjórnamefnd Þjóðminjasafns-
ins.
Þá fékkst sú breyting í gegn að
sérstök minaráð verði starfrækt í
hverjum landshluta sem skipuð
verða fulltrúum úr stjórnum allra
viðurkenndra safna á svæðinu og
er hlutverk minjaráðsins að sam-
Bjúgnakrækir hafði komið sér þægi-
lega fyrir á kommóðu inn í safninu.
um meðal erlendra ferðamanna.
Mikill áhugi er á því að opna
kaffistofu í tengslum við safnið
svo fólk geti sest niður og hvílt
sig, en slíkt er í flestum söfnum
erlendis. f teikningunni að nýja
innganginum er gert ráð fyrir
slíkri kaffistofu."
Nefndin
Nefnd sú sem Birgir ísleifur
skipaði í nóvember 1987 var
skipuð alþingismönnunum Sverri
Hermannssyni, sem jafnframt
var formaður, Guðrúnu Helga-
dóttur, Guðmundi G. Þórar-
inssyni og Kjartani Jóhannssyni.
Auk þeirra áttu eftirfarandi
starfsmenn safnsins sæti í nefnd-
inni; Þór Magnússon, þjóð-
minjavörður, Lilja Árnadóttir
safnvörður og Bryndís Sverris-
dóttir sáfnkennari, auk Þórunnar
Hafstein lögfræðings.
Þessi nefnd samdi frumvarp til
þjóðminjalaga, sem lagt var fyrir
neðri deild Alþingis í apríl sl.
Frumvarpinu var vísað til
menntamálanefndar neðri
deildar sem sendi það til umsagn-
ar ýmissa aðila, sem hlut eiga að
máli, en frumvarpið komst ekki
til annarrar umræðu.
Þegar Svavar Gestsson tók við
embætti menntamálaráðherra
sagði Sverrir Hermannsson af sér
formennsku í nefndinni svo
ráðherrann gæti skipað nýjan for-
mann. Svavar Gestsson endur-
skipulagði þá nefndina og tók
Guðrún Helgadóttir við for-
mennsku í nefndinni og Dan-
fríður Skarphéðinsdóttir og Óli
Þ. Guðbjartsson bættust við
nefndína, þannig að nú áttu allir
þingflokkar fulltrúa í nefndinni. f
kjölfar sátta menntamálaráð-
herra við Sturlu Kristjánsson,
fyrrverandi fræðslustjóra á
Norðurlandi eystra, sagði Sverrir
sig svo úr nefndinni og enn sem
komið er hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn ekki tilnefnt mann í
stað hans.
Hugmyndir
Kvennalistans
Mjög góð sarnstaða hafði verið
í nefndinni fram til þessa en með
breyttri nefndarskipan komu
fram nýjar hugmyndir og
seinkaði því málinu töluvert.
Fulltrúi Kvennalistans var ósátt-
ur við það að skrifa upp á óbreytt
frumvarp og vildi leita umsagna
víða og var orðið við því.
Meðal þeirra hugmynda sem
Kvennalistinn var áfram um, var
að fornleifarannsóknir heyrðu
undir væntanlegt umhverfismála-
ráðuneyti. Sú hugmynd fékk ekki
hljómgrunn meðal annarra nefn-
darmanna enda óhægt um vik þar
sem Þjóminjasafnið myndi heyra
áfram undir menntamálaráðu-
neytið.
Þjóðminjaráö
Aðrar breytingar sem komu
fram í haust og eru nú í frumvarp-
inu, sem lagt var fram fyrir
skömmu, eru þær helstar að fimm
6 SÍÐA NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 23. desember 1988
Þjóðminjasafn Islands
Þjóðminjasafn fslands var
stofnað 24. febrúar 1863. Það var
Sigurður málari Guðmundsson
sem vakti fyrst máls á nauðsyn
þess að stofnað yrði minjasafn á
Islandi og birti um það hugvekju í
Þjóðólfi í apríl 1862. Helgi Sig-
urðsson á Jörfa skrifaði svo opið
bréf í upphafi árs 1863 um nauð-
syn þess að setja á stofn forn-
gripasafn og jafnframt gaf hann
þjóðinni formlega nokkra gripi
sem vísi að safni. Stiftyfirvöld
brugðust skjótt við og í febrúar
var Jón Árnason bókavörður
gerður að umsjónarmanni fom-
gripasafnsins. Jón gat ekki sinnt
starfinu vegna anna og var Sig-
urður málari þá ráðinn umsjónar-
maður safnsins og var hann það
til dauðadags 1874.
Safnið hefur í gegnum tíðina
verið víða til húsa. Fyrst var það
til húsa á dómkirkjuloftinu. Það-
an flutti það í Hegningarhúsið við
Skólavörðustíg. Úr Hegningar-
húsinu flutti það í nýreist Alþing-
ishúsið árið 1881. Þaðan lá leiðin
í Landsbankahúsið árið 1899.
1907 voru sett lög um verndun
fornminja og Matthías Þórðarson
var ráðinn fornminjavörður.
Árið eftir flutti svo safnið í Safna-
húsið við Hverfisgötu og þar var
það næstu 40 árin að það flutti í
núverandi húsnæði við Hring-
braut.
Nú starfa 8 fastráðnir sérfræð-
ingar auk þjóðminjavarðar við
safnið. Auk þess eru starfandi við
safnið forvörður, tæknimaður,
safnkennari, tveir skrifstofu-
menn, einn í rannsóknarstöðu og
húsvörður. Þá em lausráðnir 2
sérhæfðir forverðir og yfir
sumartímann verður ævinlega
aukning í starfsliðinu, einkum við
fornleifarannsóknir. Auk þessa
fólks má nefna gæslumenn við
safnið.
Samkvæmt lögum á Þjóð-
minjasafnið að varðveita íslensk-
ar þjóðminjar í víðasta skilningi,
hvort sem það eru gripir í safninu
sjálfu eða fornminjar og friðuð
mannvirki.
Nálægt 20.000 safngripir em
skráðir í safninu og eru þá ekki
taldir með þeir munir sem heyra
til sérsafna innan þess, né heldur
mikill fjöldi jarðfundinna muna,
sem fundist hafa við fornleifa-
rannsóknir.
Auk minjavörslu og - söfnun
er skipuleg þjóðháttasöfnun
stundið í Þjóðminjasafninu og er
heimildasafnið orðið talsvert á
annað hundrað þúsund blað-
síður. Þá er hverslags myndefni
safnað og í myndasöfnunum
tveimur, Mannamyndasafninu
og Ljósmynda- og
prentmyndasafninu eru nú um
400.000 myndir.
Fræðslustarf safnsins hefur
aukist mikið á undanförnum
árum og árið 1987 heimsóttu
6.000 nemendur gmnnskóla safn-
ið í fylgd kennara.
-Sáf/ byggt á bœklingnum Þjóð-
minjasafn íslands 125 ára