Þjóðviljinn - 13.01.1989, Blaðsíða 11
Framtfðarskipulag
Miðbæjarins
Ýmsar hugmyndir hafa komist á kreik varðandi framtíðarskipulag Miðbæjarins í Reykjavík. Einkum hafa augu manna
beinst að svæðinu kringum Tjörnina og hafa komið upp hugmyndir að flytja Miðbæjarskólann til þess að koma þar fyrir
ráðhúsi, en flest þykir fólki betri lausn en sú að dengja ráðhúsinu á kaf í Tjörnina. Ljósmyndari blaðsins Þorfinnur
Ómarsson leggur þessa hugmynd í bankann að byggja spegilmynd áusturbakkans við vesturbakkann og nýta hið
tvöfalda Iðnó sem ráðhús. Með þessu móti hefur einnig Fríkirkjudeilan verið leyst og Gunnar getur fengið Vesturbakkann
en safnaðarstjórn Austurbakkann. Þá leysir þetta einnig umferðarvanda þann sem skapast hefur í Miðbænum því
aðkeyrsla í bæinn hefur verið tvöfölduð.
Þýðingar í Laugamesi
Heimsbókmenntimar verða á
dagskrá í Listasafni Sigurjóns
á sunnudag kl. 14.30. Þar verður
lesið úr þýddum skáldsögum sem
að undanförnu hafa komið út í
íslenskri þýðingu.
Tónlistar- og bókmenntadag-
skrár voru haldnar í Listasafninu
fyrir jól og var aðsókn að þeim
mjög góð, því hefur verið ákveð-
ið að hafa bókmenntakynningu
einusinni í mánuði fram á vor.
A sunnudag mun Álfheiður
Kjartansdóttir lesa úr þýðingu
sinni á bók P.D. James, Saklaust
blóð, Sigurður G. Tómasson les
úr þýingu sinni á Nunnur og mer-
menn eftir Iris Murdoch, Berg-
lind Gunnarsdóttir les úr þýðingu
sinni á Ást og skuggar eftir Isabel
Allende og Einar Már Guð-
mundsson les úr þýðingu sinni á
Steinsteypugarðinum eftir Ial
McEwan. Þá mun Ingibjörg Har-
Feodor Dostojefski
aldsdóttir fjalla um þýðingar
sínar á verkum Dostojefski og
lesa kafla úr Fávitanum.
Auk þess geta gestir notið yfir-
Isabel Allende
litssýningar á verkum Sigurjóns,
sem sett var upp í tilefni af vígslu
safnsins og fengið sér kaffi á
kaffistofunni.
Margir bókmennta- og tónlistarvið-
burðir hafa verið í Listasafni Sigurj-
óns frá því að það var opnað almenn-
ingi.
Iris Murdoch
Blikka rauðu Ijósin á Isafirði?
Veðurstofan gefur ekki grænt ljós
Nú velta menn því fyrir sér hvort „rauða Ijós" formanna A-flokkana er
skemmtun eða björgunaræfing. Af svip þeirra að dæma er um skemmtun að
ræða. - Mynd: Þóm.
Formenn Albýðuflokks og Al-
þýðubandalags, þeir Jón
Baldvin Hannibalsson og Ólafur
Ragnar Grímsson ætla að hefja
fundaherferð sína „á rauðu ljósi“
á ísafírði í dag. Fundurinn á að
fara fram í Alþýðuhúsinu, þar
sem Jón Baldvin kom í heiminn,
og hefur rótari ráðherranna,
Ámundi Ámundason sagt að
bæjarbúar verði minntir á fund-
inn með flugeldasýningu. Pétur J.
Hafstein sýslumaður Isafjarðar-
sýslu segir að ekki hafí verið sótt
um leyfí fyrir sýningunni, þannig
að svo gæti farið að rauð Ijós lög-
reglunnar á ísafirði blikki í upp-
hafí þessarar sögulegu fundaher-
ferðar.
Jens Markússon húsvörður
Alþýðuhússins var spurður að því
hvort einhver sérstakur undir-
búningur hefði átt sér stað fyrir
komu ráðherranna. „Bara eins
og fyrir hvert annað bíó,“ sagði
Jens og hafði greinilega ekki
miklar áhyggjur af uppistandinu.
Hann hafði hins vegar meiri
áhyggjur á veðurhorfum. Þegar
Nýtt Helgarblað ræddi við hann í
gær sagði hann ekki gefa vel til
flugs, það væri sunnan eða suð-
austan éljaskítur á ísafirði. En
mikið þyrfti að ganga á til að
flugfélagið Ernir flygi ekki, þann-
ig að þeir Ólafur og Jón kæmust
kannski með Örnum.
Sýslumaðurinn á ísafirði sagði
að ekki hefði verið sótt um leyfi
til flugeldasýningar í tengslum
við fundinn og las yfir reglugerð
um notkun flugelda sem hljóðar
svo: „Almenn notkun og sala á
flugeldum er óheimil nema á
tímabilinu 27. desember til 6.
janúar, að báðum dögum með-
töldum. Heimilt er lögreglustjóra
að veita leyfi til flugeldasýninga i
tengslum við hátíðarhöld eða
aðrar skemmtanastarfsemi, þar
sem almenningi er heimilaður að-
gangur. En undanþegnar þessu
leyfi eru hjálparsveitir og slysa-
varnafélög og önnur hjálpar- og
björgunarsamtök, ef notkun
skotelda er liður í þjálfun með-
lima. En tilkynna b*r lögreglu
um slíkar æfingar.“
Fundirnir fara fram eftir
bandarískri forsetakosningafor-
múlu og gætu orðið hinir
skemmtilegustu. Hins vegar er
einnig nokkuð öruggt að for-
mönnunum verði tíðrætt um.
bj örgunaraðgerðir ríkisstj órnar-
innar varðandi atvinnulífið.
Hvernig sýslumaður á ísafirði
bregst við flugeldasýningu for-
mannanna gæti því farið eftir því
hvernig hún verður skilgreind
samkvæmt reglugerð. Ef um
„hátíðarhald“ eða „skemmtun"
er að ræða er klárlega um lögbrot
að ræða, sæki formennirnir ekki
um leyfi fyrir flugeldasýningunni.
En sé um „björgunaræfingu" að
ræða ber formönnunum aðeins
að tilkynna sýninguna til lög-
reglu. Ámundi Ámundason hef-
ur sagt það koma til greina að
selja aðgang að fundum for-
mannanna þar sem þeir stæðu
einir að þeim fjárhagslega. Verði
það niðurstaðan verður líklega
að skilgreina fundinn sem
skemmtun, þar sem sjaldan er
selt inn á björgunaræfingar.
Húsvörður Alþýðuhússins
sagði það koma fyrir að vekja
þurfi bíógesti eftir sýningar.
Enda vinni ísfirðingar langan
vinnudag og séu þreyttir að hon-
um loknum. Sætin í Alþýðuhús-
inu eru líka sérstaklega þægileg
að sögn Jens. Hann bjóst þó varla
við því að fundagestir sofnuðu á
fundi formannanna þar sem báðir
væru þekktir fyrir að láta heyra
vel í sér. Hins vegar gætu fundar-
menn sofnað á 11-sýningu bíósins
sem verði að fundi loknum.
Veðurstofan segir að þykkna
muni upp með vaxandi suðaustan
átt á ísafirði í morgunsárið. Um
hádegi verði komið austan rok
með slyddu og snjókomu og sagði
sá sem varð fyrir svörum á veður-
stofunni að um og upp úr hádegi
kæmust formennirnir hvergi.
-hmp
FLÖSKUSKEYTI
Leiðinleg
upprisa
Frú Beauty Sitto, sem búsett er
í Afríkuríkinu Zimbabwe hafði
verið úrskurðuð látin í nokkra
daga þegar hún reis aftur upp frá
dauðum. Upprisan var ekki
skemmtileg að hennar mati. „Ég
hafði verið úrskurðuð látin í
nokkra daga þegar ég heyrði
einsog í draumi, fjölskyldu mína
skeggræða um mig og hvað hún
ætlaði að gera við sparifé mitt.
Systir mín, Innocent, var mjög
ágjörn svo ég settist upp og
sagði: Nú er nóg komið. Fjöl-
skyldan æpti og orgaði og flúði
burt. Smámsaman komst ég að
því að ég var stödd í kapellu
spítalans í Gwere. Ég var send
heim seinna sama dag þvj raf-
magnið fór af spítalanum. Ég er
einmana nú því enginn vill
heimsækja mig. Hinsvegar hef
ég fengið bréf frá fjölda fólks sem
vill forvitnast um það hvernig það
er að ve~ra dauður. Það er afar
óspennandi og ég hef engan
áhuga á að reyna það aftur."
Kurteis
þjófur
Á leið til kirkju bað brúðurin
bílstjórann að stoppa við sjoppu
og kaupa handa sér gos. Bílstjór-
inn hafði rétt yfirgefið bílinn þegar
óþekktur maður hoppaði upp í
bílstjórasætið og brunaði af stað
með brúðina og brúðarmeyna.
„Fyrirgefið stúlkur, en löggan er á
hælunum á mér,“ sagöi hann við
hina skelkuðu brúði sem var á
leið til eigin giftingar í Boston.
Henni tókst þó að tala manninn
inn á það að skutla þeim vinkon-
um fyrst til kirkjunnar áður en
hann héldi eitthvað út í buskann.
Þær þurftu þó að greiða honum
um fimm þúsund kall fyrir bíltúr-
inn. Brúðkaupið fór svo fram og
fengu kirkjugestir lögreglufylgd til
skemmtistaðarins þar sem
veislan var haldin. Til bílþjófsins
hefur hinsvegar ekkert spurst.
Um koll
eftir öld
Nú er talið að skakki turninn í
Pisa muni velta um koll eftir eina
öld. Á síðasta ári skekktist hann
enn um 1,29 millimetra, sem er
svipað og hann hefur gert árlega
síðan 1932, en þá var reynt að
styrkja undirstöðu turnsins með
þeim afleiðingum að hann skek-
ktist enn meira. Með þessu
áframhaldi er talið að það taki um
öld að turninn rifni upp með rót-
um.
Föstudagur 13. janúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 11