Þjóðviljinn - 24.02.1989, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.02.1989, Blaðsíða 3
Bræðrabönd Þeir bræður Jón Baldvin og Ólafur Hannibalssynir höfðu báðir ástæðu til fagnaðar í vik- unni. Jón Baldvin varð fimm- tugur og Ólafi fæddist dóttir daginn þar á undan. Hanni- " *■ « > « 8 r n- balssynir hafa því blandað blóði við helstu ættir pólitískra andstæðinga föður þeirra, Jón Baldvin við Schram- ættinaog Ólafurvið Engeyjar- og Thorsættina þar sem heitmey hans Guðrún Péturs- dóttir er þeirra ætta. Ólafur mætti því sem nýbakaður fað- ir í hálfrar aldar afmæli bróður síns og færði honum „þrettán krísur" eins og hann orðaði þaö þegar hann afhenti hon- um blómvöndinn. Þeir bræður líta út fyrir að vera vel sáttir hvor við sinn hlut og við ósk- um þeim bræðrum, Guðrúnu og nýfædda stúlkubarninu stórættaða alls velfarnaðar.B Ljósmæður leikhússins eða Slitinn naflastrengur „Maðurinn minn kallar mig jafnan mjög fallegu nafni og hefur gert lengi. Eg hef ævin- lega kunnað vel við það; Helga leikstjórabani. Hann segir að ég sé, að óreyndu, alltaf voðalega tortryggin í garð leíkstjóra. Ég held að hann hafi rétt fyrir sér, ég er að minnsta kosti tortryggin." Sagði Helga Bachmann í viðtali við Mannlíf í september ásamt Ingunni Ásdísardótt- ur - og Ingu Bjarnason, undirfyrirsögninni „Ljósmæð- ur leikhússins". Inga: Það er eitthvað sem ég held að sé afskaplegur kostur við mig og það er að þegar ég er að vinna með leikurum, þá er ég alltaf viss um að það séu bestu leikarar í heimi, hvorki meira né minna... Blaðamaður: Ég tók eftir því áðan að þegar Ijósmynd- arinn bað ykkur á einni mynd- inni að vera leikstjóralegar þá urðuö þið allar voðalega al- varlegar og harðar á svipinn. Er leikstjóri nauðsynlega þessi harði stjórnandi? Helga: Ef hann er það þá er hann bara asni. En ef hann er of mjúkur þá gengur það ekki heldur... Helga: Svo á að gleyma leikstjóranum á frumsýningu og þaðan í frá, fleygja honum. Inga: Finnst þér það? Helga: Já. Maðurverðurað vera mjög óeigingjarn í þessu starfi og slíta naflastrenginn... Það fylgir sögu að þegar viðtalið er tekið mun Helgi Skúlason þegar hafa sett það að skilyrði fyrir að þau hjónin lékju í „Virginíu Wolf“ aö Inga Bjarnason leikstýrði verkinu.B AEIG TILE Hugsaðu þér ferðafrelsið. Og möguleikana. Þú getur ekið vítt og breitt um Skandinavíu eða suður til Evrópu án þess að eyða stórfé í að leigja bíl. Með Norrænu getur fjöl- skyldan farið á ódýran og þægilegan hátt með sinn eigin bíl þangað sem hana langar. Þegar þú ferð á þínum eigin bíl x með Norrænu slærðu tvær flug- IN BIFREIÐ VRÓPU eða Evr- ópu. Þú ræður ferðatímanum og getur farið hvert á land sem er. Frá Bergen liggja leiðir til allra átta í Skandinavíu. Há- fjallafegurð Noregs og undirlendi Svíþjóðar er skammt undan að ógleymd- 1 um borg- u m sameina ferð um ísland á leiðinni til Seyðisfjarðar og utanlandsferð til Norðurlanda eins og Ósló og Stokkhólmi. Frá Svíþjóð er hægur vandi að komast með ferju yfir til Finn- lands og skoða þúsund vatna landið eða hina fögru höfuðborg, Helsinki. Frá Hanstholm í Danmörku liggja leiðir um Jótland til Kaupmannahafnar, ef vill og áfram um Skandinavíu, eða suður til Þýskalands og blasir Evrópa þá við í öllu sínu veldi. Við látum þig um ferðaáætlunina en flytjum hins vegar fjölskylduna og bílinn yfir hafið á þægilegan en óvenju skemmtilegan hátt. NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN AUSTFAR HF. SMYRIL-LINE ÍSLAND NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN LAUGAVEGUR 3 101 REYKJAVÍK FJ^RÐARGÖTU 710 SEYÐISFIRÐI SIMI 91-62 63 62 SÍMI 97-211 11 NU ER AD HROKKVA EDA STÖKKVA Hver fær milljónir álaugardaginn ? PS. Þú getur notað sömu tölurnar, viku eftir viku - með því að kaupa tveggja, fimm, eða tíu vikna miða Sími 685111. Upplýsíngasímsvari 681511.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.