Þjóðviljinn - 24.02.1989, Side 24

Þjóðviljinn - 24.02.1989, Side 24
verið! Þú rekst á bók eftir Jules Verne sem sendi börn Grants skipstjóra í endalausa föðurleit kringum hnöttinn og þú stóðst á öndinni tíu ára gamall yfir tvísýn- um úrslitum þess máls. Það var um sama leyti að þú last bók sem gerði strák að eldheitum norsk- um föðurlandsvini og hérna er hún: „Hamingjudagar heima í Noregi“ sem Sigrid Undset skrif- aði í útlegð meðan á stóð þýsku hernámi og ekki búið að hengja Quisling. Hér eru pólitísku bæk- urnar sem við æstum okkur út af í skóla, helvítis níð um kommún- ismann okkar náttúrlega, gefið út af MFA, já það er ekki að spyrja að krötunum! Þarna er „Líf og iist“ með viðtal við Sigurð Nordal sem er að minna unga menn á það að lífið er grimmt, eins gott að þeir skilji það strax. Líf og list! Ég hefi verið sextán ára þegar þetta hefti kom út og maður var að spyrja sjálfan sig: af hverju yrkir þú ekki kvæði eins og hinir, asn- inn þinn, og birtir í Líf og list? (Mér datt náttúrlega ekki í hug að láta mig dreyma um annan eins Parnass og Tímarit Máls og menningar, sem var allt að því heilagt rit). Já, allar þær kærustur. Þarna eru “Fimm synir“ eftir hann Howard Fast komnir eina ferðina enn, sú bók fjallar um uppreisn Makkabeanna, mjög vönduð söguleg skáldsaga sem gerðist furðu áleitin við ungling, enda fjallaði hún um litla þjóð og sér- vitra milli tveggja elda, milli tveggja stórvelda, og minnti ann- að á Hitler en hitt á Trúman. All- ar þær kærustur! Hvar mundi sú upptalning enda? Og þó er nokk- uð framorðið á þessum bóka- markaði, búið að fleyta ofan af, aðrir tóku það besta frá mér. Og svo eru margar kærustur vel geymdar heima og sumar urðu aldrei til nema sem gott áform: þig ætla ég að lesa einhverntíma. Einhverntíma seinna. Hvenær verður það? Og ég gekk út Keyptirðu þá ekkert and- skotinn þinn? gætu menn spurt. Jú, reyndar. Ég fór út með nokkur hefti af Tímaritinu Helgafelli frá árunum 1942 og 1943. Ég veit ekki hvers vegna. Kannski vegna þess að samtíð þessara tímaritshefta ber nokk- urnveginn upp á þann tíma sem minni mitt nær sæmilega til. Kannski vegna þess að ég sá í einu heftinu, að verið var að skýra frá fyrstu skoðanakönnun á íslandi. Svo langt er síðan af stað var farið með þá forvitni. Og hvað kom þá í ljós? Tja, til að mynda það, að þá töldu nær 47 prósent þeirra sem spurðir voru að dýrtíðin (þ.e.a.s. verðbólgan) væri stærsta vandamálið sem að þjóðinni steðjaði. Það er satt að segja furðulegt að verðfall pen- inganna sem mölur og ryð granda er margfalt meira áhyggjuefni ís- lendingum en t.d. „stjórnarfar“ (þar undir falla „stjórnmálaspill- ing‘,‘að koma á vinstri stjórn, út- rýma kommúnistum eða Fram- sóknarmönnum osfrv,). Aðeins 13,3% vildu setja þau mál á oddinn. Enn færri, eða 11,7%, settu „siðferðis- og menntamál" efst á blað. Og voru þó þar undir engin smámál í hersetnu Iandi þar sem erlendir hermenn voru jafnmargir íslenskum körlum eða fleiri - því með þessum mála- flokki var átt við „ástandið" (samband kvenna við hermenn), verndun tungunnar, uppeldis- mál, áfengismál ofl. Það kom líka fram í þessari fyrstu skoðana- könnun að 80 prósent Reykvík- inga töldu það misráðið að fara að smíða Hallgrímskirkju strax. Hún reis nú samt. Kurteisisheimsókn Ég ætla ekki aö segja ykkur hvað þaö er gott aö koma í bókabúö. Öll sú viska sem þar ersaman komin, maðurguðs! Öll sú reynsla! Öll þau hrapal- legu mistök og heimskupör! Aöógleymdum ilminum. Maður lyftist allur og hrífst með í merkilegu uppstreymi og það er eins og allt geti gerst. Ófyrirsjáanleg veiðiferð Nú hefur verið tími bókamark- aða. Og það er vitanlega gott að koma á bókamarkaði, hver neitar því. Bókamarkaður er uppá- koma og veiðiferð. í þeirri ferð veiðir þú eða ert veiddur á ósköp ljúfan hátt. Viðkoma á bóka- markaði endar alltaf á því að þú kaupir eitthvað sem er merkilegt á þeirri stundu og heldur kannski áfram að skipta þig máli, hver veit. Það getur líka meira en ver- ið að þú hnussir um leið og þú kemur heim og skoðar fenginn; hvern fjandann var ég að gera núna? Og allar hillur fullar, líka þessar frammi á gangi. Líka þess- ar niðri í geymslu. Vertu oss skjól og hlíf Það er líka dapurlegt að koma á bókamarkað. Þú labbar þig til dæmis inn á markaðinn hjá Braga sem nú er fluttur í húsakynni Bókabúðar Snæbjarnar við Hafnarstræti. Þú kemst í veiði- skap náttúrlega, eins og fyrr var sagt. En þú verður líka eilítið hnugginn um leið og þú lítur eftir þessum löngu röðum af bókum sem horfa á þig þreyttum augum og biðjast ásjár. Vilja eignast at- hvarf. Og hafa bersýnilega átt erfiða útivist sumar. Þær eru líka svo óendanlega hógværar í kröf- um til þinnar buddu: taktu mig fyrir þriðjunginn úr sígarettu- pakka, taktu okkur tuttugu syst- urnar fyrir verð einnar brenni- vínsflösku! Sástu það ekki í blað- inu að einn dagur í frægri lax- veiðiá mun kosta hundrað og tíu þúsund krónur næsta sumar? Þú gætir keypt hálfa búðina fyrir það. Hugsaðu þér annað eins. Eða viltu kannski að við brenn- um í eldi loganda? Nei, helst viljum við komast hjá því. Það er eitthvað ósiðlegt í þvf að henda bókum. Það er sett siðferðilegt bann gegn slíku í sál- inni eins og við því að henda mat. En við vitum líka að slíkt bann er á undanhaldi, þótt skömm sé frá að segja. Úti í löndum eru kræfir strákar úr viðskiptadeildunum teknir við bókaútgáfu og bók- sölu. Þeir hafa enga samúð með vegalausum bókum, þeir vita hinsvegar nákvæmlega hvað það kostar að geyma bækur sem ganga seint út. Þeir vita allt um kóeffísíent hillumetrans. Og þeg- ar þeir hafa reiknað það dæmi, þá taka þeir heilu upplögin eða svo gott sem og setja í hakkavél. Jafnvel bækur sem komu út í fyrra. Jafnvel bækur sem komu út fyrir sex mánuðum. Aldrei munu þær koma á bóka- markað og kosta fimmtíukall eða hundraðkall. Kirkjugarður ótal drauma Bókamarkaðurinn er kirkju- garður ótal drauma. Drauma sem einhverjir náungar áttu um að hagnast fljótt og vel á bókaút- gáfu. Drauma þeirra sem fundu bráðnauðsynlegan sannleika í út- lendu bókartetri, sem tilviljun skolaði á land hjá þeim, og þeir máttu til með að þýða skræðuna og koma henni út til vanþakk- látra landa sinna. En fyrst og síð- ast er bókamarkaðurinn kirkju- garður skáldadraumanna, þó nú væri, hinna síbernsku og bráð- nauðsynlegu drauma sem gera ráð fyrir því að það sé ómaksins vert að bæta við ljóðasafni og skáldsögu, eins þótt um flest sé búið að skrifa fyrir löngu og um margt bara vel. Skyldu bátar mínir róa í dag? spurði nafni minn í Botni. Kirkjugarður bókadraum- anna, sagði ég. Það er dapurlegur staður og angurværðarpláss en kirkjugarður er náttúrlega virðu- legri og miskunnsamari endastöð draumanna en hakkavélin eða bálkösturinn. Það segir sig sjálft. Hver maður sín bók Sá sem gengur um bókamark- að er einnig minntur á það vel og rækilega að aldrei verður skortur á heimsku og hégómaskap. Mikið er það drasl, herra minn sæll og trúr, til hvers var nú þessi leiðindahrútur hér að Iáta skrá ævisögu sína? Af hverju vildi hann endilega eignast minnis- varða í bók? Minnisvarða um hvað? Og þá kemur upp í hugann þjóðráð sem ungur þýskur rithöf- undur fann sér til framfærslu. Hann auglýsti í blaði, að hann tæki að sér að skrifa endurminn- ingar fólks. Hann vissi sem var, að margir mundu þeir verða sem væru til með að leigja sér rit- höfund í svo sem sex vikur, sýna HELGARPISTIL ' --- ...... ....—. 24 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 24. febrúar 1989 Ku ÁRNI BERGMANN honum gömul bréf og ljósmynd- ir, masa inn á spólur og láta hann skrá svosem tvöhundruð síðna bók. Og svo er bókin prentuð í tveim eintökum eða fimm, bara fyrir bömin, fyrir nánustu ætti- ngja, fljótlegt að láta tölvuprent- ara spýta þessu út úr sér, lítur barasta þokkalega út. Hver mað- ur sín bók, er það ekki jafnréttisdraumurinn sjálfur? Sjálfur sósíalisminn í bókafram- leiðslu? Er þetta ekki kristin hug- mynd líka: allir menn jafnir fyrir guði ( og Landsbókasafninu.) ? Samt er ég viss um að íslendingar fara aldrei inn á þessa braut. Þeir væru vissulega fúsir til að leigja sér rithöfund, því ekki það. En þeir mundu aldrei gefa út bók í færri en hundrað eintökum. Þeir munu virkja alla ættina og vinnu- félagana og skólafélagana gömlu og sveitungana. Þú getur ekki verið þekktur fyrir annað en vera með. Hundrað eintök, nei hvaða vitleysa, minnst þrjú hundruð! Allar gömlu kærusturnar Bókamarkaður er líka stefnu- mót við fortíðina. Þú rekst á gamlar kærustur í stómm stíl: skelfingar lausung hefur þetta í bókakirkjugarðinn

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.