Þjóðviljinn - 24.02.1989, Side 6

Þjóðviljinn - 24.02.1989, Side 6
Fimm dagar í B-daginn Bjór er ekki gosdrykkur. 6 tegundir verða til sölu hjá ÁTVR til að byrja með. 3 innlendar og 3 erlendar. Verð frá 87 til 120 krónur. Bjórneyslaþungaðra kvenna getur haft í för með sér skemmdir á miðtaugakerfi fósturs Tímamót verða í áfengisneyslu Islendinga um næstu mánaða- mót, eftir fimm daga, þegar hægt verður að kaupa áfengt öl í versl- unum ATVR og á þeim veitinga- og matsölustöðum sem hafa leyfi til að selja áfenga drykki. í gegn- um tíðina hafa skoðanir lands- manna verið mjög skiptar í af- stöðunni til bjórsins. Andstæð- ingar hans hafa fundið honum allt til foráttu og haldið þvi fram að með honum muni drykkjuskapur aukast með tilheyrandi áfengis- vandamálum sem þykja næg fyrir. Stuðningsmenn hans hafa hinsvegar ekki látið sitt eftir liggja og hafa sagt að með tilkomu bjórsins muni drykkjuvenjur Is- lendinga breytast til batnaðar. Hér verður engin afstaða tekin til þessara sjónarmiða en hitt er staðreynd að meirihluti Alþingis hefur samþykkt bjórinn og núna er hann að koma hvort sem mönnum líkar það betur eða verr. Síðan verður reynslan að skera úr um hverjar afleiðingarn- ar verða. Engu að síður eru menn þegar farnir að spá í spilin og sýnist sitt hverjum. Til eru þeir sem eru hræddir um að íslendingar leggist í almennt bjórfyllerí en aðrir halda því fram að tilkoma bjórs- ins sé ekki sú nýjung sem sumir vilja vera láta þar sem hér hafi verið hægt að kaupa bjór ef vilji hafi verið fyrir hendi. Af hálfu lögreglunnar óttast menn að ölvunarakstur muni fær- ast í vöxt en vilja þó engu spá hversu mikið en vona þó að svo verði ekki. Umferðarráð er með ýmis forvarnarverkefni á döfinni og svo hafa félagar úr SÁÁ verið á ferð og flugi um landið til að upplýsa menn um skaðsemi bjórsins. Veitingamenn eru með upp- brettar ermar í að gera allt klárt fyrir miðvikudaginn og hugsa sér gott til glóðarinnar og ekki stend- ur á fjölmiðlum að kynda undir tilhlökkun almennings og þykir mörgum nóg um. En hvernig sem allt fer er því ekki að neita að mikil spenna er hjá mörgum, enda skiljanlegt í ljósi þess að hér hefur almenningi ekki gefist kostur á að verða sér úti um bjór eins og annað áfengi frá því 1915. e Ekki allir viö sama borö Þrátt fyrir að rúmt ár sé liðið frá því meirihluti Alþingis sam- þykkti bjórinn og undirbúnings- tími ÁTVR hafi verið nægur munu landsmenn ekki sitja við sama borð hvað snertir fjölda þeirra bjórtegunda sem verslanir ÁTVR hafa fram að bjóða. Á höfuðborgarsvæðinu og í stærri verslunum ÁTVR verður hægt að velja á milli 6 bjórtegunda en á ýmsum stöðum úti á landi þar sem húsnæði Áfengisverslunar- innar er lítið verða viðskiptavin- irnir að reiða sig á tegundaval úti- bústjórans. Að sögn skrifstofustjóra ÁTVR mun bjór verða kominn í alla 17 útsölustaði fyrirtækisins á miðvikudaginn, 3 innlendar og 3 erlendar bjórtegundir. Ekki verður hægt að kaupa minna í einu en 6 bjóra eða þá heilan kassa til að byrja með. Seinna meir má búast við að hægt verði að velja á milli fleiri tegunda en hverjar þær verða hefur hinsveg- ar engin ákvörðun enn verið tekin. Verö frá 87 til 120 krónur Eins og kunnugt er hefur fjármálaráðuneytið tekið upp þá nýbreytni í verðlagsmálum áfengra drykkja að hafa þá veikari ódýrari en sterk vín dýr- ari. Bjórandstæðingar höfðu vonast eftir að fjármálaráðuneyt- ið myndi hafa bjórinn sem dýrast- an en sú von hvarf með hinni nýju stefnu ráðuneytisins. Þess í stað lækkaði ráðuneytið verðið frá því sem ákveðið var í fyrstu og mun hann kosta frá 87 til 120 krónur út úr verslunum ÁTVR en að sjálf- sögðu mun dýrari þegar hann er keyptur á vínveitingastað. Skila- gjald verður 5 krónur. Samkvæmt þessari ákvörðun fjármálaráðuneytisins verður Sanitas pilsner ódýrastur á 87 krónur með 4,6% styrkleika en Kaiser sá austurríski dýrastur á 120 krónur. Að öðru leyti er verðlagning hinna bjórtegund- anna sem almenningi gefst kostur á að kaupa fyrsta kastið eftirfar- andi: Dós af Egils-Gull á 100 krónur en flaskan á 95, Sanitas lageröl kostar 110 krónur en flaskan 105, dós af Lövenbrau 105 en flaskan 100 krónur. Af innfluttum bjórtegundum öðrum en Kaiser kostar Budweiser 105 krónur og Tuborg 112 krónur. Veitingahúsin gera klárt Eins og gefur að skilja er hugur í veitingamönnum og hyggja margir þeirra gott til glóðarinnar einkum á höfuðborgarsvæðinu þegar bjórinn verður leyfður. Margir þeirra minnast enn hinna góðu daga, að eigin sögn, þegar bjórlíkið var og hét, en þá drukku menn sterkt áfengi blandað sam- an með pilsner. Sú sæla var þó skammvinn og önduðu bindindis- menn þá léttar. Þó renna veitingahúsamenn blint í sjóinn hvað varðar kom- andi aðsókn og illar tungur fjöl- yrða að templarar hafi pantað upp öll borð á krám höfuðborgar- innar til að koma í veg fyrir hátíð bjórsinna að einhverju leyti. Það sem einna mest fer fyrir brjóstið á veitingamönnum er að þeir fá ekki að kaupa bjórinn á heildsöluverði heldur á smásölu- verði og finnst að gróðinn af sölu hans verði af þeim sökum ekki eins mikill. Það gráta víst fáir aðr- ir en þeir því hagsmunir almenn- ings eru, að hann verði sem ódýr- astur því nógri er dýrtíðinni fyrir að fara. í dag verður fundur með veitingahúsamönnum og for- stjóra ÁTVR um málið en óvíst er að veitingahúsamönnum verði að ósk sinni að fá bjórinn á heildsöluverði. Leyfileg álagning veitingahúsa er 50% þegar áfengi er borið frarn í heilum eða hálfum flöskum og gilda sömu reglur um bjór og annað áfengi. Sé fram- reitt í minni skömmtum má leggja80% áinnkaupsverðið. Að auki má veitingahúsið leggja á þjónustugjald sem er algengast 15%. Að síðustu bætist við 25% söluskattur. Ég held ég gangi heim Að sögn Sigurðar Helgasonar hjá Umferðarráði fékk ráðið Valgeir Guðjónsson í lið með sér til að semja penan áróður gegn ölvunarakstri sem heitir Ég held ég gangi heim. Ennfremur hefur Umferðarráð látið prenta vegg- spjöld í sama tilgangi sem verða hengd upp á áberandi stöðum á veitingahúsum. Sigurður segir enga launung vera á því að menn eru hræddir um afleiðingar bjórsins og þá sér- staklega hvað varðar tilhneigingu manna til að vanmeta áhrif hans á akstursgetu sína. En fyrir þá sem ekki vita samsvarar ein bjórdós því að menn hafi drukkið einn einfaldan af sterku víni. Eftir helgina mun Umferðarráð kalla til blaðamannafundar þar sem forvarnarstarf þess mun verða nánar kynnt en ráðið vinnur að því í náinni samvinnu við nefnd sem stofnuð var til átaks til áfeng- isvarna. Þó vekur það athygli að stjórnvöld hafa ekki séð sóma sinn í því að úthluta Umferðar- Lok lok og læs fram á miðviku- dag. ráði auka fjármagni til að vinna að forvarnarstarfi vegna tilkomu bjórsins. Aðspurður hvort ráðið yrði ekki að setja til hliðar önnur verkefni á meðan nýjabrumið væri á bjórnum sagði Sigurður að það yrði að velja á milli verkefna og núna yrði höfuðáherslan lögð á forvarnarstarf vegna bjórsins. Sigurður er ekki hrifinn af bjórumfjöllun fjölmiðla sem hann segir nánast vera hlægilega og engu líkara en að þjóðhöfðingi sé að koma í heimsókn þegar ver- ið er að lýsa komu bjórgáma til landsins. Afleiðingin sé að al- menningur er mun spenntari fyrir bjórnum en ella og væntingarnar til hans meiri en góðu hófi gegnir. Lögreglan í viðbragðsstöðu Ómar Smári Ármannsson að- alvarðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík sagði að lögreglan 6 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 24. febrúar 1989

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.