Þjóðviljinn - 24.02.1989, Page 7
Vonandi ganga íslendingar hægt um gleðinnar dyr á miðvikudaginn þegar nýju bjórlögin ganga í gildi sem
og í næstu framtíð og kunni sér hóf í neyslu bjórs. Mynd: Jim Smart.
mundi hafa vakandi auga með
allri umferð þegar bjórinn kemur
en að öðru leyti yrði ekki um
neina stökkbreytingu að ræða í
forvarnarstarfi hennar frá því
sem nú er.
Hinsvegar verða breytingar í
töku blóðsýna af þeim öku-
mönnum sem teknar yrðu vegna
gruns um ölvun við akstur. Þær
eru í því fólgnar að læknir mun
verða til taks á lögreglustöðinni
við Hverfisgötu til að taka blóð-
sýni í stað þess sem verið hefur að
fara með hinn grunaða á Slysa-
varðstofuna Við þessa breytingu
verða öll vinnubrögð við töku
blóðsýna mun skilvirkari en
áður.
Að öðru leyti sagði Ómar
Smári að erfitt væri að spá
nokkru um þær afleiðingar sem
bjórinn mun hafa á framferði al-
mennings og akstur ökumanna.
Til þess væru óvissuþættirnir í
þessum efnum of margir. En í
þessu mál sem og í öðrum yrði
lögreglan vakandi fyrir öllum
breytingum og mundi bregðast
við þeim eftir aðstæðum hverju
sinni.
Áhrif bjórdrykkju
á fóstur
Ólafur Ólafsson landlæknir
hefur óskað eftir því við
heilbrigðisráðherra að varúðar-
miðar verði settir á bjórinn þar
sem varað væri við skaðsemi
hans. Landlæknir segir það sann-
að mál að áfengisdrykkja í litlum
mæli eins og bjórneysla hafi
skaðleg áhrif á miðtaugakerfi
fósturs. Afleiðingin væri að við-
komandi barn yrði minna, óró-
legra og ætti erfitt uppdráttar í
skóla og einnig yrði einbeiting
þess minni en annarra.
Landlæknir sagði það vissu
sína að rikjandi áfengistíska væri
undirrót vímuefnavandans og
með tilkomu bjórsins mundi það
ekki minnka nema síður væri. Þá
sagðist Ólafur ekki vita annað en
að rotvarnarefni væru í bjórnum
og eitthvað af næringarefnum
væri einnig að finna í honum.
Mun draga úr
bjórsmygli?
Margir velta því fyrir sér hvort
tilkoma bjórsins muni leiða til
þess að bjórsmygl muni leggjast
af þegar almenningur getur keypt
sér bjór á heiðarlegan hátt í versl-
unum ÁTVR. Kristinn Ólafsson
tollgæslustjóri sagði að embættið
hefði enga opinbera skoðun á því
en persónulega héldi hann að það
mundi minnka í ljósi þess hve
hagnaðarvonin yrði minni fyrir
vikið hjá þeim sem það stunda. Á
síðasta ári gerði Tollgæslan upp-
tæka 39.642 bjóra, 19.091 árið
1987 en hvorki fleiri né færri en
54.971 árið 1986. Stærsti einstaki
farmurinn sem Tollurinn hefur
komist höndum yfir af bjór í einu
var þegar heill gámur sem átti að
vera tómur reyndist vera fullur af
bjór. í honum voru 24.440 bjórar
sem er mun meira en allt það sem
Tollgæslan gerði upptækt 1987.
Bjór er ekki
gosdrykkur
Nýlega samþykkti bæjarstjórn
Siglufjarðar með öllum greiddum
atkvæðum tillögu sem ísak Ólafs-
son bæjarstjóri flutti þar sem
bjórneysla er bönnuð á vinnu-
stöðum bæjarins. Þá var enn-
fremur samþykktur sérstakur
viðauki við tillöguna þess efnis að
skora á önnur fyrirtæki í bænum
að gera hið sama.
Að sögn bæjarstjórans var til-
lagan flutt til að taka af öll tví-
mæli um að bjórinn væri áfengi
en ekki gosdrykkur. Þessi sam-
þykkt bæjarstjórnar Siglufjarðar
er hin fyrsta svo vitað sé sem er
gerð til þess að sporna við bjór-
drykkju í vinnutímum. Þegar síð-
ast fréttist var búið að hengja
samþykkt bæjarstjórnarinnar á
áberandi staði á vinnustöðum
bæjarins sem og hjá öðrum fyrir-
tækjum á Siglufirði.
Sitt sýnist hverjum
En hvað sem öllu líður er bjór-
inn á næsta leiti og ekki að ófyrir-
synju að svolítill spenningur sé
kominn í þorra almennings sem
ekki hefur haft aðgang að honum
nema í ferðum sínum erlendis og
við brottför og heimkomu í Frí-
höfninni á Keflavíkurflugvelli.
Eins og gefur að skilja hrýs
mörgum hugur við þessari viðbót
sem bjórinn óneitanlega er við
það áfengi sem er fyrir á boðstól-
um hjá ATVR. Þeir svartsýnustu
sjá skrattann í hverju horni og
búast við hinu versta, en aðrir
taka komu bjórsins með stóískri
ró og vilja bíða með alla dóma
fyrr en einhver reynsla er komin á
neyslu hans.
-grh
Föstudagur 24. febrúar 1989 N T HELGARBLAÐ - SÍÐA 7
Bjór til annars
en drykkjar
Getum við gert eitthvað annað við bjórinn en að drekka hann?
Svokallaðar gúmmíplöntur, sem hafðar eru til skrauts á nær hverju
heimili öðlast sældarlíf og fagran gljáa séu þær baðaðar upp úr bjór
svona einu sinni til tvisvar á ári.
Bjórinn er einnig þarfaþing í nautgriparækt, sé hann nýttur sem
fóðurblanda, en síkt tíðkast í Japan við holdanautaeldi. Vöðvar
nautgripanna verða þá sætir og stinnir og með tilheyrandi svæðanuddi
verður kjötið kröftugt, meirt og safaríkt.
Danir nota til að mynda bjór í brauðsúpuna í stað maltölsins hér hjá
okkur, enda kalla þeir hana Öllebröd.
Bjór hefur einnig verið nýttur talsvert til baksturs og hefur hann góð
áhrif á gerjun brauðsins.
í tilefni af komu mjaðarins, birtir Helgarblaðið tvær uppskriftir þar
sem bjórinn gegnir nokkru hlutverki, annars vegar að bjórbrauði og
hins vegar kartöflurétti.
Bjórbrauð
f brauðið þarf eftirfarandi:
50 gr pressuger
3.5 dl bjór
1.5 dl mjólk
0,5 dl matarolíu
0,5 dl síróp
1 tsk salt
1 tsk blandað brauðkrydd
6 dl rúgmjúl
6 dl heilhveiti
2-3 dl hveiti
Byrjið á því að velgja bjórinn
og mjólkina þannig að þau nái 37
gráðum eða þannig að óhætt sé
að stinga fingri oní án þess að
brenna sig. Brytjið síðan gerið
niður í skál og hrærið helming-
num af vökvanum útí, þess ber að
gæta að hræra ekki of kröftug-
lega. Hellið síðan hveitiblönd-
unni, þ.e.a.s. hveitinu og krydd-
inu útí, og hrærið varlega með
afgangi vökvans þangað til mas-
sinn losnar frá skálinni og klessist
hvergi við. Að þessu loknu þarf
brauðið að gerjast, ber því að
breiða yfir það hreint viskus-
tykki, og bíða átekta í 40 mín.
Að því loknu á að hnoða deigið
vel og koma því í tilheyrandi form
á plötu og láta það síðan gerjast
aftur í 30 mín. Brauðin bakast
best í neðri hluta ofnsins við 175
gráðu hita í u.þ.b. 45 mínútur.
Penslið síðan brauðin er þau
koma úr ofninum og látið þau
kólna undir stykki.
Kartöflugratín meö bjór
Uppskriftin er ætluð 2-3 fullorðn-
um. Þetta þarf:
500 gr hráskrældar kartöflur
125 gr beikon
1 dl rjómi
1,5 dl Ijós bjór
1 699
salt og pipar
1 -2 dl rifinn ost
Steikið fyrst beikonið lítillega
og skerið kartöflurnar í þunnar
sneiðar. Smyrjið ofnskúffu og
raðið kartöflusneiðunum í hana í
lögum, þannig að beikonið
blandist vel milli laga. Kryddið
með salti og pipar og leggið síðan
beikonsneiðar efst og stráið osti
yfir.
Þeytið síðan saman rjómanum,
egginu og bjórnum og hellið
blöndunni yfir kartöflurnar.
Réttinn á að baka í ofni við 225
gráðu hita í 30-40 mínútur.
eb