Þjóðviljinn - 24.02.1989, Blaðsíða 26
f'/
5
1 T~ T~ ¥■ 5” fo T' 52 T~ /o \) ii 12 )3
H IS~ T~ 52 /6 3 17- )2 52 W~ 2? ) 9 52
20 52 Z/ Zl )Z 5? w 7- 8 23 13 T iT )S 10
y 2 23 # )É 5T 17- 2Ý ZiZ /3 21 8
& Z(o 23 a T 8 23 8 JT 23 13 52 2 ié
ZT /$ 5? 5" 2? Z2 52 11 )o 5" 13 )# 52
zs Z^ j T ZJ 13 7- /3 52 s W~ V 3o
19 52 31 13 2 52 ¥ zé 2 52 5 Ý 18
) n J3 23 jt- 18 y\ )/ )8 1 23 É )2 13
52 ZJ 52 (? /8 13 2 2 52 % J3/ 52 )J 2J
5~ Vf )V w~ 52 1 b 2$ 2 18 1 23 S2
// J3 12 52 w )2 JZ /5 J2 '22 )Z )7 ZÝ i
32 2 $ 21 W 52 )3 Vf 7 17- 12 52 2 n
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Verðlaunakrossgáta
Nr. 32
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjarnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla
6, merkt: „Krossgáta nr. 32“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin
verða send til vinningshafa.
22 32 2 $ 18 °) ¥ 2H 2Í
Lausnarorðið fyrir verðlaunakrossgátu nr. 29 var SMÁRAGRUND.
Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Magnúsar Sigurðs-
sonar Gaukshólum 2 í Reykjavík. Hann fær senda bókina Paskval
Dvarte og hyski hans eftir Camilo Jose Cela.
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 32 er
skáldsaga Einars Kárasonar, Þar
sem djöflaeyjan rís. Mál og
menning gaf út.
MATU
Hrísgrjón með
reyktum f iski
Undirstöðulandbúnaður í
strandhéruðum Karabíska hafs-
ins í Kólumbíu er hrísgrjónarækt
og eru því hrísgrjón yfirleitt borin
fram með öllum mat. Þau eru
matreidd á ýmsan máta, steikt,
soðin upp úr kókosmjólk, soðin
með ýmsu grænmeti eða
baunum, kjöti eða fiski, þannig
að næg er fjölbreytnin þó svo þau
séu borðuð daglega. Hrísgrjón
með reyktum fiski þóttu áður fyrr
fátækramatur enda eingöngu
reyktur sá fiskur sem farið var að
slá í og úldna og því ekki nothæf-
ur til annars. En tímarnir breytast
og nú þykja hrísgrjón með
reyktum fiski með fínni hrís-
grjónaréttum og boðlegur hvaða
gourmet sem er. Með smá hug-
myndaflugi má (svo) breyta
uppskriftinni að vild, setja kjúkl-
ing, eða annað kjöt í stað fisks
eða sleppa því alveg og gera
grænmetishrísgrj ón.
Fyrir 4-5.
4-5 flök af reyktum karfa eða 2-3
af reyktri ýsu (eftir stærð)
3-4 bollar af hrísgrjónum
1 paprika
3 sellerísleggir
1 stór laukur
2-3 stórar gulrætur
3 hvítlauksrif
1 lítil dós grænar baunir
1 lítil dós maískorn
tómatkraftur
matarolía
kúmenduft
pipar
salt
I. Hrísgrjónin brúnuð upp úr
matarolíu þar til þau verða
gullinbrún á lit. Bætið á vatni
eftir þörfum en athugið að
minna vatns er þörf og suðu-
tími styttri en ella, þegar grjón-
in eru brúnuð fyrst.
II. Skerið reykta fiskinn í teninga
ca. 1-2 sm á kant og látið helm-
ing hans sjóða með hrísgrjón-
unum.
III. Grænmetið saxað í smáa bita
og brúnað á pönnu. Setjið fyrst
laukinn og hvítlaukinn og
kryddið vel með kúmendufti.
Bætið síðan í gulrótum, papr-
iku og síðast selleríi. Af-
gangnum af reykta fiskinum er
bætt útí grænmetisblönduna,
ca. 2 teskeiðum af tómatkrafti
sömuleiðis, vatni hellt yfir þar
til það þekur grænmeti og fisk.
Kryddið með salti og pipar og
kúmendufti eftir smekk. Látið
sósuna malla á vægum hita þar
til hún fer að þykkna, bætið þá
út í hana grænu baununum og
maískorninu.
IV. Þegar hrísgrjónin eru soðin,
blandið þeim þá vel saman við
grænmetissósuna og berið fram
með brauði.
SIGRÍÐUR ELFA
SIGURÐARDÓTTIR
CHEO CRUZ
TAROT
Hilmar Om
Hilmarsson
Tákn og merking spilanna
í staðinn fyrir spjall um heima
og geima ætla ég að fara út í þurra
upptalningu á Trompspilunum,
þeim táknum og merkingum sem
menn hafa gefið þeim.
Trompspilin eru 22 og eru tölu-
sett með rómverskum tölum frá
1-21, þ.e. I til XXI, en að auki þá
er eitt spil, Fíflið, sem er gefin
talan núll eða 0. Núllið á að vera
komið frá aröbum þótt ýmsir vilji
deila um það, en hugtakið
„Zero“ ku vera dregið af ara-
bíska orðinu „zro“ sem merkir
sæði. Á þessum síðustu og verstu
tímum þykir viðsjárvert að fara
útí arabíska trúfræði svo ég sleppi
öllum hugleiðingum um þetta
hér, en vind mér bara út í þetta.
Fyrst kemur trompspil 0, Fíflið
eða Dárinn. Það tengist frumefn-
inu Lofti og hebreska bókstafn-
um „Aleph“. Það merkir hug-
myndir, andlegheit, heppni,
innblástur.
Næst er Spil I, Galdramaður-
inn. Það tengist plánetunni
Merkúr og hebreska bókstafnum
„Beth“. Merkingin er viska,
sveigjanleiki, klókindi og
sannfæringarkraftur.
Síðan spil II, Meyprestur. Það
tengist Tungli og hebreska bók-
stafnum „Gimel“. Hrein og upp-
hafin áhrif sem geta breytt
hlutum með því að opinbera ræt-
ur eða undirliggjandi merkingu
aðstæðna.
Spil III, Keisaraynja. Tengist
plánetunni Venus og hebreska
bókstafnum „Daleth“. Merking-
in er ást, fegurð, velgengni og
hamingja.
Spil IV, Keisarinn. Tengist
stjörnumerkinu Vatnsbera og he-
breska bókstafnum „Tzaddi".
Hann táknar sígra, stöðugleika,
átök sem leiða að lokum til vel-
farnaðar.
Spil V, Hofgoðinn. Tengist
stjörnumerkinu Nauti og he-
breska bókstafnum „Vau“.
Táknar guðlegan innblástur,
festu og hjálp að ofan hvort sem
það er frá guði eða forstjóranum.
Spil VI, Elskendurnir. Tengj-
ast stjörnumerkinu Tvíbura og
bókstafnum „Zain“. Innsæi,
greind, næmi fyrir utanaðkom-
andi áhrifum.
Spil VII, Vagninn. Stjörnu-
merkið Krabbi og hebreski bók-
stafurinn „Cheth“. Sigur, von,
hlýðni, góð heilsa.
Spil VIII, Réttlæti. Stjörnu-
merkið Vog og hebreski bókstaf-
urinn „Lamed“. Jafnvægi, hlutir
fara aftur í sama horf, réttlætið
sigrar.
Spil IX, Einsetumaðurinn.
Stjörnumerkið Meyjan og bók-
stafurinn „Yod“. Viska, hagsýni,
þörf fyrir að hugleiða hluti í ein-
rúmi og leysa vandamálin sjálfur.
Spil X, Gæfuhjólið. Plánetan
Júpíter og bókstafurinn „Kaph“.
Breyting til hins betra, forlögin
brosa skyndilega við manni. Þrír
réttir í lottóinu á næstunni.
Spil XI, Styrkur (eða Losti í
sumum spilum). Stjörnumerkið
Ljón, bókstafurinn „Teth“. Hug-
rekki, orka, möguleiki á að fram-
kvæma ákveðin ætlunarverk.
Spil XII, Hengdi Maðurinn.
Frumefnið Vatn og bókstafurinn
„Mem“. Sjálfsfórn, ónauðsyn-
legir hlutir látnir fara. Málin ein-
földuð.
Spil XIII, Dauðinn. Stjörnu-
merkið Sporðdreki og bókstafur-
inn „Nun“. Umbreying, kring-
umstæður breytast hvort sem
maður vill það eður ei.
Spil XIV, Hófsemi (eða List í
sumum spilum). Bogmaður og
bókstafurinn „Samekh“. Sam-
eining ólíkra þátta. Úhugsuð
framkvæmd ber árangur.
Spil XV, Djöfullinn. Steingeit
og bókstafurinn „Ayin“. Metn-
aður, eigingirni (sem stundum
getur verið af hinu góða).
Spil XVI, Turninn. Plánetan
Mars, bókstafurinn „Peh“. Rifr-
ildi, kringumstæður taka al-
gjörum breytingum, vesen.
Spil XVII, Stjarnan. Stjörnu-
merkið Hrútur, stafurinn „Heh“.
Von, óvænt hjálp, nýir tímar.
Spil XVIII, Tunglið. Fiskarnir
og stafurinn „Qoph“. Tálsýnir,
draumar, blekkingar.
Spil XIX, Sólin. Tengist Sól-
inni og bókstafnum „Resh“.
Gróði, fé og frami. Sannleikur og
fjör.
Spil XX, Dómsdagur (eða
Öldin). Frumefnið Eldur og bók-
stafurinn „Shin“. Lokaákvörðun
tekin með tilliti til fortíðarinnar.
Nýir tímar. Uppgjör.
Spil XXI, Veröldin (eða Al-
heimurinn). Plánetan Satúrnus
og Frumefnið Jörð, bókstafurinn
„Tau“. Kjarni spurningarinnar,
úthald, þolinmæði. Allt gengur
upp á endanum.
Takið nú spilin föstum tökum
og lærið þetta allt utanbókar fyrir
næstu viku. Þá ætla ég að kenna
ykkur lögn sem notast við
trompspilin.
26 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 24. febrúar 1989