Þjóðviljinn - 24.02.1989, Qupperneq 30
Hvað á að gera um helgina?
Sigurður E. Guðmundsson
framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar
Pað sama og um sérhverja helgi, þá legg ég minn skerf til þess að
halda heimilinu hreinu. Ég er nefnilega ræstingakarl heimilisins, þvæ
gólf og hreinsa teppi, þetta er svona fjögra tíma vinna. Fyrir utan þetta
þá ligg ég í bókum og undirbý mig undir sænskutíma á þriðjudögum.
eb
MYNDLIST
Kristján Steingrímur sýnir mál-
verk í Nýlistasaf ninu Vatnsstíg,
hefst Id. 16.00, opin virka 16-20,
helgar 14-20, lýkur 12.3.
Edda MaríaGuðbjörnsdóttirsýnir
28 olíumálverk í Hafnarborg Hfirði,
hefstföd. 17.00, opin dagl. nema
þd 14-19.
Málverk e. Jónas Viðar í Gamla
Lundi Ak. Hefst Id. 16.00, opin virka
16-22, helgar 14-22. Lýkur 5.3.
Grafíksýning I Fjölbrautarskóla
Vesturlands Akranesi, 56 verk sem
skólinn hefur keypt, þar á meðal 10
verk e. Vigni Jóhannsson. Oþin föd.
16-20.30, ld.,sd. 14-20.30.
Ásgerður Búadóttir sýnir í Gallerí
Borg níu ofin verk, opið virka 10-
18, helgar 14-18., Iýkur28.2.
Þormóður Karlsson, olíaog akríl í
Djúpinu Hafnarstræti 15. Opin dagl.
11 -23.30, síðasta sýningarhelgi,
Iýkur2.3.
Björg Örvar sýnir 14 málverk í Ný-
höfn, Hafnarstræti, hefstld., opið
virka 10-18, helgar 14-18, lýkur
15.3.
„Steinn og stál.“ Grímur M.
Steindórsson sýnir í Bókasafni
Kópavogs Fannborg 3-5, opið
virka 10-21. Id. 11-14. Lýkur 28.2.
Dúkristur Guðbjargar Ringsted í
Alþýðubankanum Akureyri, lýkur
10.3.
Sigurður Örlygsson sýnir í FÍM-
salnum, Garðastræti 6, hefst Id.
17.00, opið 13-18 virka, 14-18
helgar, Iýkur14.3.
Elsa Rook frá Svíþjóð sýnir í Gallerí
List24 akrýlverk.Opiðdagl. 10.30-
18, sd. 14-18.
Listasafn Einars Jónssonar, opið
Id. sd. 13.30-16. Höggmyndagarð-
urinndagl. 11-17.
Listasafn íslands. Salur 1: Jón
Stefánsson, Jóhannes Kjarval,
Gunnlaugur Scheving. Salur2:
Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur
Jónsson. Aðrir salir: Ný aðföng.
Leiðsögn sd. 15.00. Opið nema
mánud. 11-17.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á
Laugarnesi, 50 verk Sigurjóns, 14-
17um helgar.
Mokkav/Skólavörðustíg, Ríkey
Ingimundardóttir sýnir um óákv.
tíma.
Gallerí Gangskör, opið þd.-föd.
12-18, verk gangskörunga til sýnis
og sölu.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, þjóðsagna- og
ævintýramyndir Asgríms til febrúar-
loka.dagl. 13.10-16nema mánu-
og miðvd.
SPRON, Álfabakka 14, Breiðholti,
verk eftir Sigurð Þóri Sigurðsson,
opið virka 9.15-16 nema föstud.
9.15-18. Lýkur31.3.
TÓNLIST
Tónlistarskólinn í Rvík og Sinfóníu-
hljómsveitin: Lokaprófstónleikar í
Langholtskirkju Id. 14.30,stj.Tu-
omas Pirilá, einleikur, einsöngur:
íris Erlingsdóttir(sópran), Katarína
Óladóttir (fiðla), Rosemary Kajioka
(flauta). Verk e. tónfræðinemana
EiríkÁrnaSigtryggsson, Eyþór
Arnalds, Hildigunni Rúnarsdóttur,
Þorvald B. Þorvaldsson, og e. We-
ber, Puccini, Donizetti, Bernstein,
Stravinsky.
Píanótónl. í Víðistaðakirkju Hfirði
sd. 15.00, GuðmundurMagnús-
son, Halldór Haraldsson, Jónas
Ingimundarson, Þorsteinn Gauti
Sigurðsson leika á nýjan flygil (Bö-
sendorfer).
Gítardúett í Kristskirkju Id. 15.30,
Torvald Nilsson og Símon ívarsson
leika verke. Vivaldi, Dowland, Sor,
Torroba.Albenizo.fi.
Einar Kristján Einarsson gítar-
leikari í Seyoisfjarðarkirkju föd.
20.30, í Egilsstaðakirkju Id. 17.00,
Safnaðarheimili Neskaupstaðar
sd. 17.00, verk e. Dowland, Sor,
Ponce, Heze o.fl.
LEIKLIST
Ferðin á heimsenda, nýtt barna-
leikrit e. Olgu Guðrúnu Árnadótt-
ur, leikstj. Ásdís Skúladóttir, í Iðnó
Id. 14..00 (frumsýning)sd. 14.00.
Brestir, nýtt leikrit e. Valgeir Skag-
fjörð, leikstj. Pétur Einarsson,
leikarar Egill Ólafsson, Pálmi
Gestsson, á litla sviði Þjlh. sd.
20.30 (frumsýning).
Mjallhvít í Leikbrúðulandi Fríkirkju-
vegi 11 sd. 15.00. Aðeins sýnt þrjá
næstu sd.
Hver er hræddur við Virginíu Wolf,
LAföd. 20.30, Id. 20.30.
Háskaleg kynni, Þjlh. föd., Id.
20.00.
Emil í Kattholti hjá LA, sd. 15.00.
Óvitar í Þjlh. Id., sd. 14.00.
„og mærin fór í dansinn...“ Nem-
endaleikhúsinu Lindarbæ, föd.
20.00, síðastasýning.
Sjang-Eng í Iðnó ld., föd., sd.
20.00.
Sveitasinfónían í Iðnó Id. 20.30.
Ævintýri Hoffmanns, Þjlh. föd.,
sd. 20.00, síðustu sýningar.
Koss kóngulóarkonunnar í Al-
þýðuleikhúsinu, kjallara Hlaðvarp-
ans föd. 20.30, sd. 17.00. Síðustu
aukasýningar.
Fróði hjá Leikfélagi Kópavogsföd.
17.00, Id. 14.00.
HITT OG ÞETTA
Pólitíká laugardegi, hádegisfund-
ir Þjóðviljans og ABR Id. 11 -14
Hverfisgötu 104 efstu hæð. Gestur
spjallfundarins: Svavar Gestsson
menntamálaráðherra.
MÍR-bíó Vatnsstíg 10 sd. 16.00.
„Sveitakennarinn“ frá '47, leikstj.
Mark Donskoj, Kennslukona fer frá
Pétursborg til Síberíu. Enskurtexti.
Ókeypisinn.
Félag eldri borgara, opið hús í
Tónabæ laugard. frá 13.30, dans-
kennsla 14.30-17.30. Opið hús sd.
í Goðheimum, Sigtúni 3, spjall, spil
og tafl frá 14, dansað 20-23.30.
Opið hús í Tónabæ mánud. frá
13.30, félagsvistfrá 14.00. Ath. Gó-
ugleði ÍTónabæ 11.3, miðarfástá
skrifstofu(s.28812).
Laugardagsganga Hana nú, lagt af
stað 10.00 frá Digranesvegi 12.
Samvera, súrefni, hreyfing.
Ferðafélagið. sd. 13.00: Skíðag-
anga á Hellisheiði, 600 kr. (frítt
undir 15), brottför austanvið
Umfmst.
Útivist, sd. 13.001) Fimmta land-
námsganga, Álfsnes-Saltvík. 2)
Skíðaganga á Mosfellsheiði frá
Leirvogsvatni. Hvorferð um sig 600
kr. Brottförvestanvið Umfmst, fríttf.
börnm.full.
Víkingarí Jórvíkog Austurvegi, í
Norræna húsinu og Þjóðminja-
safni, opin dagl. nema mánud. 11 -
18.
Kvikmyndaklúbburinn: Býflugn-
abóndinn, grísk-frönsk e. Theo
Angelopoulos, Regnboganum Id.
15.00.
Aldamótakonur í íslenskri mynd-
list, fyrirlestur Hrafnhildar Schram í
Hafnarborg Hfirði mánud. 20.30.
Opið hús hjá Kvennalistanum á
Nýju Vík Laugavegi 20 Id. frá 11,
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir tal-
ar um hugmyndafræði.
Aðalfundur Italsk-íslenska félags-
ins í Djúpinu, kjallara Hornsins, sd.
16.30.
Magnavaka í Hafnarborg, Hfirði Id.
frá 14.00, ýmsir listamenn með fjöl-
breytta dagskrá á vegum Málfund-
afélagsins Magna til styrktar flygils-
kaupum.
Sænsk bókakynning í Norræna
húsinu Id. 15.00, gestur Ernst
Brunner sem les úr verkum sínum
og spjallar um sænskar bók-
menntir.
Spekingahátíð Samfélagsins, fé-
lags þjóðfélagsfræðinema í HÍ föd.
20.00 í Garðsbúð Gamla garðs,
helguð Jóni Sigurðssyní. Fram-
sögumenn Einar Laxness, Matthí-
as Johannessen, Ólafur Ragnar
Grimssono.fi.
Umbi frumsýnir Kristnihald undlr
jökli Id. Stjörnubíó, leikstj. Guðný
Halldórsdóttir, aðall. Sigurjón Sig-
hvatsson, Baldvin Halldórsson.
ÍÞRÓTTIR
Handbolti. 1 .d.kv. Id. 14.00
Haukar-ÍBV, sd. 13.30 Valur-ÍBV,
2.d.ka. föd. 20.00 UMFN-ÍR, 1 .d.
Karfa. Árlegurstjörnuleikur í Kefla-
vík. Suðurnes-Landið.
Badminton. Unglingameistaramót
í TBR-húsum frá 15.30 Id. en 10.00
sd.
FJOLMIÐLAR
ÞROSTUR
HARALDSSON
Mjúku málin sækja á
Ekki alls fyrir löngu vitnaði ég
til samtals þeirra Sigrúnar Stef-
ánsdóttur og Indriða G. Þor-
steinssonar í Dægurmálaútvarpi
Rásar 2. Þar var helsta umræðu-
efnið kennsla í fjölmiðlun sem
Indriði hefur alltaf verið á móti.
Hins vegar lét Sigrún sér þar um
munn fara orð sem ég hef verið
að velta fyrir mér síðan.
Hún sagði eitthvað á þá leið við
Indriða að fréttamatið hefði
breyst frá því hann var ungur
maður að hefja störf við Tímann.
Það sem nú teldist frétt væri tölu-
vert frábrugðið því sem menn
töldu fréttnæmt um og upp úr
síðari heimsstyrjöld. Það sem
Sigrún var helst að höfða til voru
breytt viðhorf til hlutverka kynj-
anna.
Vissulega er það rétt að fram-
sókn kvenna í samfélaginu hefur
breytt hugmyndum fólks um það
hvað telst til frétta og hvað ekki.
Aðalástæðan er sennilega sú að
konum hefur farið fjölgandi með-
al blaðamanna og þær hafa borið
með sér breytt gildismat. Hlutfall
kvenna í stéttinni var ekki ýkja
hátt lengi framan af. Þegar Blað-
amannafélag íslands var endur-
reist árið 1934 var aðeins ein
kona í félaginu, Þórunn Hafstein
á Morgunblaðinu, og hún var
eina konan í félaginu fram í stríð
og jafnvel lengur. Konur fóru svo
að tínast inn í félagið eftir stríð og
um miðjan síðasta áratug voru
þær um 15% félagsmanna. Enn
hefur þeim fjölgað og nú skilst
mér að þær séu um það bil þriðj-
ungur félagsmanna.
Hins vegar hafa konur ekki
komist til mikilla metorða innan
fjölmiðlaheimsins. Um síðustu
áramót tók Silja Aðalsteinsdóttir
við starfi ritstjóra Þjóðviljans og
reyndist vera fyrsta konan sem
gegnir starfi ritstjóra á dagblaði
hérlendis. Ástandið hefur verið
öllu betra á Ríkisútvarpinu því á
fréttastofu útvarps var Margrét
Indriðadóttir fréttastjóri um nær
tveggja áratuga skeið. Ekki virð-
ast nýju ljósvakastöðvarnar ýta
mjög undir aukinn hlut kvenna,
þó ber að nefna að Sigurveig
Jónsdóttir mun vera titluð að-
stoðarfréttastjóri Stöðvar 2.
Undantekning frá þessu karl-
aríki eru tímaritin. Þar eru konur
víða í aðalhlutverkum og sums
staðar í öllum hlutverkum. Það
þótti saga til næsta bæjar á sfnum
tíma þegar allir þrír starfsmenn
sjómannablaðsins Víkings voru
af kvenkyni. Það var nú kannski
skemmtileg tilviljun en hitt er víst
að kannanir hafa sýnt að konur
eru miklu fjölmennari en karlar
sem kaupendur tímarita.
En hvaða áhrif hefur þessi
fjölgun kvenna í stéttinni haft á
efni fjölmiðla og það sem lagt var
upp með: fréttamatið? Hafa hlut-
irnir breyst verulega? Já, því er
óhætt að samsinna.
Það sem fyrst kemur upp í hug-
ann er merkilegt nokk að efni
sem áður fyrr var sérstaklega
beint til kvenna er nú ekki lengur
í afmörkuðum básum. Fyrir 20-
30 árum voru flest blöð með sér-
stakar „kvennasíður" þar sem
mataruppskriftir, umhirða barna
og ráð við blettahreinsunum voru
Sigrún Stefánsdóttir hefur vakið athygli á hlut kvenna í íslenskri fjöl-
miðlun.
uppistaðan. Nú er þetta efni
dreift út um allt og það sem meira
er: margt af því sem áður þótti
hvergi eiga heima nema á þessum
kvennasíðum þykir nú eiga fullt
erindi inn á helstu fréttasíður. Ég
nefni sem dæmi að ýmsir þættir
félagslegrar þjónustu komust
aldrei á fréttasíður nema ef hægt
var að nota þá til að berja á pólit-
ískum andstæðingum. Mjúk mál
sem svo eru nefnd hafa verið
dregin upp úr öskustónni og fá nú
að vera með á ballinu eins og
hörðu málin karlanna, pólitíkin
og peningamálin.
Áð sjálfsögðu helst þetta í
hendur við þjóðfélagsþróunina.
Bara sú staðreynd að karlkyns
blaðamenn nútímans taka meiri
þátt í umönnun barna sinna en
kynbræður okkar gerðu áður hef-
ur breytt viðhorfi okkar, víkkað
sjóndeildarhringinn. Sumir
streitast þó á móti eins og við-
mælandi Sigrúnar í þættinum
margnefnda sýndi og sannaði.
Ég held að þessi þróun eigi eftir
að halda áfram rétt eins og þjóð-
félagsþróunin heldur áfram að
brjóta niður þá múra sem hafa
aðskilið starfssvið karla og
kvenna. Og auðvitað á það að
vera þannig að fjölmiðlarnir sinni
öllum okkar áhuga- og
hagsmunamálum. Mjúku málin
snerta okkur öll þótt sumir vilji
ekki kannast við það eða telji þau
ekki eiga erindi í fjölmiðla.
30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 24. febrúar 1989